Morgunblaðið - 30.11.2021, Side 14

Morgunblaðið - 30.11.2021, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ekki er unnt að segja að endurnýjað stjórnarsamstarf ríkisstjórnarflokk- anna þriggja hafi komið verulega á óvart. Það er ekki heldur hægt að segja að ráðherraliðið komi mjög á óvart, þó að einhverjir hafi lyft brún yfir einum og ein- um eða hvar þeim var niður komið. Það er frekar að spyrja megi spurninga um hringlið með ráðuneytin, misskyn- samlega verkefnaflutninga og flatneskjulegar nafnabreyt- ingar, sem um margt bera meiri keim af pólitískri hentisemi og sýndarmennsku en þörf. Og hvað varð um matvælaráðu- neytið sem hvarf? Það sem kom mest á óvart var hversu lengi viðræðurnar stóðu, sérstaklega þó í ljósi hins loðna stjórnarsáttmála, sem kynntur var um helgina. Þar er talað í löngu máli um helstu stefnumið og jafnvel aðgerðir, en flest er það nú ákaflega al- mennt orðað eða fyrirsjáanlegt. Margt má telja til hefðbundinna húsverka hvaða ríkisstjórnar sem væri, en annað er tekið upp af óskalistum flokkanna í kosn- ingabaráttu, jafnvel þannig að þar kann sumt hæglega að stangast á. Formenn ríkisstjórnarflokk- anna kynntu að eitt helsta verk- efni þeirra væri að koma ríkis- fjármálunum í samt lag aftur eftir heimsfaraldurinn um leið og lífskjör landsmanna væru tryggð. Það skal gert undir kjörorðunum Vöxtur til vel- sældar. Það er skynsamleg nálgun við þann vanda, sem að steðjar, en Íslendingar eiga all- an kost á að leysa. Það verður gert með vexti og verðmæta- sköpun í atvinnulífi, sem er grundvöllur þeirrar velsældar, sem Íslendingar búa við og geta aukið til muna. Það skýtur því skökku við þegar stjórnarsáttmálinn er lesinn og hinn rauði þráður hans verður ljós. Þar er í hverj- um kafla lagt á ráðin um aukin ríkisumsvif: hvernig ríkisvaldið hyggist skakka leikinn í nafni jöfnunar, aðgerðum hins opin- bera í þágu nýsköpunar, grænni fjárfestingu fyrir þess til- stuðlan, stuðningi við öflugar stoðir atvinnulífsins (!), efla almannaþjónustu og útiloka ekki skattalækkanir ef ríkis- fjármálin leyfa, skattkerfið verði notað til tekjujöfnunar og ríkið verði til taks í kjara- viðræðum, samkeppnisstaða fyrirtækja bætt en um leið á að efla eftirlitsiðnaðinn og skýra leiðbeiningarhlutverk hans, sem á stundum hefur verið á mörkum þess sem lög leyfa. Ekki skal efað að allt er þetta af góðum hug sagt, en margt ber þess vitaskuld merki að ver- ið sé að friða fólk í öllum flokkum og óvíst að það standi til að láta verða af því öllu. Í stjórnar- sáttmálanum er líka margt, sem bæði má heita skynsamlegt og næsta óumdeilt. Eftir stendur samt þessi rauði þráður um enn frekari vöxt hins opinbera, sem er hreint ekki til þess fallinn að auðvelda atvinnulífinu að ná vopnum sínum á ný, nú þegar mest ríður á og miklu skiptir að það geti verið snart í snún- ingum. Eigi að draga einhverja lær- dóma af kórónufaraldrinum og kórónukreppunni, þá er það helst, að ekki reyndust öll kerfi hins opinbera jafn vel undirbúin og vonir stóðu til. Á hinn bóginn stóðst atvinnulífið prófið með sóma. Það aðlagaði sig nýjum og kaldranalegum veruleika á undrahraða, meðal annars með dyggum stuðningi stjórnvalda, tók umsvifalaust og möglunar- laust upp sóttvarnarráðstafanir svo að hópsmit mega heita nær óþekkt á vinnustöðum, fyrir- tæki brugðust skjótt við og gáfu lækningatæki þegar þeirra var þörf, en þekkingarfyrirtæki á borð við Íslenska erfðagrein- ingu og Controlant sýndu hvers þau voru megnug, svo öll þjóðin er bæði þakklát og stolt af þeim í senn. Þess vegna má heita merki- legt að nú þegar faraldurinn hefur staðið yfir í nánast tvö ár, þá skuli það enn vera fyrsta og oft eina svar stjórnmálamanna við hverjum vanda og viðfangs- efni lífsins, að þar þurfi meiri ríkisafskipti, meiri áætlana- gerð, fleiri nefndir og meiri út- gjöld. Ríkisvaldið getur ekki átt svarið við öllu og það er ekki svarið við öllu. Íslendingar þekkja það af biturri reynslu líkt og velflestar aðrar þjóðir, að stjórnmálamönnum lætur ekki vel að stunda veðmál með