Morgunblaðið - 30.11.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 30.11.2021, Síða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2021 Bætt hreinlæti í nýjum heimi Fáðu ráðgjöf fyrir þitt fyrirtæki www.hreint.is s: 589 5000 hreint@hreint.is Boðaðar aðgerðir í þeim tilgangi að efla hlutverk ríkissáttasemjara og bæta verklag við gerð kjarasamn- inga í stjórnarsáttmála ríkisstjórn- arinnar gætur orðið risastórt skref í rétta átt, að mati framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, sem væntir þess að gengið verði mjög hratt til verks í þessum málum. Forseti Al- þýðusambands Íslands segir verka- lýðshreyfinguna ekki taka í mál að skerða verkfallsrétt ef fyrirhugaðar aðgerðir ganga í þá átt. Í kafla um vinnumarkasmál í stjórnarsáttmálanum segir orðrétt: „Styrkja þarf hlutverk ríkissátta- semjara til að bæta undirbúning og verklag við gerð kjarasamninga, fækka málum sem lenda í ágreiningi og tryggja að kjaraviðræður dragist ekki úr hóf fram, til að mynda með standandi gerðardómi í kjaradeilum sem eykur fyrirsjáanleika og réttar- öryggi deilu- aðila.“ Halldór Benja- mín Þorbergsson, framkvæmda- stjóri SA, segir samtökin hafa lengi talað fyrir því að tímabært sé að að styrkja verulega ramma og umgjörð ríkis- sáttasemjara sem varði getu hans til þess að stíga inn í erfið deilumál. „Eins og þetta er í dag þá eru völd og áhrif ríkissáttasemjara ekki sam- bærileg við það sem við sjáum á öðr- um Norðurlöndum og við höfum talið að það væri eðlilegt að við litum til Norðurlanda hvað varðaði hlutverk ríkissáttasemjara þar sem hann hef- ur í raun sterkari stöðu en hér. Ég tel að það sé einsýnt að þetta muni leiða til þess að hægt sé að stytta kjaradeilur og ná fram bættri verk- stjórn við úrlausn þeirra. Það ætti að vera öllum í hag. Að því leytinu til er ég ánægður með þessa yfirlýsingu sem ríkisstjórnin gefur með mjög af- dráttarlausum hætti og vænti þess að það verði gengið mjög hratt til verks í þessu,“ segir Halldór. Hugmyndir voru ræddar fyrir nokkrum árum um að heppilegt væri að koma á fót standandi gerðardómi, þ.e.a.s. gerðardómi sem væri viðvar- andi og til taks hjá ríkissáttasemjara í stað þess að skipa í einstaka gerð- ardóma. Með því mætti byggja upp sérþekkingu og sérhæfingu innan gerðardómsins sem gæti verið sneggri til úrskurða og að sama skapi yrði til beittara verkfæri í kistu ríkissáttasemjara að sögn Halldórs. „Það hafa verið alls konar hug- myndir á floti um að styrkja embætti ríkissáttasemjara og sitt sýnist hverjum,“ segir Drífa Snædal forseti ASÍ. „Við höfum sagt að við erum ekki til viðræðna um að takmarka verkfallsréttinn eða veita ríkissátta- semjara heimildir um að fresta verk- föllum eða eitthvað slíkt,“ segir Drífa. Að sögn hennar hefur gerðardóm- ur verið nýttur hér á landi þannig að hægt sé að vísa kjaradeilu til gerð- ardóms ef viðsemjendur eru ásáttir um að gera það en hún kveðst ekki vita hvernig standandi gerðardómur eigi að leysa það fyrirkomulag af hólmi. „Við óttumst svolítið að það sé verið að fría aðila vinnumarkaðarins eða stjórnvöld frá því að taka á kjaradeilum með eðlilegum hætti og þá helst gagnvart opinbera markað- inum, þar sem hafa verið hvað harð- vítugustu deilurnarnar að undan- förnu og gerðardómur og laga- setningar verið notaðar.