Morgunblaðið - 25.11.2021, Side 28

Morgunblaðið - 25.11.2021, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2021 ✝ Sigurður Sverrir Gunn- arsson fæddist 31. ágúst 1955. Hann lést að heimili sínu, Suðurholti 3 í Hafn- arfirði, 12. nóv- ember 2021. Foreldrar hans voru Gunnar Sig- urðsson, pípulagn- ingameistari og eldvarnaeftirlits- maður, f. 28. apríl 1920, d. 19. september 1995, og Ólafía Helga- dóttir húsmóðir, f. 17. júlí 1917, d. 3. október 1971, og áttu þau fjóra drengi. Bræður Sverris, eins og hann var alltaf kallaður, eru: Jóel Hreiðar Georgsson, f. 5. mars 1937, eiginkona Eygló Fjóla Guð- mundsdóttir, f. 21. ágúst 1939, september 1978, eiginmaður Ax- el Axelsson, og Elísa Sverr- isdóttir, f. 9. júlí 1984, sambýlis- maður Ársæll Þór Ársælsson. Barnabörn þeirra eru 11 tals- ins. Sverrir ólst upp í Hafnarfirði, hann lærði pípulagnir og útskrif- aðist sem pípulagningameistari frá Iðnskóla Hafnarfjarðar 1988. Hann starfaði við pípulagnir þar til hann flutti til Danmerkur ásamt fjölskyldu sinni árið 1995 til frekara náms og útskrifaðist sem byggingafræðingur frá Byggeteknisk Højskole í Horsens árið 1999. Að námi loknu fluttu hann og fjölskyldan aftur heim til Íslands þar sem hann starfaði meðal annars fyrir Verkvang verkfræðistofu, Eykt, Ístak, Fag- tak og Verkþing. En frá árinu 2014 og fram til síðasta dags starfaði hann sem verkefnastjóri hjá Hafnarfjarðarbæ. Útför hans fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag, 25. nóv- ember 2021, klukkan 15. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Sigurður Valdimars Gunnarsson, f. 13. júlí 1946, d. 29. nóv- ember 2019, eig- inkona Guðrún Stef- anía Guðjónsdóttir, f. 26. ágúst 1949, og Helgi Gunnarsson, f. 16. nóvember 1950, eiginkona Vigdís Erla Grét- arsdóttir, f. 23. sept- ember 1953. Í desember 1974 kynntist Sverrir eftirlifandi eiginkonu sinni Sigríði Gísladóttur sem er einnig frá Hafnarfirði. Þau gengu að eiga hvort annað 20. september 1980. Eiga þau þrjár dætur, þær eru: Sigrún Sverr- isdóttir, f. 22. maí 1977, sambýlis- maður Davíð Már Bjarnason, Svanhvít Sverrisdóttir, f. 28. Í dag kveð ég tengdaföður minn sem lést föstudaginn 12. nóvember í faðmi fjölskyldunnar eftir stutta baráttu við krabba- mein. Sverrir var ekki nema 66 ára þegar hann lést og það er búið að vera erfitt að átta sig á því að hann sé farinn. En minningarnar um yndislegan mann ylja manni um hjartarætur þó svo að það sé sárt að rifja þær upp. Sverrir var einfaldlega þannig gerður að það var lítið mál að leita til hans og fá ráðleggingar um hitt og þetta og sérstaklega ef þær snerust um eitthvað tengt smíðum og pípulögnum. Þar kom maður ekki að tómum kofunum. Og tal- andi um öðruvísi kofa þá verð ég að minnast á sumarbústaðinn og kofaþyrpinguna sem við í fjöl- skyldunni fengum nú aldeilis að taka þátt í að gera sem glæsileg- asta. Þar var nú ekki slegið slöku við og alltaf fengu barnabörnin að vera með í öllu. Það var sérstak- lega gaman að fylgjast með hon- um ala upp og kenna þeim hvernig átti að halda á hamri, hvernig átti að saga og slípa og umfram allt hvernig átti að umgangast verk- færi og efnivið. Ég er heldur ekki frá því að við tengdasynirnir höf- um lært sitthvað af honum. Sverrir var alltaf boðinn og bú- inn að aðstoða alla og óhræddur við að biðja sjálfur um hjálp. Það mættu fleiri tileinka sér. Þessir