Morgunblaðið - 25.11.2021, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 25.11.2021, Qupperneq 11
BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Um 900 fjölskyldur fá matarúthlut- anir í hverri viku hjá Fjölskyldu- hjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Sérstök aðstoð verður veitt fyrir jólin, að venju, og má ætla að allt að 4.000 fjölskyldur njóti hennar hjá þessum félögum. Fulltrúar fjölda heimila koma „Aðsóknin er mikil. Það kemur fólk frá um 400 heimilum í hverri viku og fær matarúthlutun. Oftast eru fleiri en einn á bak við hverja manneskju sem kemur,“ segir Anna Pétursdóttir, formaður Mæðra- styrksnefndar Reykjavíkur. Anna segir að heimsfaraldurinn hafi gert vinnuna við matarúthlutan- irnar erfiðari en ella fyrir sjálfboða- liðana. Hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur er matvörum raðað í hillur. Þeir sem þiggja aðstoð koma með innkaupapoka og raða í þá. Grímuskylda er á staðnum. Matarúthlutanir hafa verið í Há- túni 12b á þriðjudögum og miðviku- dögum frá 16. nóvember milli klukk- an 12 og 14. Ein slík var í gær og svo verður úthlutað í næstu viku. Mæðrastyrksnefnd er byrjuð að undirbúa jólaaðstoð. Í fyrra þáðu um 1.500 heimili aðstoðina og er von á svipuðum fjölda nú. Tekið er við um- sóknum í Hátúni 12b í Reykjavík dagana 2., 3., 6. og 7. desember milli klukkan 10 og 13. Skila þarf skatt- framtali 2021 og er einnig hægt að senda það í tölvupósti á maedur@- simnet.is. Hafa aukið við úthlutanirnar Fjölskylduhjálp Íslands úthlutar mat í Iðufelli 14 í Reykjavík og Bald- ursgötu 14 í Reykjanesbæ á mið- vikudögum og fimmtudögum milli klukkan 14 og 17. Fjölskylduhjálp Íslands úthlutar mat til þurfandi allan ársins hring. „Við gátum aukið matarúthlutanir frá 1. nóvember vegna gjafar frá KS,“ segir Ásgerður Jóna Flosadótt- ir, formaður Fjölskylduhjálparinnar. Úthlutað er á hverjum þriðjudegi fram að áramótum í Iðufelli 14 í Reykjavík. Einnig er úthlutað á mið- vikudögum í Grófinni 2 í Reykja- nesbæ. Þegar jólaaðstoðin hefst verður bætt við úthlutunardögum síðustu tvær vikurnar fyrir jól. „Við höfum úthlutað til hátt í 500 heimila á viku samtals á báðum stöð- um,“ segir Ásgerður. Í þessari viku var töluvert miklu af fiski úthlutað, einnig nautahakki og forelduðum ítölskum bollum svo dæmi séu tekin. Fólk í Reykjavík sækir um aðstoð á vefsíðu Fjölskylduhjálparinnar (fjolskylduhjalp.is) á fimmtudögum og oft fyllist listinn á 20 mínútum. Fólk þarf að leggja fram afrit af skattframtali á vefnum. Svo koma smáskilaboð (sms) um það hvenær hver og einn getur komið og sótt matinn. Allir sem fá smáskilaboðin eiga að fá mat í þeirri úthlutun. Sjálfboðaliðar Fjölskylduhjálpar- innar í Reykjavík taka til þurrvör- urnar á mánudögum. Svo er fersk- vörum bætt við á þriðjudagsmorgni. „Við höfum haft opið í gegnum allt Covid-tímabilið og það hefur enginn smitast hjá okkur. Fólk kemur ekki inn en fær almennt afhenta 4-5 poka með mat í hvert skipti,“ segir Ás- gerður. Byrjað verður að skrá umsækj- endur um jólaaðstoð eftir 1. desem- ber. Hefðbundnar matarúthlutanir verða fyrstu tvær vikurnar í desem- ber. Ásgerður segir að KS muni breyta matarsendingum sínum til hátíðabrigða fyrir jólin. Hún reiknar með að allt að 2.600 fjölskyldur fái jólaaðstoð hjá Fjöl- skylduhjálpinni fyrir jól. „KS gerir okkur kleift að vera með mjög veg- legar úthlutanir,“ segir Ásgerður. Unnið gegn matarsóun Hún segir að Fjölskylduhjálp Ís- lands sé búin að vinna gegn matar- sóun í 18 ár. „Við erum í samvinnu við ákveðin fyrirtæki. Þegar vörur eru að komast á dagsetningu þá fáum við þær til úthlutunar. Matur sem fer í frysti fyrir síðasta söludag er í fínu lagi og ekkert að því að út- hluta honum þótt komið sé fram yfir síðasta söludag. Við eldum svona mat fyrir sjálfboðaliðana til að prófa hvort hann er ekki í lagi.