Morgunblaðið - 22.11.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 22.11.2021, Síða 26
Ljósmynd/Þórir Tryggvason Harka Varnarmenn KA taka vel á Atla Má Bárusyni, leikmanni Hauka, í leik liðanna á Akureyri í gær. HANDBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Grótta sleit sig frá neðstu liðum Ol- ísdeildar karla í handbolta í gær- kvöldi með því að vinna 26:22- útisigur á Víkingi. Úrslitin þýða að Grótta er með fimm stig, fimm stigum meira en HK og Víkingur sem eru að heltast úr lestinni. HK og Víkingur fóru saman upp úr 1. deildinni á síðustu leiktíð en hafa átt í erfiðleikum í deild þeirra bestu og enn ekki náð í eitt einasta stig. Ágúst Emil Grétarsson var í stuði fyrir Gróttu og skoraði átta mörk, en liðið hefur unnið tvo leiki í röð eftir hæga byrjun. Hamza Ka- blouti skoraði sjö í sínum fyrsta leik fyrir Víking. Hafnarfjarðarliðin efst Á hinum enda deildarinnar eru Haukar með 16 stig og áfram með þriggja stiga forskot á granna sína í FH eftir sigur á KA á útivelli, 32:29. Haukar hafa leikið sex leiki í röð án taps og líta vel út. FH vann 30:27-sigur á Fram. Eftir góða byrjun á tímabilinu hef- ur Fram tapað þremur leikjum í röð. FH hefur, eins og grannarnir í Haukum, leikið sex í röð án taps og unnið fimm af þeim. Ásbjörn Frið- riksson fór á kostum og skoraði ell- efu mörk fyrir FH. Valur fer með sigri á Aftureldingu á morgun upp í 14 stig og aftur upp í annað sætið. Valur á tvo leiki til góða á Hauka. Gróttumenn skildu HK og Víking eftir á botninum - Nýliðarnir enn stigalausir - Hafnarfjarðarliðin á skriði - Valur stendur vel 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2021 England Burnley – Crystal Palace........................ 3:3 - Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn með Burnley. Leicester – Chelsea.................................. 0:3 Aston Villa – Brighton ............................. 2:0 Newcastle – Brentford ............................ 3:3 Norwich – Southampton.......................... 2:1 Watford – Manchester United................ 4:1 Wolves – West Ham................................. 1:0 Liverpool – Arsenal.................................. 4:0 Manchester City – Everton..................... 3:0 Tottenham – Leeds .................................. 2:1 Staðan: Chelsea 12 9 2 1 30:4 29 Manch. City 12 8 2 2 25:6 26 Liverpool 12 7 4 1 35:11 25 West Ham 12 7 2 3 23:14 23 Arsenal 12 6 2 4 13:17 20 Wolves 12 6 1 5 12:12 19 Tottenham 12 6 1 5 11:17 19 Manch. Utd 12 5 2 5 20:21 17 Brighton 12 4 5 3 12:14 17 Crystal Palace 12 3 7 2 18:17 16 Everton 12 4 3 5 16:19 15 Leicester 12 4 3 5 16:21 15 Southampton 12 3 5 4 11:14 14 Brentford 12 3 4 5 16:17 13 Aston Villa 12 4 1 7 16:20 13 Watford 12 4 1 7 16:20 13 Leeds 12 2 5 5 12:20 11 Burnley 12 1 6 5 14:20 9 Norwich City 12 2 2 8 7:27 8 Newcastle 12 0 6 6 15:27 6 C-deild: Fleetwood – Morecambe ........................ 1:2 - Jökull Andrésson lék allan leikinn með Morecambe. Þýskaland Bayern München – Jena ......................... 3:0 - Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik- inn með Bayern. Karólína Lea Vilhjálms- dóttir var utan hóps. B-deild: Werder Bremen – Schalke ..................... 1:1 - Guðlaugur Victor Pálsson lék fyrri hálf- leikinn með Schalke. Ítalía Bikarkeppnin, 32-liða úrslit Cittadella – AC Milan.............................. 0:2 - Guðný Árnadóttir lék allan leikinn með AC Milan B-deild: Pisa – Benevento ..................................... 