eiginleikar áunnu honum virðingu hjá fjöldanum öllum af góðum vin- um, kunningjum og vinnufélögum. Það hefur maður bæði séð og heyrt síðustu daga. Hvíl í friði elsku Sverrir minn. Ekki hafa áhyggjur, ég skal sjá um að fylla á nammiskápinn. Axel Axelsson. Hann Sverrir, elsku litli bróðir okkar, er dáinn. Það er skrítið að setjast niður og skrifa þetta, hann var yngstur okkar bræðra, aðeins 66 ára, og átti svo margt skemmti- legt eftir að gera með henni Siggu sinni. Hann hafði einstakt geðslag hann Sverrir, alltaf hress og í góðu skapi og var alltaf gaman að vera í návist hans. Fjölskylda Sverris, Sigga, stelpurnar hans og barna- börnin voru honum allt og hann fann líka hvað þau elskuðu hann mikið. Síðustu ár eyddu þau Sverrir og Sigga mörgum stundum í sum- arbústaðnum við Laugarvatn, sem þau voru að taka í gegn og lagfæra og breyta. Þá voru yfir- leitt einhver af barnabörnum með í för og fengu þau að taka þátt í því. Það var ótrúlegt að fylgjast með honum Sverri í baráttunni við sjúkdóminn sem stóð yfir frá því í janúar á þessu ári. Þetta var bara verkefni sem hann var ákveðinn í að sigrast á. Hann missti aldrei já- kvæðnina og húmorinn alveg til lokadags. Það var alveg sama hve- nær hann var spurður hvernig honum liði, alltaf sama svar, ég hef það bara fínt. Ein góð saga um hann Sverri lýsir honum vel og hans góða húmor. Þau Sigga voru í helgarferð í Slóveníu með hópi fólks í apríl 2016. Þar finnur hann fyrir óeðli- legum þrekmissi og var brugðist skjótt við og eftir læknisskoðun á spítala segir læknir þar að það sé örugglega stífluð æð og setur hann strax í hjartaþræðingu og viti menn, ein æð stífluð 90%. Læknirinn segir að hann þurfi að laga æðina, það þurfi að fóðra hana. Sverrir segir þá við hann að þetta sé nú eitthvað sem hann þekki sem pípari, þetta sé mjög líkt því sem hann fáist við í því jobbi. Læknirinn, með sama húm- or og Sverrir, spyr hann þá hvort hann vilji þá bara ekki gera þetta sjálfur. Minn maður var þá fljótur til svara, nei kallinn minn, ég er í fríi (I am on a holiday), svo þú verður að gera þetta. Elsku Sverrir okkar, þín verður sárt saknað, en nú getur þú farið að stríða honum Sigga bróður okkar sem lést fyrir tveimur ár- um. Missir Siggu, Sigrúnar, Svan- hvítar, Elísu og allra barna- barnanna er mikill og við biðjum Guð að styrkja þau og varðveita. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Við geymum minningu um ein- stakan dreng í hjörtum okkar. Helgi og Hreiðar. Elsku Sverrir. Mikið er sárt að þurfa að kveðja þig svona allt of snemma. Þú kunnir sko að njóta alls þess sem lífið hefur upp á að bjóða og það voru ekki síst litlu hlutirnir sem veittu þér hvað mesta gleði. Þú varst sannkallaður gleði- gjafi, alltaf var stutt í glottið og stríðnispúkann í þér. Þér leið best þegar þú hafðir fólkið þitt í kring- um þig, jafnvel eitthvað að brasa í vinnugallanum og að leika við barnabörnin. Frá því að við vorum lítil börn höfum við verið mikið inni á heimili ykkar Siggu. Alltaf vorum við vel- komin, umhverfið fallegt og af- slappað og nærvera ykkar ljúf og góð. Fyrstu minningarnar eru af Hjallabrautinni þar sem okkur stelpunum fannst toppurinn á til- verunni að fara með þér á rúntinn og síðan var jafnvel boðið upp á kótelettur og franskar í kvöldmat- inn. Við gátum svo stolist í amer- ískt morgunkorn frá Gunnari afa og horft á