Morgunblaðið - 22.11.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 22.11.2021, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2021 ✝ Helgi Valtýr Sverresson fæddist 4. febrúar 1952 á Akranesi. Hann lést 8. nóv- ember 2021. Foreldrar hans voru Sverre Helgi Valtýsson, f. 1923, d. 1989, og Nanna (Dúa) Sigurð- ardóttir, f. 1922, d. 1989. Systkini Helga eru Sigurður Sveinn, f. 1957, og Auður Edda, f. 1961. Eftirlifandi eiginkona Helga er Vilborg Teitsdóttir, f. 1956. Börn þeirra eru: 1) Elsí Rós, f. 20. maí 1976, gift Dagbjarti Kr. Brynjarssyni, þau eiga tvö börn, Emmu Vilborgu og ónefndan dreng. 2) Sverre Valtýr, f. 11. ágúst 1987, giftur Maríu Björgu Magnúsdóttur, þau eiga tvö börn, Jóel Breka og Sigurrós Ylfu. Helgi var röntgentæknir að mennt og starfaði lengst af á Borgarspítalanum. Jarðarförin fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi 22. nóvember 2021 klukkan 13. Helgi bróðir minn var kannski aldrei sérlega upptekinn af bók- menntum. Í mínum hugsa náði hann engu að síður að sameina tvær gerólíkar skáldsagnaper- sónur í sjálfum sér. Önnur sögupersónan var hinn hugrakki Jónatan í sögu Astrid Lindgren, Bróðir minn ljóns- hjarta. Hin var Don Kíkóti úr samnefndri skáldsögu Cervan- tes. Helgi barðist af hugrekki Jón- atans við hverja þrautina á fætur annarri. Neitaði að gefast upp. Ríghélt í lífið þótt gæði þess væru æ naumar skömmtuð. Vonlaus barátta hans minnti um leið óneitanlega á söguna af Don Kí- kóta þar sem hann barðist við vindmyllurnar. Helgi fór í ótal teygjustökk til heljar og til baka aftur. Þegar á leið trosnaði teygjan smám sam- an og brast að lokum. Eftir stendur mynd af hjarta- hlýjum stóra bróður, sem af ótrú- legu æðruleysi neitaði að sleppa takinu á lífinu. Lífinu, sem lék hann samt svo skelfilega grátt í meira en tvo áratugi. Helgi var bróðir minn ljóns- hjarta. Sigurður Sveinn. Minningarnar úr æsku minni tengjast elsku Helga frænda mikið þar sem ég dvaldi oft og stundum lengi heima hjá Dúu frænku og Sverre á Akranesi. Ég var að verða tveggja ára þegar Helgi fæddist. Mikil vin- átta var á milli heimila okkar enda Dúa systurdóttir pabba. Ég á mynd af mér tveggja ára og hann u.þ.b. þriggja mánaða á gólfinu heima á Laugateig. Helgi var mér alla tíð góður vinur. Veit ekki hvernig það var fyrir hann að fá algjöra dekur- dúkku frænku sína í heimsókn. Hann var alltaf til í að gera alla hluti sem mér datt í hug og t.d. héldum við skírn á dúkkunum mínum og pabbi hans tók myndir af því; Helgi með prestakraga (al- vöru) og ég hélt dúkkunum undir skírn. Og ég mun aldrei gleyma hvað hann og fjölskylda hans gerðu fyrir jólin 1964 þegar ég fékk að dvelja hjá þeim í nokkra daga og taka þátt í jólaundirbún- ingi. Helgi frændi fékk erfitt hlut- skipti í lífinu, að takast á við óbærileg veikindi, en við hin horfðum á og fylgdumst með úr fjarlægð, þvílík harmsaga og ótrúlegur lífsvilji hans. Elsku Auður Edda, Siggi og fjölskyldur, innilegar samúðar- kveðjur til ykkar. Elsku Vilborg, Elsí Rós, Sverre og fjölskyldur, þið eruð það besta sem frændi átti. Innilegar samúðarkveðjur frá okkur Lúlla. Sigrún Böðvarsdóttir. Fyrir nærri fjörutíu árum varð til hópur gamalla og nýrra vina sem ákvað að hittast reglulega. Úr varð matarklúbbur sem síðar fékk nafnið Depra og hafði það að markmiði að borða saman, fara í bústaðaferðir og utanlandsferðir. Í hópnum voru fern hjón, þar á meðal Helgi og Vilborg. Sam- verustundirnar urðu ófáar og eig- um við margar skemmtilegar minningar, þar sem Helgi var alltaf hrókur alls fagnaðar, manna hressastur með hávaða, galsa og gleði. Allir sem hafa um- gengist Helga muna eftir tilbún- um