Morgunblaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 34
MEISTARADEILDIN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Gabriel Jesus reyndist hetja Man-
chester City þegar liðið tók á móti
París SG í A-riðli Meistaradeild-
arinnar í knattspyrnu á Etihad-
vellinum í Manchester í gær.
Leiknum lauk með 2:1-sigri Man-
chester City en Jesus skoraði sig-
urmark leiksins á 77. mínútu eftir
að hafa komið inn á sem varamað-
ur.
Kylian Mbappé kom París SG
yfir á 50. mínútu en Raheem Sterl-
ing jafnaði metin fyrir City á 63.
mínútu.
City er öruggt með efsta sæti rið-
ilsins og sæti í sextán liða úrslit-
unum fyrir lokaumferðina en liðið
er með 12 stig. Þá er París SG
sömuleiðis komið áfram í sextán
liða úrslitin en liðið er með átta stig
í öðru sætinu.
_ Þetta er fimmta tímabilið í röð
sem Manchester City endar í efsta
sæti síns riðils í riðlakeppni Meist-
aradeildarinnar.
_ Raheem Sterling hefur skorað
23 mörk í Meistaradeildinni á ferl-
inum, jafn mörg mörk og Frank
Lampard gerði á sínum ferli. Að-
eins Paul Scholes (24 mörk) og
Wayne Rooney (30 mörk) hafa
skorað fleiri af þeim Englendingum
sem hafa spilað í keppninni.
Salah jafnaði met Firminos
Liverpool, sem var öruggt með
efsta sæti B-riðils og sæti í sextán
liða úrslitunum fyrir leik gærdags-
ins, vann 2:0-sigur gegn Porto á
Anfield í Liverpool þar sem þeir
Thiago Alcantara og Mohamed
Salah skoruðu mörk enska liðsins í
síðari hálfleik.
Á sama tíma vann AC Milan
nokkuð óvæntan 1:0-sigur gegn
Atlético Madrid á Metropolitano-
vellinum í Madríd þar sem Junior
Messias skorað sigurmark leiksins
á 87. mínútu eftir að hafa komið inn
á sem varamaður í síðari hálfleik.
Úrslitin í B-riðlinum ráðast því í
lokaumferðinni þegar AC Milan
tekur á móti Liverpool og Porto
fær Atlético Madrid í heimsókn.
_ Mohamed Salah skoraði sitt
sjötta mark í Meistaradeildinni á
tímabilinu og jafnaði þar með met
Robertos Firminos frá tímabilinu
2017-18 en enginn leikmaður í sögu
félagsins hefur skorað fleiri mörk
en þeir tveir í riðlakeppni Meist-
aradeildarinnar.
Stórliðin áfram
Þá tryggðu Real Madrid, Inter
Mílanó, Ajax og Sporting sér öll
sæti í sextán liða úrslitum keppn-
innar í gær en Bayern München,
Chelsea, Juventus og Manchester
United höfðu öll tryggt sér sæti í
sextán liða úrslitum Meistaradeild-
arinnar á þriðjudaginn.
Lokaumferð riðlakeppninnar fer
fram dagana 7.-8. desember og þá
kemur í ljós hvaða fimm lið fylgja
þeim í sextán liða úrslitin. Dregið
verður í sextán liða úrslit 13. des-
ember í höfuðstöðvum UEFA í
Nyon í Sviss.
Ellefu félög
komin áfram
- City kom til baka gegn París SG
AFP
Sigurmark Gabriel Jesus fagnar sigurmarki sínu gegn París SG í Manchest-
er í gær en sigurinn tryggði Manchester City efsta sæti A-riðils keppninnar.
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2021
Meistaradeild Evrópu
A-RIÐILL:
Club Brugge – RB Leipzig...................... 0:5
Manchester City – París SG.................... 2:1
Staðan:
Manchester City 5 4 0 1 17:8 12
Paris SG 5 2 2 1 9:7 8
RB Leipzig 5 1 1 3 13:13 4
Club Brugge 5 1 1 3 5:16 4
B-RIÐILL:
Atlético Madrid – AC Milan .................... 0:1
Liverpool – Porto ..................................... 2:0
Staðan:
Liverpool 5 5 0 0 15:5 15
Porto 5 1 2 2 3:8 5
AC Milan 5 1 1 3 5:7 4
Atlético Madrid 5 1 1 3 4:7 4
C-RIÐILL:
Besiktas – Ajax......................................... 1:2
Sporting Lissabon – Dortmund .............. 3:1
Staðan:
Ajax 5 5 0 0 16:3 15
Sporting Lissabon 5 3 0 2 12:8 9
B. Dortmund 5 2 0 3 5:11 6
Besiktas 5 0 0 5 3:14 0
D-RIÐILL:
Inter Mílanó – Shakhtar Donetsk .......... 2:0
Sheriff – Real Madrid .............................. 0:3
Staðan:
Real Madrid 5 4 0 1 12:3 12
Inter Mílanó 5 3 1 1 8:3 10
Sheriff 5 2 0 3 6:10 6
Shakhtar Donetsk 5 0 1 4 1:11 1
Evrópudeild karla
C-RIÐLL:
Spartak Moskva – Napoli ........................ 2:1
Staðan:
Spartak Moskva 5 2 1 2 9:9 7
Napoli 5 2 1 2 12:8 7
Legia Varsjá 4 2 0 2 3:7 6
Leicester 4 1 2 1 7:7 5
England
B-deild:
Millwall – Bournemouth......................... 1:1
- Jón Daði Böðvarsson var ekki í leik-
mannahóp Millwall.