barnaefni í kapalsjón- varpi í blokkinni. Ferðalög og heimsóknir til ykk- ar í Danmörku standa einnig upp úr, þar sem þið hélduð sama hlý- lega íslenska heimilið, með ís- lenska tónlist í græjunum og þú sást svo til þess að það var alltaf til nóg af Baldur kóla og fórst yfir nýjustu tilboðin í súpermarkaðn- um. Sumarbústaðurinn kallar líka fram fjársjóð af minningum. Þar var alltaf eitthvað spennandi í gangi og stutt í fíflaganginn. Það var slegist um að fara með þér í Skodann brunandi yfir kindahliðið þannig að bíllinn tókst á loft. Eða það héldum við krakkarnir að minnsta kosti. Þú sást líka til þess að allir fengju sumarbústaðasam- loku og að enginn yrði svangur. Við erum svo þakklát í dag, fyr- ir ótal margar samverustundir sem við höfum átt með ykkur fjöl- skyldunni í gegnum árin. Þessar samverustundir hafa einkennst af vináttu, hlýju, góðum mat og spjalli og oft miklu fjöri. Öll jólin, áramótin, sumarfríin, páskarnir, barnaafmælin og allar stærstu stundirnar í lífi ykkar Siggu og stelpnanna þar sem við höfum ver- ið þátttakendur. Þessar minningar munu ylja okkur um ókomna tíð en við mun- um alltaf sakna þín. Við munum halda utan um Siggu, stelpurnar, tengdasynina og barnabörnin þín. Þú varst svo ánægður með þennan flotta hóp og svo stoltur af þeim. Takk fyrir allt, elsku Sverrir. Brynhildur, Kristján og fjölskyldur. Hann Sverrir okkar er farinn frá okkur. Hann var ekki bara mágur og svili heldur líka svo góð- ur vinur; vinur í á fimmta áratug. Kostirnir hans voru svo margir. Hann var fyrst og fremst góður drengur og lét sér annt um alla. Alltaf var hægt að leita til hans með ráð um nánast allt og það var eins og það væri hans líf og yndi að leysa úr vandamálum vina sinna og fjölskyldu. En fjölskyldan var honum allt, Sigga, stelpurnar, tengdasynir og síðast en ekki síst barnabörnin sem hann hafði svo mikið yndi af, enda besti afi í heimi í þeirra huga. Í sumarbústaðnum Mosa, paradís fjölskyldunnar, var margt brallað með barnabörnunum, byggðir kof- ar uppi í tré og á jörðu niðri þar sem hugmyndir og óskir barnanna rættust. Það var gaman að fylgjast með honum með barnabörnunum þar sem græskulaus stríðni og glens var á báða bóga. Það er sárt að sjá á eftir honum Sverri, en minningarnar og góð- mennskan hans fer ekki úr okkar huga. Hann skilur eftir minningar sem við geymum með okkur og höldum á lofti. Við höldum öll áfram, hugum að hvert öðru og yljum okkur við allar minningarn- ar. Guð geymi Sverri okkar. Þú vakir, faðir vor, og verndar börnin þín, svo víð sem veröld er og vonarstjarna skín, ein stjarna hljóð á himni skín. (Sigurbjörn Einarsson) Gyða og Helgi. Stórt skarð hefur verið höggvið við fráfall elsku Sverris okkar og nú er hann kominn inn í ljósið ei- lífa, laus við þjáningar krabba- meinsins sem yfirtók líkama hans svo skyndilega og allt of hratt. Við ótímabært fráfall Sverris látum við hugann reika aftur til upphafsára enda margs að minn- ast frá æsku okkar. Við litum allt- af á Sverri eins og stóra bróður okkar enda ekki mikill aldursmun- ur og var hann skírður ásamt Guð- mundi á brúðkaupsdegi foreldra okkar og sagði hann nafnið sitt sjálfur enda orðinn fimm ára. Við fjölskyldan fluttum inn á Hring- brautina þegar foreldrar okkar voru að byggja og þurfti Sverrir að láta herbergið sitt af hendi og sofa í stofunni, sem var ekki auð- velt fyrir hann, en