Morgunblaðið - 25.11.2021, Síða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2021
✝
Smári Guð-
laugsson var
fæddur 8. júní 1925
í Reykjavík. Hann
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Mörk
þann 28. október
2021. Foreldrar
hans voru hjónin
Guðlaugur Bjarna-
son (1889-1984) og
Láretta Sigríður
Sigurjónsdóttir
(1894-1978) bændur að Giljum í
Hvolhreppi, í liðlega 50 ár frá
árinu 1927, en Guðlaugur starf-
aði samhliða sem póstur og síð-
ar bílstjóri til ársins 1956.
Smári var þriðji í röðinni af
átta systkinum sem öll eru látin.
Elstur var Sigmar (1922-1990),
Björgvin (1923-1998), Bjarni
(1926-2016), drengur (1927-
1927), drengur (1928-1928),
Guðrún Fjóla (1930-2020) og
Guðmundur Kristvin (1933-
1965).
Þann 14. október 1950
kvæntist Smári Önnu Þorsteins-
dóttur frá Götu í Ásahreppi.
Foreldrar hennar voru hjónin
Guðrún Pálsdóttir (1891-1988)
og Þorsteinn Tyrfingsson (1891-
1973), ábúendur að Götu og
Rifshalakoti í 34 ár, en síðar í
Rúnar (1947-2012), en móðir
hans var Helga Runólfsdóttir
(1926-2006). Börn Rúnars eru:
Marta Sigurlilja (f. 1969), maki
Úlfur Ingi Jónsson (f. 1969),
Einar Geir (f. 1973), maki Mar-
zena Burkot (f. 1981) og Eygló
(f. 1987). Barnabörn Rúnars:
Ragnhildur Marta Lólíta (f.
2010) og Emil (f. 2018).
Saman áttu Anna og Smári
liðlega sjö áratuga vegferð, en
þau hófu búskap hjá systur og
mági Smára á Hvolsvelli á með-
an þau byggðu húsið að Hvols-
vegi 12, sem þau fluttu í 20. des-
ember 1953, en þau voru meðal
frumbýlinga á Hvolsvelli. Árið
1978 fluttu þau síðan í Öldu-
gerði 10 þar sem þau bjuggu
þar til árið 2010 að þau fluttu
að Suðurlandsbraut 58 í Reykja-
vík. Smári vann almenn sveita-
störf og við vegavinnu, snjó-
mokstur og smíðar með Ísleifi
Sveinssyni á unglingsárum, en
við réttingar og bílamálun hjá
Ræsi í Reykjavík í þrjú ár áður
en hann hóf störf hjá Kaup-
félagi Rangæinga árið 1950,
fyrst á bílaverkstæði og síðar á
varahlutalager síðast sem versl-
unarstjóri þar til hann lét af
störfum árið 1995.
Útför Smára fór fram frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði þann 18.
nóvember 2021 að viðstöddum
nánustu ættingjum að ósk hins
látna.
Bræðraborg á
Hellu.
Börn Önnu og
Smára eru: 1) Óm-
ar Bjarki (f. 1950),
maki Katrina
Downs-Rose (f.
1958). Börn þeirra:
Anna Veronika (f.
1986), Elvar Karl
(f. 1988), maki
Natsha Bo Nan-
dabhiwat (f. 1986)
og Bríet Dögg (f. 1992), unnusti
Sigurgeir Ólafsson (f. 1993).
Fyrri kona Guðrún Sigríður
Haraldsdóttir (1956-2018). 2)
Edda Sjöfn (f. 1955), maki Er-
lendur Árni Hjálmarsson (f.
1955). Börn þeirra: Björk (f.
1974), maki Karl Hólm (f. 1968),
Atli (f. 1981), barnsmóðir Eva
Rós Ólafsdóttir (f. 1984) og Elfa
(f. 1992), maki Ólafur Hersir
Arnaldsson (f. 1990). Barna-
börn: Agnes Lára (f. 1995),
Daníel Freyr (f. 1998), Arnar
Kári (f. 2008), Sóley Kría (f.
2010), Vaka Rut (f. 2016) og Ey-
dís Þula (f. 2021). 3) Guðrún
Hrönn (f. 1961) maki Hörður
Þór Harðarson (1958-2018).
Börn þeirra: Andri (f. 1985),
Sigrún Sif (f. 1989) og Ívar (f.
