Morgunblaðið - 30.11.2021, Side 8

Morgunblaðið - 30.11.2021, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2021 HUNDAFÓÐUR Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes www.gaeludyr.is Það þótti merki um stöðugleika að kjósendur gáfu áfram færi á sömu þriggja flokka stjórn að kvöldi kjördags. Formenn flokkanna voru opnir fyrir því. Eðlilegt var að í krafti þess yrðu lágmarksmanna- breytingar í stjórninni, og viðbót boðuð síðar. - - - Á óvart kom nokkurt hringl með ráðuneyti og algjörlega óþarfar nafnabreytingar. Hefðbundin ráðu- neyti voru svo brotin upp og tilflutn- ingur gerður á verkefnum og skrif- stofum og virtist leitast við að laga ráðuneyti að þeim einstakingum sem koma átti þar fyrir. - - - Innanríkisráðuneyti úr tíð Jóhönnu hafði verið lagfært í dóms- málaráðuneyti á ný en er nú sett í jó- hönnufarið. Eins glittir í froðuheiti á borð við mannréttindaráðuneyti, en þau heyra undir Stjórnarráðið sem heild og sjálf stjórnarskráin hefur það víðfeðma mál á sinni könnu. - - - Í kynningu á ríkisstjórn a sunnu- dag virtist búið að hengja „mat- vælaráðuneyti“ aftan í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti en það var þó óljóst. - - - Í einhverjum óskýrðum vandræða- gangi birtist svo loftslagsráðu- neyti. Verkefni þess verða þó varla upp á borðinu fyrr enn 2050-60 þeg- ar að Kína, Rússland, Indland, og í raun Afríka og Suður-Ameríka taka að „nálgast þetta borð.“ Eðlilegast væri að setja fólk í þetta óljósa tísku- tildur þegar að hinn hluti heimsins væri farinn að nálgast þá stöðu sem við erum í. Hrært að þarflausu STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ „Mér heyrist að það hafi verið ágætis kropp víðast hvar,“ segir Áki Ármann Jónsson, formaður Skotveiðifélags Íslands. Rjúpna- veiðitímabilinu lýkur í dag. „Menn hafa þurft að hafa fyrir þessu. Það hefur verið lítið af rjúpu. Það var helst á Vestfjörðum og Vesturlandi sem maður heyrði af ágætis veiði miðað við að- stæður,“ segir Áki. „Tíðin hefur verið mjög rysjótt og mikið um leið- inda rigningar og rok. Það er leið- inlegt að veiða í svoleiðis veðri.“ Að þessu sinni var leyft að veiða fimm daga í viku og frá hádegi hvern veiðidag. Áki segir menn hafa haft áhyggjur af því að það fyrirkomulag gæti orðið til þess að rjúpnaskyttur myndu veiða fram í myrkur og týnast. Þær áhyggjur reyndust ástæðulausar og í gær hafði ekki þurft að leita að rjúpna- skyttu á þessu veiðitímabili. Áki segir ánægjulegt að holdafar rjúpunnar sé gott. Samkvæmt rannsóknum geti það vísað á upp- sveiflu stofnsins. gudni@mbl.is Ágætiskropp víðast hvar í rjúpnaveiðinni Morgunblaðið/Ingó Rjúpnaveiði Hafþór Hallsson skytta og sækirinn Amon á veiðislóð. Hafnarfjarðarbær hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna framkvæmda á íþrótta- svæði Hauka á Ásvöllum. Skipulagsstofnun ákvað í sumar að framkvæmdirnar þyrftu að fara í gegnum mat á umhverfisáhrifum, en uppbyggingin felur m.a. í sér fjölnota knatthús og fjóra æfingavelli. Fyrirhugað framkvæmdasvæði liggur á eld- hrauni sem nýtur sérstakrar verndar auk þess sem svæðið liggur við Ástjörn sem er friðlýst svæði vegna náttúrufars, segir í matsáætlun. Mikið lífríki er við tjörnina, einkum fuglalíf, og er tjörnin frið- lýst vegna þess. Í kjölfar ákvörðunar Skipulags- stofnunar um matsskyldu var ákveðið að fara í áframhaldandi vöktun á grunnvatnsstöðu Ástjarn- ar. Í kafla um mengun frá framkvæmdasvæði á framkvæmdatíma segir að vegna nálægðar við Ástjörn sé slík áhætta fyrir hendi. Rík áhersla verði lögð á regnvatnslausnir sem skili yfirborðsvatni í jörðu innan skipulagssvæðisins til þess að viðhalda vatnsbúskap svæðisins og gert er ráð fyrir fleiri mótvægisaðgerðum. Þá er gert ráð fyrir að á fram- kvæmdatíma verði allar vinnuvélar og ökutæki ástandsskoðuð og lekaprófuð áður en verk hefst. Vöktun og aðgerðir við Ástjörn Tölvumynd/ASK Arkitektar 2019 Haukar Svæðið að loknum framkvæmdum. - Matsáætlun vegna upp- byggingar hjá Haukum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.