1:0 - Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn með Pisa. Holland AZ Alkmaar – Nijmegen ........................ 1:1 - Albert Guðmundsson lék fyrstu 64 mín- úturnar með AZ Alkmaar. Belgía B-deild: Deinze – Lommel ..................................... 3:3 - Kolbeinn Þórðarson lék fyrstu 69 mín- úturnar með Lommel og skoraði. Tyrkland Altay – Adana Demirspor ...................... 1:3 - Birkir Bjarnason kom inn á hjá Adana Demirspor á 68. mínútu. Kýpur Apollon Limassol – Lympion ............... 18:0 - Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir lék fyrri hálf- leikinn með Apollon og skoraði. Skotland Celtic – Aberdeen .................................... 3:1 - María Ólafsdóttir Gros lék fyrstu 71 mínútuna fyrir Celtic. Danmörk Nordsjælland – Silkeborg ...................... 1:1 - Stefán Teitur Þórðarson lék fyrstu 79 mínúturnar með Silkeborg. Fortuna Hjörring – Bröndby ................. 4:1 - Barbára Sól Gísladóttir lék allan leikinn með Bröndby. Svíþjóð B-deild: Brage – Värnamo .................................... 3:1 - Bjarni Mark Antonsson lék fyrstu 75 mínúturnar með Brage. Örgryte – Helsingborg ........................... 1:1 - Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með Helsingborg. Sundsvall – Öster..................................... 1:1 - Alex Þór Hauksson lék allan leikinn með Öster og lagði upp mark. Noregur Bodö/Glimt – Lilleström ........................ 2:0 - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Sandefjord – Brann................................. 2:2 - Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn með Sandefjord og skoraði. Strömsgodset – Mjöndalen..................... 1:2 - Ari Leifsson lék allan leikinn með Strömsgodset en Valdimar Þór Ingimund- arson var allan tímann á bekknum. Vålerenga – Tromsö ............................... 1:1 - Viðar Örn Kjartansson lék ekki með Vålerenga vegna meiðsla. - Adam Örn Arnarson lék seinni hálfleik- inn með Tromsö og skoraði. Viking – Haugesund................................ 1:1 - Patrik Sigurður Gunnarsson markvörð- ur og Samúel Kári Friðjónsson léku allan leikinn með Viking. 50$99(/:+0$ Aldís Kara Bergsdóttir, skautakona úr SA, bætti þrjú Íslandsmet í full- orðinsflokki á Íslandsmótinu í list- hlaupi á skautum í Skautahöllinni í Laugardal um helgina. Fyrsta met- ið bætti hún í stuttu prógrammi á laugardag, sem er oft kallað skylduæfingar. Hún fékk afar góðar fram- kvæmdareinkunnir og alls 47,31 stig. Þá fékk hún 27,63 tæknistig, sem er tveggja stiga bæting á henn- ar mánaðar gamla Íslandsmeti. Aldís var aftur á ferðinni í gær og bætti þá við tveimur Íslandsmetum. Hún fékk 88,83 stig fyrir frjálsar æfingar, sem er nýtt Íslandsmet, og fékk því alls 136,40, sem er einnig nýtt Íslandsmet. Hún átti öll þrjú metin sjálf. Aldís Kara er á fullu í undirbún- ingi fyrir Evrópumeistaramótið sem fer fram í janúar næstkomandi. Í beinu framhaldi af því móti er Norðurlandamótið (Nordics Open) og Reykjavík International Games. Ljósmynd/Skautasamband Íslands Íslandsmet Aldís Kara Bergsdóttir bætti eigið Íslandsmet í Skautahöll Reykjavíkur á laugardaginn. Hún er fremsta skautakona landsins. Þrjú Íslandsmet í Laugardalnum ÍBV tryggði sér um helgina sæti í 16-liða úrslitum Evrópubikars EHF í handbolta í kvennaflokki. Eyja- konur unnu þá gríska liðið Pano- rama samanlagt 55:44 í tveimur leikjum, en báðir leikirnir voru spil- aðir í Vestmannaeyjum. ÍBV vann fyrri leikinn á laugar- dag 26:20. Harpa Valey Gylfadóttir skoraði