lúðrablæstri, hnyttnum til- svörum og hlátrasköllum. Aldrei var lognmolla þar sem Helgi var og oft fékk hópurinn augngotur og glott frá nærstöddum, fyrir gauragang og gleði. Allt of snemma fór Helgi að kenna alvarlegs heilsubrests og urðu samverustundirnar smám saman færri og rólegri. Þrátt fyr- ir veikindin heyrðum við Helga aldrei kvarta en með „gálgahúm- or“ gerði hann grín að ástandi sínu. Í veikindum Helga hefur Vilborg staðið eins og klettur við hlið hans, stutt hann, hvatt og leitt áfram í erfiðleikunum. Aftur er höggvið skarð í hópinn okkar en fyrir fjórtán árum lést Villi sem var einn af hópnum og nú eru bernskuvinirnir Helgi og Villi örugglega eitthvað að prakkarast saman í Sumarlandinu. Helgi var mikil félagsvera og tók þátt í störfum ýmissa félaga- samtaka en þar áttu skátarnir stærstan sess í hjarta hans. Með skátunum starfaði hann frá barnsaldri og meðan heilsa entist til. Í anda skátanna var hjálpsemi og nærgætni ávallt í fyrirrúmi og var hann góður lagsmaður. Elsku Vilborg og fjölskylda, við vinirnir sendum okkar inni- legustu samúðarkveðjur til ykkar allra. Við vitum að söknuður ykk- ar er mikill en minningin um góð- an dreng sem Helgi var mun lifa lengi meðal okkar allra. Aðalheiður, Anna Rósa, Halldór, Georg og Jensína. Helgi vinur okkar hefur nú fengið hvíld eftir langvinn veik- indi. Hann tók þeim sjúkdómum sem hrjáðu hann af aðdáunar- verðri rósemi og æðruleysi, kvartaði ekki og lét mótlætið aldrei buga sig. Í lífi Helga hefur skátahreyf- ingin komið mjög við sögu, en hugmyndafræði hennar var sterkur þáttur í lífssýn og áhuga- málum hans. Hann kynntist Vil- borgu konunni sinni á vettvangi skátanna og börn þeirra, Elsí Rós og Sverre Valtýr, tóku þar þátt frá unga aldri. Í veikindunum hef- ur það verið gæfa Helga að eiga þau að, en þau hafa alltaf staðið eins og klettar við hlið hans. Helgi hefur alltaf verið ein- stakur og á unglingsárum kom í ljós að hann var engum líkur. Fyrir þá sem voru með honum í skátastarfinu á Akranesi voru samveran, útilegurnar og skáta- mótin ógleymanleg. Þarna var lagður grunnur að ævilangri vin- áttu margra sem hafa síðan tengst sterkum böndum. Helgi hafði á þessum tíma verið í MA á Akureyri og var nokkrum árum eldri en stór hluti hópsins. Hann hafði sérstakan húmor, var kvik- ur í hreyfingum, hraðmæltur og með óborganlega orðaleiki á vörum. Hann gat hermt eftir nán- ast öllu, hvort sem það voru fugla- hljóð, trompetleikur, kappakstur eða kakóvélin á Mokka. Best þótti hann þó ná sér upp við að syngja og flytja lög hljómsveita eins og Led Zeppelin, með öllu sem tilheyrði. Það var alltaf skemmtilegt þar sem Helgi var. Helgi varð snemma ábyrgur fjölskyldufaðir. Hann bjó að mik- illi lífsreynslu eftir að hafa unnið lengi framan af ævi á spítölum, en hann var menntaður röntgen- tæknir. Þau Vilborg voru vina- mörg og á heimili þeirra var oft töluverður gestagangur, alltaf mikið spjallað og nóg heitt te á katlinum. Helgi hafði mótaða lífs- sýn og ákveðnar skoðanir, sem hann hélt á lofti. Hann var að eðl- isfari ótrúlega lífsglaður, en líka hlýr og mikill vinur vina sinna, sanngjarn og sjálfum sér sam- kvæmur. Þau eru orðin mörg árin og margs að minnast. Eitt af því sem situr sterkt í minningunni eru all- ir aðfangadagsmorgnarnir á heimili Helga og Vilborgar, en við höfum hist þar um árabil fjöl- skyldur nokkurra vina. Þar var glatt á hjalla, góður jólamatur og skipst á óvenjulegum smágjöfum sem þurfti að geta upp á til hvers væru notaðar. Aðrir stórir þættir í samverunni voru m.a. sunnu- dagsbrönsar og ferðir innanlands og erlendis. Í áraraðir hittust svo fjölskyldurnar í stórum hópi eldri skáta