1993). Fyrir átti Smári soninn
Fyrstu minningar um föður
minn tengjast byggingu hússins
okkar að Hvolsvegi 12 sem byrjað
var að byggja um mitt ár 1952 og
flutt í 20. desember 1953. Það hef-
ur því tekið um eitt og hálft ár fyr-
ir foreldra mína að byggja húsið
með aðstoð vina og samstarfs-
manna, að mestu í frítíma, þannig
að það væri íbúðarhæft, þótt
vissulega hafi það ekki verið
fullbúið. Á þeim tíma sem húsið
okkar var í byggingu bjuggum við
í einu herbergi hjá Ottó og Fjólu
systur pabba. Þar leigði einnig
Bjarni Helgason, vélsmiður,
hönnuður baggatínunnar og söng-
maður góður, sem ég gaf viður-
nefnið „Dæ-dæ“ en pabbi og
Bjarni voru baráttufélagar fyrir
bættum réttindum starfsmanna
Kaupfélags Rangæinga á yngri
árum og góðir vinir meðan báðir
lifðu. Að sögn foreldra minna gekk
ég syngjandi í vinnuna við húsið
okkar og pabbi útbjó handa mér
lítið múrbretti sem ég notaði til að
pússa hluta úr vegg í þvottahúsinu
þriggja ára gamall! Og síðar fékk
ég svo að fylgjast með bílaviðgerð-
um sem reyndist ágætur skóli,
sem síðar nýttist við smáviðgerðir.
Það er margs að minnast á
tímamótum sem þessum þegar
skyggnst er sjö áratugi aftur í tím-
ann. Upp úr standa allar ferðirnar
sem farnar voru á góðviðrisdögum
um helgar um uppsveitir Suður-
lands, í Þórsmörk, Landmanna-
laugar, Tindföll og Emstrur, allt
eftir bílakosti hvers tíma. Sjálfur
var ég svo fluttur að heiman þegar
hringvegurinn opnaðist og for-
eldrar mínir fóru ásamt góðum
grönnum þeim Guðna og Svönu
ásamt Andrési og Öllu, sem þá
voru reyndar flutt til Reykjavíkur.
Sunnudagsbíltúrar til ættingja í
Vetleifsholti, Litlu-Tungu og á
Hellu voru einnig tíðir og alstaðar
var veisluborð þó ekki hafi verið
gerð boð á undan sér. Og stundum
var farið til Svövu og Páls á Sel-
fossi en systra mömmu og bróður
pabba í Reykjavík þegar sækja
þurfti þjónustu sem ekki fékkst í
heimabyggð. Og nestið hennar
móður minnar var sko ekki skorið
við nögl hvort sem farið var í laut-
arferðir um helgar eða í lengri
ferðalög. Og svo fengum við líka
heimsóknir frá okkar fólki þó for-
eldrar mínir væru, sem betur fer,
aldrei mikið „partífólk“. Svo voru
afi og amma á Giljum í göngufjar-
lægð.
Pabbi eignaðist marga bíla um
ævina, en þá fyrstu keypti hann í
slæmu standi, gerði upp og seldi
fyrir salti í grautinn. Fyrstu bíl-
arnir voru Plymouth 1942 og 1947,
þá Willis 1947 síðan Willis Station
1958, þá Bronco 1966, Willis Sta-
tion 1961, þá Cortina 1965 og 1974,
Volvo 1978 og 1982 áður en skipt
var yfir í Pajero 1991 og 1999 sá
síðari var í skiptum fyrir Subaru,
en hann vildi frekar jeppa.
Minnisstæð er ferð sem ég fór
með pabba og Magnúsi á Bakka-
velli í Emstrur þar sem Magnús
byggði leitarmannakofa. Segja má
að teflt hafi verið á tæpasta vað að
fara einbíla yfir Nyrðri-Emstruá.
En í kofanum var ég fyrsti næt-
urgesturinn þar sem ég sofnaði
fyrstur. Árið sem ég fékk bílprófið
fékk ég síðan að fara með í árlega
„karlaferð“ Litla ferðklúbbsins og
fékk þá að keyra bæði Willis og
Bronco stóran hluta leiðarinnar
um Tungnamannaafrétt í Kerling-
arfjöll og síðan suður Kjöl. Ferðir
með foreldrum mínum norður
Kjöl á Strandir og síðan þaðan að
Mývatni þar sem við upplifðum
saman gos í Gjástykki og suður
Sprengisand er einnig minnisstæð
ásamt ferð okkar að Dalatanga.
Foreldar mínir voru góðir
ferðafélagar í leik og starfi alla tíð
og þeirra er gott að minnast. Að
leiðarlokum þakka ég ferðalagið
og samferðina.
Ómar Bjarki Smárason.
Látinn er spjallvinur, Smári
Guðlaugsson frá Giljum í Hvol-
hreppi, síðan búsettur á Hvolsvelli
til fjölda ára.
