Morgunblaðið - 22.11.2021, Síða 15

Morgunblaðið - 22.11.2021, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2021 Kollafjörður Þótt friðarsúlan sé eitt þekktasta kennileiti Viðeyjar er eyjan ýmsum öðrum kostum gædd. Þar má til að mynda finna Viðeyjarstofu sem reist var árið 1755 af Skúla Magnússyni. Kristinn Magnússon Baráttan gegn hlýn- un andrúmsloftsins af mannavöldum hefur stundum verið nefnd mikilvægasta verkefni samtímans. Leiðtogar heimsins ræða þessi mál á fundum sínum, heimsráðstefnur haldn- ar og þetta stóra mál er fyrirferðarmikið í stefnuskrám stjórn- málaflokkanna, hérlendis og um víða veröld. Viðfangsefnið í eðli sínu hnattrænt og brýnt úrlausnarefni fyrir framtíð mannkyns, hvorki meira né minna. Einn þáttur þess er matvælafram- leiðslan. Samkvæmt Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) má rekja 30% kol- efnisfótsporsins og 80% af notkun neysluvatns jarðar til matvælafram- leiðslu. Áskoranirnar fram undan Prótínneysla í heiminum jókst um 40% frá árinu 2000 til 2018 og talið er að hún muni aukast um 27% til ársins 2025. Aukningin er drifin áfram af auknum fólksfjölda, meiri velmegun og þéttbýlismyndun. Frá aldamótum hefur íbúum jarðarinnar fjölgað um 90 milljónir á ári. Því er spáð að fjölga muni í svo- nefndum neysluhópi að jafnaði um 290 milljónir á ári í næstu framtíð. Þetta er sá hópur sem hefur fjárráð til að kaupa matvöru á borð við þær sem viðteknar eru í vestrænum ríkj- um. Til samanburðar má nefna að í ríkjum Evr- ópusambandsins búa um 500 milljónir manna og um 325 milljónir í Bandaríkjunum. Árleg fjölgun í „neysluhópnum“ er því nálægt heild- armannfjölda í Bandaríkjunum. Laxeldi á óverulegan þátt í kolefnissporinu Þessi þróun dýpkar kolefnissporið en mismikið þó eftir framleiðslu- greinum. Ljóst er líka að hinni auknu eftirspurn eftir fæðu verður ekki mætt nema með eldisaðferðum, svo sem fiskeldi af margvíslegum toga. Fiskeldi í sjó skilur eftir sig lítið og grunnt kolefnisspor í samanburði við flesta aðra fæðuöflun. Það er ofur skiljanlegt. Fiskurinn er alinn í sjó, án þess að það kalli á orkunotkun sem nokkru nemur. Þetta kemur vel fram í fræðilegri úttekt sem fyrir- tækið Environice (nóv. 2018) vann á sínum tíma um kolefnisspor íslensks laxeldis og aðgerðir til að minnka það. Meginniðurstaða skýrslunnar var að laxeldi ætti óverulegan þátt í heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og ennfremur að losunin í fiskeldi ætti að langmestu leyti ræt- ur að rekja til framleiðslu og flutn- inga á fóðri. – Þar er því verk að vinna. Mikil tækifæri í fóðurframleiðslunni Þess er skammt að bíða að fóður- framleiðslan flytjist í auknum mæli inn í landið með vaxandi fiskeldis- framleiðslu. Í fiskafóðrinu er m.a að finna fiskafurðir sem ekki hafa hent- að til manneldis. Þetta hlutfall hefur þó farið mjög lækkandi. Öll helstu fóðurfyrirtækin framleiða einvörð- ungu fóður fyrir laxeldi sem er um- hverfisvottað af alþjóðlega viður- kenndum vottunarstofum. Byltingarkennd þróun á sér stað við fóðurgerð vegna fiskeldis. Nefna má stórmerkilegar rannsóknir á borð við þær sem unnið er að hér á landi þar sem saman fer íslenskt hugvit og þekking og einstæðar að- stæður. Ljóst er því að í nálægri framtíð verður unnt að draga mjög úr kolefnisspori fiskeldisins, sem er þó mjög lítið fyrir. Íslenskt hugvit skapar nýja möguleika Flutningur á ferskum matvælum til útflutnings er krefjandi verkefni. Við þekkjum það hér á landi að fisk- ur er fluttur heimsálfa á milli í flugi (þess vegna hefur orðið til séríslensk merking hugtaksins „flugfiskur“!). Þessi flutningsmáti skilur eftir sig kolefnisspor, sem mun þó vænt- anlega grynnka með sparneytnari flugvélum. Útflutningur á ferskum og ísuðum fiski með skipum er hins vegar al- vanalegur hér á landi og á mikla framtíð fyrir sér með auknu fram- boði á flutningsmöguleikum. Enn eru að opnast mikil tækifæri á þess- um sviðum. Ný tækni, ofurkæling, sem fyrirtækið Skaginn 3X hefur þróað með MATÍS og íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum, er að opna alveg nýjar leiðir sem auka innlenda verðmætasköpun og draga úr kolefn- issporinu. Íslensk laxeldisfyrirtæki nýta m.a. þessa tækni til þess að flytja út ferskan lax með skipum vestur um haf til Bandaríkjanna. Þannig brjóta þau sér leið inn á nýjar markaðslendur og draga um leið úr kolefnissporinu sem fylgir óhjá- kvæmilega flutningum um langan veg. Neytendurnir velja með buddunni Með aukinni umhverfisvitund verður þetta æ mikilvægara; ekki bara fyrir umhverfið heldur líka við- skiptin. Í vaxandi mæli spyrja neyt- endur og kaupendur um umhverfis- þáttinn og eru tilbúnir að greiða hærra verð fyrir matvæli með grunnu kolefnisspori. Svo ótrúlega sem það kann að hljóma, þá er kol- efnisspor íslensks lax úr sjókvíaeldi, sem fluttur er ofurkældur með skipi til Bandaríkjanna, jafnvel minna en frá laxeldi í landeldi þar ytra, þar sem orkan kemur frá brennslu jarð- efna. Þannig getur umhverfisvæn ís- lensk framleiðsla orðið þýðingar- mikið framlag okkar til loftslags- mála. Laxfiskaeldi hér á landi, með að- gang að grænni raforku og jarð- varma jafnt í landeldi sem seiðaeldi og í köldum sjó til áframeldis, skilur eftir sig grunnt kolefnisspor í sam- anburði við marga aðra matvæla- framleiðslu. Enn má þó gera betur og þarf að gera betur. Þar liggja mik- il tækifæri fyrir Íslendinga. Eftir Einar K. Guðfinnsson » Laxfiskaeldi hér á landi skilur eftir sig grunnt kolefnisspor í samanburði við marga aðra matvælafram- leiðslu. Enn má þó og þarf að gera betur. Einar K.Guðfinnsson Höfundur starfar að fiskeldismálum hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Grunnt kolefnisspor í fiskeldi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.