Morgunblaðið - 30.11.2021, Side 16

Morgunblaðið - 30.11.2021, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2021 Bandaríkin keyptu Alaska af Rússum 1867 fyrir 7,2 milljónir doll- ara. William Seward, utanríkisráðherra í stjórn Abrahams Lin- colns, sem stóð fyrir kaupunum, lagði til að landið festi einnig kaup á Grænlandi og Íslandi af danska ríkinu. Ekk- ert varð þó af því vegna almennrar óánægju borgaranna yfir Alaskakaupunum. Fólki fannst að of mikið hefði verið borgað fyrir óbyggi- legt og kalt land og kallaði kaupin delluna í honum Seward. En segjum svo að hann hefði samt sem áður reynt að fá Danmörku til að selja bæði Grænland og Ísland. Það er alls ekki útilokað að Danir hefðu viljað losa sig við þessar tvær köldu nýlendur. Rétt um 20 árum seinna seldu þeir einmitt Jómfrúaeyjarnar sínar í Karíbahafi til Bandaríkja- manna. Sú nýlenda hafði verið þeim miklu verðmætari en hrjóstrugu eyj- arnar tvær í norðurhöfum. Og hvernig væri þá Ísland í dag, ef við mörlandar værum búnir að vera Ameríkanar í rúm 150 ár? Væri land- ið enn þá hálfnýlenda eins og Púertó Ríkó, sem Ameríka tók af Spáni 1898, eða orðið ríki í samsteypunni eins og Alaska og Havaí? Bæði í Alaska og Havaí voru fyrir frumbyggjar, sem ýtt var til hliðar og aðflutt fólk tók völdin. Enska yfirgnæfði fljótlega frumtungumálin í þeim báðum, en spænskan lifir enn góðu lífi í Púertó Ríkó. Væri enskan búin að útrýma ís- lenskunni hjá okkur og væri e.t.v. stór hluti landsmanna fluttur til Bandaríkjanna og allra þjóða lýður kominn í staðinn? Það má lengi geta sér til um hvað orðið hefði, en Ísland var ekki selt og er fullvalda og sjálf- stætt ríki eins og við vitum. Þrátt fyr- ir það halda margir því fram að landið okkar sé amerískasta land Evrópu. Eyjan hvíta er reyndar nálægasta Evrópuland Ameríku. Svo má ekki gleyma að það voru tugir þúsunda amerískra hermanna á Íslandi í stríðinu. Á sama tíma var mest af meginlandi Evrópu í höndum þýska hersins. Og í hálfa öld eftir stríð- ið var bandarískt herlið í herstöð NATO í Kefla- vík. Áhrifin af setuliðinu voru mikil. Það var am- erísk útvarpsstöð í Keflavík, sem keppti við RÚV, sem þá var eina íslenska útvarpsstöðin, og Kaninn var með sjónvarpsstöð í mörg ár áður en fátæka landanum tókst loks að koma sjónvarpsefni í loftið. Íslendingar voru fyrsta Evr- ópuþjóðin til slökkva þorsta sinn í amerísku kóki. Og þá er komið að mannlegu eða heldur kvenmannlegu hliðinni. Það voru fleiri konur á Ís- landi en karlmenn í byrjun stríðsins. Fjölda þeirra hafði ekki tekist að finna sér lífsförunaut. Kaninn leysti það vandamál. Íslenskir karlar urðu afbrýðisamir þegar amerískir hermenn fóru að gefa auga þessum umfram íslensku stúlkum. Eðlilega voru þær þakklátar fyrir að þurfa ekki að pipra eins og kallað var. Margt var þá kjaftað og m.a. var saga sögð um að ein þessara kvenna hefði rekið einhverjum her- manninum kinnhest þegar hann bauð greiðslu eftir samlífisstund. „Held- urðu að ég sé einhver mella?“ á stúlk- an að hafa sagt. En svo blómstraði ástin líka og hundruð eða jafnvel þúsundir ís- lenskra kvenna giftust hermönnum og fluttu með þeim til Ameríku eftir stríðið, eignuðust þar börn og buru og kynbættu bandaríska þjóð. En marg- ir hermenn sviku líka íslensku stelp- urnar í tryggðum og skildu þær eftir eins og skít í polli, stundum óléttar. Nú á dögum gætir enn mikilla amer- ískra áhrifa í íslensku þjóðfélagi. Við höfum tekið upp ýmsa ameríska siði og ekki alltaf þá bestu, t.d. hrekkja- vökuna og svarta föstudaginn. Unga Ísland er límt við tölvuna og bölvar og klæmist á amerísku. Fyrst við erum í þessum hugleið- ingum er vert að minnast þess að það voru íslenskir menn sem uppgötvuðu N-Ameríku fyrir 1.100 árum. Búið