Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Blaðsíða 18
Anna Marín stökk út í djúpu laugina þegar hún opnaði tapasbar án þess að hafa nokkra reynslu af veitingarekstri. Þ að er alltaf gaman að frétta af Íslendingum sem eru að gera það gott í útlöndum. Blaðamanni barst til eyrna að íslensk kona hefði opnað veitingastað á lítilli eyju fyrir utan Fjón og datt í hug að slá á þráðinn og heyra af þessu ævin- týri. Anna Marín Schram gaf sér tíma frá mjög svo annasömu veitinga- rekstrarlífi til að spjalla yfir hafið. „Ég er fædd og uppalin á Álftanes- inu en flutti út til Danmerkur sextán ára þegar mamma hóf samband með dönskum manni. Eftir það var ég á smá flakki á milli landanna. Ég tók svo iðnnám í ljósmyndun í Dan- mörku,“ segir Anna Marín sem búið hefur því alla sína fullorðinsævi í Danaveldi. „Ég bjó lengi í Kaupmannahöfn en er nú í Árósum og með annan fótinn á eyjunni Langeland. Ég starfaði við ljósmyndun alveg þangað til nýlega og vann mest fyrir leikhús og hljóm- sveitir,“ segir Anna Marín en maður hennar, Carsten Holm, er tónlistar- blaðamaður. Saman eiga þau þrjú börn, Illuga Knút níu, Edith þrettán og Marín fjórtán ára gömul. Koddahjal í kóróna Anna Marín og Carsten opnuðu í sumar tapasbar á Langeland og hafa vinsældir hans farið langt fram úr öllum vænt- ingum. Á eyjunni búa um tólf þúsund manns. „Okkur hafði lengi dreymt um að opna gistiheimili eða lítinn kaffibar á Ítalíu eða einhvers staðar. Svo þegar kórónuveiran skall á vorum við mik- ið á Langeland þar sem við eigum sumarhús. Krakk- arnir voru í fjarnámi þar. Það var svo mikið koddahjal í kórónunni, og þá kviknaði sú hug- mynd að leita ekki langt yfir skammt heldur opna stað þar. Draumurinn gæti alveg eins gengið á Langeland. Við fórum þá að grennslast fyrir hvort einhvers stað- ar væri laust húsnæði og fljótlega fréttum við að einn kráareigandi væri látinn og að kráin færi væntanlega á sölu. Við gengum svo þar fram hjá og þá var akkúrat húseigandinn að skipta um lás. Við fengum að kíkja inn og þetta var hryllingur! Ein versta knæpa sem ég hef séð. Það var búið að reykja þarna inni í um hundr- að ár. Ógeðslegt!“ segir Anna Marín og leggur áherslu á orðið. „Svo fórum við í bakgarðinn, og hann var fullkominn! Þá hugsuðum við að þetta gæti gengið. Úr varð að gera eitthvað klikkað og opna þarna stað.“ Nikótínið lak niður veggina Það fór svo að parið keypti allt hús- næðið en auk knæpunnar var íbúð á efri hæð. „Það tók hálft ár að gera allt upp, bæði veitingastaðinn og íbúðina. Við þurftum að skrúbba alla veggi; það er erfitt fyrir fólk að skilja hversu mikið nikó- tín safnast í veggi, en við skrúbb- uðum og skrúbb- uðum og nikó- tínið lak nið- ur vegg- Draumurinn rættist á Langeland Anna Marín Schram opnaði í sumar tapasbar á dönsku eyjunni Langeland. Ákvörðunin var tekin í koddahjali en draumurinn varð að veruleika í júní þegar Gaardhaven opnaði. Staðurinn hefur heldur betur slegið í gegn. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Anna Marín féll fyr- ir bakgarðinum sem er afar kósí. 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.11. 2021 LÍFSSTÍLL –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 16. nóvember 2021 SÉRBLAÐ BLAÐ

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.