Morgunblaðið - 22.11.2021, Síða 22

Morgunblaðið - 22.11.2021, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2021 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald Húsaviðgerðir www.husco.is Sími 555 1947 Gsm 894 0217 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9-12. Botsía með Guðmundi kl. 10. Spænskukennsla kl. 11. Handa- vinna kl. 12-16. Félagsvist kl. 12.45. Glervinnustofa kl. 13-16. Hádegis- matur kl. 11.30-12.30. Heitt á könnunni. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Boðinn Leikfimi Qi-gong kl. 10.30. Bingó kl. 13. Myndlist kl. 13. Sund- laugin er opin frá kl. 13.30-16. Dalbraut 18-20 Brids kl. 13. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qi-gong kl. 7-8. Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Postulínsmálun kl. 9-12. Morgunleikfimi með Hall- dóru á RUV kl. 9.45-10. Ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10.Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30. Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12.40. Brids og tvímenningur í Jónshúsi kl. 12.30-15.30. Stólajóga kl. 11 í Kirkjuhvoli. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 15 / 15.40 og 16.20. Zumba Gold kl. 16.30. Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa. Kl. 9 til 10.30 botsía í hreyfisal. Kl. 9-11.30 postulínsmálun á verkstæði. Kl. 10.50 til ca 12.15 jóga í hreyfisal. Kl. 13-16 opin handavinnustofa og verkstæði. Kl. 13.15 til ca 15 kanasta í aðalsal. Kl. 16.30-18.30 kóræfing hjá Söng- vinum í aðalsal. Grafarvogskirkja Á morgun, þriðjudaginn 23. nóvember, verður opið hús í Grafarvogskirkju fyrir eldri borgara. Opna húsið er kl. 13- 15. Margt er til gamans gert. Boðið er upp á kaffi og meðlæti að opna húsinu loknu. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir. Kyrrðarstund hefst kl. 12. Að henni lokinni er hádegisverður gegn vægu gjaldi. Allir hjart- anlega velkomnir! Gullsmári 13 Handavinna kl. 9. Qi-gong heilsueflandi æfingar kl. 10. Handavinna kl. 13. Brids kl. 13. Jóga kl. 17. Félagsvist kl. 20. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli kl. 9-11. Jóga með Sirrí kl. 10-11. Sögustund kl. 12.10-13.30. Samsöng- ur kl. 13.30, allir velkomnir, sönghefti á staðnum, veitingar seldar eftir. Hraunsel Billjard kl. 8-16. Myndlistarklúbbur kl. 9. Stóla-jóga kl. 10. Félagsvist kl. 13. Gaflarakórinn kl. 11. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Minningahópur kl. 10.30. Jóga með Ragnheið Ýr kl. 12.20. Zumba með Carynu kl. 13.10.Tálgun, opinn hópur kl. 13-16. Brids kl. 13. Gönguhópur, lengri ganga kl. 14. Botsía kl. 14.15. Hádeg- ismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er kaffispjall í setustofu milli kl. 10.30-11.30. Bókabíllinn Höfðingi heimsækir okkur Skúlagötumegin kl. 13.10-13.30. Eftir hádegi, kl. 13.15-14 spilum við botsía í setustofu 2. hæðar. Opin vinnustofa verður í handavinnustofu 2. hæðar kl. 13-16. Verið öll hjartanlega velkomin til okkar á Lindargötu 59, við hlökkum til að sjá ykkur. Seltjarnarnes Kaffikrókur alla morgna frá kl. 9. Leir á Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Jóga / leikfimi í salnum á Skólabraut kl. 13. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13. Gler neðri hæð félagsheimilisins kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. með morgun- !$#"nu Vantar þig hjólbarða? FINNA.is ✝ Coletta Bürl- ing fæddist 1948 í Düsseldorf í Þýskalandi. Hún varð bráðkvödd 31. október 2021 á Selfossi. Hún stundaði nám í norrænum fræðum við háskól- ann í Münster. Eft- ir að hún lauk því varð hún lektor við Háskóla Íslands og tók um leið við stjórn Goethestofnunar. Hún gegndi því starfi þar til stofnuninni var lokað árið 1998. 