atvinnulífið, hvort sem þar er veðjað á einstakar greinar, einstök fyrirtæki, þeim ívilnað eftir starfsmannafjölda eða bágri framleiðni. Slíkur áætlunarbúskapur stjórnmála- manna og feykilegra faglegra en ábyrgðarlausra vitringa þeirra er ekki aðeins dæmdur til þess að mistakast, heldur þrengir hann að tækifærum frumkvöðla, fólks sem fyrir- tækja, og skilur minna eftir hjá þeim til þess að fjárfesta í nýj- um tækifærum, þekkingu og uppgötvunum. Vilji ríkisstjórnin vöxt til vel- sældar færi betur á því að ríkis- valdið héldi að sér höndum. Það er nóg af vinnufúsum höndum og verk að vinna. En til þess að atvinnulífið og hagkerfið vaxi þarf svigrúm, ekki kæfandi faðmlag. Vilji ríkisstjórnin vöxt til velsældar færi betur á því að ríkisvaldið héldi að sér höndum} Rauði þráðurinn E ftir að hafa legið yfir texta í tvo mánuði birtu formenn Vinstri- grænna, Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokks stjórnarsáttmála annars ráðuneytis Katrínar Jakobsdóttur á fyrsta sunnudegi í aðventu. Við yfirlestur flaug mér í hug að forystufólk stjórnarflokkanna hefði ef til vill haft of rúm- an tíma til að dunda sér við textann en ekki varið nógum tíma í að ydda pólitíska hugsun, útfæra aðgerðir og forgangsraða verkefnum. Stærstu pólitísku tíðindin í sáttmálanum eru þau að þunginn í stjórnarsamstarfinu fær- ist til Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins, þótt formaður VG sé áfram í verkstjór- astólnum í forsætisráðuneytinu. Það er greini- lega ekki lengur flokkað til pólitískrar dygðar í Vinstri-grænum að standa vaktina í heil- brigðis- og umhverfismálunum. Ríkisstjórnin ætlar ekki að hrófla við kerfi auðlindanýtingar og setja fiskveiðistjórnunarkerfið í nefnd. Hún hefur einnig gefist upp á því verkefni að breyta stjórnarskránni. Um leið og stjórnarflokkar lofa því að efla almannaþjónustuna er ekki að finna í hinum langa stjórnarsáttmála nein svör við því hvernig skuli endurreisa opinbera heilbrigð- iskerfið, tryggja fjármögnun og mönnun til framtíðar. Uppstokkun stjórnarráðsins er allrar athygli verð en ekki er jafn ljóst hvaða tilgangi sumar breytingarnar þjóna. Hafi ég skilið þetta rétt þá eiga menntamál nú heima í fjórum ráðuneytum og í raun búið að leggja mennta- og menningarmálaráðuneytið niður í núverandi mynd. Fjölgun ráðuneyta hentar þriggja flokka sam- starfinu vel og gefur fleiri stóla við ríkisstjórn- arborðið en þó ekki nógu marga til að ráðherrakapall Sjálfstæðisflokksins gangi upp. Um kjör þeirra efnaminnstu er fátt sagt annað en að þau eigi að batna eins og annarra, með vexti og velsæld eins og þar stendur. Kjaragliðnunin sem orðið hefur á milli lægstu launa og örorkulífeyris er ekki nefnd einu nafni. Fátækt einstæðra foreldra, nær alltaf mæðra, og barna þeirra er ekki skenkt hálf hugsun. Á einum stað var minnst á barnabæt- ur sýndist mér. Ég fann engar raunhæfar til- lögur um að bæta kjör þeirra efnaminnstu í okkar samfélagi í nýjum stjórnarsáttmála. Endurkoma Sjálfstæðisflokksins í umhverf- isráðuneytið, sem nú má einnig kenna sig við loftslag og orku, veldur áhyggjum. Ljóst er að sjálfstæðismenn telja þá einu leið færa í bar- áttunni við hamfarahlýnun að stuðla að orku- skiptum í samgöngum. Þau þurfa vissulega að eiga sér stað en við flóknu úrlausnarefni dugar ekki ein allsherj- arlausn. Margt þarf að koma til og líklega má fagna því sérstaklega að nefndar eru „hágæða almennings- samgöngur“, það sem við hin köllum borgarlínu, í sátt- málanum. Hinn ylvolgi og orðmargi stjórnarsáttmáli liggur fyrir. Nú er þess beðið að ný ríkissjórn sýni á spilin í fjárlaga- frumvarpinu. Þórunn Sveinbjarnar- dóttir Pistill Ylvolgur og óljós sáttmáli Höfundur er þingkona Samfylkingarinnar – jafnmaðarmannaflokks Íslands. thorunn.sveinbjarnardottir@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BANDARÍKIN Kristján H. Johannessen khj@mbl.is N ú þegar Joe Biden Bandaríkjaforseti og Kamala Harris varafor- seti skrapa botninn í fylgismælingum þar vestra greina fjölmiðlar frá því að mikill titringur