er að sanna að þeir námu land í Kanada, en ýmsir telja að þeir hafi siglt miklu lengra í suður, jafnvel til Georgíu og Flórída. Einhver gárunginn á að hafa sagt að ef íslensku víkingarnir hefðu ekki látið indíánana hrekja sig í burtu væri kannski töluð íslenska í Am- eríku í dag! Ekki megum við gleyma Græn- landi. Íslendingar námu þar land og settust að. Blómleg byggð var þar í nokkur hundruð ár en hvarf svo. Danir sölsuðu undir sig landið með frekju. Um miðja síðustu öld var fræðimaðurinn Jón Dúason fremstur í flokki fólks sem vildi að Ísland gerði kröfu til Grænlands. Hann var óþreytandi í skrifum sínum í blöð og gaf þar að auki út bækur til að sanna rétt Íslands til landsins. Hver veit nema mörlandar fari að bíta í skjaldarrendurnar og huga að landvinningum! Ameríka er líklega of stór biti fyrir okkur en ekki Græn- land. Við erum nýbúnir að tvöfalda landhelgisflotann. Fyrst þurfum við samt að ganga frá nokkrum innan- landsmálum. Við getum líklega ekki beðið eftir því að vandamál Landspít- alans og bráðamóttökunnar verði leyst, en alla vega ætti Reykjavík- urborg að vera búin að leggja borg- arlínuna, fækka eitthvað bílastæðum og setja Miklubrautina í stokk. Þá er- um við tilbúnir og Danir mega passa sig. Og við ætlum ekki að kaupa Grænland; þeir ætla að skila því til okkar. Ha, ha! Eftir Þóri S. Gröndal » Það voru fleiri konur á Íslandi en karl- menn í stríðsbyrjun. Mörgum hafði ekki tek- ist að finna sér lífs- förunaut. Kaninn leysti það vandamál. Þórir S. Gröndal Höfundur er fyrrverandi fisksali og ræðismaður í Ameríku. floice9@aol.com Litla Ameríka Eftir áralangar um- ræður um börn sem voru vistuð á vegum ríkis og sveitafélaga við skelfilegar aðstæður og tilraunir yfirvalda til að takmarka hvað skal rannsaka og hvað ekki, er umræðunni hreint ekki lokið. Hrikalegar lýsingar á stöðugu of- beldi, niðurlægingu og afskiptaleysi einkenna frásagnir þeirra sem hafa haft kjark og þor til að stíga fram. Það eitt að koma fram fyrir alþjóð og lýsa stöðu sinni og upplifun af dvöl sinni sem börn krefst mikils styrks. Því miður treysta margir sem hafa sögur að segja sér ekki í umræðuna. Einnig er stór hóp- ur þeirra látinn, langt fyrir aldur fram. Þeir hafa enga rödd. Lög um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðar- heimila fyrir börn, nr. 26/2007, tóku gildi 28. mars 2007. Vistheimilanefnd sem sett var á fót og rannsakaði mál heimila sem rekin voru af ríkinu lauk störfum í lok árs 2011. Það var þó strax ljóst að lögunum var ekki ætlað að skoða heimili sem sveitarfélög höfðu nýtt til vistunar barna við sam- bærilegar aðstæður og lýst hafði ver- ið í svo kölluðu Breiðavíkurmáli. Þegar vinna vistheimilanefndar fór af stað komu fram fjölmargar til- kynningar um áþekka háttsemi á öðr- um stofnunum og heimilum öðrum en þeim sem koma fram í lögum vist- heimilanefndar og afmörkun þeirra. Vistheimilanefnd skráði niður allar tilkynningar þess efnis, en þeim var öllum vísað frá enda ekki heimild til greiðslu bóta nema könnun vistheim- ilanefndar hefði farið fram. Það var strax ljóst að stór hópur ein- staklinga var í raun und- anskilinn í þeim lögum sem vistheimilanefnd var ætlað að vinna eftir. Vistheimilanefnd hef- ur nú lokið störfum og þeim sem enn hafa ekki fengið áheyrn er vísað út á gaddinn. Án þess að í þessari grein sé ætlað að fara yfir alla vinnu vistheimila- nefndar var það þó ljóst að þegar nefndaráliti allsherjar- og mennta- málanefndar var skilað inn vegna málsins vekur hún athygli á því að miklum fjölda barna var ráðstafað af stjórnvöldum á einkaheimilum og að mikilvægt væri að þeir einstaklingar fengju jafnframt að gera upp vistun sína á slíkum heimilum með þeim hætti að hið opinbera