átta mörk fyrir ÍBV og Sara Dröfn Richardsdóttir gerði sex mörk. Eyjakonur voru því í góðri stöðu fyrir seinni leikinn í gær og eftir 29:24-sigur var ljóst að ÍBV færi áfram með sannfærandi hætti. Marija Jovanovic skoraði átta mörk fyrir ÍBV í seinni leiknum og þær Lina Cardell og Harpa Valey gerðu sex mörk hvor. Harpa var marka- hæst í einvíginu með 14 mörk. ÍBV líður vel gegn grískum andstæð- ingum því liðið vann A.C. PAOK í umferðinni á undan. Meistararnir úr leik Íslandsmeistarar KA/Þórs eru úr leik í keppninni eftir samanlagt 40:43-tap gegn spænska liðinu Elche. Báðir leikirnir voru spilaðir ytra. Elche fagnaði 22:18-sigri í fyrri leiknum á laugardag og dugði KA/Þór því ekki 22:21-sigur í seinni leiknum í gær. Unnur Óm- arsdóttir og Rakel Sara Elvars- dóttir voru markahæstar í liði KA/ Þórs í fyrri leiknum með fjögur mörk hvor. Unnur lék aftur vel í seinni leikn- um og skoraði þá átta mörk. Ásdís Guðmundsdóttir og Rakel Sara Elv- arsdóttir skoruðu fjögur hvor. Í síð- ustu umferð sló KA/Þór út meist- arana frá Kosóvó, KHF Istogu, en er nú úr leik. Fagnað í Eyjum en Akureyringar úr leik Ljósmynd/Sigfús Gunnar Drjúg Harpa Valey Gylfadóttir lék vel um helgina fyrir Eyjakonur. _ Aalesund tryggði sér á laugardag sæti í úrvalsdeild Noregs í fótbolta með 4:2-heimasigri á Ull/Kisa. Aalesund er í öðru sæti B-deildarinnar með 58 stig, fjórum stigum á undan Jerv í þriðja sætinu þegar ein umferð er eftir. Efstu tvö liðin fara beint upp um deild. Davíð Kristján Ólafsson gulltryggði 4:2-sigur Aalesund með lokamarki leiksins á fjórðu mínútu uppbótartímans með sínu öðru deildarmarki á tímabilinu. Davíð lék allan leikinn. _ Nimes vann á laugardag 2:1- heimasigur á Quevilly Rouen í frönsku B-deildinni í fót- bolta. Liðið hefur nú unnið tvo leiki í röð í deildinni eftir níu leiki í röð án sigurs. Elías Már Ómarsson skoraði jöfnunarmark Nim- es á 27. mínútu eftir að gestirnir höfðu komist yfir á 16. mínútu. Elías var tekinn af velli á 82. mínútu. Hann hefur nú skorað tvö deildarmörk á leiktíðinni en markið var það fyrsta í deildinni hjá framherjanum síðan 7. ágúst. _ Knattspyrnudeild Þróttar hefur sam- ið við Kötlu Tryggvadóttur um að leika með liðinu næstu tvö tímabil hið minnsta. Katla kemur til liðsins frá Val. Katla, sem fæddist árið 2005, á leiki í efstu deild og Evrópukeppni þrátt fyrir ungan aldur. Einnig hef- ur hún verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands. _ Cluj vann 2:0-útisigur á U Craiova í efstu deild rúmenska fótboltans á laug- ardagskvöld. Rúnar Már Sigurjónsson lék sinn fyrsta deildarleik í mánuð en hann hefur verið frá vegna meiðsla. Skagfirðingurinn hélt upp á endurkom- una með því að skora á 65. mínútu en hann kom inn á sem varamaður í upp- hafi seinni hálfleiks. Rúnar hefur skorað tvö mörk í deildinni á leiktíð- inni en Cluj er með ellefu stiga for- skot á toppnum eftir 16 leiki. _ Knattspyrnudeild ÍBV og miðju- maðurinn Alex Freyr Hilmarsson hafa gert samkomulag um þriggja ára samning. Alex kemur til Eyjamanna frá KR, en hann var að láni hjá Kór- drengjum í 1. deild á síðustu leiktíð. Hann er 28 ára og skoraði tvö mörk í níu leikjum Kórdrengja og lék níu leiki með KR. Alex er uppalinn hjá Sindra á Hornafirði og hefur einnig leikið með Grindavík og Víkingi Reykjavík. Í 104 leikjum í efstu deild hefur Alex skor- að 16 mörk. ÍBV endaði í öðru sæti í 1. deild á síðustu leiktíð og tryggði sér sæti í deild þeirra bestu. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.