í útilegum í Skorradal um verslunarmannahelgar. Við viljum að leiðarlokum senda Vilborgu, Elsí Rós, Sverre Valtý og fjölskyldum þeirra okk- ar innilegustu samúðarkveðjur, með þökkum fyrir nána vináttu og góðar samverustundir. Þorvaldur og Guðrún. Hann Helgi okkar var engum líkur. Hann var fyrirferðarmikill unglingur þegar við kynntumst honum í skátunum, allt fór á hreyfingu í kringum hann. Hann var hávaðasamur, uppátækja- samur, nýjungagjarn, hann hafði blæti fyrir alls konar nýjungum og misnytsamlegum áhöldum og dóti. Helgi gat verið hávær, hann gat brostið í söng á endurteknum línum úr þekktum söngtextum sem hann hafði íslenskað á sinn einstaka hátt. Hann hermdi eftir heilli lúðrasveit og var sérfræð- ingur í hljóðum alls konar véla og tækja s.s. kaffivélarinnar á Mokka og hárúðaragræjunnar hjá Jóni rakara. Hann var skemmtilegur og áberandi og laðaði að sér fólk hvar sem hann var. Hann var gjarnan hreyfiafl ýmissa uppá- tækja. En fyrir okkur var Helgi fyrst og fremst góður og traustur vinur og saman höfum við allt frá ung- lingsárum farið í gegnum súrt og sætt og fyrir hverja þá stund er- um við þakklát. Með Helga og okkar kæru Vilborgu, Elsí og Sverre eigum við fjölskyldan margar og stórar minningar og sama má segja um okkar stóra vinahóp sem hefur tengst sterk- um vinaböndum frá því í skátun- um á unglingsárunum. Helgi hafði mikil áhrif á okkur sem yngri vorum með uppátækj- um sínum, gleði og tryggri vin- áttu. Að fylgja honum í gegnum áföllin sem hann hefur orðið fyrir hefur ekki síður haft áhrif á okkur og höfum við séð inn í heim sem er okkur flestum framandi. Ítrekað höfum við spurt okkur hvað er hægt að leggja á einn mann og hvernig getur nokkur maður stað- ið slíkt af sér. Minningar um samveruna á að- fangadagsmorgun sem hefur ver- ið nánast óslitin í yfir þrjátíu ár eru okkur nú afar dýrmætar. En í langan tíma hefur lífshlaup Helga verið honum afar erfitt og átakamikið vegna alvarlegra veik- inda. Veikindi sem hafa á allan hátt haft mikil áhrif á hann per- sónulega og hans nánustu. Æðru- leysið sem Helgi sýndi í gegnum hvert áfallið af öðru er einstakt og styrkurinn sem fjölskyldan sýndi og tryggðin er engu lík. Með þakklæti fyrir vináttuna og öll ævintýrin kveðjum við kær- an vin sem hefur nú lokið harðri baráttu sem allt of oft var upp á líf og dauða. Jakob Þór og Valgerður (Valla). Helgi Valtýr Sverresson ✝ Petra Jóns- dóttir fæddist á Siglufirði 25. mars 1931. Hún lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða á Akranesi 7. nóvember 2021. Foreldrar Petru voru hjónin Helga Jóhannesdóttir, f. 29.5. 1890, d. 24.11. 1971, og Jón Anton Gíslason, f. 23.1. 1889, d. 8.5. 1973, sem bjuggu alla tíð í Suð- urgötu 37 á Siglufirði. Petra var næstyngst af átta systkinum. Þau eru Hrönn, Ragnheiður, Anna Día, Snorri, Árið 1973 kynntist hún manni sínum, Ragnari Gunn- arssyni, f. 17.9. 1929, d. 3.5. 2015, skipasmið og flutti með honum á Akranes þar sem hún bjó síðan. Þar starfaði hún á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða þar til hún fór á eftir- laun. Petra eignaðist ekki börn en börn Ragnars, sem á þessum tíma voru frá tíu ára aldri til tvítugs, eru sex; Ragnheiður, Rósa, Björn, Gunnar, Elísabet og Lilja, og barnabörn Ragnars voru hennar ömmubörn. Útför Petru fer fram frá Akraneskirkju í dag, 22. nóv- ember 2021, klukkan 15. Streymt verður frá útförinni: https://www.akraneskirkja.is Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Jóhannes, Unnur og Vilborg. Öll lát- in nema Vilborg. Petra bjó í rúm fjörutíu ár á Siglu- firði. Hún aðstoð- aði móður sína við umönnun og heim- ilishald eftir að fað- ir