1979 giftist Coletta Kjartani Gíslasyni. 1981 lauk hún dokt- orsnámi í Þýskalandi. Árið 2003 hlaut hún orðu ásamt manni sínum fyr- ir að efla tengslin milli Íslands og Þýskalands. 2012 fékk hún íslensk- an ríkisborgara- rétt. Coletta þýddi mörg verk ís- lenskra höfunda á borð við Þórarin Eldjárn, Stein- unni Sigurðar- dóttur, Kristínu Marju Bald- ursdóttur, Arnald Indriðason og Viktor Arnar Ingólfsson. Sem leiðsögumaður fræddi hún fjölmarga ferðamenn um land, þjóð, náttúru og menn- ingu. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Það er hátt til lofts og vítt til veggja í húsi minninganna um Colettu. Það er í stíl við stór- brotnu andans manneskjuna sem hún var. Ein elsta minn- ingin sem ég á með henni er frá Goethe Institut-tímanum þegar hún bauð kvikmyndaleikstjóran- um fræga, Werner Herzog, til landsins. Hann nýkominn úr suðuramrískum tökum á Fitz- carraldo. Setið var í herbergi í Mávahlíðinni og viðstaddir nutu andaktugir frjórrar orðræðu og nærveru meistarans. Coletta sinnti starfi sínu sem forstöðukona Goethe Institut með mestu reisn, gerði frábær- lega vel við gesti sína, og við eyjarskeggjar nutum góðs af evrópskum menningarstraumn- um sem hún sendi okkur. Einn af mætum gestum var eðal- skáldið Sarah Kirsch sem heill- aðist svo af landinu og undra- blóminu klettafrú, að Coletta og ég höfðum þann heiður að verða að klettafrúm upp á þýsku í texta eftir skáldið. Og það eru mörg herbergi í minningahúsinu úr gestaboðum Colettu og Kjartans, gamla þýskukennarans míns, hvort sem var á Vatnsenda eða Sel- fossi. Gestrisni, hlýja og fjör í fyrirrúmi. Gott er líka að minnast þess hvað þau Coletta og Kjartan voru miklir vinir náttúrunnar, gróðurs og fugla. Ekki síst voru þau mannvinir, sem þau sýndu í verki með því að taka fleiri en eina unga manneskju undir sinn verndarvæng. Innifalið í tryggri og traustri vináttu Colettu gegnum langa tíð voru þýðingar hennar á skáldsögunum mínum, sjö tals- ins. Hún var afburða hæfileika- ríkur þýðandi, með einstakt næmi fyrir orðum, merkingu og hljómfalli. Hér á ég henni ómet- anlega þökk upp að unna. Nú allra síðustu ár, jafnvel þegar Coletta var farin að búa við mjög slæma heilsu, fataðist henni ekki flugið þegar ég lagði fyrir hana fyrirspurnir um bók- menntaleg spursmál eða merk- ingu þessa og hins orðsins upp á þýsku. Á því sviði átti hún ekki sinn líka hvað snerpu og greiningarhæfileika varðaði. Ég hef líka orð mikillar bókmennta- manneskju fyrir því að betri bókmenntakennara en Colettu hafi hún aldrei haft. Það er með miklum söknuði sem ég kveð aldavinkonu mína. Steinunn Sigurðardóttir. Frá fyrstu tíð höfum við systkinin þekkt Colettu og Kjartan þar sem þau voru góðir vinir foreldra okkar. Heimili þeirra, Byrgi við Vatnsenda, var ákveðinn ævintýrastaður í huga okkar – svo til steinsnar frá borginni en samt á svo margan hátt einangrað frá ys og þys bak við holtið og hæðirnar, um- lukið gróðri og trjám. Húsið þeirra var einstakt bæði að utan og innan; skammt frá húshorn- inu var sérútbúinn andapollur þar sem endur áttu griðastað og nokkuð stundvíslega fengu þær ásamt öllum hinum fuglunum, sem þekktu orðið til, sitt lítið af hverju til að borða. Enn þann dag í dag teljum við að þau hafi þekkt fuglana með nöfnum og ekki fyrir svo löngu síðan sagði Coletta sögu um tjaldapar sem hafði þá hátt- semi að taka brauðið og dýfa því í vatn til að gera það mýkra fyrir