Barnsley – Swansea ................................. 0:2
Blackburn – Peterborough...................... 4:0
Bristol City – Stoke.................................. 1:0
Cardiff – Hull............................................ 0:1
Fulham – Derby ....................................... 0:0
QPR – Huddersfield................................. 1:0
Staðan:
Fulham 19 13 3 3 48:15 42
Bournemouth 19 12 5 2 34:14 41
WBA 19 9 6 4 27:16 33
QPR 19 9 5 5 31:24 32
Coventry 19 9 5 5 25:21 32
Stoke City 19 9 4 6 24:20 31
Blackburn 19 8 6 5 33:27 30
Huddersfield 19 8 4 7 22:21 28
Swansea 19 7 6 6 23:23 27
Millwall 19 6 9 4 19:19 27
Blackpool 19 7 6 6 20:21 27
Luton 19 6 7 6 26:24 25
Nottingham F. 19 6 6 7 24:23 24
Preston 19 6 6 7 21:25 24
Middlesbrough 19 6 5 8 21:22 23
Sheffield Utd 19 6 5 8 23:26 23
Birmingham 19 6 5 8 18:21 23
Reading 19 7 2 10 23:30 23
Bristol City 19 6 5 8 21:28 23
Derby 19 4 10 5 16:18 22
Hull City 19 5 3 11 14:22 18
Cardiff 19 5 3 11 19:33 18
Peterborough 19 4 3 12 17:38 15
Barnsley 19 2 5 12 13:31 11
_ 21 stig var dregið af Derby og 6 af Read-
ing vegna fjármálaóreiðu.
4.$--3795.$
Olísdeild karla
Stjarnan – ÍBV ..................................... 28:32
Staðan:
Haukar 10 7 2 1 301:264 16
Valur 9 6 2 1 261:228 14
ÍBV 9 7 0 2 275:257 14
FH 9 6 1 2 253:227 13
Stjarnan 9 6 0 3 268:262 12
Afturelding 9 4 2 3 263:251 10
Fram 8 4 0 4 222:224 8
Selfoss 8 3 0 5 201:207 6
KA 9 3 0 6 248:269 6
Grótta 7 2 1 4 181:187 5
HK 8 0 0 8 198:229 0
Víkingur 9 0 0 9 192:258 0
Meistaradeild karla
A-RIÐILL:
Aalborg – Kiel...................................... 35:33
- Aron Pálmarsson lék ekki með Aalborg
vegna meiðsla. Arnór Atlason er aðstoð-
arþjálfari liðsins.
Montpellier – Elverum........................ 39:32
- Ólafur Guðmundsson skoraði tvö mörk
fyrir Montpellier.
- Orri Freyr Þorkelsson skoraði ekki fyrir
Elverum.
_ Montpellier 13, Kiel 11, Aalborg 10, Pick
Szeged 10, Aalborg 10, Elverum 8, Vardar
skopje 5, Zagreb 4, Meshkov Brest 1.
B-RIÐILL:
Kielce – Barcelona .............................. 29:27
- Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tvö
mörk fyrir Kielce. Haukur Þrastarson
komst ekki á blað.
_ Kielce 14, Barcelona 9, Veszprém 8, Par-
ís SG 7, Zaporozhye 6, Flensburg 5, Porto
5, Dinamo Búkarest 4.
%$.62)0-#
Ólafur Andrés Guðmundsson skor-
aði tvö mörk fyrir Montpellier þeg-
ar liðið vann 39:32-sigur gegn El-
verum í A-riðli Meistaradeildar-
innar í handknattleik í Frakklandi í
gær en með sigrinum tyllti Mont-
pellier sér á toppinn í riðlinum með
13 stig.
Þá skoraði Sigvaldi Björn Guð-
jónsson tvö mörk fyrir Kielce þegar
liðið vann 29:27-sigur gegn Barce-
lona í B-riðli keppninnar í Póllandi
en Haukur Þrastarson komst ekki á
blað hjá Kielce. Kielce er í efsta
sæti B-riðils með 14 stig.