Á sl. árum þegar ég hef verið að
heimsækja ættingja á Mörkina
hef ég samhliða hitt þar fyrir
skemmtilegt fólk í kaffispjalli og
þar á meðal Smára, spjall sem
stundum fór á skemmtilegt flug
um ýmsa atburði fyrri tíma t.d.
um formfasta sýslumanninn á
Rangárvöllum o.fl.
Fyrir nokkru áttum við Smári
og Þráinn sem einnig býr á Mörk-
inni fróðlegt spjall um björgunar-
leiðangur sem Þráinn fór í haustið
1950 frá Akureyri þvert yfir há-
lendi Íslands og inn á Vatnajökul
ásamt félögum sínum, þá 18 ára
gamall skíðakappi, til björgunar
flugáhöfn Geysis sem fórst á
Bárðarbungu hinn 14. september
þá um haustið.
Leiðangur sem endaði með
frækilegri björgun flugáhafnar-
innar ásamt flugáhöfn frá hernum
sem lenti vél sinni á jöklinum til að
reyna björgun á áhöfn Geysis, en
náðu vélinni ekki aftur á loft.
Þráinn var jafnframt fenginn til
að skíða til baka eftir að leiðang-
urinn var lagður af stað niður af
jöklinum með áhöfn Geysis þegar
fyrirmæli bárust frá herráðinu í
Keflavík um að áhöfn hervélarinn-
ar ætti skilyrðislaust að halda nið-
ur af jöklinum með björgunarlið-
um, en áhöfnin hafði áður neitað
að yfirgefa hervélina.
Vél sem eftir björgun af jökl-
inum varð undirstaða í uppbygg-
ingu Loftleiða.
Smári kom einnig að leitinni á
sínum tíma varðandi suðursvæðið
og fleira varðandi björgunina.
Í spjalli sem við Smári áttum
oft á Mörkinni kom fram að hann
fór í marga björgunarleiðangra
frá Hvolsvelli gegnum tíðina, þ.e.
á sandana með suðurströndinni
vegna skipskaða og víðar um Suð-
urland og upp á hálendið.
Hann átti öflugan jeppa með
Gufunestalstöð og var því í góðu
sambandi við lögreglu og björg-
unarsveitir á svæðinu og því
gjarnan fenginn í ýmsa björgun-
arleiðangra og fleiri verkefni,
enda þaulvanur véla- og tækja-
maður.
Jafnframt fór hann í fjölda
ferða um hálendi Íslands ásamt
félögum sínum og fjölskyldu.
Hann lifði sig inn í þessar ferðir
við frásögnina með glampa í aug-
um, mundi hverja ferð 96 ára gam-
all eins og hann hefði farið hana í
gær.
Það er mikil upplifun að hafa
kynnst slíkum fróðleikskappa og
fræðst um ýmsa atburði á Giljum
og víðar rúmlega 90 ár aftur í tím-
ann og um nefndar ferðir sem
kölluðu oft á svaðilfarir og mikið
álag á tæki og menn.
Hef einnig hitt fyrir fleiri
frækna menn á Mörkinni og átt
við þá skemmtileg og fróðleg við-
töl til lands og sjávar.
Sumt af þessu heiðursfólki er
fallið frá, t.d. Hallveig frá Eyrar-
bakka, víðfróð og skemmtileg
kona sem mundi glöggt verslunar-
staðinn fyrrum eystra.
Blessuð sé minning þeirra sem
fallin eru frá.
Þessum hópi Íslendinga eigum
við margt að þakka varðandi upp-
byggingu til lands og sjávar, fólk
sem lagði og lagt hefur mikið á sig
til að gera Ísland að því landi sem
það er í dag.
Það er heiður að hafa kynnst
manni eins og Smára og nefndu
heiðursfólki sem og frábæru
starfsfólki á Mörkinni.
Megi Guð vernda Smára með
þökk fyrir góð kynni og eiginkonu
hans Önnu sem lést í febrúar sl.
Samúðarkveðja til fjölskyldu
Smára og vina.
Ómar G. Jónsson.
Smári var kær fjölskylduvinur,
mágur mömmu, maður móður-
systur minnar Önnu Þorsteins-
dóttur. Anna lést fyrr á þessu ári
en þau Smári höfðu þá verið gift í
rúm 70 ár. Síðustu árin hafði
heilsu Önnu hrakað, og dvaldi hún
á Mörk á fjórðu hæð, en móðir mín
á þeirri þriðju, svo samgangur var
nokkur fram undir það síðasta.