ríki innan Hvíta hússins. Á göngum eru menn sagðir hvísla að uppi sé sú hugmynd að tilnefna Harris til emb- ættis dómara við hæstarétt Banda- ríkjanna. Ekki sé að óbreyttu hægt að stilla henni upp sem forsetaefni demókrataflokksins árið 2024. Sýna kannanir nú reglulega forsetann með undir 40% fylgi og varaforset- ann með einungis 28%. Einn þeirra fjölmiðla sem hafa gert sér mat úr flókinni stöðu demó- krataflokksins er The Telegraph. Í umfjöllun þeirra kemur m.a. fram að þótt kjaftasaga um dómaraembætti sé e.t.v. langsótt þá varpi tilvist hennar engu að síður ljósi á þá von- litlu stöðu sem Biden-stjórnin upp- lifir sig nú í. Meðal þess sem forset- inn og hans menn hafa þurft að glíma við eru síhækkandi verðbólga, pattstaða í ýmsum innanríkismálum og alþjóðleg niðurlæging og van- traust í kjölfar brotthvarfs herafla Bandaríkjanna frá Afganistan. Fyrir um viku sendi Hvíta húsið frá sér yfirlýsingu þess efnis að hinn 79 ára gamli Joe Biden muni aftur gefa kost á sér til embættis árið 2024. Hér ber að hafa í huga að ekki er liðið ár frá því að hann tók við embætti og hafa fáir ef nokkur Bandaríkjaforseti sent svo snemma frá sér viljayfirlýsingu til framboðs. Stjórnmálaskýrendur segja sumir þetta vera augljóst veikleikamerki hjá forsetanum. Hann sé með þessu útspili að reyna að stappa stálinu í stuðningsmenn sína sem horfa fram á dvínandi stuðning við stjórnina. Langtum óvinsælli en Cheney Fjölmiðillinn CNN fjallaði ný- verið um það sem hann kallar mikla togstreitu á milli Kamölu Harris og Hvíta hússins. Sagðist hann vera með nærri 30 heimildarmenn, ýmist núverandi eða fyrrverandi starfsfólk Hvíta hússins og demókrataflokks- ins, sem telja að verið sé að koma í veg fyrir framtíðarmöguleika henn- ar til forsetaembættisins. „Það er ítrekað verið að koma henni í þá stöðu að takast á við von- laus málefni sem henta ekki hennar hæfileikum,“ hefur miðillinn eftir ónafngreindum heimildarmanni sem eitt sinn tilheyrði starfsliði Harris. Þá eru einnig uppi raddir sem segja að starfslið varaforsetans hafi ítrek- að brugðist henni og það hafi leitt til gagnrýni á Harris sjálfa. Hvað sem öllu baktjaldamakki líður er ljóst að fylgistölur gætu verið mun betri. Fréttasíða Los Angeles Times hefur tekið saman fylgistölur fimm fyrrverandi varaforseta og borið þær saman við fylgi Kamölu Harris. Séu fyrstu 309 dagar í embætti bornir saman kemur í ljós að Harris skorar lægra en þeir allir. Þannig er hún 5,3% neðar en Mike Pence (í embætti 2017-2021); 18% neðar en Joe Biden (í embætti 2009-2013); 53,2% neðar en Dick Cheney (í emb- ætti 2001-2005) og 40% neðar en Al Gore (í embætti 1993-1997). Sé aftur litið til kjaftasögunnar sem getið var hér í upphafi um sæti í hæstarétti er ágætt að spyrja hvort upp geti komið sú staða á næstu þremur árum að skipa þurfi dómara. Stutta svarið er: já. Í réttinum sitja níu dómarar og er elstur þeirra Stephen Breyer, 83 ára og skipaður í tíð Bills Clintons. Hætti hann er ekki útilokað að Biden- stjórnin vilji skipa ungan dómara og þá er Kamala Harris, fyrrverandi ríkis- saksóknari Kaliforníu, vissulega valkostur. Mun titringurinn valda óvæntu útspili? Donald Trump, fv. Bandaríkja- forseti, minnti á sig um nýliðna þakkargjörðarhátíð þegar hann sagði hluti aftur verða frábæra, eða „great“. Með orðanotkun- inni vísaði hann til fyrri slag- orða sinna í kosningum til emb- ættis forseta; „Gerum Banda- ríkin frábær á ný“ og „Höldum Bandaríkjunum frábærum“. „Uppi er mjög áhugaverður tími í okkar landi, en hafið ekki áhyggjur, við verðum frábær aftur og við gerum það saman,“ sagði Trump. „Bandaríkjunum mun aldrei mistakast og við munum aldrei leyfa þeim að þróast í ranga átt.“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Trump gefur í skyn að hann muni bjóða sig fram til forseta á ný og eflaust ekki í síðasta skipti heldur. Minnti á sig á þakkargjörð FORSETINN FYRRVERANDI Donald Trump AFP Demókratar Forseti og varaforseti mælast nú lágt í fylgiskönnunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.