Morgunblaðið - 30.11.2021, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2021
„Unnið verður áfram að
uppbyggingu þjóðarhallar inni-
íþrótta og þjóðarleikvanga.“
Þannig er orðalagið í stjórnar-
sáttmála nýrrar ríkisstjórnar
sem opinberaður var á sunnu-
daginn.
Gefur þetta góð fyrirheit um
að nothæf íþróttamannvirki fyrir
alþjóðlega keppni rísi hér á landi
á næstu fjórum árum? Ég veit
það ekki. Í það minnsta eru engin
mannvirki enn þá komin á fram-
kvæmdastig.
Alla vega rísa þau ekki nægi-
lega snemma til að hjálpa körfu-
boltalandsliði karla sem er kom-
ið á þriðja stig undankeppni
heimsmeistaramótsins og vann
þar frækinn útisigur gegn Hol-
landi á föstudaginn.
Körfuboltasambandið
bjargaði málum tímabundið með
því að víxla við Rússa á heima-
leikjum en það var væntanlega
bara gálgafrestur. Íslenska liðið
á að mæta Ítölum tvisvar í febr-
úar og ekkert bendir til annars
en að báðir leikirnir þurfi að fara
fram erlendis.
Laugardalshöllin, sem sjálf
er á undanþágu sem heimavöllur,
er ennþá úr leik vegna skemmda
og þar hefur bara verið keppt í
bólusetningum að undanförnu.
En kannski á körfubolta-
hreyfingin hauk í horni í ríkis-
stjórninni. Nú hefur Ásmundur
Einar Daðason tekið við íþrótta-
málum í nýrri ríkisstjórn.
Ásmundur hefur setið í
stjórn körfuknattleiksdeildar
Skallagríms í Borgarnesi og vakti
athygli fyrir dyggan stuðning úr
stúkunni við kvennalið Skalla-
gríms þegar það varð bikar-
meistari í febrúar 2020 – einmitt
í Laugardalshöllinni. Með kú-
rekahatt á höfði. Boltinn er hjá
Ásmundi!
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
HM 2023
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta
mætir til leiks á Kýpur í dag sem
það lið sem er með fæst töpuð stig í
C-riðli undankeppni heimsmeistara-
mótsins.
Það er nokkuð óvænt staða en lið
Tékklands, sem Ísland vann sann-
færandi 4:0 í haust, gerði sér lítið
fyrir um helgina og gerði aftur jafn-
tefli gegn Hollendingum, nú 2:2 á
heimavelli. Þar voru það reyndar
hollensku Evrópumeistararnir sem
kræktu naumlega í stig með því að
jafna metin í uppbótartíma.
Þar sem fyrri leikur liðanna í Hol-
landi í haust endaði 1:1 hefur hol-
lenska liðið nú tapað fjórum stigum í
riðlinum þrátt fyrir sigurinn gegn
Íslandi, 2:0, á Laugardalsvellinum í
september, og er með 11 stig eftir
fimm leiki.
Ísland er hinsvegar með sex stig
eftir aðeins þrjá leiki eftir heima-
sigrana gegn Tékklandi og Kýpur í
október.
Þorsteinn Halldórsson landsliðs-
þjálfari orðaði þetta skemmtilega á
fréttamannafundi á Kýpur í gær.
„Þarna var klárlega eitt stig sem dó í
leik Tékklands og Hollands,“ sagði
Þorsteinn.
Eftir sem áður eru það Tékkar
sem enn geta sett stærsta strikið í
reikning íslenska liðsins, sem má alls
ekki tapa þegar liðin mætast í Tékk-
landi í aprílmánuði 2022. Tékkar eru
með fimm stig eftir fjóra leiki og
eiga nokkuð vís níu stig til viðbótar
fyrir utan heimaleikinn gegn Ís-
landi.