skapaði vett- vang þar sem þeir gætu greint frá að- stæðum sínum. Í umræðu síðustu daga virðist enn vera á huldu hvaða ráðuneyti fari með málaflokkinn og hver á að bera ábyrgð en vilji virðist vera til að málið verði skoðað. Ég tel mikilvægt að öll- um sem telja að á sér hafi verið brotið verði sinnt. Hvar og hvernig vistunin hafi farið fram sé í raun aukaatriði. Börnum var komið fyrir hingað og þangað með aðkomu ríkis og sveita- félaga og þar liggur hundurinn graf- inn (ábyrgðin). Á sínum tíma ræddi ég þessi mál við einn nefndarmanna þar sem mig langaði að vekja athygli á stöðu okk- ar sem vistaðir vorum á heimilum sem sveitarfélög nýttu til vistunar. Í því samtali var alveg ljóst að önnur heimili en þau sem ríkið stóð að væru ekki til skoðunar. Sú afstaða kom fram að ekki væri ástæða til að sinna öðrum málum. Þau heimili sem ekki voru á ábyrgð ríkisins en sveit- arfélögin nýttu sér til vistunar fyrir börn voru fjöldamörg og þar voru börn oftast eftirlitslaus. Vistin reyndist mörgum börnunum erfið og stundum alger vítiskvöl, þar sem mikið ofbeldi átti sér stað, bæði and- legt, kynferðislegt og líkamlegt. Afskiptaleysið var algert. Fjöldi barnanna beið þess aldrei bætur og lést fyrir aldur fram. Aðrir báru og bera kvöl sína í hljóði og hafa í raun ekki leitt hugann að því að á ein- hverjum tímapunkti yrði einhver sem rétti fram hönd þar sem órétt- lætið fengi andlit. Það er réttlætis- mál fyrir okkur sem fyrir ranglætinu urðum að stjórnvöld stígi fram fyrir skjöldu með einhverjum hætti og bendi á hvað betur hefði mátt fara og hvernig er hægt að mæta þessum stóra hóp. Við verðum að draga lær- dóm af mistökum fortíðar til þess að ekkert sambærilegt gerist aftur. En svo að það megi verða þarf að horf- ast án undanbragða framan í þessa ljótu sögu. Eftir Þráin Bj. Farestveit Þráinn Bj Farestveit » Vistin reyndist mörgum börnunum erfið og stundum alger vítiskvöl, þar sem mikið ofbeldi átti sér stað, bæði andlegt, kynferðis- legt og líkamlegt. Höfundur er framkvæmdastjóri Verndar fangahjálpar. Fordæmdu börnin ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS Á næstu 30 árum fjölgar jarðarbúum um tvo milljarða. Það er tvöfaldur núver- andi íbúafjöldi Norð- ur-, Mið- og Suður- Ameríku samanlagt. Árið 2050 munu 66 prósent manna búa í borgum. Það sam- svarar tólf nýjum borgum á ári á stærð við Dubai. Á sama tíma er talin þörf á að kolefnislosa orku- og flutnings- kerfi plánetunnar. Til að ná því þarf heimurinn tugi og hundruð milljóna vindmylla, sólarrafhlaða og rafhlaða fyrir rafbíla. Grein í Spiegel 30. október sl. „Mining the Planet to Death. – The Dirty Truth About Clean Technologies,“ kastar ljósi á hvað það hefur í för með sér. Þar segir að hreina tæknin muni valda gíf- urlegri eftirspurn eftir sjaldgæf- um málmum sem þessi orkuskipti byggjast á með skelfilegu umfangi námuvinnslu. „Orkuskiptin“ eru rétt að byrja og til að setja þetta í samhengi er spáð að framleiðsla rafbíla aukist úr 5 milljónum bíla í dag í 245 milljónir árið 2030, eða 50-falt eft- ir einungis 10 ár og síðan í meira en 500 milljónir rafbíla 2040 auk alls annars. Rafbíllinn Rafbíll með 75KWh rafhlöðu þarf 56 kg af nikkeli, 12 kg af mangani, 7 kg af kóbalti og 85 kg af kopar fyrir raflagnir. Þetta þýð- ir að þörf er fyrir tugi milljóna tonna af sjaldgæfum málmum sem þegar er farið að grafa eftir í fá- tækari löndum með gífurlegum umhverfisspjöllum Þetta þýðir í einfölduðu máli að kaupendur rafbíla sem telja sig vera að bæta stöðu jarðarinnar, sem stjórnmálamenn hafa talið al- menningi trú um að þeir geri, munu þurfa að horfast í augu við að þeir gera ástand jarðarinnar enn verra. Ef aðeins er reiknað kolefnisspor nýs rafbíls úr kass- anum