Morgunblaðið - 30.11.2021, Page 24

Morgunblaðið - 30.11.2021, Page 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2021 Fyrir líkama og sál L augarnar í Reykjaví k w w wsýnumhvert öðru tillitssemi 50 ÁRA GUÐNÝ LÁRA fæddist á Húsavík. „Mamma er að norðan en ég ólst upp í Kópavoginum að mestu og bý þar enn.“ Guðný sótti alla sína menntun í bæjarfélaginu og gekk í Kársnesskóla, Þinghóls- skóla og svo í Menntaskólann í Kópavogi. Eftir stúdentsprófið fór hún í Ferðaskóla Flugleiða og hóf síðan störf hjá hjá Icelandair árið 1995 og vann þar næstu 24 árin. Samhliða vinnunni tók hún ferða- málafræði í Háskólanum á Hólum, sem hún segir hafa verið mjög skemmtilegt nám. Hún er enn með ferðabakteríuna og er núna að vinna hjá Úrvali-Útsýn og aðstoðar fólk við að finna sínar draumaferð- ir. „Ég hef mjög gaman af fólki og að gera eitthvað skemmtilegt með vinum og vinkonum. Ég er í þremur saumaklúbbum og er mjög drífandi þegar kemur að því að koma fólki saman. Ég hef gaman af allri útivist og af því að fara á skíði. Nýjasta áhugamálið er að fara út að labba með hundinn, sem ég geri núna dag- lega.“ Því miður þurfti að blása af stórveislu þar sem átti að halda upp á 150 ára samanlagt afmæli Guðnýjar, móður hennar og yngstu systur. „Mamma átti afmæli 20. nóvember sl. og yngsta systir mín verður þrítug 16. desember nk. og við ætluðum að halda risastóra veislu með 200 manns. Það verður bara að bíða betri tíma.“ FJÖLSKYLDA Guðný Lára er fráskilin og á þrjár stelpur: Agnesi Þóru Sigþórsdóttur, nema í flugrekstrarfræði í Coventry í Bretlandi, f. 1995; Freyju Ragn- heiði Sigþórsdóttur, sem vinnur hjá Optical Studio, f. 1999, og Hönnu Láru Sigþórsdóttur menntaskólanema, f. 2005. Foreldrar Guðnýjar Láru eru Ragnheiður Björnsdóttir, leiðsögumaður með meiru, f. 1951, og Jóhann Karlsson kennari, f. 1948. Þau bjuggu lengst af í Kópavogi en búa núna í Árbænum. Guðný Lára Jóhannsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Manneskjan sem vill endilega nálgast þig sýnir það á skrítinn hátt. Segðu stopp við meðlimi fjölskyldunnar sem halda að þeir megi allt. 20. apríl - 20. maí + Naut Maður er aldrei nógu var um sig þegar sleipir sölumenn eru annars vegar. Einhver öfundar þig af góðum árangri en það er ekki þinn höfuðverkur. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Of miklar upplýsingar gætu flækt málin og komið í veg fyrir að þú finnir réttu lausnina. Dekraðu við sjálfa/n þig, það eru að koma jól. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Gættu þess að einhver augna- blikshrifning leiði þig ekki afvega. Kapp er best með forsjá. Gamall vinur lætur í sér heyra. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Ef þú átt þér draum og trúir nógu mikið á hann er líklegt að hann rætist einn góðan veðurdag. Taktu um stjórnartaum- ana heima fyrir. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Eitthvað verður til þess að gamlar minningar koma upp, bæði góðar og sárar. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi svo það er best að hafa allt sitt á hreinu. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú átt að venja þig á að tala vafn- ingalaust. Fylgdu ákvörðun þinni eftir af festu og komdu henni í höfn. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þér hættir til að leita langt yfir skammt og það á við núna í því máli sem þú þarft að fást við. Leyfðu þér að slaka á og sletta úr klaufunum. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Ráðfærðu þig við einhvern sérfræðing séu vandamál til staðar. Ekki gefast upp þótt hlutirnir líti ekki vel út. Seiglan borgar sig. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Reyndu að ganga frá lausum endum áður en þú ræðst í eitthvað nýtt. Settu þér markmið og skrifaðu þau niður. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú færð hugsanlega hugmyndir um nýja leið til að að vinna verkin á léttari máta. Ekki festast í smáatriðunum. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú ert í miklu vinnustuði núna. Hver er sinnar gæfu smiður. Talaðu við aðra um hugmyndir þínar og hafðu uppi á fólki sem stefnir að sömu markmiðum og þú. lestrarkeppninni ræddum við saman og hann hvatti mig til að ljúka nám- inu, sem ég gerði í fjarnámi og út- skrifaðist 2003. Hann sagði að það væri ekkert vit að ná sér ekki í ákváðum að flytjast vestur. Við kom- um í febrúar 1999 og ég byrjaði þá um haustið að kenna við Grunnskól- ann á Ísafirði. Þegar Baldur Sig- urðsson kom vestur út af stóru upp- G uðbjörg Halla Magna- dóttir fæddist 30. nóv- ember 1971 á Ísafirði þar sem hún ólst upp. Guðbjörg Halla, sem alltaf er kölluð Halla, segir það for- réttindi að alast upp við frjálsræði þar sem allt er innan seilingar. „Ég var alin upp á Hlíðaveginum og ég bý ennþá í þeirri götu. Ég sótti alltaf meira upp í fjall en niður í fjöru, þótt ég kunni mjög vel við að hlusta á brimið. Við erum þrjár systurnar og höfum alltaf verið mjög góðar vin- konur og við lékum okkur mikið uppi í fjalli. Svo vorum við úti í leikjum og úti að hjóla og svo byrjaði maður snemma að passa börn.“ Fyrsta starf Höllu var að passa hund fyrir vinafólk foreldra hennar. „Ég fór með hann út að ganga á hverjum degi. Síðan var ég tíu ára þegar ég fór að passa börn og svo var ég kom- in í frystihúsið 13 ára. Þegar maður býr í smærri plássum verða tengslin sterkari og maður býr alveg að því að það eru meiri samskipti við ár- ganginn. Við hittumst t.d. í haust í tilefni af því að við urðum öll 50 ára á árinu og rétt náðum því áður en samkomutakmarkanir voru hertar.“ Eftir grunnskólann vildi Halla breyta til og hún fór í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja og fékk að búa hjá móðursystur sinni í Keflavík. „Þar ílentist ég í 11 ár og kynntist mann- inum mínum þegar ég var 17 ára, ár- ið 1988, og við fórum fljótt að búa. Ég kunni mjög vel við mig í Keflavík og það var gaman í skólanum og mikið og gott félagslíf og ég kynntist mörgum. Maðurinn minn á stóra fjölskyldu, en hann er yngstur 7 systkina og við reynum öll að hittast reglulega stórfjölskyldan.“ Halla varð stúdent 1993, en þá var elsti sonur hennar fæddur. Hún fór í Kennaraháskólann 1994 og var þar tvo vetur í dagnámi, en þegar annar sonur fæddist 1997 tók hún sér hlé frá náminu og fór að vinna og leysti af í Myllubakkaskóla í Keflavík og kenndi einn vetur í Njarðvíkurskóla ásamt því að sinna börnum og búi. „Þegar ég var búin að eignast þrjá stráka mundi ég hvað það var gott að alast upp á Ísafirði og við starfsréttindi, sem var alveg rétt hjá honum.“ Halla er deildarstjóri unglinga- stigs Grunnskólans á Ísafirði og hef- ur gegnt þeirri stöðu frá árinu 2007. „Ég hef aðallega verið að kenna stærðfræði og náttúrufræði og síðan smá ensku. Ég segi alltaf að ungling- ar séu besta fólk í heimi og ég hef alltaf náð mjög góðu sambandi við krakkana og hef mikla ánægju af starfinu.“ Í vetur er Halla í náms- leyfi, því hún er að halda áfram með meistaranám sitt á menntavísinda- sviði HÍ. „Það er sumt sem ég er að læra núna sem ég hefði varla treyst mér í án þess að vera búin að sinna kennslu, því það er svo dýrmæt reynsla sem maður fær í kennslunni. Það má eiginlega að segja að fyrstu tveir veturnir í kennslu séu eins og fimm ár í háskóla,“ segir hún. Þótt greinilegt sé að Halla lifi og hrærist í menntamálunum er hún líka mikil handavinnukona. „Ég hef prjónað mjög mikið í gegnum tíðina, eiginlega bara frá því ég var krakki. Ég held ég hafi verið 10 ára þegar ég prjónaði mína fyrstu peysu. Svo hef ég líka gaman af bútasaum. Svo les- Guðbjörg Halla Magnadóttir deildarstjóri í Grunnskólanum á Ísafirði – 50 ára Fjölskyldan Hér er mynd af fjölskyldunni sem tekin var árið 2018. Frá vinstri: Andri Pétur, Marta Sif með Ask Óma í fanginu, Fróði Benjamín, Halla, Magni Jóhannes, Þröstur og Steinn Daníel. Unglingar eru besta fólk í heimi Hjónin Hér eru hjónin Þröstur og Halla með barnabörnin Ask Óma og Hrafn. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.