“ ,,Ég las stjórnarsáttmálann eins og aðrir í gær og sá að þarna er rætt um að eiga áframhaldandi árangurs- ríkt samstarf við aðila vinnumarkað- arins. Ég fagna því,“ segir Aðal- steinn Leifsson ríkissáttasemjari. Hann segist ekki hafa frekar en aðr- ir nánari upplýsingar um áform rík- isstjórnarinnar um standandi gerð- ardóm. omfr@mbl.is Beittari verkfæri í kistu sáttasemjara - Tímabært að styrkja verulega hlutverk ríkissáttasemjara að sögn framkvæmdastjóra Samtaka at- vinnulífisins - Verkalýðshreyfingin ekki til viðræðu um að takmarka verkfallsréttinn segir forseti ASÍ Halldór Benjamín Þorbergsson Drífa Snædal Aðalsteinn Leifsson Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Tæplega 91% heimila safna alltaf skilagjaldsskyldum drykkjarum- búðum, 6% oftast og rúm 3% stund- um, sjaldan eða aldrei, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Gallup gerði nýlega fyrir Endurvinnsluna. Í sömu könnun kom fram að konur virðast duglegri að safna umbúðum heldur en karlar og að yngra fólk safni umbúðum síður. Þá segjast rúm 12% svarenda gefa drykkjar- umbúðir til m.a. skáta og íþrótta- félaga, samkvæmt upplýsingum frá Helga Lárussyni, framkvæmda- stjóra Endurvinnslunnar. Helgi segir þetta jákvæðar niðurstöður. „Drykkjarumbúðir sem skilað er til endurvinnslu tryggja hreinna nærumhverfi, stuðla að aukinni hringrás- arhugsun og tryggir endurheimt auðlinda. Slíkt varðar okkur öll,“ segir Helgi. Plastflaska gerð úr plastflösku Fyrstu tíu mánuði ársins voru greiddir út rúmlega 2,7 milljarðar við skil á drykkjarumbúðum. Það er hærri upphæð en nokkru sinni áður og hluti skýringarinnar er sú að skilagjaldið hækkaði úr 16 krón- um í 18 krónur 1. júlí í sumar. Það sem af er ári hefur orðið aukning í skilum frá fólki. Sérstaklega nefnir Helgi umbúðir úr áli og skýrir það einkum með aukinni framleiðslu fyrirtækja á drykkjarvörum í ál- umbúðum. Hann segir að innlendir innflytj- endur og framleiðendur séu með- vitaðir um umhverfið og noti í auknum mæli ál og endurunnið plast, svokallað rPET, sem er unn- ið úr endurunnu plasti. Aukin eft- irspurn sé á heimsmörkuðum eftir endurheimtu PET-plasti enda vit- undarvakning í hringrásarhugsun hjá flestum vöruframleiðendum. Nú er orðið algengara en áður að plastflaskan sé notuð aftur til að búa til flösku, eins og gert er með áldósir. Áður var algengt að plastið væri endurunnið, m.a. til að búa til flíspeysur. Endurvinnslan Pökkuðum umbúðum drykkjarfanga komið fyrir í gámi. Konur duglegri við um- búðaskil heldur en karlar - Um 2,7 milljarðar greiddir við skil fyrstu tíu mánuðina Guðni Einarsson gudni@mbl.is Viðgerð á turni Húsavíkurkirkju lýkur væntanlega næsta sumar. Ný- ir krossar voru smíðaðir úr veður- þolnum viði í vor, málaðir og settir upp. Í sumar var allt stál yfir gluggaáfellum á turninum endurnýj- að. Eins var byrjað að taka fúa úr bitum og listum, það er brúnviðnum á kirkjunni, að sögn Kristjáns Ben Eggertssonar smiðs sem annast við- gerðina. Hann sagði að frekari við- gerðir á fúa og þétting lúga á klukkugólfinu yrðu kláraðar næsta sumar. Einnig þarf að laga skraut- bita sem eru á norður- og austurhlið turnsins sem er áveðurs. Eftir er að taka niður og endurnýja stóra skrautbita. „Við höfum getað fjár- magnað þetta hingað til,“ sagði Helga Kristinsdóttir, formaður sóknarnefndar. Hún sagði að áætl- aður kostnaður við viðgerðina væri 23 milljónir króna. Hollvinasamtök Húsavíkurkirkju hafa nú þegar safn- að tæplega tíu milljónum. Einnig hefur verið samþykkt framlag úr jöfnunarsjóði sókna sem deilist á fjögur ár. „Ég er bjartsýn á að framkvæmd- irnar við turninn klárist næsta sum- ar. Ég er einnig vongóð um að það takist að laga aðgengi að kirkjunni þannig að fólk í hjólastólum komist þar inn næsta haust. Svo þarf að laga lóðina að því,“ sagði Helga. Ráðgjafarfyrirtækið Landslag ehf. er að hanna aðgengið og lóðina. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Húsavíkurkirkja Rögnvaldur Ólafsson teiknaði kirkjuna sem var vígð 1907. Gert við turninn á Húsavíkurkirkju

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.