Morgunblaðið - 22.11.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.11.2021, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Greint var frá því í Morg- unblaðinu á föstudag að Norð- menn íhuguðu nú að taka undir kröfu Svía um að ríki Evrópu tækju upp bann við því að „grafa“ eftir rafmyntum á borð við bitcoin. Krafan á rætur sínar í því, að á sama tíma og ríkin eru að reyna að ná loftslagsmarkmiðum sín- um og draga úr útblæstri verð- ur hlutur „námavinnslunnar“ í raforkunotkun landanna sífellt meiri. Eins og flestar rafmyntir eru hannaðar verða ekki til nýjar einingar af myntunum nema „grafið“ sé eftir þeim, en það þýðir oftast nær að tölvur séu látnar leysa sífellt erfiðari reikningsdæmi til að staðreyna að um rétta mynt sé að ræða. Í tilfelli bitcoin, sem er elsta og langvinsælasta myntin, voru þessar aðgerðir tiltölulega ein- faldar til að byrja með og á færi heimilistölvunnar, en kalla nú á risavaxin gagnaver sem sinna engu öðru. Nú er svo komið, að gröftur eftir bitcoin á þessu ári hefur þegar eytt meiri orku en á öllu síðasta ári. Þá er áætlað að framleiðsluferlið nú taki um 91 teravattstund af rafmagni á hverju ári. Það er meiri raforka en notuð er í Finnlandi, Argent- ínu eða Hollandi á hverju ári og vel rúmlega fjórum sinnum meiri raforka en framleidd er hér á landi á hverju ári. Ekki er óeðlilegt að því sé velt upp hvort vit sé í þess- ari orkufreku starf- semi og það eru ekki bara Svíar og Norðmenn sem hafa hugleitt hvort rétt sé að banna þennan námagröft, heldur stigu Kín- verjar skrefið til fulls í sumar, þó að baki þeirri ákvörðun hafi ekki legið umhverfissjónarmið. Á sama tíma hafa „framleið- endur“ rafmyntanna leitað í sí- auknum mæli til ríkja með græna, endurnýjanlega orku, og er Ísland þeirra á meðal. Það er þarft að staldra ögn við og íhuga eðli þessara raf- mynta, sem hafa sumar hækkað gríðarlega mikið í verðgildi á síðustu fjórum árum, þrátt fyrir að fátt liggi að baki því verð- mati. Það þekkist enda að sveiflur á rafmyntamarkaðnum geta verið gríðarlega miklar, en sú óvissa hefur ekki komið í veg fyrir að hálfgert gullgrafaraæði hafi gripið menn. Á sama tíma hafa heyrst við- vörunarraddir frá hagfræð- ingum um að notagildi rafmynt- anna sé minna en talið var í upphafi, þá ekki síst vegna þess gríðarlega framleiðslu- og orku- kostnaðar sem nú er farinn að sliga „námavinnsluna“, Hér á Íslandi þurfa stjórnvöld því að hugleiða, líkt og frændþjóðir okkar eru farnar að gera, hvort þeirri orku sem fer í þennan undarlega „námagröft“ sé vel varið. Stjórnvöld hér þurfa að huga vel að fram- tíð rafmyntanna} Orkufrekur iðnaður án verðmætasköpunar? Kínversk stjórn- völd hafa ekki gert sér mikinn greiða utan land- steinanna með framferði sínu vegna ásakana tennisstjörnunnar Peng Shuai. Hún setti fram ásakanir á hend- ur Zhang Gaoli, þáverandi vara- forseta Kína, um að hann hefði nauðgað sér árið 2014. Í fram- haldinu hvarf Peng skyndilega og stjórnvöld þurrkuðu fljótt út ásakanirnar á netinu og lokuðu fyrir að hægt væri að leita að nafni hennar á netinu í Kína. Þótti það ekki nóg, heldur ákváðu stjórnvöld í Peking einnig að loka fyrir möguleika Kínverja til þess að leita á net- inu að nokkru sem tengdist tennis-íþróttinni. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrir- spurnir fjölmiðla létu talsmenn stjórnvalda sem þeir hefðu aldr- ei heyrt ásakanirnar, en á mið- vikudaginn létu kínverskir rík- isfjölmiðlar loks undan þrýstingnum og birtu „tölvu- póst“ sem átti að vera frá Peng til alþjóðatennissambandsins, þar sem hún sagði að allar ásak- anirnar væru ósannar og að allt væri í fínasta lagi með sig. „Tölvu- pósturinn“ þótti vægast sagt ótrú- verðugur, og leit frekar út fyrir að tilheyra skjali úr ritvinnsluforriti. Eftir að Alþjóðatennis- sambandið og fleiri spurðu að því hvar Peng Shuai væri að finna birtist hún skyndilega um helgina í nýjum myndskeiðum sem ríkismiðill dreifði. Þar var bersýnilega um uppstillingu að ræða, sem sást meðal