hennar fékk heilablóðfall, en hann lifði í 20 ár eftir það áfall. Petra vann í síldinni eins og flestir á þeim tíma og hjá Neta- gerð Jóns Jóhannessonar og var systkinum sínum innan handar með barnapössun og fleira. Hún vann 1972-73 á Skógaskóla. Það var þríeykið afi, amma og Petra sem tóku á móti okkur þeg- ar við komum til sumardvalar á Siglufirði. Það brást ekki að Petra var úti í dyrum þegar við rennd- um í hlaðið. Hún gladdist svo inni- lega að sjá okkur þótt við blasti að hún var að fá yfir sig ærslafullan barnaskara í þetta litla hús til sumardvalar. Barnabörnin sem sóttu til afa og ömmu voru tæp- lega þrjátíu. Í húsi afa og ömmu var aldrei hastað á neinn. Engar umvandanir. Kandís var gjarna lausnin. Auðvitað alltaf þegar maður átti það skilið en líka þegar maður átti það ekki skilið. Það var áhrifaríkast. Petra var ömmu samstiga og spilaði á okkur eins og hljóðfæri. Henni fannst við svo sniðug. Svo aðdáunarverð. Svo framúrskarandi. Svo þæg. Að lokinni sumardvöl var kveðjustundin við þríeykið erfið. Amma með tár á hvarmi. Það sá á manni eftir að kyssa afa með þetta grófa og harðgerða skegg. Petra fylgdi okkur út á hlað og veifaði svo lengi sem hún var í augsýn. Petra annaðist afa og ömmu þar til yfir lauk. Það var fyrst þá sem hún hleypti heimdraganum. Hún var svo ákveðin í því að njóta lífsins og stofna sína fjölskyldu. Draumaprinsinn sinn fann hún í sex barna einstæðum manni, hon- um Ragnari Gunnarssyni af Skaganum. Þau áttu hamingju- ríkan tíma og Petra átti gott sam- band við börnin hans og barna- börn sem hún gerði að sínum. Þeirra hamingja entist þar til Ragnar féll frá 2015. Hún saknaði hans sáran. Petra tók vel á móti ættingjum á heimili sínu á Akranesi. Gest- risni hennar var viðbrugðið. Helst voru á borðum hjá henni þær sætabrauðstegundir sem boðið var upp á á Siglufirði forðum. Hún var þakklát fyrir heimsóknir og hvaðeina sem fyrir hana var gert. Ef hún þurfti að biðja um greiða eða aðstoð þakkaði hún fyrir með því að undirstrika: „Hvað hún amma þín hefði nú verið ánægð með þig núna.“ Hún hélt til síðasta dags þeim sið að fylgja gestum, ekki aðeins að dyrum, heldur út á hlað og veifaði þar til hún hvarf úr aug- sýn. Olga G, Engilbert, Jón HB og Hlynur Snorrabörn. Við andlát Petru kemur í hug- ann lítil jólamynd: Öll barnabörnin hennar ömmu Helgu komu í litla húsið á Suð- urgötu 37 á aðfangadagskvöld, hvernig sem viðraði. Ég man eftir því að hafa paufast gegnum snjó- inn með foreldrum mínum og systkinum alla leið heim til ömmu og afa. Þar tók Petra á móti okk- ur, burstaði af okkur snjó og kom skóm og yfirhöfnum einhvern veginn fyrir í þessari litlu for- stofu. Þegar inn var komið mætti okkur hópur af börnum og for- eldrar þeirra því systur Petru og bræður voru afar iðin við barna- framleiðslu. Hvernig allur þessi skari komst fyrir í húsinu er ráð- gáta. Allir fengu heitt kakó og kökur. Það var skipst á gjöfum, gengið kringum jólatré og sungið. Allir grislingarnir héldust í hend- ur og gengu í mjög óreglulegum hring sem liðaðist úr stofunni, inn í svefnherbergi, aftur inn í stofu, þaðan í eldhúsið og aftur í stof- una. Þegar hópurinn stækkaði var jafnvel farið fram í forstofu, inn í herbergið „fyrir handan“ og til baka. Stundum var innri hring- ur til að allir gætu verið með. Jólatréð sem Petra hafði skreytt hafði afi smíðað. Það var tréstofn með skásettum pinnum sem voru vafðir með grænum pappírsræm- um. Á hverri grein var lítil klemma með skál fyrir kerti svo það voru lifandi ljós á þessu glæsilega tré. Seinna áttaði ég mig á því að það var alltaf einhver pabbinn úti í horni með vatnsfötu og blautt handklæði ef