“ Ásgerður segir að Fjölskyldu- hjálpin þurfi að komast í 700 fer- metra húsnæði þar sem verður hægt að hafa opið alla virka daga frá 13-18. „Fólk sem á ekkert að borða og hef- ur skilað skattframtali getur þá skannað sig þar inn og valið sér mat- vörur. Það verður haft eftirlit með því að fólk hamstri ekki óþarflega mikinn mat, en það þarf ekki að borga neitt. Þá þarf ekkert barn að fara svangt í háttinn eða nestislaust í skólann,“ segir Ásgerður. Hún hefur kynnt þessa hugmynd fyrir ráðu- neytum en ekki fengið nein viðbrögð enn sem komið er. Margir leita eftir mataraðstoð - Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur úthluta mataraðstoð í hverri viku - Senn líður að því að opnað verði fyrir jólaaðstoðina - Skjólstæðingar þurfa að skila inn skattframtali Morgunblaðið/Eggert Mataraðstoð Sjálfboðaliðar hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur voru að raða í hillur í gærmorgun fyrir mat- arúthlutun í gær. Einnig vinna margir sjálfboðaliðar hjá Fjölskylduhjálp Íslands við að taka saman matvörur. FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2021 Trönuhrauni 8 | 565 2885 | stod.is ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR AF SUNDFÖTUM SVARTUR FÖSTU- DAGUR Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyr- ir árið 2022 var samþykkt einum rómi í bæjarstjórn Kópavogs við seinni umræðu í fyrra- dag. Gert er ráð fyrir 105 milljóna króna rekstraraf- gangi af sam- stæðu bæjarins. Þegar fjárhags- áætlunin var lögð fram til fyrri um- ræðu fyrr í mán- uðinum var gert ráð fyrir tæplega 89 milljóna króna tekjuafgangi hjá samstæðunni. Helsta breytingin á áætluninni milli umræðna fólst í því að vegna breyt- inga á reglugerð um bókhald, fjár- hagsáætlanir og ársreikninga sveitar- félaga var hlutdeild bæjarins í byggðasamlögum og sameignarfélög- um tekin inn í áætlunina. Við það hækkaði rekstrarafgangur um rúmar 28 milljónir kr., eignir á efnahags- reikningi hækkuðu um 2,5 milljarða, skuldir um 1,2 milljarða og eigið fé um 1,3 milljarða. Gjaldskrár bæjarins voru sam- þykktar við seinni umræðu. Gjald- skrár fyrir grunnskóla, leikskóla og frístund og gjaldskrár fyrir heimilis- hjálp eldri borgara og mat hækka um 3,5% en aðrar gjaldskrár um 4,2%. Á fundinum var samþykkt þriggja ára áætlun Kópavogsbæjar fyrir árin 2023 til 2025. Eins og fyrr segir stóðu allir bæjar- fulltrúar úr meiri- og minnihluta að áætluninni en fulltrúar einstakra framboða undirstrikuðu ólíkar áherslur. Fasteignaskattar lækka Útsvar íbúa í Kópavogi verður óbreytt á næsta ári, 14,48%. Fast- eignaskattur lækkar. Skattur af íbúð- arhúsnæði lækkar úr 0,212% í 0,20% og skattur af atvinnuhúsnæði lækkar úr 1,47% í 1,44%. Sérstakt sorphirðu- og eyðingargjald sem lagt er á hverja íbúð hækkar úr 41.300 í 47.400 krón- ur. „Í fjárhagsáætluninni er áhersla lögð á málefni barna, lýðheilsu og vel- ferð, og endurspeglast það í ýmsum verkefnum og framkvæmdum. Lögð er rækt við grunnþjónustu sveitarfé- lagsins auk þess sem öflug fram- kvæmdaáætlun fylgir,“ segir í bókun sem bæjarstjórn gerði við lok um- ræðu um fjárhagsáætlunina. helgi@mbl.is Allir standa að fjárhagsáætlun - 105 milljóna kr. afgangur í Kópavogi Ármann Kr. Ólafsson „Fjöldi umsókna um aðstoð er svipaður nú og í fyrra en þá jókst hann mjög mikið frá árinu 2019,“ segir Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkj- unnar. Hjálparstarfið hefur stutt fólk með inneign- arkortum í matvöruverslunum. „Undanfarnar vikur hefur verið heilmikil þörf,“ segir Bjarni. Starfsár Hjálparstarfins er frá 1. júlí til 30. júní. Á starfsárinu 2020-2021 fengu 2.116 fjölskyldur inneignarkort og sumar oftar en einu sinni. Úhlutanirnar voru 3.657 eða um 1,7 á hverja fjölskyldu. Um 68% aðstoðar voru veitt á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess er veitt jólaaðstoð og er nú unnið að undirbúningi hennar. Í fyrra bárust 1.707 umsóknir um jólaaðstoð og má ætla að um 4.400 einstaklingar hafi verið á bak við þær umsóknir. Heilmikil þörf að undanförnu HJÁLPARSTARF KIRKJUNNAR Bjarni Gíslason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.