Áfall ef sigur vinnst ekki
En fyrst leikur Ísland útileikina
við Kýpur og Hvíta-Rússland, tvö
neðstu liðin í riðlinum. Ísland mætir
Kýpur í Lárnaka í dag klukkan 17 að
íslenskum tíma og þarf þar að fylgja
eftir 5:0-sigrinum á Kýpurbúum á
Laugardalsvelli í síðasta mánuði.
Kýpur fékk á föstudaginn sitt
fyrsta stig í undankeppni í sjö ár
með jafntefli, 1:1, við Hvíta-
Rússland á heimavelli og mætir því
væntanlega til leiks með meira
sjálfstraust en áður. En hvað sem
því líður þá yrði allt annað en ís-
lenskur sigur í dag gríðarlegt áfall
og töpuð stig í Lárnaka gætu hæg-
lega gert HM-draum íslensku lands-
liðskvennanna að engu.
Þorsteinn sagði á fundinum í gær
að allar í íslenska liðinu væru heilar
og klárar í slaginn en þær komu til
Kýpur frá Hollandi þar sem þær
unnu óvæntan en allöruggan sigur á
sterku liði Japan, 2:0, í vináttuleik á
fimmtudag. Þorsteinn sagði eftir
hann að það væri besti leikur liðsins
undir sinni stjórn.
Staðan styrktist fyrir leikinn
- Ísland með fæst töpuð stig í C-riðli
eftir annað jafntefli keppinautanna
Morgunblaðið/Unnur Karen
Undankeppnin Alexandra Jóhannsdóttir í baráttu við Victoriu Zampa, mið-
vörð Kýpurbúa, í leik liðanna á Laugardalsvelllinum í síðasta mánuði.
Hannes Sigurbjörn Jónsson, for-
maður Körfuknattleikssambands
Íslands, segir nýjan ráðherra
íþróttamála, Ásmund Einar Daða-
son, nú þegar hafa leitað sér upp-
lýsinga varðandi húsnæðisvandans
sem landsliðin í körfuknattleik og
handknattleik eru í.
Ásmundur hafi haft samband við
Hannes og rætt málin óformlega.
Ákveðið hafi verið að funda með
formlegum hætti á allra næstu dög-
um. Viðtal við Hannes vegna þessa
er að finna á mbl.is/sport/
korfubolti. kris@mbl.is
Fundar með
nýjum ráðherra
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ráðherra Íþróttir heyra nú undir
Ásmund Einar Daðason.
Manchester United tilkynnti loksins
í gær að Þjóðverjinn Ralf Rangnick
yrði knattspyrnustjóri félagsins út
þetta keppnistímabil. Það er að vísu
með þeim fyrirvara að hann fái at-
vinnuleyfi á Bretlandseyjum.
Rangnick, sem er 63 ára og með
langan þjálfaraferil að baki í
Þýskalandi, hefur verið yfirmaður
knattspyrnumála hjá Lokomotiv
Moskva og áður hjá RB Leipzig og
Salzburg á undanförnum árum.
Hann stýrir liðinu gegn Arsenal á
fimmtudag ef atvinnuleyfið verður
tilbúið í tæka tíð.
Fyrsti leikurinn á
fimmtudaginn?
AFP
England Ralf Rangnick stýrir liði
Manchester United til vorsins.
Víkingar eru komnir á blað í úrvals-
deild karla í handknattleik, Ol-
ísdeildinni, eftir sigur á HK, 26:22, í
uppgjöri botnliðanna í Víkinni í gær-
kvöld.
Bæði lið voru stigalaus fyrir leik-
inn þannig að Víkingar eru komnir
með tvö stig en HK situr áfram
stigalaust á botninum.
Víkingar voru yfir í hálfleik,
14:13. Allt var í járnum fram á loka-
kaflann en þá breyttu Víkingar stöð-
unni úr 21:20 í 24:20 og þar með var
sigurinn í höfn.