annars á því að fólkið sem Peng sat með á veitingastað ræddi um það hvaða dagur væri, sem er harla óvenjulegt umræðuefni. Enginn utanaðkomandi veit hvað gerðist síðustu daga í lífi Peng eða hvað gerist næstu daga. Hverfur hún aftur? Verð- ur hún látin draga ásakanir sín- ar til baka? Það er óvíst, en eftir stendur að atburðarásin að und- anförnu er enn ein staðfesting þess ofríkis sem fólk er beitt í Kína og þeirrar hörku sem stjórnvöld þar grípa til telji þau sér ógnað. Kínversk stjórnvöld grípa í gömul ráð til að þagga niður í gagnrýnisröddum} Ótrúverðugt framferði H vað gæti Strætó gert, ef eitthvað, til að þú myndir ferðast (oftar) með strætó?“ var spurt í net- könnun meðal könnunarhóps Zenter-rannsókna, sem fram- kvæmd var fyrir Strætó bs. fyrr á árinu. 764 svöruðu, fimm sögðu að borgarlínan gæti haft áhrif til aukningar, eða 0,7% þeirra sem svör- uðu könnuninni, 1,3% þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar. Það er sláandi áhugaleysi, miðað við alla þá umræðu sem á sér stað um norgarlínu, að hún sé fólki ekki ofar í huga hvað varðar mögulega aukna nýtingu á almenningssamgöngum. Sér- staklega í ljósi þess að áætlanir borgarlínu- trúboðsins ganga út á að hlutfall farinna ferða á höfuðborgarsvæðinu fari úr 4% í 12% við inn- leiðingu línunnar. 200% aukning á hlutfalli far- inna ferða er ólíkleg þegar 1,3% svarenda í könnun sjá ástæðu til að nefna „lausnina“. Í Staksteinum Morgunblaðsins var vakin athygli á þess- ari veiku niðurstöðu borgarlínunnar í könnun Strætó bs. sem aftur kallaði fram viðbrögð upplýsingafulltrúa Strætó sem fann Staksteinum allt til foráttu. Vangaveltur og útskýringar upplýsingafulltrúans vöktu athygli mína. Á netmiðlum var haft eftir facebook- stöðuuppfærslu hans að spurningin í könnuninni hefði ver- ið opin og ekki innihaldið sérstaka svarmöguleika. Fólk hefði því skrifað það sem því lá á hjarta og Zenter svo flokkað svörin. Tæp 30% svarenda skrifuðu eitthvað á þá leið að fleiri ferðir myndu hjálpa og önnur tæp 30% nefndu betra leiðakerfi sem lausn. Þessum tveimur atriðum sem fólk nefnir sem raunverulega áhrifavalda, þ.e. tíðni ferða og betra leiðakerfi, er haldið í gíslingu af þeim sem fara með stjórn þessara mála. 2. október 2018 var samþykkt í borgarstjórn tillaga um að Strætó æki á 7,5 mínútna tíðni á háannatímum á stofnleiðum. Í tillögunni segir að „stefnt skuli að því að leiðir 1, 3 og 6 aki á 7,5 mínútna tíðni frá og með ársbyrjun 2020“. Nú, rúmum þremur árum síðar, virðist ekkert bóla á aukinni tíðni ferða á háannatímum. Hvað veldur? Hentar það ekki borgarlínu- trúboðinu að núverandi kerfi almennings- samgangna sé bætt, notendum til hagræðis? Þá hefur leiðarkerfið ekki verið bætt um árabil, aðeins flækt með tilgangslausum breyt- ingum sem notendur hafa kveinkað sér yfir. Það hlýtur alltaf að vera markmið þeirra sem koma að rekstri al- menningssamgangna að bæta leiðarkerfið en það hefur ekki verið ráðist í það af neinni alvöru á undanförnum árum. Það er brýnt að bæta almenningssamgöngur á höfuð- borgarsvæðinu og blasir við að það verður einkum gert með aukinni tíðni ferða og betra leiðarkerfi. Borgarlínan nær ekki því markmiði þannig að hvernig væri að ráðast í breytingar sem einhverju skila – svona til tilbreytingar? Bergþór Ólason Pistill 1,3% sýnir ekki mikla tiltrú á borgarlínu Höfundur er þingmaður Miðflokksins. bergthorola@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Hólmfríður María Ragnhildard. hmr@mbl.is E inungis einn þingmaður af þeim fimm sem hlutu þingsæti vegna endur- talningar í Norðvest- urkjördæmi hefur gefið upp hvort hann muni kjósa eða sitja hjá þegar kosið verður um uppkosningu í kjör- dæminu í vikunni. Umræða og kosning um tillögur undirbúningsnefndar kjörbréfa- nefndar eiga að fara fram á Alþingi næsta fimmtudag en greinargerð um niðurstöður nefndarinnar verður op- inberuð á morgun. Að minnsta kosti þrír möguleikar eru í boði. Í fyrsta lagi að seinni talning atkvæða í Norð- vesturkjördæmi