Morgunblaðið - 30.11.2021, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3 0. N Ó V E M B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 281. tölublað . 109. árgangur .
NÝTT SKIP
BOÐIÐ VELKOMIÐ
HEIM TIL ÍSLANDS
23 ÁR LIÐU
MILLI SÓLÓ-
PLATNA
SJÖUNDI
GULLBOLTINN
OG SÁ FYRSTI
Á NORÐURHVELI 28 MESSI OG PUTELLAS 27BALDVIN NJÁLSSON 8 SÍÐUR
mikið endurgreiðsluprósentan verð-
ur hækkuð en skilaboðin eru þó
skýr. „Við erum að fara að keppa
við Írland og Spán. Við gerum
þetta til að keppa við þessi stóru
lönd.“
Kristinn Þórðarson, formaður
Sambands íslenskra kvikmynda-
framleiðenda, fagnar áformum
nýrrar ríkisstjórnar. „Það hafa ver-
ið viðræður við stærri fyrirtæki úti
í heimi og skilaboðin eru á þá leið
að ef endurgreiðslan fer upp í 35%
þá eru þessi fyrirtæki tilbúin að
koma hingað í tökur.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Endurgreiðsluhlutfallið verður
hækkað og með því ætlum við að
styðja enn frekar við greinina.
Markmiðið er að Ísland verði sam-
keppnishæft við önnur ríki og að
stór verkefni verði unnin alfarið á
Íslandi,“ segir Lilja Dögg Alfreðs-
dóttir, ferðamála-, viðskipta- og
menningarmálaráðherra.
Fram kom í stjórnarsáttmálanum
sem kynntur var á sunnudag að
„alþjóðlega samkeppnishæft stuðn-
ingskerfi við framleiðslu kvik-
mynda- og sjónvarpsefnis verður
eflt. Við ætlum að styðja enn frekar
við greinina með hærri endur-
greiðslum á skýrt afmörkuðum
þáttum“, segir þar.
Framsóknarflokkurinn boðaði
hækkun endurgreiðslu vegna
kostnaðar sem fellur til við kvik-
myndagerð í aðdraganda kosninga.
Kvikmyndagerðarmenn hafa lengi
kallað eftir slíku framtaki. Endur-
greiðsluprósentan er nú 25% en
þeir hafa vilja sjá hækkun upp í
35% til að geta keppt við lönd á
borð við Írland en stór verkefni á
borð við Game of Thrones hafa fall-
ið Írum í skaut vegna þessa.
Lilja vill ekki staðfesta hversu
- Hækka endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar - Áformum nýrrar ríkisstjórn-
ar fagnað - Fengið skilaboð um að 35% endurgreiðsla muni laða að fyrirtæki
Endurgreiðslur
» Endurgreiðsla vegna kvik-
myndagerðar nemur 25% á Ís-
landi. Hún er 35% á Spáni og
Írlandi.
» Kvikmyndagerðarmenn telja
mikil sóknarfæri fram undan ef
endurgreiðsluprósentan verð-
ur hækkuð.
» Ekki hefur fengist staðfest
hversu mikið endurgreiðslan
mun hækka.
Munu keppa við Írland og Spán
MStóru fyrirtækin vilja koma … »6
Knattspyrnulið Þróttar hóf æfingu í Laugardal í gær með því
að ryðja völlinn svo að hægt væri að leika þar bolta með léttu
móti. Snjó kyngdi niður í höfuðborginni í gær og urðu miklar
séu fjölmargir bílar á sumardekkjum og það hafi átt stóran
þátt í umferðartöfunum. Minnkandi ofankomu er spáð á höf-
uðborgarsvæðinu í dag, með hita um eða undir frostmarki.
umferðartafir vegna þeirra veðurskilyrða sem sköpuðust.
