Morgunblaðið - 30.11.2021, Síða 32
Efni í þætti kvöldsins:
Þorgrímur Óli Sigurðsson var nýlega nýkjörinn
formaður Félags eldri borgara á Selfossi. Hann segir
frá félagsstarfinu og því sem er framundan hjá
Selfyssingum.
Helgi Vilhjálmsson í Góu vakti máls á því í febrúar
sl. að tilvalið væri að gera Hótel Sögu að bústað eldri
borgara þar sem þeir gætu dvalið og komið saman
kvölds og morgna. Hótel Saga er enn óseld og Helgi
minnir enn á hugmyndir sínar.
Guðjón Arngrímsson er þjóðkunnur fyrir sín fyrri
störf sem fréttamaður og fjölmiðlafulltrúi Icelandair.
Hann er annar stofnanda Sigtúns þróunarfélags sem
nýlega tók í notkun fyrsta áfanga að hinum nýja glæsi-
lega miðbæ á Selfossi. Hvernig hefur gengið og hver
eru næstu skrefin í uppbyggingu á svæðinu?
Kristín Þorkelsdóttir er með reyndustu og virtustu
grafísku hönnuðum landsins og þekkt fyrir störf sín á
árum áður við hönnun vörumerkja, peningaseðla og
fjölda annarra verka. Hún er jafnframt myndlistar-
kona og enn í góðu formi 85 ára að aldri.
Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson
Lífið er lag
kl. 21.30 á Hringbraut í kvöld
Fylgstu með!
Í kvöld
á Hringbraut
Kristín Þorkelsdóttir
Guðjón Arngrímsson
Leikhópurinn Elefant, í samvinnu við Þjóðleikhúsið,
skrifar nýja leikgerð af Íslandsklukkunni eftir Halldór
Laxness og kallar eftir samtali við þjóðina um það hvað
sé að vera Íslendingur í dag. Þorsteinn Bachman leik-
stýrir uppfærslunni sem frumsýnd verður á næsta leik-
ári. Vinna við leikgerðina hófst 2020. Sem liður í vinnu-
ferlinu verður boðið upp á leiklestra og umræður, m.a. í
Hofi á Akureyri í dag og hefst kl. 13. Leiklesturinn tekur
um 90 mínútur og síðan taka við umræður, sem verða
nýttar til að fullvinna verkið. Aðgangur er ókeypis.
Leikhópurinn Elefant skrifar nýja
leikgerð af Íslandsklukku Laxness
ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 334. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Eftir sætan sigur á Hollendingum í Almere á föstudags-
kvöldið var íslenska karlalandsliðinu í körfuknattleik
kippt niður á jörðina í Pétursborg í Rússlandi í gær.
Firnasterkir Rússar náðu um tíma 40 stiga forystu og
unnu afar öruggan sigur, 89:65. Ísland má samt vel við
una að vera með einn sigur eftir tvær umferðir. »26
Kippt niður á jörðina í Pétursborg
ÍÞRÓTTIR MENNING
hefðina upp á aðventunni í auknum
mæli. Kæsta skatan er því ekki að
deyja út eins og öskupokinn.“
Veitingastaðir hafa þurft að tak-
marka fjölda gesta vegna kórónu-
veirufaraldursins og fyrirtæki og
fjölmennir skötuhópar eins og til
dæmis Hið íslenska skötufélag af-
lýstu skötuveislum í fyrra og aftur
núna í desember. Áslaug hefur
brugðist við þessu með því að
bjóða fjölskyldum og fámennari
hópum, sem vilja halda skötuveislu
í heimahúsum, að kaupa skötuna í
Djúpinu. „Það er slæmt til þess að
hugsa að fólk missi af skötuveisl-
unni,“ segir hún. „Kæst skata var
til dæmis hefð hjá ömmu heitinni
og vinkonum hennar í byrjun að-
ventunnar og þá fékk hún sér hvít-
vín með en annars drakk hún lítið
áfengi. Þetta var fastur liður sem
hún vildi aldrei missa af.“
Skötulyktin fellur ekki öllum í
geð og Áslaug segist hafa fundið
fyrir því. „Ég þarf stundum að
skreppa úr vinnunni og fara í búðir
og á þessum tíma tek ég eftir því
að fólk snýr sér við til að sjá hvað-
an lyktin kemur. Sjálfsagt kemur
mörgum á óvart að hún komi frá
ungri og myndarlegri konu en lykt-
in fylgir starfinu og ég er stolt af
því að vera kölluð Áslaug gella.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Lykt af kæstri skötu hefur verið
eitt af helstu einkennum aðvent-
unnar lengur en elstu menn muna
og hjá Djúpinu fiskvinnslu á
Grandagarði bíða um sjö tonn af
góðgætinu eftir að fara á diska
landsmanna. „Við bjóðum ferska
skötu allt árið og erum sennilega
með þeim öflugri í kæsingunni,“
segir Áslaug Ragnarsdóttir, eig-
andi og framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins.
Kæst skata verður ekki til á
einni nóttu. Fiskverkendur safna
allt árið birgðum fyrir verkunina,
sem felst í því að láta fiskinn gerj-
ast áður en hann er skorinn í bita.
Við gerjunina brotna þvagefni nið-
ur og þaðan kemur sterka lyktin
og bragðið. Hitastigið fer hækk-
andi eftir því sem á líður verkunina
og endar í stofuhita. „Síðustu sex
vikurnar fyrir jól er erfitt að vera
inni í vinnslunni, maður fær tár í
augun vegna ammoníakslykt-
arinnar, en það góða við hana er að
hún berst ekki í annan fisk,“ segir
Áslaug.
Fær svigrúm hjá körlunum
Röð tilviljana varð til þess að Ás-
laug varð fiskverkandi. „Maðurinn
minn var viðloðandi fiskvinnslu,
eitt leiddi af öðru og í febrúar 2019
stofnaði ég fyrirtækið, sem hefur
vaxið jafnt og þétt.“ Hún segir það
hafa vakið athygli enda fáar konur
í þessum rekstri. „Það var svolítið
sérstakt að stíga inn í þetta um-
hverfi sem ung kona og ég þurfti
að læra á það en þessir skemmti-
legu karlar og karakterar í brans-
anum hafa verið góðir við mig og
gefið mér svigrúm.“
Áslaug kaupir fisk á markaði og
selur afurðirnar einkum til veit-
ingastaða, mötuneyta og stofnana
á höfuðborgarsvæðinu. „Þekktir
staðir sem bjóða upp á skötu eins
og til dæmis Múlakaffi kaupa hana
af okkur og það er vísbending um
að við séum að gera hlutina rétt.“
Áslaug bætir við að hún merki
aukna ásókn ungs fólks í bæði
kæsta og ferska skötu. „Fersk
skata er orðin fastur liður á mat-
seðli nokkurra veitingahúsa allt ár-
ið og fólk af minni kynslóð tekur
Tími kæstu skötunnar
- Áslaug segir að hefðin á aðventunni lifi góðu lífi
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Í réttu umhverfi Áslaug Ragnarsdóttir vill halda í skötuhefðina.