hann sá alltaf björtu hliðarnar og lét það ekki stoppa sig í að stríða okkur systr- um með gulu kistunni sinni og sagði að hún væri full af alls konar sælgæti. Það mátti enginn sjá hvað væri í kistunni, en þetta er kista sem Sverrir smíðaði og er hún ennþá höfð læst í bústaðnum á góðum stað. Sverrir var mikið á heimili for- eldra okkar þar sem hann missti móður sína mjög ungur. Honum fannst ekki leiðinlegt að skemmta sér og oft fékk hann að bjóða vin- um sínum á Mávahraunið áður en að farið var á ball í Skiphól. Það var honum mikill happafengur þegar hann kynntist Siggu sinni. Sverrir var alltaf boðinn og búinn að hjálpa okkur, ef við hringdum þá var hann kominn um leið ef það þurfti að laga eitthvað sem sneri að pípulögnum og það var nóg að hafa eitthvað gott með kaffinu enda elskaði hann kökur. Það var aldrei neitt mál hjá Sverri og mun- um við eftir því þegar þau Sigga ákváðu að mála íbúðina á Lauf- vanginum fyrir gamlárskvöld og bjóða öllum í mat til sín, en hann mátti ekki heyra á það minnst að breyta þessu plani enda búinn að ákveða þetta. Það var ótrúlegt að fylgjast með Sverri berjast við sjúkdóm- inn illvíga. Aldrei fundum við fyrir vonleysi eða vorkunn heldur styrk og baráttu eins og honum var tamt með alla hluti sem hann tók sér fyrir hendur. Það er með miklum söknuði og trega sem við kveðjum elsku frænda okkar hann Sverri, enda einstakur maður. Minningin um ljúfan, geðgóðan og mikinn fjöl- skyldumann lifir áfram í huga okkar og endurspeglast í dætrum hans. Elsku Sigga, Sigrún, Svan- hvít, Elísa og fjölskyldur. Megi guð styrkja ykkur í sorginni sem þið takist á við núna. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Guðmundur, Áslaug og Ólafía. Min venn. Að eiga vin er vandmeðfarið, að eiga vin er dýrmæt gjöf. Vin, sem hlustar, huggar, styður, hughreystir og gefur von. Vin sem biður bænir þínar, brosandi þér gefur ráð. Eflir þig í hversdagsleika til að drýgja nýja dáð. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Það er erfitt að setjast niður og rifja upp allar góðu stundirnar sem við Sverrir og fjölskyldur okkar höfum átt saman og þann góða vinskap sem við höfum haft í mörg ár. Ég hafði vitað af Sverri í Hafn- arfirði fyrr, en leiðir okkar lágu svo saman í Lionsklúbbnum Ás- birni í Hafnarfirði, þar kynnist ég þessum blíða og húmoríska félaga. Árið 1995 ákveðum við fjölskyldan mín að flytja til Horsens í Dan- mörku þar sem ég ætlaði að hefja nám. Ég vissi af Sverri og hans fjölskyldu þar. Hafði samband, og ekki stóð á því að gefa sér tíma til að aðstoða með það sem til þurfti. Sverrir var með eindæmum greið- vikinn. Í Horsens myndaðist sterk vinátta okkar og fjölskyldna. Við Sverrir sátum saman í stjórn Íslendingafélagsins í Hor- sens og síðar í stjórn Bygginga- fræðingafélags Íslands, BFÍ. Sverrir var mjög nákvæmur með allt sem hann tók sér fyrir hendur, ekki höfðu alltaf allir þol- inmæði fyrir því hvað hlutirnir gátu tekið langan tíma en útkoman var ávallt góð. Það var líka gaman að setjast niður við matarborð með Sverri. Hann naut hvers bita og tók sér sinn tíma til að borða. Sverrir var mikill fjölskyldu- maður og átti stóran og traustan hóp, samheldni þeirra er einstök, og leið Sverrir aldrei betur en þeg- ar hann hafði þau sem flest í kring- um sig. Sverrir var mikill húmoristi og sá alltaf það spaugilega í kringum sig, skaut inn