Fjöldi minniháttar árekstra varð í kjölfarið, samkvæmt upp-
lýsingum frá umferðardeild lögreglunnar. Hún segir að enn
Snjó kyngdi niður án afláts í höfuðborginni í gær
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hituðu upp í Laugardal með því að ryðja snæviþakinn knattspyrnuvöllinn
Enn ríkir óvissa um það hve mikla
vörn bóluefni veita gegn nýju af-
brigði kórónuveirunnar, Ómíkron,
en allt að tvær vikur geta liðið þar til
það verður ljóst. Tveir stærstu bólu-
efnaframleiðendur heims, Pfizer-
BioNTech og Moderna, segjast vera
að undirbúa breytingar á bóluefnum
sínum svo að þau ráði við afbrigðið ef
þörf krefur.
Afbrigðið hefur farið hratt um
heiminn undanfarna daga og Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunin
WHO segir að heiminum stafi hætta
af nýja afbrigðinu. Óttast sérfræð-
ingar stofnunarinnar að það geti leitt
til nýrrar smitbylgju. Enn sem kom-
ið er hafa engin dauðsföll verið til-
kynnt af völdum Ómíkron og hafa
þær raddir jafnvel heyrst að hættan
af þessu afbrigði veirunnar sé stór-
lega ýkt. Ljóst virðist þó að það sé
meira smitandi en önnur afbrigði
veirunnar og ýmislegt bendir til þess
að bólusetningar dragi ekki úr veik-
indum af völdum þess.
Heilbrigðisráðherrar G7-ríkjanna
funduðu í gær um Ómíkron, en fleiri
tilfelli þess greindust í Evrópulönd-
um í gær og um liðna helgi. »13
Óvissa um vörn bólu-
efna gegn Ómíkron
_ Stefnt er að
því að reisa
nýja Mið-
garðakirkju í
Grímsey á
næsta ári og
helst vígja
hana fyrir árs-
afmæli kirkju-
brunans sem
varð að kvöldi
21. september.
Kirkjan gjöreyðilagðist og allir
kirkjugripir.
Nýja kirkjan verður úr timbri,
80-90 fermetrar að stærð og er
áætlað að hún geti kostað 80-100
milljónir króna en söfnun vegna
kirkjubyggingarinnar hefur staðið
yfir. Búið er að ráða Hjörleif Stef-
ánsson arkitekt til að teikna nýju
kirkjuna, en hann þekkir vel til
gamalla kirkna. »4
Ný kirkja Tölvumynd
af hugsanlegu útliti.
Ný kirkja í Grímsey
reist á næsta ári
Sýni úr laxi úr eldiskvíum í Reyð-
arfirði, sem talinn er sýktur af blóð-
þorra, hafa verið send til raðgrein-
ingar á rannsóknarstofu í Þýska-
landi. Niðurstöður hennar eiga
meðal annars að leiða í ljós hvort til-
gáta dýralæknis fisksjúkdóma um að
ný stökkbreyting ISA-veirunnar
valdi sýkingunni – eða hvort hún hef-
ur borist annars staðar frá.
Ekki er vitað um ástæður sýking-
arinnar. Gísli Jónsson telur líklegt
að umhverfisaðstæður valdi því að
veiran hafi stökkbreyst, úr mein-
lausri laxaflensu yfir í meinvirkt af-
brigði. Hann bendir á að álag hafi
verið á kvíunum á Gripalda. Árið
byrjaði með óveðri sem leiddi til þess
að fóðurprammi sökk við eldiskví-
arnar. Síðar bættist við þörunga-
blómi í vor og marglytta lagðist að í
haust. Segir Gísli hugsanlegt að
ónæmi fisksins hafi dalað í þessu
volki og það orðið til að skapa tæki-
færi fyrir veiruna.
Ekki hefur orðið vart við afföll í
öðrum kvíum á sömu staðsetningu,
þótt stutt sé á milli, en í næstu viku
verður byrjað að skima fyrir sýking-
unni þar. »11
Umhverfisálag á kvíarnar
- Óveður, þörungablómi og marglytta geta veiklað laxinn
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Lax Öllum laxi hefur verið slátrað
upp úr kvínni sem sýking kom upp í.