ungana sína – sem samt voru orðnir óþarflega fullorðnir fyrir þetta dekur að mati Col- ettu. Þau báru mikla umhyggju fyrir náttúrunni, sáu fegurð í hverri þúfu og sandauðn, ferð- uðust mikið um landið og þekktu það vel. Þegar við vor- um í heimsókn var gjarnan spil- að spil þar sem keppst var um að rifja upp og muna örnefni – Kjartan sat í horninu, hinum megin við borðið, og við á móti – þar sem Coletta sat dags- daglega. Í þessum leik höfðum við ákveðið forskot því á borði Colettu var stórt Íslandskort sem hjálpaði okkur grísunum aðeins. Það má líka vera að Col- etta hafi stundum bent með vísifingri á ákveðna staði á kortinu okkur til gagns. Hjá þeim var stutt í kímnigáfu og við eigum, ásamt foreldrum okkar, margar minningar um alveg einstaklega húmorískar stundir. Hvert okkar á sérstakar minningar hvort sem það voru ferðalög um hálendið þar sem rússneskir fjallajeppar fengu að glíma við ókunna slóða og fall- vötn, þegar við fengum að dvelja heima hjá þeim um skemmri eða lengri tíma eða að fá að ferðast með þeim til heimalands Colettu og upplifa þar framandi og spennandi hluti eins og stórborgir, gott brauð, skrítna osta og fall Berlínar- múrsins. Coletta hugsaði um okkur líkt og við værum börnin henn- ar; kleip burtu hor, gaf okkur gómsætan mat, sagði okkur sögur, huggaði – en skammaði bara þegar við notuðum sófann sem trampólín. Þegar kemur að leiðarlokum hugsum við til baka af þakklæti fyrir þann tíma og umhyggju sem Coletta og Kjartan veittu okkur – minnumst þeirra af ein- skærum hlýhug. Og við þennan þröskuld er vel hægt að ímynda sér að nú sitji þau loks saman og hugi að fuglunum í himnasöl- unum. Vilborg, Katrín og Andri Eystri-Hellum. Colettu hitti ég fyrst fyrir tæpum 30 árum er ég hóf nám í þýsku við Háskóla Íslands. Þá var ég tíður gestur við Goethe- stofnunina við Tryggvagötu sem Coletta veitti forstöðu, sællar minningar. Andrúmsloftið á bókasafninu var einstakt og Coletta og annað starfsfólk vin- gjarnlegt. Mér leið alltaf vel á þessum stað sem átti nokkurn þátt í því að ég hélt síðar til Þýskalands í framhaldsnám. Ákvörðun þýskra stjórnvalda um að loka stofnuninni undir lok 20. aldar var mikil synd, ekki síst fyrir Colettu. Þegar leið á námið kynntist ég henni betur í gegnum Kjartan Gísla- son, minn frábæra kennara í þýskunni. Við nemendurnir vor- um boðin heim á yndislegt menningarheimili þeirra hjóna á Rjúpnahæð við Vatnsenda. Gestrisnin, veitingarnar og samræðurnar þar verða lengi í minnum hafðar. Eftir að námi lauk hélst vinskapurinn og ég naut alúðar þeirra á Rjúpnahæð og síðar á Selfossi eftir að þeim var gert að yfirgefa sitt góða hús við jaðar Reykjavíkur. Ég hélt áfram að hitta Colettu eftir að Kjartan lést fyrir tæpum tíu árum. Mér þótti vænt um hana og hún var mér á vissan hátt fyrirmynd og mikill viskubrunn- ur um málefni sem mér stóðu nærri. Coletta var afbragðs leið- sögumaður og enn minnist ég þess er ég hitti hana á Djúpa- lónssandi á sólskinsdegi í hópi sælla ferðamanna og það gust- aði af henni, þarna var hún sannarlega í essinu sínu. Col- etta var atorkusöm, greind og skörp. Hún var afar ötull þýð- andi íslenskra bókmennta á þýsku og nægir í því sambandi að nefna verk þeirra Steinunnar Sigurðardóttur og Arnalds Indriðasonar. Ég hugsa til Col- ettu með hlýju og er mjög þakklátur fyrir að hafa getað heimsótt hana í sumar ásamt vini sem naut góðvildar Colettu og Kjartans langt á undan mér. Það var okkur dýrmæt stund. Ég votta fjölskyldu Colettu samúð mína. Jón Bjarni Atlason. Coletta Bürling Það er komið að