Morgunblaðið - 30.11.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 30.11.2021, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2021 Dómur Landsréttar 12. nóvember 2021 í máli nr. 266/2020 Dómsorð: Aðaláfrýjendur Familían ehf., Hrefna Bachmann, Margrét Þorsteinsdóttir og Þorsteinn Bachmann eru sýkn af kröfum gagnáfrýjenda, Guðbjargar Jónsdóttur, Gunnars Rafns Jónssonar, Katrínar Jónsdóttur, Kristins Jónssonar, Kristjönu Jónsdóttur, Sigrúnar Jónsdóttur, Sveinbjörns Jónssonar, Þórhildar Jónsdóttur og Þorsteins Jónssonar, um afhendingu á frumgerðum eða eftir- gerðum þeirra myndverka sem dómkröfur gagnáfrýjenda taka til. Aðaláfrýjendum Familíunni ehf., Hrefnu Bachmann, Margréti Þorsteinsdóttur og Þorsteini Bachmann er sameiginlega gert að greiða gagnáfrýjendum óskipt 2.685.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. desember 2013 til 20. október 2015 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Aðaláfrýjandi Fabrik ehf. greiði gagnáfrýjendum óskipt 655.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. desember 2013 til 20. október 2015 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Öllum aðaláfrýjendum er sameiginlega gert að greiða gagnáfrýjend- um óskipt 370.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtrygg- ingu frá 1. desember 2013 til 20. október 2015 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Aðaláfrýjendur Familían ehf., Hrefna Bachmann, Margrét Þorsteinsdóttir og Þorsteinn Bachmann skulu sameiginlega fá dómsorð dóms þessa birt í prentaðri útgáfu Morgunblaðsins og Fréttablaðsins. Ákvæði héraðsdóms um málskostnað skal vera óraskað. Málskostnaður fyrir Landsrétti fellur niður. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Jónas Björgvinsson gaf út aðra sóló- plötu sína, Á norðurhveli, 12. nóvem- ber síðastliðinn, 23 árum eftir að fyrsta sólóplatan kom út. Jónas seg- ir plötuna hafa verið lengi á teikni- borðinu og að allt þetta ár hafi hann verið við upptökur og unnið í þeim með upptökustjóranum og tónlistar- manninum Ómari Guðjónssyni. Platan er nú aðgengileg á geisla- diski og í streymi á Spotify og lögin á henni níu talsins og er víða komið við í umfjöllunarefnum, eins og sjá má af lagatitlum. Má af einstökum nefna „Búsáhaldaböl“, „Vistarband“ og „Loforðasöng iðnaðarmannsins“. Jónas syngur sjálfur og leikur á kassagítar og munnhörpu á plöt- unni, Tómas Jónsson leikur á píanó og orgel, Birgir Baldursson á trommur og Ómar leikur á gítara, bassa, túbu, slagverk og fleira ásamt því að syngja í bakröddum en aðrir sem ljá söngraddir sínar eru Hans Júlíus Þórðarson og Tindra Gná Birgisdóttir. Ómar sá um útsetningu laganna og upptökustjórn, Jóhann Rúnar Þorgeirsson um hljóðblöndun og Guðmundur Kristinn Jónsson í Hljóðrita sá um masteringu. Langt hlé „Ég er svona að ranka við mér eft- ir 23 ára hlé. Ég gaf út plötu fyrst 1998 og þá undir hljómsveitarnafn- inu Ummhmm,“ segir Jónas. Platan sú heitir Haust og var tekin upp í Danmörku. Þó að hljómsveit hafi leikið lögin voru öll lög og textar eft- ir Jónas og því um sólóplötu að ræða. Jónas starfrækir hljóðverið Hljóðver.is á Langholtsvegi, hann- aði það sjálfur og smíðaði með hjálp vina, eins og lesa má um á vefsíðu Hljóðvers.is. „Við erum mikið í upp- tökum þar og ég hef gefið eitt og eitt lag út og komið að mörgum verk- efnum. Ég söng líka með Fjalla- bræðrum í mörg ár,“ segir Jónas um bakgrunn sinn í tónlist. Hann segir hina nýútkomnu plötu í raun hafa átt að koma út 2007 eða 2008 en eftir að efnahagshrunið skall á hafi henni verið frestað. Sum lag- anna á plötunni eru því komin nokk- uð til ára sinna. Jónas nefnir sem dæmi „Búsáhaldaböl“ sem fjalli