Smári var hins vegar heilbrigðið
uppmálað fram eftir öllu, en dvaldi
þó á Mörk í nokkra mánuði til dán-
ardags. Nærri má geta að erfitt
var fyrir Smára að sjá á eftir maka
sínum, en Smári var ávallt afskap-
lega hress og ræðinn og mikið
glæsimenni.
Á fyrri árum ferðuðust foreldr-
ar mínir og þau Smári og Anna
talsvert mikið saman og hélst vin-
skapur þeirra á milli góður alla tíð.
Mestalla ævina bjuggu þau á
Hvolsvelli, á einstöku glæsiheim-
ili, og garðurinn einkar fallegur,
bar natni þeirra og umhirðu fag-
urt vitni.
Í gegnum árin voru ófáar ferð-
irnar sem þau hjónin komu fær-
andi hendi með dýrindis rifsber og
annað góðgæti. Þau voru miklir
höfðingjar heim að sækja og ávallt
ánægjulegt að kíkja í heimsókn til
þeirra á Hvolsvelli og síðast á Suð-
urlandsbraut í bænum. Smári stóð
við hlið Önnu sinnar til hinsta dags
og aldrei heyrðist í honum kvört-
unartón þótt heilsu hans hefði
hrakað undir það síðasta.
Það er með vinsemd og virð-
ingu sem ég vil fyrir mína hönd og
systkina minna kveðja Smára með
þakklæti fyrir vináttuna og votta
fjölskyldu hans samúð á kveðju-
stund.
Sigrún Jakobsdóttir.
Smári Guðlaugsson
✝
Áslaug Margrét
Gunnarsdóttir
Blöndal fæddist í
Reykjavík 23. sept-
ember 1957. Hún
lést 7. október 2021.
Foreldrar hennar
voru Gunnar H.
Blöndal, bankafull-
trúi í Búnaðarbanka
Íslands, kennari,
löggiltur skjalaþýð-
andi og dómtúlkur í
ensku og skólastjóri Banka-
mannaskólans, f. á Eyrarbakka
14. júní 1921, d. 1. nóv. 1997, og
Ingunn Guðmundsdóttir Blöndal,
flugfreyja hjá Loftleiðum, fegr-
unar- og snyrtifræðingur frá
Wilfred Academy í Boston og So-
uth Western Beauty College í
San Diego, Bandaríkjunum, f. á
Seltjarnarnesi 28. mars 1916, d.
30. des. 2000. Foreldrar Gunnars
voru Haraldur Blöndal Lárusson
ljósmyndari, f. á Kornsá í Vatns-
með fjölskyldunni í New York í
Bandaríkjunum en æskuheimilið
var á Tómasarhaga í Vesturbæn-
um. Hún gekk í Melaskóla, síðar
Hagaskóla og útskrifaðist með
stúdentspróf frá Kennaraháskóla
Íslands. Hún vann í verðbréfa-
deild Landsbankans uns hún hóf
nám í London, Bretlandi, við Ray
Cochrane Beauty School á Baker
Street. Hún útskrifaðist 23. jan-
úar 1981 með gráðurnar nuddari,
snyrti-, fegrunar- og förðunar-
fræðingur. Eftir námið starfaði
hún bæði sjálfstætt og á stofu.
Hún stundaði einnig nám í ensku
í Háskóla Íslands. Síðar vann hún
á lögfræðiskrifstofu, hjá
Hollustuvernd ríkisins og
Íþrótta- og tómstundaráði. Hún
starfaði svo sem ritari hjá Mela-
skóla. Um árabil vann hún einnig
við að flytja inn tónlistarfólk og
frægar hljómsveitir til Íslands.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
dal 10. sept. 1882, d.
22. okt. 1953, og Mar-
grét Auðunsdóttir
Blöndal húsfreyja, f. á
Svarfhóli í Álftafirði í
Ísafjarðarsýslu 13.
mars 1881, d. 2. sept.
1936. Foreldrar Ing-
unnar voru Guðmund-
ur Guðmundsson skip-
stjóri, f. í Hvammsvík í
Kjós 23. feb. 1882, d.
17. feb. 1919, og Ás-
laug Þórðardóttir, forstöðukona
Baðhúss Reykjavíkur, f. í Reykja-
vík 11. júlí 1892, d. 12. okt. 1950.
Bræður Áslaugar eru Harald-
ur G. Blöndal, f. 22. jan. 1952,
kona hans er María Aldís Krist-
insdóttir, f. 27. jan. 1951, og Guð-
mundur Blöndal, f. 18. júní 1954.
Dóttir Áslaugar er Björg Cath-
erine Blöndal, f. 28. maí 1997,
maki hennar er Þorkell Ragnar
Grétarsson, f. 2. mars 1997.