standi. Í öðru lagi uppkosning í kjördæminu og í þriðja lagi endurtalning kjörseðla. Ekki eru allir sammála um hæfi Alþingis til að taka ákvörðun um sitt eigið lögmæti. Er þá einnig umdeilt að þeir sem hlutu þingsæti fyrir til- stilli seinni talningar fái að greiða at- kvæði um hvort hún eigi að standa eður ei. Atkvæði með seinni talningu Guðbrandur Einarsson, þingmað- ur Viðreisnar, sem hlaut þingsæti á kostnað Hólmfríðar Árnadóttur, frambjóðanda Vinstri-grænna, sér ekkert því til fyrirstöðu að hann taki þátt í að kjósa um tillögur nefnd- arinnar og muni hann greiða atkvæði því fylgjandi að seinni talning gildi. „Samkvæmt stjórnarskránni á ég að kjósa og ég ætla að nýta mér þann rétt. Það hefur verið sýnt fram á að þessi seinni talning sé rétt og þess vegna tek ég þátt í atkvæðagreiðsl- unni,“ segir Guðbrandur. Telur hann ekki þörf á að kynna sér greinargerð undirbúnings- nefndar þar sem hann hefur þegar gert upp hug sinn. „Ég ætla ekkert að fela mig eða skammast mín fyrir það. Ég ætla að standa með seinni talningu.“ Bíða eftir niðurstöðum nefndar Þá hafa þeir Jóhann Páll Jóhanns- son, Gísli Rafn Ólafsson og Bergþór Ólason, sem allir fengu þingsæti í kjölfar endurtalningar á kostnað annarra þingmanna, ekki gert upp hug sinn um hvort þeir muni sitja hjá í atkvæðagreiðslunni á fimmtudag eða taka þátt í henni. Ætla þeir að bíða eftir að tillögur og rökstuðn- ingur undirbúningsnefndar liggi fyr- ir áður en þeir taka ákvörðun. „Ég bíð bara eftir að sjá gögnin eftir þessa tveggja mánaða vinnu. Mér finnst við hæfi að sjá hvernig þau liggja,“ segir Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, sem komst á þing á kostnað Guðmundar Gunn- arssonar, frambjóðanda Viðreisnar, eftir seinni talningu. Guðmundur er einn þeirra sem kært hafa framkvæmd kosninga og hefur hann viðrað þá skoðun að vísa niðurstöðum kosninga til Mannrétt- indadómstóls Evrópu (MDE), verði seinni talning látin gilda. Aðspurður kveðst Bergþór ekki hafa skoðun á þessum hugleiðingum. „Það er auð- vitað bara hverjum einstaklingi frjálst að leita álits þeirra dómstóla sem eru við hæfi hverju sinni.“ Stenst ekki lágmarkskröfur Jóhann Páll, þingmaður Samfylk- ingarinnar, sem komst á þing á kostnað Lenyu Rúnar Taha Karim Pírata, kveðst ætla að bíða eftir að tillögur undirbúningsnefndar verði ræddar á fundi þingflokksins í dag. Hann segir það þó ekki munu koma sér á óvart ef niðurstöðu Al- þingis verði vísað til MDE. „Ég hef alltaf gert ráð fyrir að málið endi fyrir Mannréttinda- dómstóli Evrópu. Það liggur auðvit- að fyrir dómafordæmi þaðan, í máli varðandi kosningar í Belgíu, sem segir okkur að núverandi fyrirkomu- lag, þar sem Alþingi sjálft er endan- legur úrskurðaraðili um gildi kosn- inga, stenst ekki evrópskar lágmarkskröfur um rétt fólks til að taka þátt í frjálsum og lýðræðis- legum kosningum og fá úrlausn óháðs aðila um lögmæti þeirra. Þetta er stjórnskipulegur galli sem þarf að laga, sama hver niðurstaðan verður í Norðvesturmálinu.“ Þingmenn fylgi samviskunni Píratinn Gísli Rafn, sem komst á þing á kostnað Karls Gauta Hjalta- sonar, frambjóðanda Miðflokksins, segir ógerlegt að taka ákvörðun um kosningu fimmtudagsins án þess að greinargerð undirbúningsnefndar liggi fyrir. Hann segir hagsmuni ávallt vera til staðar í hvert skipti sem þingmenn taka ákvarðanir og kjósi um mál, og því sé þetta tilfelli ekki frábrugðið þeim. Hann segir þingmenn verða að fylgja sinni bestu samvisku. „Maður þarf að skoða allt saman og maður gerir það bara þeg- ar greinargerðin kemur.“ Orri Páll Jóhannsson, þingmaður Vinstri-grænna, sem komst inn á þing á kostnað Rósu Bjarkar Brynj- ólfsdóttur, kvaðst ekki vilja tjá sig um sína afstöðu þegar Morgunblaðið hafði samband. Segir enga skömm að standa með talningu Morgunblaðið/Theódór Kr. Þórðarson Hótel Borgarnes Undirbúningsnefnd hefur farið í þrjár vettvangsferðir til Borgarness þar sem aðstæður við talningu atkvæða voru skoðaðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.