ein- mitt um bankahrunið. „Ég samdi það í hruninu árið 2009 og svo varð ekkert meira úr því, ég gaf það aldr- ei út. Elsta lagið á plötunni, „Vitið er vinur þinn“, er líklega frá 1995 eða ’6, ég samdi það um snjóflóðið á Vestfjörðum,“ segir Jónas. Á plöt- unni megi líka finna lög samin á þessu ári og í fyrra. Hvattur til að syngja eigin lög Jónas segir Ómar hafa hvatt hann til að syngja sjálfur lögin en það ætl- aði hann ekki upphaflega að gera. „Ég sagði honum að ég væri enginn söngvari en hann sagði að það skipti engu máli,“ segir Jónas og hlær. Ómar hafi sagt að hann væri laga- og textasmiður og ætti að syngja lögin sín sjálfur. Á plötuumslaginu má sjá gamla mynd af afa Jónasar, Júlíusi Þórð- arsyni, á fallegu Harley Davidsson- vélhjóli á Langasandi með Akrafjall í baksýn. Jónas er fæddur og uppal- inn á Akranesi og segir hann þessa mynd fanga vel stemninguna á plöt- unni. „Þetta er svona gamaldags blúsrokk og úr öllum áttum,“ segir Jónas. Hann fari líka í allar áttir með umfjöllunarefnin og yrki meðal annars um vistarbandið sem fáir hafi samið um. Vistarbandið hafi í raun verið þrælahald hér á Íslandi þar sem almúgafólki hafi verið pískað út af landeigendum og bændum. Lofað upp í ermina á sér Blaðamaður hefur áhuga á að vita meira um „Loforðasöng iðnaðar- mannsins“ og segir Jónas skemmti- lega sögu á bak við þann texta, slæmt karma í raun. „Hann fjallar á kómískan og góðlegan hátt um þennan íslenska iðnaðarmann sem allir þekkja, sem keyrir um á stórum amerískum trukki og er með fullt af erlendum vinnumönnum í vinnu og lofar upp í ermina á sér,“ segir Jón- as. Þessi iðnaðarmaður eigi stærðar- innar hjólhýsi sem hann fari með í útilegur og sé alltaf í símanum. –Og segist koma á morgun og kemur svo aldrei? „Já, já, og svo vorum við konan mín að fara í framkvæmdir með hús- ið okkar í sumar og ég fékk þetta lag í rauninni bara í andlitið. Það var karma því ég fékk iðnaðarmenn og upplifði nákvæmlega þetta, það dróst allt, ekkert stóðst og lofað að koma í næstu viku og næstu viku,“ segir Jónas kíminn. Hann hlær þegar blaðamaður nefnir að núna muni hann líklega aldrei aftur fá iðnaðarmann heim til sín. „Ég er sem betur fer búinn í framkvæmdum í bili,“ segir hann og hlær. Það sé dásamlegt að syngja um þennan íslenska tíðaranda. Sjóbað Jónas skellti sér í sjóinn við Skarfaklett fyrir myndatöku. Myndin prýðir bakhlið nýútkominnar sólóplötu hans. Íslenskur tíðarandi - Önnur sólóplata Jónasar Björgvinssonar kom út 23 árum eftir þá fyrstu - Loforð iðnaðarmanna meðal yrkisefna Hinn dáði bandaríski söngleikja- höfundur Stephen Sondheim lést fyrir helgi, 91 árs að aldri, og hefur hans verið minnst af jafnt fjöl- miðlum sem söngleikjaunnendum sem risa í bandarísku menningarlífi í meira en hálfa öld. Sondheim samdi bæði tónlist og texta sögleikja og hafði meiri áhrif á fagið en nokkur annar á sínum starfstíma en hann starfaði af ástríðu að sköpun nýrra verka og uppsetningu þeirra allt til dauða- dags. Þá var hann heilinn á bak við margar vinsælustu sýningar sem settar hafa verið upp á Broadway. Ferill Sondheims hófst á sjötta áratugnum þegar hann samdi texta söngleikjanna West Side Story og Gypsy en fyrsta verkið þar sem hann samdi bæði tónlist og texta, A Funny Thing Happened on the Way to the Forum (1962), hreppti Tony- verðlaun sem besti söngleikurinn. Í The New York Times segir að áttundi og níundi áratugurinn hafi verið hans gjöfulustu en þá samdi hann meðal annars Company (1970), Follies (1971), A Little Night Music (1973), Pacific Overtures (1976), Sweeney Todd (1979), Mer- rily We Roll Along (1981), Sunday in the Park With George (1984) og Into the Woods (1987). Minnst