Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Qupperneq 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.11. 2021 FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS N ú ætla ég ekki að þykjast vera ein- hver David Attenborough en ég get þó sagt, með nokkurri vissu, að kettir eru stórkostlega merkileg dýr. Þeir eru sjálfstæðir, einstakir og skemmtilegir. Það hefur verið sýnt fram á með fjölda rannsókna að gæludýr styrkja ónæmiskerfi. Ekki síst kettir sem fá að fara út. Þeir minnka líkur á ofnæmi og astma. Fyrir utan að fólk sem á ketti er almennt með lægri blóðþrýsting, líður betur og kvíðir minna. Kettir hafa líka mjög góð áhrif á fólk með Alzheimer. Svo gerir það börnum gott að alast upp með dýrum. Það vita allir. En umfram allt eru þeir frjálsir. Þeir eru frjálsir til að tala við eigendur sína þegar þeir vilja, þeir eru frjálsir til að leggja sig þar sem þeim hentar og þeir eiga að vera frjálsir til að fara út þegar þeir vilja. Þetta ættu allir að skilja en svo óheppi- lega vill til að sjö af ellefu bæjarfulltrúum Akureyrar virðast ekki hafa gert sér grein fyrir því. Þar var í það minnsta samþykkt að kettir þurfi nauðsynlega að vera inni. Lausaganga katta er sem sagt bönnuð á Ak- ureyri. Í þessu er svokallað sólarlagsákvæði sem þýðir að reglurnar taka ekki gildi fyrr en eftir þrjú ár. Það kemur reyndar ekki fram hvað eigi að gera við útikisa þá. Það er í það minnsta ljóst að á sumum heimilum verður ekki svo gott að opna glugga. Mér er ekki sama þegar fólki dettur svona vitleysa í hug. Í fyrsta lagi er ég kattavinur og tel mig skilja þessi dýr og í öðru lagi er ég tengdasonur Akureyrar og hef tekið það hlutverk alvarlega. Það er reyndar óvíst að ég endist lengi sem slíkur ef þetta ágæta fólk ætlar að taka upp á því að elta Húsvíkinga í þessari vitleysu. Það er varla hægt að segja frá vinnu- brögðunum við þetta. Þeim fannst nefnilega svo flókið að finna skilgreiningar þegar þau ætluðu að breyta samþykkt um kattahald að það var bara ákveðið að banna lausagöngu katta alveg. Það eru aldrei góðar fréttir þegar yfirvöld ákveða að banna eitthvað af því að það er svo „flókið“ að finna lausn á því. Helstu ástæðurnar munu vera að kettir séu að pissa og kúka í blómabeð og þeir veiði fugla. Nú verð ég að nefna, hafi það farið framhjá ykkur, að flestir kettir gera stykki sín heima hjá sér og ef þeir gera það annars staðar þá moka þeir yfir. Flest önn- ur dýr láta það ógert. (Ég velti því reyndar fyrir mér hvort þessir örnafælnu bæjar- fulltrúar hafi líka hugsað sér að banna lausagöngu og -flug gæsa. Það eru nú aldeilis raðskítandi sóðafuglar.) Það er vissulega rétt að kettir eru rán- dýr. Þeir eiga það til að veiða fugla sem þeir færa eigendum sínum gjarnan. Það er leiðinlegt og stundum pínu sorglegt en svona er náttúran. Þetta er ekki gerendameðvirkni. Þetta er eðli þeirra en það er hægt að gera þeim erfiðara fyrir með bjöllum og litríkum kraga. En mig langar til að benda Akureyringum á eitt: Ef þið hafið svona miklar áhyggjur af fuglum þá get ég bent ykkur á ýmislegt annað sem drepur fugla. Mér dettur til dæmis í hug skotveiðimenn, en líka flug- vélar. Kannski sérstaklega flugvélar sem fljúga á flugvöll sem er staðsettur við eitt stærsta varpland Reykjavíkur, Vatnsmýr- ina. Það hefur nefnilega lengi verið eitt helsta baráttumál Akureyringa að flugvöll- urinn í Reykjavík þurfi að vera límdur við miðbæinn. Nú má kannski efast um umboð mitt til samninga. En ég er samt til í að gera samn- ing við meirihluta bæjarstjórnar Akureyrar. Við Reykvíkingar skulum hafa þennan flug- völl sem þið viljið endilega hafa í miðbænum okkar, gegn því að þið leyfið köttum að hafa sína hentisemi. Því þannig á það að vera. ’ Það eru aldrei góðar fréttir þegar yfirvöld ákveða að banna eitthvað af því að það er svo „flókið“ að finna lausn á því. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Samningurinn F yrir stuttu síðan gekk ég sem oftar út á Suðurgötuna í Reykjavík, geri það nær dag- lega. Þá sá ég að í graseyjuna á milli akreina götunnar höfðu verði grafnar holur með jöfnu millibili. Sú spurning vaknaði hvort verið gæti að til stæði að setja niður tré þarna? Þar sem ég hef mjög ákveðna skoðun á mik- ilfengleik og fegurð Suðurgötunnar ákvað ég að kanna hversu djúpt ristu yfirlýsingar borgarfulltrúa um grenndarkynningu, samráð og íbúa- lýðræði. Nú kann vel að vera að fyrir því sé almennur vilji að fá þarna myndarleg tré. Ef svo væri yrði ég að sjálfsögðu að sætta mig við þá niðurstöðu. En svo gæti líka ver- ið að mitt sjón- armið hefði mik- inn stuðning og þá væri varla óeðlilegt að borg- aryfirvöld tækju tillit til þess og endurmætu áform sín í því ljósi. Hvað um það ég ákvað að láta á þetta reyna og sendi erindi í þar til gerða gátt hjá Reykjavíkurborg. Fékk ég vélrænt svar sem staðfesti móttöku á málaleitan minni. Skal nú rakið hvernig þetta gekk fyrir sig. Í vélrænu svari sínu endurtekur borgin erindi mitt á eftirfarandi hátt: „Ábendingin sem þú sendir: Grímshagi 6, 107 Reykjavík Þetta er í bland spurning og ábend- ing. Ég bý á Grímshaga, hliðargötu Suðurgötunnar í Reykjavík. Fegurð Suðurgötu er ótvíræð. Þegar ekið er suður þessa miklu götu blasir Keilir við henni miðri. Þetta er stórkostleg sjón sem hrífur mig á hverjum degi og hefur alla tíð gert. Nú sé ég að búið er að grafa holur á eyjuna miðja og spyr hvort eigi að girða eða gróðursetja þar tré. Hið síð- ara fyndist mér mikið óráð í ljósi þess sem ég hef hér sagt. Vildi ég koma því sjónarmiði á framfæri. Þarf svona nokkuð ekki að fara í einhvers konar grenndarkynningu – varla minna mál en að setja kvist á húsþak? Gott þætti mér að fá viðbrögð. Vélrænt svar borgarinnar: Ef þú hefur frekari spurningar þá má alltaf hringja í þjónustuver í síma 4 11 11 11.“ Í þessu fyrsta vélræna svari var er- indi mitt sem sagt endurtekið og mér boðið að hringja í þjónustuver. Ég ákvað að bíða eftir svari borgarinnar við erindi mínu. Svo kom hið eiginlega svar frá Reykjavíkurborg og var svohljóð- andi: „Takk aftur fyrir að senda ábend- inguna Grímshagi 6, 107 Reykjavík til Reykjavíkurborgar. Henni hefur nú verið lokað á eft- irfarandi hátt: planta trjám“ Ég set engan punkt því ég vil hafa þetta nákvæmt. Þetta var skondin reynsla eða eig- um við kannski frekar að segja lær- dómsrík? Ég ákvað að láta það eiga sig að hringja í þjónustuverið því á vettvang hafði mætt vinnuflokkur til að hola niður trjám svo langt sem augað eygði, Keili til lítillar hrifningar grun- ar mig. En það sem ég hefði spurt í þjónustuverinu ef ég hefði á annað borð hringt í það, er hvers vegna þetta væri gert, væri það ef til vill til kolefn- isjöfnunar? Væri þetta hlutskipti Suðurgötunnar í viðureign mann- kyns við loftslagsvána? Nú vissi ég alla vega að ekki væri gróðursett lýð- ræðisins vegna. Eða vegna þess að vilji væri til að sýna fólki lágmarks- kurteisi í samskiptum. En ég leyfi mér að spyrja í fullri al- vöru: Væri ekki rétt að svona mikið inngrip í umhverfið sem þetta óneit- anlega er á þessu svæði þurfi að fara í grenndarkynningu? En hvað um það, ég ætla að taka gleði mína á ný enda fengum við íbú- arnir tækifæri til að gefa mismunandi framkvæmdum punkta í atkvæða- greiðslu nýlega. Ég studdi að komið yrði upp sjóbaðsaðstöðu við Ægisíðu. Valdi það umfram leikvöll fyrir aldr- aða. Fyrir miðri Ægisíðunni í grennd við Grímsstaðavörina má í seinni tíð sjá fólk ganga niður í fjöruna til að taka sundsprett. Nánast í beinni línu niður af Suðurgötunni voru á sínum tíma búningsklefar fyrir sjóbaðendur í Sundskálavör. Þar lærði móðir mín að synda, en hún ólst upp í Hóla- brekku sem stendur við Suðurgöt- una. Sjósund er með öðrum orðum ekki alveg nýtt af nálinni við þessa fallegu strandlengju. Það sem verður nýtt er heimsborg- arlegt yfirbragð Suðurgötunnar. Á mörgum breiðgötum erlendra stór- borga hefur einmitt verið plantað trjám. Það kemur vel út. En vel að merkja, þar hafa menn engan Keili. Látið reyna á íbúalýðræði Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’ Væri þetta hlutskipti Suðurgötunnar í við- ureign mannkyns við lofts- lagsvána? Nú vissi ég alla vega að ekki væri gróður- sett lýðræðisins vegna. Á umferðareyjuna á Suðurgötu hafa verið gróðursett tré og munu þau skyggja á Keili sem blasir við fyrir enda götunnar.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.