Morgunblaðið - 30.11.2021, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2021
Svíþjóð
Elfsborg – AIK......................................... 2:4
- Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á hjá
Elfsborg á 83. mínútu en Hákon Rafn
Valdimarsson var varamarkvörður liðsins.
Sirius – Häcken........................................ 3:0
- Aron Bjarnason kom inn á hjá Sirius á
85. mínútu.
- Oskar Tor Sverrisson kom inn á hjá Häc-
ken á 85. mínútu en Valgeir Lunddal Frið-
riksson var á bekknum allan tímann.
Staðan fyrir lokaumferðina:
Malmö 29 17 7 5 58:30 58
AIK 29 17 5 7 41:23 56
Djurgården 29 16 6 7 45:30 54
Elfsborg 29 16 4 9 48:33 52
Hammarby 29 14 8 7 49:38 50
Kalmar 29 13 8 8 38:34 47
Norrköping 29 13 5 11 44:39 44
Gautaborg 29 10 8 11 40:38 38
Varberg 29 9 10 10 35:35 37
Sirius 29 10 7 12 37:49 37
Häcken 29 9 9 11 46:45 36
Mjällby 29 8 11 10 31:27 35
Halmstad 29 6 13 10 21:26 31
Degerfors 29 9 4 16 33:51 31
Örebro 29 4 6 19 21:55 18
Östersund 29 3 5 21 24:58 14
Danmörk
Vejle – Midtjylland .................................. 1:1
- Elías Rafn Ólafsson var varamarkvörður
Midtjylland í leiknum.
Staðan:
Midtjylland 17 11 2 4 31:16 35
København 17 9 6 2 34:13 33
Brøndby 17 8 6 3 25:20 30
AaB 17 8 4 5 27:20 28
Randers 17 8 4 5 23:19 28
Silkeborg 17 5 10 2 26:16 25
AGF 17 5 6 6 15:19 21
Viborg 17 4 8 5 26:27 20
OB 17 4 7 6 25:24 19
Nordsjælland 17 4 4 9 20:31 16
SønderjyskE 17 2 4 11 11:33 10
Vejle 17 2 3 12 16:41 9
Rúmenía
CFR Cluj – Academica Clinceni............. 2:0
- Rúnar Már Sigurjónsson skoraði fyrir
CFR og var skipt af velli á 69. mínútu.
England
B-deild:
Derby – QPR ............................................ 1:2
Staða efstu liða:
Fulham 20 13 4 3 49:16 43
Bournemouth 20 12 6 2 36:16 42
QPR 20 10 5 5 33:25 35
WBA 20 9 7 4 27:16 34
Blackburn 20 9 6 5 34:27 33
Coventry 20 9 6 5 27:23 33
Undankeppni HM kvenna
Norður-Írland – N-Makedónía ............... 9:0
England – Austurríki............................... 1:0
_ England 15, Norður-Írland 13, Austur-
ríki 10, Lúxemborg 3, Norður-Makedónía
3, Lettland 0.
Vináttulandsleikur kvenna
Holland – Japan........................................ 0:0
Spánn
Osasuna – Elche ....................................... 1:1
Staða efstu liða:
Real Madrid 14 10 3 1 34:15 33
Atlético Madrid 14 8 5 1 26:14 29
Real Sociedad 15 8 5 2 19:11 29
Sevilla 14 8 4 2 24:11 28
Real Betis 15 8 3 4 25:18 27
>;(//24)3;(
Olísdeild karla
Víkingur – HK ...................................... 26:22
Staðan:
Haukar 10 7 2 1 301:264 16
FH 10 7 1 2 284:253 15
Valur 9 6 2 1 261:228 14
ÍBV 10 7 0 3 301:293 14
Stjarnan 10 6 1 3 299:293 13
Afturelding 10 4 2 4 289:282 10
Selfoss 10 5 0 5 258:254 10
Fram 9 4 1 4 253:255 9
Grótta 9 3 1 5 240:245 7
KA 10 3 0 7 272:294 6
Víkingur 10 1 0 9 218:280 2
HK 9 0 0 9 220:255 0
Svíþjóð
Kristianstad – Guif.............................. 34:26
- Aron Dagur Pálsson skoraði eitt mark
fyrir Guif og Daníel Freyr Ágústsson varði
2 skot í marki liðsins.
Vináttulandsleikur kvenna
Serbía – Norður-Makdeónía ............... 20:19
E(;R&:=/D
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Austurberg: ÍR – Selfoss U................. 20.15
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla, Hertz-deildin:
Laugardalur: SR – Fjölnir .................. 19.45
Í KVÖLD!
Að loknum fyrri hálfleik var staðan
42:18 og í þriðja leikhluta var mun-
urinn um tíma liðlega 40 stig. Ís-
lensku landsliðsmennirnir gerðu sig
þó ekki seka um uppgjöf og héldu
áfram að berjast. Fyrir vikið fór síð-
asti leikhlutinn 29:12 fyrir Ísland og
liðið lagaði stöðuna töluvert.