sem risa í heimi söngleikjanna AFP Dáður Fyrir sex árum veitti Barack Obama Stephen Sondheim eina æðstu orðu sem óbreyttur borgari í Bandaríkjunum getur borið. Hið sígilda verk Hnotubrjóturinn verður sameiginleg jólasýning Dansgarðsins, Klassíska listdans- skólans og Óskanda og verða sýn- ingar í dag, þriðjudag, á stóra sviði Borgarleikhússins klukkan 16.30 og 19.30. Klassíski listdansskólinn og Ósk- andi taka hér höndum saman og setja upp sína eigin útgáfu af þessu klassíska jólaverki þar sem blandað er saman nútímalistdansi og klass- ískum ballett. Þetta er annað árið í röð sem Dansgarðurinn setur Hnotubrjótinn upp en í fyrra voru miklar samkomutakmarkanir og út- koman varð dansmynd. Dansverkið er unnið eftir sögu ETA Hoffmanns. Upprunalegir danshöfundar voru Marius Petipa og Lev Ivanov en sígild tónlistin er eftir Pyotr Ilyich Tsjaíkovskíj. Verkið er sagt tilvalið til að kynna börnum og dansunnendum klass- ískan ballett þar sem það er mjög aðgengilegt. Dansarar eru á mis- munandi aldri og með aðal- hlutverkin fara nemendur sem stunda nám við framhaldsbraut í listdansi og eiga framtíðina fyrir sér. Í tilkynningu frá aðstandendum segir að Hnotubrjóturinn sé skemmtilegt ævintýri fullt af töfr- um. Sagan hefst í jólaboði þar sem Drosselmeyer frændi, göldróttur úra- og leikfangasmiður, kemur í heimsókn. Hann gefur guðdóttur sinni, Klöru, hnotubrjót sem er í álögum en lifnar við eftir að Klara sigrar músakónginn í bardaga. Klara og prinsinn fara inn í töfra- heim þar sem margt óvenjulegt og skemmtilegt ber fyrir sjónir. Dansgarðurinn samanstendur af Óskanda, Klassíska listdansskól- anum, Dansi fyrir alla og Forward Youth Company. Markmið með Dansgarðinum er meðal annars að bjóða upp á faglega og fjölbreytta danskennslu, gera danskennslu og dansviðburði aðgengilega fyrir börn og ungt fólk, efla umræðu um sviðs- listir á milli ungra áhorfenda og listamanna, og sameina og styðja listamenn sem eru að vinna með dans- og sviðslistir fyrir ungt fólk. Ljósmynd/Gunnlöð Rúnarsdóttir Svifið Með aðalhlutverk í Hnotubrjótnum fara nemendur sem stunda nám við framhaldsbraut í listdansi og eiga framtíðina fyrir sér. Sýna Hnotubrjótinn - Tvær sýningar á hinu klassíska ballettverki í Borgarleikhúsinu í dag Hljómsveitin Mæðraveldið kemur fram á tónleikum í kvöld, þriðju- dagskvöld, í Húsi Máls og menning- ar á Laugavegi 18. Meðal meðlima sveitarinnar er rapparinn Sesar A en um þessar mundir eru 20 ár síð- an hann sendi frá sér fyrstu rapp- plötuna sem eingöngu er á íslensku, „Stormurinn á eftir logninu“, en hún var einnig hans fyrsta einfara- plata. Í tilkyningu um tónleikana, þar sem afmælis plötunnar verður minnst, segir að Sesar A hafi einnig verið nefndur „afi íslensks hipp- hopps“ en hann kynntist þessari menningu og tjáningarformi snemma á níunda tug síðustu aldar. Minnast tvítugsafmælis plötu Sesars A Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Rappari Sesar A rappaði fyrstur inn á heila plötu á íslensku, fyrir 20 árum. Um þessar mundir stendur yfir í Þjóð- minjasafni sýningin Mannamyndasafnið og í hádeginu í dag, þriðjudag, kl. 12 mun Eva Kristín Dal, verkefnastjóri sýninga, velta upp fróðleiksmolum og segja sögur af nokkrum sýningargripanna sem þar má sjá og fólki sem þeim tengdist. Á sýningunni eru afar fjölbreytilegar myndir, málverk, ljósmyndir, útsaumsverk og höggmyndir, úr safnheild innan Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafni sem ber heitið Manna- myndasafn og var stofnað til árið 1908. Sögur af verkum í Mannamyndasafninu Stúlkur Hluti ljósmyndar eftir Sigfús Eymundsson á sýningunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.