kveðjustund, elsku amma. Mikið held ég að Baldur afi og mamma hafi tekið vel á móti þér. Það yljar mér um hjartarætur að hugsa um ykkur þrjú saman, örugglega að ræða gömlu tímana sem þér þótti allra skemmtileg- ast. Þú varst einstök kona, með einstakt hjartalag. Ég man hvað mér leið alltaf vel heima hjá ykk- ur afa. Þið voruð mér einstak- lega kær. Heimilið ykkar stóð alltaf öllum opið og hef ég eytt ófáum stundunum hjá ykkur. Það var mikið gæfuspor að stór- an hluta af minni æsku var ör- stutt á milli okkar, ég var mjög lítil farin að trítla yfir til ykkar á Brekkugötuna, þar var alltaf tekið á móti manni opnum örm- um. Ein af mínum uppáhaldsminn- Engilráð Birna Ólafsdóttir ✝ Engilráð Birna Ólafsdóttir fæddist 9. desem- ber 1927. Hún lést 3. nóvember 2021. Útför hennar fór fram 11. nóvember 2021. ingum eru allir bíl- túrarnir sem þið afi fóruð með mig í, það voru miklar gæðastundir og ræddum við um allt milli himins og jarð- ar. Mér fannst líka einstaklega gaman að koma til þín og spila við þig, mér er einna minnisstæð- ast þegar þú kenndir mér kas- ínu, ég man enn í dag hvað mér fannst það skemmtilegt og spil- aði það látlaust í mörg ár. Mér þótti síðan ótrúlega vænt um það síðustu árin þín að horfa á þig spila við mín börn og segja þeim frá gömlu tímunum eins og þú gerðir með mér. Þið afi hafið átt svo stóran þátt í mínu lífi, veitt mér ómælda gleði og hamingju. Það voru for- réttindi að eiga ykkur sem afa og ömmu því það er enginn eins og þið. Nú eruð þið loks sameinuð á ný. Ég kveð þig með miklum söknuði og þakklæti fyrir allt, elsku amma. Berglind Jóhannsdóttir og fjölskylda. Fallinn er nú frá Páll Pálmason, fé- lagi okkar í Kiwan- isklúbbnum Helga- felli í Vestmannaeyjum og einn af bestu leikmönnum Íþrótta- bandalags Vestmannaeyja frá upphafi og sá leikjahæsti, en Palli eins og við öll þekkjum hann var einn af albestu mark- vörðum landsins um árabil og lék með okkar landsliði á sínum tíma. Palli fæddist á Hólagötu í Vestmannaeyjum 11. ágúst 1945 og eins og margir Eyjapeyjar stefndi hugurinn á sjóinn og gekk Palli í Stýrimannaskólann í Vestmannaeyjum og hóf störf á Halkion og síðan með föður sín- um á Björgu VE. Þegar í land var komið starfaði Palli í fisk- mjölsverksmiðju FIVE frá 1970 allt til starfsloka og þá lengst sem verkstjóri. Leiðir okkar Palla lágu saman af meiri alvöru þegar ég og Ásta keyptum okkur hús á Dverg- hamri 8 í júní 1983 og áttum við Páll Pálmason ✝ Páll Pálmason fæddist 11. ágúst 1945. Hann lést 6. nóvember 2021. Útför Páls fór fram 19. nóvember 2021. 16 yndisleg ár þar með góðum ná- grönnum sem voru með eindæmum hjálplegir og yndis- legir í alla staði. Við Palli gengum í Kiw- anisklúbbinn Helgafell um svipað leyti, ég 1991 en Palli 1992, og varð Palli strax öflugur félagi með frábæra mætingu og vinnusemi sem allir geta verið stoltir af. Palli var mikill íþróttamaður og hóf að leika snóker á Mjólkurbarnum í gamla daga hjá Páli Helgasyni og eins og í öllu náði hann góð- um árangri, ekki síst eftir að hann gekk til liðs við Kiwanis- klúbbinn Helgafell, þá tók hann upp þráðinn í snókernum og átti frábæran feril í klúbbasnóker Eyjamanna. En nú ertu farinn í sumar- landið kæri vinur og hefur fengið hvíld frá erfiðum sjúkdómi. Við félagar í Helgafelli sendum Gunnu og fjölskyldu okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Það verður mikill söknuður að Palla í klúbbstarfinu en minningin um góðan vin og kiwanisfélaga lifir. F.h. Kiwanisklúbbsins Helga- fells, Tómas Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.