Hamza Kablouti skoraði 9 mörk
fyrir Víking og Hjalti Már Hjaltason
4. Jovan Kukobat varði 13/1 skot.
Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði
6 mörk fyrir HK og Elías Björgvin
Sigurðsson 5.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Níu Túnisbúinn Hamza Kablouti var í aðalhlutverki hjá Víkingi í gærkvöld
og reynir hér skot að marki HK í uppgjöri botnliðanna.
Fyrstu stig Víkings
Argentínumaðurinn Lionel Messi
fékk í gærkvöld Gullboltann, Ballon
D’Or, í sjöunda skipti og Spánverj-
inn Alexia Putellas hlaut hann í
fyrsta skipti þegar franska knatt-
spyrnutímaritið France Football af-
henti sín árlegu verðlaun til besta
knattspyrnufólks heims.
Messi varð markakóngur
spænsku 1. deildarinnar 2020-21
með 30 mörk og leiddi Argentínu til
langþráðs sigurs í Copa America í
sumar. Næstir á eftir honum í kosn-
ingunni urðu Robert Lewandowski,
pólski framherjinn hjá Bayern
München, og Jorginho, ítalski
miðjumaðurinn hjá Chelsea.
Putellas var í lykilhlutverki á
miðjunni í liði Barcelona sem varð
Evrópumeistari kvenna í fyrsta
skipti í vor. Sóknarmiðjumaðurinn
Jenni Hermoso, samherji hennar í
liðum Barcelona og Spánar, varð
önnur og ástralski framherjinn
Sam Kerr hjá Chelsea varð í þriðja
sæti.
Spánverjinn Pedri var kjörinn
besti ungi leikmaðurinn og Ítalinn
Gianluigi Donnarumma besti mark-
vörðurinn. Nánar á mbl.is/sport.
Messi og Putellas
AFP
Best Alexia Putellas tók við Gull-
boltanum í fyrsta sinn.
AFP
Bestur Lionel Messi hefur fengið
Gullboltann oftast, 7 sinnum.
Undankeppni HM karla
H-RIÐILL:
Rússland – Ísland................................. 89:65
Ítalía – Holland..................................... 75:73
Staðan:
Rússland 2 2 0 181:143 4
Ítalía 2 1 1 153:165 2
Ísland 2 1 1 144:166 2
Holland 2 0 2 150:154 0
A-RIÐILL:
Lettland – Slóvakía .............................. 82:74
Belgía – Serbía...................................... 73:69
_ Belgía 4, Serbía 2, Lettland 2, Slóvakía 0.
B-RIÐILL:
Tyrkland – Bretland ............................ 84:67
Grikkland – Hvíta-Rússland ............... 77:67
_ Hvíta-Rússland 2, Tyrkland 2, Grikkland
2, Bretland 2.
C-RIÐILL:
Slóvenía – Svíþjóð................................. 94:89
Finnland – Króatía ............................... 77:71
_ Slóvenía 4, Svíþjóð 2, Finnl. 2, Króatía 0.
D-RIÐILL:
Eistland – Ísrael ................................... 69:79
Pólland – Þýskaland............................. 69:72
Ísrael 4, Eistland 2, Þýskaland 2, Pólland 0.
E-RIÐILL:
Ungverjaland – Frakkland.................. 54:78
Svartfjallaland – Portúgal ................... 83:69
_ Frakkland 4, Svartfjallaland 2, Ung-
verjaland 2, Portúgal 0.
F-RIÐILL:
Tékkland – Litháen.............................. 66:74
Búlgaría – Bosnía ................................. 75:85
_ Litháen 4, Bosnía 4, Tékkland 0, Búlg-
aría 0.
G-RIÐILL:
Úkraína – Norður-Makedónía ............ 78:61
Spánn – Georgía ................................... 89:61
_ Spánn 4, Georgía 2, Úkraína 2, Norður-
Makedónía 0.
NBA-deildin
LA Clippers – Golden State .............. 90:105
Indiana – Milwaukee........................ 100:118
Toronto – Boston................................ 97:109
Memphis – Sacramento ................... 128:101
LA Lakers – Detroit ........................ 110:106
4"5'*2)0-#