Tilkynnt var í gær að Martin Her-
mannsson yrði ekki með. Hann hefur
átt í álagsmeiðslum í kálfa í þrjár vik-
ur eða svo og ekki þótti ástæða til að
taka áhættu hvað það varðar. Martin
skilur eftir sig skarð sem er vandfyllt
enda er hann einn þriggja íslenskra
karla sem lengst hafa náð í atvinnu-
mennsku í íþróttinni. Ofan á það bæt-
ist að Haukur Helgi Pálsson og Hörð-
ur Axel Vilhjálmsson voru ekki með.
Allir þrír hafa reynslu af því að spila
með landsliðinu í lokakeppni EM.
Það gæti orðið mjög áhugavert að sjá
íslenska liðið í febrúar ef þessir leik-
menn geta allir verið með því það er
margt jákvætt í gangi í uppbyggingu
liðsins.
Tryggva vel gætt
Ég vona að leikmenn Íslands reyni
ekki að gleyma leiknum gegn Rúss-
landi sem fyrst. Menn geta lært mik-
ið af því að leika á móti andstæðingi
sem þessum þar sem styrkleikamun-
urinn var mikill. Til dæmis er um-
hugsunarefni hvernig hægt sé að
hjálpa Tryggva Snæ Hlinasyni að
komast í betri færi nálægt körfunni.
Gólfsendingarnar til hans eru ekki í
nógu góðri hæð og þegar hann fær-
nógu góðar sendingar þá eru and-
stæðingarnir gjarnan tveir á móti
honum.
Allir fengu að spreyta sig í gær
sem er jákvætt. Yngri leikmenn sjá
að frá fyrstu hendi að til að vera sam-
keppnisfærir gegn topplandsliði eins
og því rússneska þá þurfa þeir að
leggja á sig mikla vinnu.
Íslendingum
kippt niður
á jörðina
- Eftir sætan sigur í Hollandi tók við
ójafn leikur gegn firnasterku liði Rússa
Ljósmynd/FIBA
Snöggur Ægir Þór Steinarsson í kröppum dansi í Rússlandi í gær.
HM 2023
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ísland er með einn sigur og eitt tap
eftir tvo útileiki í H-riðli undankeppni
HM karla í körfuknattleik. Eftir sæt-
an sigur á Hollendingum í Almere
var Íslendingum kippt niður á jörðina
í St. Petersburg í Rússlandi í gær.
Rússar unnu sannfærandi sigur 89:65
og byrja keppnina með látum því
Rússar unnu Ítali með fjórtán stiga
mun á föstudag.
Þrjú lið af fjórum komast áfram í
milliriðil og munu taka með sér stig úr
H-riðlinum. Komist Ísland þangað þá
fer Ísland í undankeppni fyrir næsta
EM og sleppur með öðrum orðum við
forkeppni eins og liðið hefur þurft að
taka þátt í síðustu árin. Sigurinn gegn
Hollandi gæti því reynst mikilvægur
ef Íslandi tekst að fylgja því eftir þeg-
ar liðin mætast aftur.
Í febrúar heldur keppnin áfram og
þá mætir Ísland sterku liði Ítalíu tví-
vegis. Verður fróðlegt að sjá útkom-
una úr því en eins og sakir standa er
ekkert sem bendir til þess að Ísland
geti spilað á Íslandi. Við Íslendingar
eigum ekkert mannvirki sem stenst
þær kröfur sem gerðar eru í alþjóð-
legum keppnum.
Rússar með völdin
Rússar léku frábærlega fyrstu þrjá
leikhlutana í leiknum í gær og tóku
strax öll völd í leiknum. Rússar gerðu
sig ekki seka um neitt vanmt. Sóttu
leikmenn sem spila með liðum í Euro-
league og gáfu Íslendingum aldrei
færi á að finna taktinn. Rússar kom-
ust í 16:0 og Íslendingar skoruðu að-
eins fjögur stig í fyrsta leikhlutanum.
Þá tapaði liðið boltanum tíu sinnum
og fann ekki lausnir gegn öflugri vörn
Rússanna.
Rúnar Már Sigurjónsson skoraði í
sínum öðrum leik í röð í rúmensku
A-deildinni í knattspyrnu í gær-
kvöld þegar CFR Cluj sigraði Aca-
demica Clinceni 2:0 á heimavelli.
Rúnar skoraði fyrra mark CFR á
29. mínútu en hann spilaði í tæpar
70 mínútur. Þetta er fimmta mark
hans á tímabilinu en þrjú hafa kom-
ið í deildinni og tvö í Evrópu-
leikjum. CFR er með átta stiga for-
ystu, er með 45 stig úr 17 leikjum
og hefur unnið fimmtán af leikj-
unum sautján. FCSB, sem áður hét
Steaua, er með 38 stig í öðru sæti.