með 75 kWst rafhlöðu jafn- gildir kolefnislosun hans vegna framleiðsluþátta hans kolefn- islosun dísilbíls í akstri í sex ár með eldsneytisnotkun 5 lítra/100 km. Samkvæmt útreikningum Alþjóðaorkumálastofnunarinnar (IEA) losar rafbíll helming af CO2 losun dísil/bensín-bíls sem ekið er 200.000 þús. km vegna kolefnis- spors í hráefnisnotkun, orkunotk- un og fullvinnslu í framleiðslu raf- bílsins. Nýr rafbíll þarf því að ná 6 ára aldri áður en hann verður CO2 frír, en kannski er þá komið að endurnýjun hans? Hér eru ekki tekin með í reikn- inginn þau umhverfisspjöll sem verða vegna námavinnslu þessara sjaldgæfu málma sem framleiðsla hans þarfnast og það kapphlaup er hafið. Hvað kosta orkuskiptin? Evrópusambandið hefur heitið því að byggja upp fullkomna aðfangakeðju fyrir mikilvæg hrá- efni til að orkuskiptin takist. Meira en 200 fyrirtæki, stjórnvöld og rannsóknarstofnanir hafa verið sameinuð í bandalag, með það að markmiði að tryggja hráefni sem þarf til að mæta hreinni orku- breytingum ESB. Þetta mun setja mikið álag á jarð- efnaauðlindirnar sem grafa þarf úr jörðinni – einkum málma eins og nikkel, mangan, kóbalt og kopar. Samkvæmt spám Alþjóðaorku- málastofnunarinnar, IEA, mun magn frá virkum og fyrirhug- uðum námum og end- urvinnslu málma, ekki nægja til að anna eftirspurninni. Til dæmis mun núverandi náma- rekstur aðeins standa undir helm- ingi framtíðareftirspurnar eftir litíum og kóbalti. „Framboðs- og fjárfestingaráætlanir fyrir mörg mikilvæg steinefni eru langt undir því sem þarf til að styðja við hraða uppsetningu á sólarraf- hlöðum, vindmyllum og raf- knúnum farartækjum,“ varar IEA við. Til að ná þessum málmum fyrir orkuskiptin þarf að ryðja regn- skóga, fletja út fjöll, hrekja sam- félög á flótta og eftir verður gíf- urlegt magn úrgangs – og mikið af honum eitrað –, svo ríku þjóð- félögin sem menga mest geti farið í orkuskipti. Þessi eftirspurn mun ganga á eða eyða öllum þessum málmum fyrir framtíðarkynslóðir, allt fyrir skammvinn orkuskipti, því eftir- spurnin heldur áfram að óbreyttu, allt á kostnað fátæka suðurhelm- ings jarðarinnar með tilheyrandi eyðileggingu landsvæða af hendi stórra alþjóðafyrirtækja sem eiga námuréttindin og skilja lítil verð- mæt eftir í hráefnislöndunum. En til að mæta eftirspurninni eru stórfyrirtækin farin að und- irbúa námugröft á hafsbotni. Einkum er horft á ríkt málmgrýti á hafsbotni í Kyrrahafi á 4.500 metra dýpi í Clarion Clipperton Zone (CCZ), hafsvæðinu á milli Havaí og Mexíkó og talið er að vinnsla hefjist innan nokkurra ára með stórvirkum sjálfvirkum vél- um, vísindamenn hafa varað við mikilli óvissu um afleiðingar slíkr- ar vinnslu fyrir lífríki hafsins vegna úrfalls námuvinnslunnar. Mun maðurinn fórna hafinu líka fyrir neysluþægindi núverandi kynslóðar? Hætt er við að það renni tvær grímur á stjórnmálamenn og fleiri sem telja að orkuskipti úr jarð- eldsneytisbíl í rafbíl sé einföld lausn fyrir jörðina, þegar þeir átta sig á því að tilkoma rafbílsins veldur stórfelldu umhverfisslysi og ofnýtingu á auðlindum heimsins í þágu ríkari hluta heimsins. Nær væri að spyrja, er önnur betri leið til fyrir framtíð jarðarinnar? Heimildir: Der Spiegel: https://tinyurl.com/2p935eevhttps:// mineralsindepth.org https://news.mongabay.com/ transportenvironment.org: https://tinyurl.com/yckm87fm sciencedirect.com: https://tinyurl.com/fz73jc7u Eftir Sigurbjörn Svavarsson » Fyrir orkuskiptin þarf að ryðja regn- skóga, fletja út fjöll, hrekja samfélög á flótta og búa til gríðarlegt magn úrgangs – og mik- ið af honum er eitrað. Sigurbjörn Svavarsson Höfundur er í stjórn Frjáls lands. s.svavarsson@gmail.com Kolsvart fótspor rafbílsins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.