Fyrstu ár Áslaugar bjó hún
Þegar ég fékk fréttirnar að þú
værir farin leið mér eins og ég
væri ekki að fá fréttir. Ég fann
þetta á mér.
Nóttin á undan var skrítin og
svefninn slitróttur. Embla vakn-
aði undir morgun því hana
dreymdi allskonar skrítið, að eigin
sögn. Við höfðum kveikt á kerti
fyrir þig kvöldið áður og leyfðum
því að loga frammi í stofu yfir
nóttina. Ég fann að ég vildi ekki að
kertið myndi slokkna og vonaði
morguninn eftir að það væri enn
kveikt. Ég vildi að ljósið væri ei-
líft. Þegar ég fór á fætur daginn
eftir var ljósið slokknað. Hugsun-
in hvarflaði að mér að þú værir
farin en ég rétti mig fljótt af og
hugsaði hlýtt til þín.
Pabbi hringdi síðar um daginn
og færði mér fréttirnar. Ég hvarf í
huganum aftur inn á gang heima
þar sem ég horfði inn í stofu í
morgunmyrkrinu og sá ekkert
ljós.
Þú varst ljós. Hlý, einlæg og
björt. Brosið þitt lýsti upp um-
hverfið, hláturinn svo innilegur og
bar þess merki hversu mikill húm-
oristi og prakkari þú varst. Það er
enginn eins og þú. Mér finnst ég
svo lánsöm að þú hafir verið
frænka mín og trúnaðarkona.
Hamingjan sem þú komst með í
farteskinu eins og Mary Poppins
var einstök. Embla og Eva hopp-
uðu af kæti þegar þú komst í
heimsókn. Ég vissi nákvæmlega
hvernig þeim leið. Þú varst alltaf
til í að leika, segja sögur og hlæja
með þeim. Ég mun sakna þess að
heyra þig leika við þær, breyta um
raddir og gefa böngsum og dúkk-
um líf á þinn einstaka hátt.
Minningarnar eru endalausar
og svo margar góðar. Það var allt-
af gott að tala við þig um heima og
geima, tónlist og allskonar. Þú
varst ávallt svo áhugasöm og
stuðningsrík ef ég leitaði til þín.
Ég man ekki eftir því að hafa
orðið oft fúl út í þig á lífsleiðinni en
það voru sennilega misgáfulegar
ástæður fyrir því ef það voru ein-
hver skipti. Þú sagðir samt oft
söguna af því þegar ég fór í fýlu út
í þig þegar ég var 5 ára. Þú baðst
mig að færa mig um einn rass í aft-
ursæti bílsins. „Ég er ekki með
stóran rass!“ sagði ég fúl. Þér
fannst svo fyndið að ég hefði mis-
skilið þig svona svakalega að þú
gast ekki annað en hlegið sem
gerði mig víst enn fýldari á svip.
Þú hlóst alltaf jafn mikið að þessu
atviki og ég líka þegar þú sagðir
frá því.
Ógleymanlegir eru sketsarnir
sem við gerðum með þér við syst-
urnar. Við klæddum okkur í alls-
kyns múnderingar s.s. gamla 80’s-
kjóla af þér eða gömul jakkaföt af
pabba og tróðum púðum inn á
magann á okkur. Fórum svo í bíl-
túr í herlegheitunum og röltum
inn á BSÍ með upptökuvél í far-
teskinu. Við hlógum og tístum yfir
þessu öllu saman, það var alltaf
svo gaman hjá okkur.
Þú dróst okkur öll út úr skelinni
og sýndir okkur að það er alltaf í
lagi að leika sér og hafa gaman af
lífinu. Það má ekki taka það of al-
varlega og ég held að það sé það
mikilvægasta sem þú kenndir
mér. Ef þig langar að dansa úti á
götu – gerðu það!
En rétt eins og þú, þá eru allar
þessar minningar sem við eigum
um þig ljós. Það mætti því segja að
ljósið þitt verði eilíft. Minningarn-
ar, brosið, hláturinn og hlýjan lifir
að eilífu í hjörtum okkar allra.
Rebekka, Gauti og stelpurnar.
Áslaug M.G. Blöndal
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr
að andlátum og útförum. Þar eru birtar
andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar
sem eru aðgengilegar öllum en auk þess
geta áskrifendur lesið minningargreinar
á vefnum.
" 1+.&*0 +4 (/ ,&&( *!!3%)#&-(4 *0
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát
ber að höndum og aðrar gagnlegar
*!!3%)#&-(4 '23(/(4 (/)2(&$+&$*0
við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát