Morgunblaðið - 30.11.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.11.2021, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2021 Ríkisstjórn í væntri uppsveiflu - Væntingar í loftslagsmálum - Skilningur á hagsmunum atvinnuvega - Treyst á víðtækt samráð - Fjármunir fylgi verkefnum - Kjör öryrkja verði bætt - Varðstaða verði um kaupmátt Morgunblaðið/Eggert Forystufólk Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson kynna nýja ríkisstjórn sl. sunnudag. Mikilvæg og brýn úrlausnarefni bíða stjórnarinnar og hveitibrauðsdagar verða fáir, að ætla verður. „Áhersla nýrrar ríkisstjórnar á hugverk, háskóla og heilbrigði er mjög í anda sam- takanna sem ég fer fyrir,“ segir Friðrik Jónsson, formaður BHM. „Að vaxa til vel- sældar er markmið sem hljómar vel. Er gott og gilt hvernig sem á mál er litið. Mér líst vel á vinnu- markaðskaflann í nýjum stjórn- arsáttmála, en auðvitað skiptir út- færslan og framkvæmdin mestu máli. Ég vænti góðs samtals og samráðs við stjórnvöld um þessi mál. Varðstaða um kaupmátt og sanngjörn hlutdeild vinnuafls og launafólks í væntri uppsveiflu eru þar lykilatriði. Ég vil hefja þetta samtal og samráð sem allra fyrst,“ segir formaður BHM. Vænti góðs samtals „Náttúruvernd virðist ekki á dagskrá nýrrar ríkisstjórnar,“ segir Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmda- stjóri Land- verndar. „Hálendis- þjóðgarður verður ekki að veru- leika, en í bakgrunni þeirrar ráð- stöfunar eru viðhorf um að byggja þurfi fleiri virkjanir. Á slíkt þarf þó að leggja óháð mat og skoðast í tengslum við atvinnustefnu. Að Ís- lendingar hætti allri notkun jarð- efnaeldsneytis fyrir 2040 og hafi dregið úr útblæstri gróðurhúsaloft- stegunda um 55% á næstu níu árum eru háleit markmið en afar spenn- andi. Halda þarf vel á spöðunum svo þetta gangi upp.“ Náttúruvernd fórnað „Á fyrsta degi sínum í embætti segist nýr félags- málaráðherra ætla að bæta kjör og stöðu fatlaðs fólks. Þetta gef- ur tilefni til bjartsýni,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ. „Hækka verður örorkulífeyri, draga úr skerðingum og hækka frí- tekjumörk á atvinnutekjur. Í dag eru greiðslur til okkar fólks undir lágmarkslaunum og atvinnuleysis- bótum. Við höfum lengi hamrað á mikilvægi þess að sáttmáli Samein- uðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur, enda felst í honum að við getum átt líf til jafns við aðra. Ég trúi að þessu muni nýr félagsmálaráðherra breyta, þótt allt ráðist af því hvaða pólitíska stuðning hann fær.“ Sáttmála í gildi „Í stjórnarsátt- mála kemur fram góður skilningur á ýms- um hagsmuna- málum landbún- aðar. Slíkt skapar vænt- ingar,“ segir Gunnar Þorgeirs- son, formaður Bændasamtaka Ís- lands. „Tryggja á fæðuöryggi landsins með aukinni framleiðslu með loftslagsvænum leiðum. Aukin grænmetisframleiðsla og kornrækt eru í þágu umhverfis, eins og land- græðsla og skógrækt sem nú færast í matvælaráðuneytið. Að setja eigi nýja landbúnaðarstefnu er fagn- aðarefni og endurskoðun á við- skiptasamningi við ESB er mik- ilvæg.“ Skilja hagsmunina „Uppskipting á menntamálaráðu- neyti felur í sér ýmis tækifæri,“ seg- ir Magnús Þór Jónsson, verðandi formaður Kennarasambands Ís- lands. „Farsældarfrumvarp um málefni barna sem Ásmundur Einar Daða- son lagði fram hefur verið í deigl- unni lengi og menntastefna til árs- ins 2030 liggur fyrir, samþykkt af Alþingi. Þetta tvennt er nauðsynlegt að samþætta í framkvæmd og þá fer vel að mál þessi séu á hendi sama ráðherra. Mikilvægt er að ráðherra geti einbeitt sér að skólamálum, sem eru jafnan einn af hornsteinum sam- félagsins. Tækniframfarir og ný þekking ráða því að aðstæður breytast hratt og því verða skólarnir að fylgja. Víða erlendis hefur verið farin sama leið og nú er farin á Íslandi; að menntun sé í einu ráðuneyti og í öðru séu menningarmálin, sem í raun gefur þeim vægi á alla lund. Ég treysti því líka að ráðherrann verði í víðtæku samráði við fulltrúa skólasamfélagsins varð- andi þau verkefni sem vinna þarf á kjörtímabilinu.“ Tækifæri í menntmálum „Af mörgu mikilvægu í stjórnarsátt- mála fagna ég áherslu á loftslags- og orkumál og tækifæri í nýsköpun og hugverkadrifnu hagkerfi. Þó eiga hug okkar í fyrirtækinu sem ég stýri tækifærin sem felast í að efla íslenska matvælaframleiðslu með áherslu á hreinar afurðir, fram- leiddar endurnýjanlegri orku og grunnu kolefnisspori,“ segir Ásta S. Fjeldsted framkvæmdastjóri Krónunnar. „Svandís Svavarsdóttir, nýr ráðherra matvæla, sjávarútvegs- og landbúnaðar getur í samstarfi við framleiðendur og flutningafyrirtæki stuðlað að því að Ísland verði að eftirsóttri matarkistu á norðurslóðum. Nýrri tækni og þekkingu í matvælaframleiðslu fleygir fram. Neyt- endur eru að verða meðvitaðri og kröfuharðari um uppruna vara. Með íslenskri framleiðslu veistu hvaðan varan kemur, kolefnissporið er margfalt minna og gæði íslenska vatnsins við framleiðsluna eru einstök. Við eigum að grípa tækifærið núna og byggja upp öfl- uga útflutningsgrein.“ Byggja upp öflugan útflutning „Loftslagsmálin eru mikilvægasta málefni samtímans sem ég hef áhyggjur af með nýrri ríkisstjórn, segir Dóra Björt Guðjónsdóttir borg- arfulltrúi Pírata í Reykjavík. „VG kaupir embætti forsætisráðherra dýru verði. Að ráðherra umhverf- ismála komi úr Sjálfstæðisflokki, sem skilar auðu í málaflokknum, eru von- brigði. Hér í borginni stóð Sjálfstæð- isflokkurinn í sinni valdatíð fyrir skipulagsstefnu sem gerði okkur háð einkabílnum. Orkumálin flytjast til umhverfisráðherra en Sjálfstæð- isflokkurinn lætur eins og orkuskipti leysi allt. Bjartsýnustu spár sýna að orkuskiptin duga ekki til að standa við Parísarsáttmálann. Feimni ríkir um að ávarpa borgarlínuna ber- um orðum í sam- starfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna þótt halda eigi áfram með verk- efnið. Þá vantar að fullfjármagna málaflokk fatlaðs fólks gagnvart sveitarfélögum og standa þannig við mannréttinda- skuldbindingar. Ekkert er vikið að skaðaminnkun eða afglæpavæðingu. Ánægjulegt er að setja eigi markmið um 55% samdrátt í losun gróðurhúsa- lofttegunda og ekki gefa út leyfi til ol- íuleitar eins og Píratar hafa lagt til.“ Borgarlínan virðist feimnismál „Samráð um mikilvæg mál er áberandi stef í stefnu nýrrar ríkis- stjórnar. Slíkt hugnast mér vel,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon sveit- arstjóri í Skagafirði. „Sveitar- félögum verða í náinni framtíð fal- in ýmis verkefni, sem ríkið hefur með höndum í dag. Því fagna ég. Til stendur að bæta þjónustu við aldraða og þá er mikilvægt að nægir fjármunir fylgi. Ég hef reyndar ekki ástæðu til að ætla annað en svo verði, því rík- isstjórnin er skipuð fólki sem ég treysti. Stjórnarflokkarnir þrír standa ekki fyrir neinni bylting- arstefnu, heldur hafa einfaldlega komið með skynsamlegar lausnir á viðfangsefnum líðandi stundar. Að grunnatvinnu- vegum, til dæm- is landbúnaði og sjávarútvegi, sé skapað jafnvægi í starfsskil- yrðum til lengd- ar er þýðing- armikið. Í stjórnarsátt- mála er talað um frekari flutning opinberra starfa út á land og efl- ingu þjónustu þar. Slíkt er fagn- aðarefni. Vissulega hefði verið ánægjulegt ef fleiri ráðherrar kæmu úr landsbyggðar- kjördæmum, sem þó er aukaatriði ef í störfum og áherslum er horft til landsins alls.“ Skynsamlegar lausnir á viðfangsefnum Ný ríkisstjórn tekur við

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.