Morgunblaðið - 30.11.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
CHAN MADDEN NANJIANI McHUGH HENRY RIDLOFF
BARRY
KEOGHAN
DON
LEE
WITH KIT
HARINGTON
WITH SALMA
HAYEK
AND ANGELINA
JOLIE
O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T
94%
Frábær ný Fjölskyldumynd frá Disney
sýnd með Íslensku og Ensku tali
E
kki er beint uppörvandi að
að lesa glæpasöguna
Hægt og hljótt til helvítis
eftir Magnús Guðmunds-
son. Fólk er þjakað í kórónuveiru-
faraldri og margir hafa ekki enn náð
sér eftir bankahrun. Vonleysi svífur
yfir vötnum, heift og hatur, og í slík-
um aðstæðum er ekki von á góðu.
Sjálfsagt kemst enginn í gegnum
lífið án einhverra áfalla, en fyrr má
nú rota en dauðrota. Uppgjöfin er
nánast algjör í bókinni, en sumir
reyna að bæta ástandið með lyfjum
án sýnilegs árangurs. Óvirkir alkar
treysta á AA-fundi og þegar jafnvel
sú von bregst er í fá hús að venda.
Fötin skapa manninn, stendur
einhvers staðar, en hér er orð-
bragðið lýsandi
dæmi um hjarð-
hegðunina. Allir
tala sama tungu-
málið, sem er ein-
hæft og takmark-
ast við helvíti og
djöfulinn. Landið
er grátt banana-
lýðveldi, helvítis
sker, þar sem allt er að fara fjandans
til enda stjórnað af fávitum og ekki
bæta helvítis dópistarnir, komm-
arnir og aumingjarnir úr skák, fávit-
ar og fáráðlingar að ekki sé minnst á
frjálshyggjumenn. Þessar og viðlíka
lýsingar, sem teknar eru af handa-
hófi, eru sem rauður þráður í
óhugnanlegri morðsögu og bera
hvorki vott um bjartsýni né um-
burðarlyndi.
Glæpasögur eru í grunninn ekki
uppörvandi og erfitt er að finna já-
kvæðan tón í bókinni. Sjálfsagt ekki
til þess ætlast. Titillinn Hægt og
hljótt til helvítis er í raun ágætislýs-
ing á sögunni en endurspeglar sem
betur fer ekki raunveruleikann þótt
sumir virðist aldrei sjá neitt nema
andskotann í hverju horni.
Áfallasaga „Vonleysi svífur yfir vötnum, heift og hatur, og í slíkum að-
stæðum er ekki von á góðu,“ segir rýnir um fyrstu glæpasögu Magnúsar
Guðmundssonar, sem er sögð óhugnanleg morðsaga.
Reiði út í
allt og alla
Glæpasaga
Hægt og hljótt til helvítis bbbnn
Eftir Magnús Guðmundsson.
Benedikt 2021. Innb., Kilja. 284 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
B
ókin Furðufjall: Norna-
seiður er æsispennandi
frásögn af unglingum, af
mannkyni annars vegar
og álfakyni hins vegar, sem eiga
það sameiginlegt
að þrá eitthvað
annað og meira
út úr lífinu en
þeim hefur verið
lofað. Máltækið
„gættu hvers þú
óskar þér“ á
mjög vel við í til-
vikum barnanna,
Ímu og Andr-
easar, þar sem metnaður þeirra fer
með þau, hvort í sínu lagi, á slóðir
sem þau hefði ekki órað fyrir.
Gunnar Theodór Eggertsson,
höfundur bókarinnar, hefur áður
sent frá sér fjölda barna- og ung-
mennabóka sem hafa hlotið lof
gagnrýnenda. Hann hlaut t.a.m. Ís-
lensku barnabókaverðlaunin fyrir
fyrstu barnabók sína Steindýrin
árið 2008 og var tilnefndur til Ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna ár-
ið 2015 fyrir Drauga-Dísu.
Furðufjall: Nornaseiður er fyrsta
bókin í nýrri ævintýraseríu Gunn-
ars og er óhætt að mæla með því
fyrir ævintýradýrkendur á öllum
aldri að skella sér strax á lestina.
Söguþráður bókarinnar er, eins og
áður segir, mjög spennandi og flétt-
an er þétt. Atburðarásin er hröð og
eftirvæntingin byggist upp strax
frá fyrstu síðu. Framvindan er þó
stundum of hröð, veitir lesandanum
ekki mikið rými til þess að velta at-
burðum bókarinnar fyrir sér.
Íma og Andreas eru sterkar og
skemmtilegar persónur sem eru al-
veg lausar við nokkurs konar stað-
alímyndir. Um margt eru þau lík,
þau þrá að fá að gera eitthvað
magnað, gæða svart-hvítt líf sitt lit,
litið er niður á þau vegna aldurs og
hæfileikar þeirra koma þeim í
klandur. Á þeim er þó verulegur
stéttamunur, þar sem Andreas er
óbreyttur almúgadrengur en Íma,
álfurinn, dóttir höfðingja. Stétta-
munurinn er þó vart sjáanlegur þar
sem heimur álfanna virðist hafa
þann kost að stétt skiptir litlu sem
engu máli, í það minnsta þarf Íma
að vinna ýmis leiðindaverk þrátt
fyrir stöðu sína í samfélaginu.
Sprelllifandi teikningar Fífu
Á köflum gerir háfleygt tungumál
bókarinnar, einhvers konar blanda
af gamaldags íslensku og nútíma-
máli, hana ósannfærandi. Þá segja
persónulýsingar lesandanum stund-
um lítið sem ekkert um þann
karakter sem verið er að reyna að
leiða lesandanum fyrir sjónir. Þar
koma nákvæmar og lýsandi myndir
Fífu Finnsdóttur aftur á móti
sterkar inn. Persónur bókarinnar
öðlast auðvitað líf með orðum
Gunnars en þær mæta inn í her-
bergi lesandans með teikningum
Fífu, sem eru svo lifandi að það
hálfa væri nóg.
Heilt yfir er hér um að ræða
stórskemmtilegt og spennandi
stykki og munu lesendur bók-
arinnar eflaust bíða í ofvæni eftir
næstu bók seríunnar. Þess er ósk-
andi að hún komi út sem allra
fyrst.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Gunnar Theodór Söguþráðurinn er „mjög spennandi og fléttan er þétt. At-
burðarásin er hröð og eftirvæntingin byggist upp strax frá fyrstu síðu.“
Nýrri ævintýraseríu
ýtt úr vör
Barna- og unglingabók
Furðufjall: Nornaseiður
bbbmn
Eftir Gunnar Theodór Eggertsson.
Myndir eftir Fífu Finnsdóttur.
Vaka-Helgafell, 2021. Innb., 172 bls.
RAGNHILDUR
ÞRASTARDÓTTIR
BÆKUR