ljósadýrð- in færi úr böndunum. Petra stjórnaði hringdansinum og sá til þess að allir væru með. Hún var jú frænka okkar allra og hennar er sárt saknað. Jens Þórisson. Að alast upp við Suðurgötuna á Siglufirði voru forréttindi. Móðir mín og öll systkini hennar fædd- ust í húsi ömmu og afa við Suð- urgötu 37. Mamma og pabbi stofnuðu heimili í húsinu nr. 47 og á móðir mín þar lögheimili ennþá. Þar ólumst við systkinin upp og í minningunni frá uppvaxtarárum okkar er Petra systir mömmu í stóru hlutverki. Hún var næst- yngst af átta systkinum og var ávallt hjá Helgu ömmu og Jóni afa og annaðist þau af alúð, en afi var mikið fatlaður eftir heilablóð- fall. Oft á leið minni heim úr skól- anum eftir Suðurgötunni í sigl- firskum snjóbyl og nálgaðist húsið þeirra var bankað í eldhús- gluggann og gardínunni lyft. Skilaboðin voru að koma strax inn í ylinn. Á eldhúsbekknum stóð skrautmálað brauðboxið með smurðu og nýbökuðu sætabrauði, heitt vatn sótt á kolaeldavélina og blandað kakó. Þetta voru mót- tökur ömmu og Petru. Góðar veit- ingar og, umfram allt, umhyggja og ást. Þarna sat maður á stólnum við kolaeldavélina og fékk ylinn í kroppinn. Heyrði snarkið þegar eldurinn logaði í spýtukubbum sem afi með ótrúlegum viljastyrk var búinn að saga niður fyrir elda- vélina og voru þeir allir nákvæm- lega jafn stórir. Þær voru miklar vinkonur systurnar mamma og Petra en hún kom í heimsókn í kaffisopa á hverjum degi og þær ræddu mál- in. Ein af minningum mínum er sláturtíðin. Systurnar mamma, Petra og Anna Día „sem var hús- mæðraskólagengin“ tóku á hverju ári saman slátur og þá var nú mikið um að vera í eldhúsinu heima. Þá var eins gott að vera ekki nálægt þeim systrum þegar verið var að verka vambir, sauma, brytja mör, hræra blóð og hakka lifur. Eldhúsið var allt undirlagt. Þá voru þær sko í essinu sínu þarna systurnar; blóðugar svunt- ur, svitadropar á enni. Um kvöld- ið ummm … nýsoðin lifrarpylsa og blóðmör með sykri. Svakalega var þetta góður matur! Þetta var æðislegur tími og samheldni þeirra systra var mikil. Eftir að amma og afi féllu frá fór Petra suður. Hún vildi freista gæfunnar og var ákveðin í að njóta lífsins. Fyrst vann hún í héraðsskólanum á Skógum undir Eyjafjöllum hjá Snorra bróður sínum og Olgu en þaðan fór hún í höfuðborgina, þar sem hún kynntist Ragnari sínum. Þau stofnuðu heimili á Akranesi, voru ávallt ástfangin upp fyrir haus, allt til enda. Petra átti í góðu sam- bandi við móður Ragnars og börnin hans sex, hún starfaði við umönnun á hjúkrunarheimilinu Höfða, það starf var henni eðlis- lægt og eignaðist hún þar marga góða vini úr hópi starfsmanna og skjólstæðinga. Hjónin voru dugleg að ferðast, innanlands og utan, Petra fór meira að segja margar ferðir um hálendið með hópi hestamanna, nokkuð sem mér hefði aldrei dott- ið í hug að hún ætti eftir að gera. Hún ljómaði þegar hún var að segja magnaðar hestamannasög- ur með Ragnari sínum og líka frá ferðalögunum til Noregs þar sem þau heimsóttu son Ragnars. Það var alltaf gaman að heim- sækja Petru og Ragnar á Akra- nesi; Ragnar sá um hressilegt spjall og Petra um kaffið, veiting- arnar og hlýjuna. Þau voru virki- lega lánsöm hvort með annað. Ég þakka Petru frænku sam- fylgdina. Birgir Ingimarsson, sonur Lillu. Petra Jónsdóttir HINSTA KVEÐJA Til Petru frænku. Blómin falla, fölskva slær á flestan ljóma. – Aldrei hverfur angan sumra blóma. Þannig varstu vinur, mér sem vorið bjarta. Það sem gafstu geymist mér í hjarta. Ilma sprotar, anga lauf, sem aldrei falla. Drottinn launi elskuna þína alla. (Sigurbjörn Einarsson) Þorbjörg Þórisdóttir (Tobba).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.