ótrúlegustu gullmol- um við hin ýmsu tilefni. Við Sverrir höfum átt góðan tíma saman. Brasað ýmislegt og átt skemmtilegar umræður og samveru, bæði innanlands og utan. Gleðilegar voru líka heimsóknir Sverris og Siggu til okkar Lauf- eyjar til Noregs, þar sem við bú- um. Í sumar heimsóttum við Sverri og Siggu þar sem þau voru stödd hjá Sigrúnu og Davíð á Ströndum og áttum við yndislega daga með þeim öllum á þessum flotta stað. Við Laufey komum í Íslands- heimsókn nú í október sl. Dýr- mætar stundir áttum við þá með Sverri og Siggu. Okkur var boðið með þeim hjónum, dætrum og tengdasonum í yndislega kvöld- stund, m.a. í Bæjarbíó þar sem Sverrir leiddi mig stoltur um og sýndi mér þær breytingar sem gerðar hafa verið á húsnæði bíós- ins sem hann hafði verið þátttak- andi í fyrir hönd Hafnarfjarðar- bæjar, þar sem hann starfaði síðustu árin Einnig fórum við í ferð á Snæ- fellsnes til að eiga góða daga sam- an og sækja okkur kraft í jökulinn. Þetta voru yndislegir dagar sem við vinirnir áttum saman með Siggu og Laufeyju. Ferðin endaði ekki eins og við höfðum vonað þar sem vinur minn varð mjög veikur og lagður inn á sjúkrahús í kjölfar- ið. Elsku Sigga, Sigrún, Svanhvít og Elísa, megi góður Guð styrkja ykkur og fjölskyldur ykkar á þess- um erfiðu tímum. Minningin um einstakan Sverri lifir í hjarta mínu. Laufey sendir ykkur kærleik- skveðjur og þakkar fyrir samveru með dásamlegum vini. Þinn vinur, Júlíus (Júlli). Sigurður Sverrir Gunnarsson Elsku Magga „amma“. Við minn- umst þín með gleði og hamingju í hjarta. Þú varst okkur svo dýrmæt og yndisleg. Þrátt fyrir að við flyttum úr Fí- futjörninni góðu vorum við alltaf nágrannar og meira en það. Þú sagðir okkur strax frá fyrsta degi að þú skyldir vera amma okkar og barnanna okkar. Það var alltaf Margrét Valdimarsdóttir ✝ Margrét Valdi- marsdóttir fæddist 10. ágúst 1921. Hún lést 5. nóvember 2021. Útför Margrétar fór fram 16. nóv- ember 2021. hægt að leita til þín og treysta þér fyrir öll- um heimsins vanda- málum og fá stuðning og hvatningu sem við þurftum á að halda. Þú varst alltaf bros- andi og kát og þó að eitthvað alvarlegt bæri á góma náðirðu alltaf að snúa því þannig að við enduð- um brosandi saman. Þú elskaðir börnin okkar af öllu hjarta og þau þig. Þú varst svo dugleg að fylgj- ast með hvað þau voru að takast á við í sínu lífi og gladdist af öllu hjarta þegar þeim gekk extra vel eða eitthvað frábært var að ger- ast í lífi þeirra eða okkar. Meðal helstu minninga okkar af þér eru allar notalegu stund- irnar sem við áttum, stuttar sem lengri heimsóknir til þín, litlu jól- in sem við héldum með þér heima hjá okkur og krakkarnir minnast hlýju þéttu faðmlaganna sem þú varst óspör á. Það er óhætt að segja að eitt púsl í fjölskyldu- myndinni okkar sé farið en það fór ekki langt. Hjartað okkar varðveitir það ásamt enn fleiri minningum sem við gleymum aldrei og nýtum hvert tækifæri til þess að rifja upp og brosa yfir. Elsku yndislega Magga amma. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyr- ir okkur og kenndir okkur. Allan stuðninginn og ástina sem þú gafst okkur. Við söknum þín mik- ið, munum laglega hlæja og skemmta okkur þegar við hitt- umst síðar. Takk fyrir allt. Þínir eilífðarnágrannar, Gestur, Rakel, Einar Ari, Jónas Þór, Ingibjörg Halla og Hafdís Hanna. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.