Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Qupperneq 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Qupperneq 8
GERVIGREIND 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.11. 2021 Fjölgum íbúðum fyrir tekju- og eignalága Stofnframlög Opið fyrir umsóknir um stofnframlög Auglýst er eftir umsóknum í seinni úthlutun fyrir árið 2021 um stofnframlög ríkisins til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum skv. lögum nr. 52/2016 og reglugerð nr. 183/2020. Markmið laga um almennar íbúðir er að bæta húsnæðisöryggi þeirra sem eru undir tekju- og eignamörkum við upphaf leigu. Stofnframlög eru veitt til byggingar og kaupa á almennum íbúðum. Umsóknarfrestur lengdur til 22. nóvember 2021 Umsóknum skal skila inn á rafrænu formi á heimasíðu HMS. Til þess að hægt sé að meta umsókn þurfa öll gögn skv. 14. gr. reglugerðar nr. 183/2020 að skila sér innan umsóknarfrests. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, www.hms.is. hms.isBorgartúni 21, 105 Rvk - Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki Lissabon. AFP. | Garrí Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, hefur greinilega ekki látið það á sig fá þegar hann tapaði einvíginu við Djúpbláa, ofurtölvu IBM, á tíunda áratugnum því hann er sannfærður um að helsta ógnin þessa dagana sé maðurinn, ekki gervigreind. Kasparov er heillaður af tækni og vísindum og á netráðstefnunni, sem haldin var í Lissabon í Portúgal í vikunni, ræddi hann við AFP um vaxandi umfang gervigreindar í samfélaginu þegar hann hafði lokið sér af við að tefla fjöltefli við tíu manns. Þarf vart að taka fram að hann hafði betur í öllum skákunum á 45 mínútum. Engin vísbending um ógn „Við lifum í heimi þar sem vélar leika stærra og stærra hlutverk,“ sagði Kasparov. „Þetta er að gerast hvort sem fólki líkar betur eða verr. Það eru einfaldlega engar vís- bendingar um að okkur stafi ógn af vélum. Hin raunverulega hætta stafar ekki af manndrápsþjörkum heldur fólki – vegna þess að fólk er enn með einokun á illsku.“ Kasparov, sem hefur gagnrýnt stjórnvöld í Kreml harðlega, segir að mesta ógnin sé af „einræðis- og alræðislöndum og hryðjuverka- mönnum sem munu nota þessa tækni til að valda okkur tjóni“. Tilvera vélvæddra morðingja á borð við Tortímandann er enn al- farið bundin við heim vísindaskáld- skapar, en mannréttindasamtök eru þegar farin að þrýsta á um að sett verði ákvæði í þjóðarétt um slíkar vígvélar á þeirri forsendu að gervigreindin muni umbylta hern- aði á komandi árum. Á ráðstefnunni hafa tæknipáfar notað vikuna til að ræða jákvæðari hliðar þess hvernig nýta megi gervigreind. Þar hefur verið fjallað um snjallbotta, sem geta rætt við fólk og aukið andlega vellíðan, og notkun tækninnar til að flokka plastúrgang. Lýsa má Kasparov sem bjartsýnismanni um tæknina, en hann vísar þó ekki alfarið á bug ótta þeirra sem hafa áhyggjur af að vélmenni muni yfirtaka störf sem maðurinn vann áður, allt frá verk- smiðjustörfum til aksturs vörubíla. „Þetta verður sársaukafullt“ „Það er engin spurning að þetta verður sársaukafullt, á því er eng- inn vafi. Ég vil ekki hljóma harð- brjósta, fólk mun missa vinnuna. En horfum á stóru myndina,“ sagði hann. „Mannkynið hefur alltaf grætt á innleiðingu tækni- framfara.“ Máli sínu til stuðnings benti hann á hversu hratt hefði gengið að þróa bóluefni gegn kórónuveirunni. Það hefði gengið með ljóshraða miðað við baráttuna gegn fyrri sjúkdómum. Það dæmi fyllti hann bjartsýni um kraft sköpunargáf- unnar. Hins vegar sagði hann að um heim allan yrði að bæta regluverk til að hjálpa til við að takmarka nei- kvæð áhrif félagsmiðla og annarrar tækni sem nú væri í mótun. Koma þarf böndum á félagsmiðla „Ég vil fá góða, opinbera umræðu sem að lokum skilar sér í tillögum til stjórnvalda,“ sagði hann. „Vegna þess að það eru stjórnvöld sem geta sett lög til að þvinga fyrir- tækin til að gera þá hluti sem þarf til að lágmarka skaðann.“ Þessi ummæli eru í sama anda og alþjóðlegt ákall, sem hlýtur æ meiri undirtektir, um að hemja gríðar- legt vald tæknirisa á borð við Go- ogle, Apple, Facebook og Amazon. Gagnrýnin á Facebook hefur verið sérstaklega hörð í kjölfarið á því að lekið var gögnum, þar sem kemur fram að stjórnendur fyrir- tækis hafi vitað að félagsvefur þeirra gæti skaðað fólk með marg- víslegum hætti. Kasparov gaf til kynna að yfir- völd hefðu átt í vandræðum með að láta regluverkið fylgja félagsmiðla- byltingunni eftir að hluta til vegna þess „að stjórnvöld líta á stóru tæknifyrirtækin sem tekjulind“. Hann kvaðst þó telja að hvernig sem farið yrði að því að setja reglur um félagsmiðlana gæti engin laga- setning með öllu útrýmt skaðanum sem þeir valda, allt frá haturs- orðræðu til þess að fylla unglinga af vanmetakennd. „Hvað sem hver segir um að hægt sé að útrýma skaðanum, þá er það fullkomlega útilokað,“ sagði hann. „Félagsvefir eru nefnilega rekstur þar sem ágreiningur er innbyggður.“ Maðurinn einokar illskuna Garrí Kasparov, stórmeistari og fyrrverandi heimsmeistari í skák, tefldi fjöltefli á netráðstefnunni í Lissabon 1. til 4. nó- vebmer. Ráðstefnan nefnist Web Summit og er viðamesti viðburðurinn í tæknigeiranum í Evrópu. AFP Garrí Kasparov er fullur bjartsýni fyrir hönd gervigreindar- tækninnar. Nýjungar í tækni hafi alltaf orðið til framfara. Hættan stafi af manninum, sem hingað til hafi einokað illskuna. Tískuorðið á Web Summit í Lissabon, sem haldið var í vikunni, var sýndarheimur eða „metaverse“, sýndar- veruleikaútgáfa af netinu, sem Facebook og fleiri fyrir- tæki stefna að því að smíða. Mark Zuckerberg, for- stjóri Facebook, sem endur- nefndi móðurfyrirtækið Meta nýlega, telur að sýnd- arveruleikinn gæti umbylt vinnustaðnum. Í ágúst kynnti Facebook vettvanginn Workrooms þar sem starfs- fólk getur notað sýndurveru- leikahjálma til að taka þátt í sýndarveruleikafundum. Sýndarheimurinn myndi ná til margra hliða daglegs lífs, allt frá tónleikum til verslunar, og yrði í villtustu draumum forsvarsmanna hans framlenging af raun- heimum, en því er ósvarað hver verði við völd í honum. NÝ VERÖLD? Boða sýndar- heim

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.