Íslendingalið
á toppnum
AFP
2 Sigvaldi og félagar hafa tapað
einum leik í keppninni í ár.
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu mætir í kvöld einu af bestu
liðum heims þegar það leikur vin-
áttulandsleik gegn Japan í Almere í
Hollandi klukkan 18.40. Japan, sem
varð heimsmeistari árið 2011 og
komst í 8-liða úrslit á Ólympíu-
leikunum í sumar, er í 13. sæti
heimslistans, þremur sætum ofar
en Ísland. Gunnhildur Yrsa Jóns-
dóttir fyrirliði sagði á fréttamanna-
fundi í gær að það væri góður
undirbúningur fyrir EM næsta
sumar að mæta svona öflugum mót-
herjum.
Mæta Japönum
í Almere í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Fyrirliði Gunnhildur Yrsa Jóns-
dóttir leikur sinn 83. landsleik.
Rúnar Kárason átti frábæran leik
fyrir ÍBV þegar liðið vann fjög-
urra marka sigur gegn Stjörnunni
í úrvalsdeild karla í handknatt-
leik, Olísdeildinni, í TM-höllinni í
Garðabæ í frestuðum leik úr ann-
arri umferð deildarinnar í gær.
Leiknum lauk með 32:28-sigri
ÍBV en Stjarnan leiddi með einu
marki í hálfleik, 16:15.
Mikið jafnræði var með liðunum
í fyrri hálfleik en Eyjamenn náðu
yfirhöndinni þegar fimmtán mín-
útur voru til leiksloka og leiddu
með þriggja marka mun, 24:21.
Stjörnunni tókst að minnka
forskot ÍBV í tvö mörk, 28:30,
þegar rúm mínúta var til leiks-
loka en lengra komust Garðbæ-
ingar ekki.
Dánjal Ragnarsson og Sveinn
Jose Rivera skoruðu fjögur mörk
hvor fyrir Eyjamenn en Hafþór
Vignisson var markahæstur í liði
Stjörnunnar með sjö mörk og
Sverrir Eyjólfsson skoraði sex.
ÍBV fer með sigrinum upp í
þriðja sæti deildarinnar í 14 stig,
líkt og Valur, en Stjarnan er í
fimmta sætinu með 12 stig.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
7 Rúnar Kárason var illviðráðanlegur í TM-höllinni í Garðabænum í gær.
ÍBV lagði Stjörnuna
Aliyah Collier skoraði 28 stig fyrir
Njarðvík þegar liðið vann sjö stiga
sigur gegn Fjölni í úrvalsdeild
kvenna í körfuknattleik, Subway-
deildinni, í Dalhúsum í Grafarvogi í
áttundu umferð deildarinnar í gær.
Leiknum lauk með 71:64-sigri
Njarðvíkur en ásamt því að skora
28 stig tók Collier fjórtán fráköst.
Lavína Gomes skoraði 18 stig og
tók 19 fráköst í liði Njarðvíkur en
Aliyah Mazyck var stigahæst í liði
Fjölnis með 28 stig.
Njarðvík er með 14 stig í efsta
sæti deildarinnar en Fjölnir er í
þriðja sætinu með 10 stig.
_ Ameryst Alston var stigahæst
Valskvenna þegar liðið tók á móti
Skallagrími í Origo-höllinni á Hlíð-
arenda.
Leiknum lauk með 92:47-stórsigri
Vals en Alston skorað 22 stig, tók
sjö fráköst og gaf 11 stoðsendingar.
Dagbjört Dögg Karlsdóttir skor-
aði 14 stig fyrir Val en Nikola Nedo-
roscíková var stigahæst í liði
Skallagríms með 18 stig.
Valur er með 12 stig í þriðja sæti
deildarinnar en Skallagrímur er án
stiga í botnsætinu.
_ Robbi Ryan fór á kostum í liði
Grindavíkur þegar liðið tók á móti
Breiðabliki í HS Orku-höllinni í
Grindavík.
Ryan gerði sér lítið fyrir og skor-
aði 38 stig, ásamt því að taka ellefu
fráköst og gefa fimm stoðsend-
ingar, en leiknum lauk með 90:75-
sigri Grindavíkur.
Hulda Björk Ólafsdóttir skoraði
11 stig fyrir Grindavík en Anna
Soffía Lárusdóttir var stigahæst í
liði Breiðabliks með 27 stig.
Grindavík er með sex stig í sjötta
sæti deildarinnar en Breiðablik er í
sjöunda sætinu með tvö stig.
Njarðvíkingar tylltu
sér á toppinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
28 Aliyah Collier var stigahæst í liði
Njarðvíkur í Grafarvoginum í gær.