Skoraði í öðrum
leiknum í röð
Ljósmynd/CFR Cluj
Rúmenía Rúnar Már Sigurjónsson
er á toppnum með liði CFR.
Knattspyrnumaðurinn Aron
Bjarnason lék í gærkvöld lang-
þráðan leik þegar hann kom inn á
sem varamaður hjá Sirius undir
lokin í 3:0 sigri liðsins á Häcken í
sænsku úrvalsdeildinni. Það var
hans fyrsti deildarleikur fyrir
sænska félagið en hann kom þang-
að frá Újpest í Ungverjalandi í febr-
úar. Aron hefur glímt við þrálát
meiðsli allt þetta ár en náði að spila
í næstsíðustu umferðinni í Svíþjóð í
gærkvöld og taka þátt í að gull-
tryggja Sirius áframhaldandi sæti í
deildinni.
Spilaði sinn
fyrsta leik á árinu
Morgunblaðið/Eggert
Loksins Aron Bjarnason lék síðast
deildaleik með Val 4. október 2020.
Undankeppni HM karla, Pétursborg,
29. nóvember.
Gangur leiksins: 16:0, 17:4, 25:4,
29:14, 39:16, 42:18, 55:26, 68:31,
77:36, 80:48, 87:61, 89:65.
Rússland: Andrej Zubkov 14 stig,
Sergej Toropov 12, Ivan Strebkov 11,
Anton Astapkovich 10, Stanislav Il-
nitskij 9, Viacheslav Zaitsev 7, Di-
mitri Kulagin 5, Alexander Ganke-
vich 5, Artem Komolov 5, Vladimir
Ivlev 4, Alexander Khomenko 4, Se-
men Antonov 3.
Ísland: Elvar Már Friðriksson 13
RÚSSLAND – ÍSLAND 89:65
stig, Kristófer Acox 11, Jón Axel
Guðmundsson 8, Kristinn Pálsson
8, Tryggvi Snær Hlinason 7, Ólafur
Ólafsson 6, Kári Jónsson 5, Ægir
Þór Steinarsson 5, Þórir Guð-
mundur Þorbjarnarson 2 stig, Hilm-
ar Smári Henningsson 2 stoðsend-
ingar, Ragnar Ágúst Nathanaelsson
2 fráköst.
Dómarar: Aleksandar Glisic, Serbíu,
Sinisa Prpa, Serbíu, Petr Hrusa,
Tékklandi.
Áhorfendur: Um 2 þúsund. Tak-
markaður fjöldi leyfður.
Samkvæmt fyrstu drögum mótanefndar KSÍ
sem lögð voru fyrir árlegan fund formanna og
framkvæmdastjóra íslenskra knattspyrnufélaga
um síðustu helgi verður keppni í úrvalsdeild
karla á árinu 2022 sú lengsta frá upphafi.
Miðað við að tillaga um fjölgun leikja úr 22 í 27
á hvert lið í deildinni verði samþykkt á ársþingi
KSÍ í febrúar mun keppni í deildinni hefjast á
öðrum degi páska, 18. apríl, og lokaumferðin
verður leikin 29. október. Tímabilið verður því
tæplega sex og hálfur mánuður, eða 194 dagar,
en var 149 dagar á þessu ári og 156 dagar árið
2019, síðast þegar leikið var án þess að útbreiðsla
kórónuveirunnar hefði áhrif á mótshaldið.
Þá lögðu starfshópar fram tillögur sínar um
breytingar á mótahaldi í öðrum deildum. Miðað er
við að þær taki gildi á Íslandsmótinu 2023, verði
þær samþykktar á ársþinginu í febrúar, og eru
eftirfarandi:
_ Í 1. deild karla verði tekið upp umspil á þann
hátt að liðin sem enda í öðru til fimmta sæti leiki
til úrslita um hvert þeirra fylgi sigurvegara deild-
arinnar upp í úrvalsdeildina.
_ Keppni í 4. deild karla verði skipt í þrennt en
þar léku 34 lið í ár. Leikið verði í tíu liða 4. deild, í
sextán liða fimmtu deild, í tveimur riðlum, og önn-
ur lið verði í utandeild KSÍ. Í deildakeppninni
sjálfri, með sex deildum, verði því alltaf 74 lið.
_ Í úrvalsdeild kvenna verði tekið upp sams-
konar fyrirkomulag 2023 eins og verður að
óbreyttu í úrvalsdeild karla frá 2022. Lagt er til að
eftir tvöfalda umferð, 18 leiki, verði liðunum tíu
skipt í tvennt þar sem sex efstu liðin leiki áfram
um Íslandsmeistaratitilinn en fjögur þau neðstu
um áframhaldandi sæti í deildinni.
_ Í framhaldi af því verði skoðað hvort rétt sé
að gera breytingar á keppni í 1. og 2. deild kvenna
en meðal hugmynda þar er að færa 2. flokk
kvenna inn í deildakeppnina.
Lenging tímabils og breytingar á deildum