Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Qupperneq 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Qupperneq 20
Mér finnst að ávaxta- mylsnubökur af ýmsu tagi eigi ekki síst við á veturna, þegar mann langar í eitthvað góm- sætt sem yljar ofan í tær. Ávextirnir geta ver- ið síbreytilegir – epli, perur, plómur, ferskjur, nektarínur, nokkrir ananasbitar, ýmiss kon- ar ber og fleira. ½ epli 1 plóma eða ½ ferskja (eða aðrir ávextir) 3-4 msk. bláber eða önn- ur ber 2½ msk. hveiti 2½ tsk. sykur 20 g smjör (og meira til að smyrja formið) 1 msk. hafragrjón, eða eftir þörfum fáeinir vanilludropar (má sleppa) Hitaðu ofninn í 210°C og flysjaðu, steinhreins- aðu og skerðu niður ávextina eftir þörfum. Blandaðu þeim saman í skál ásamt ½ msk. af hveiti og ½ tsk. af sykri og helltu blöndunni svo í lítið, eldfast form, smurt með dálitlu smjöri. Hrærðu smjör, sykur og vanillu saman og blandaðu svo hveiti og hafragrjónum saman við. Ég þeytti reyndar allt nema hafragrjónin saman í hakkara og blandaði þeim saman við seinast til að halda áferðinni. Myldu deigið jafnt yfir ávextina og bakaðu í miðjum ofni í 20-25 mínútur, eða þar til mylsnuþekjan er farin að taka lit og verða stökk. Berðu bökuna fram heita eða volga, t.d. með sýrðum rjóma (36%), þeyttum rjóma, ís eða grískri jógúrt. Mylsnubaka 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.11. 2021 MATUR Þessi buff eru afskaplega fljótleg, ein- föld og góð með eilítið austurlenskum keim. Með því að mauka helminginn af fiskinum en skera afganginn í litla bita og blanda saman við farsið fæst skemmtilegri áferð á buffin. 200 g bleikja (eða lax) ½-1 tsk. rautt taílenskt karrímauk ½ tsk. sojasósa 1 msk. saxað kóríanderlauf 1 lítill vorlaukur pipar og salt 2-3 msk. brauðmylsna eða panko-rasp 1 msk. olía til steikingar Settu helminginn af fiskinum í hakkara eða matvinnsluvél með karrímauki, sojasósu, vorlauk, kóríander, pipar og salti og maukaðu það vel. Skerðu af- ganginn af fiskinum í litla bita og blandaðu þeim saman við, ásamt raspi. Mótaðu 4 lítil buff úr blöndunni. Hitaðu olíu á pönnu og steiktu buff- in við ríflega meðalhita í um 2 mínútur á hvorri hlið. Berðu t.d. fram með sætkartöflufrönskum og kóríander- pestói. Silungsbuff Mörgum þykir þetta ekta „notalegheita- matur“ og þótt til séu einfaldar útgáfur þar sem pakka- blöndur eru notaðar er ekki mikil fyrir- höfn að gera réttinn frá grunni – heldur ekki fyrir einn. Þrátt fyrir nafnið þarf ekk- ert endilega að nota makkarónur, það er hægt að nota ýmsar tegundir af pasta. 80 g makkarónur salt 1 msk. smjör 1 msk. hveiti ¼ tsk. dijon-sinnep 200 ml mjólk 50 ml rjómi (eða meiri mjólk) pipar og salt 60 g rifinn ostur (cheddar) 1 msk. parmesanostur Hitaðu ofninn í 200°C. Sjóddu makkarónurnar í saltvatni, 2-3 mín- útum skemur en leið- beiningar á umbúð- um segja til um, og helltu þeim svo í sigti. Bræddu smjörið í potti, hrærðu hveit- inu saman við og hrærðu svo vökv- anum smátt og smátt saman við og bakaðu upp sósu. Kryddaðu vel með pipar og salti og hrærðu svo ost- inum saman við. Blandaðu makkarón- um saman við sós- una. Settu allt í eld- fast mót, stráðu parmesanosti yfir og bakaðu í 20-25 mín- útur, eða þar til yfir- borðið er fallega gull- inbrúnt. Svo má auðvitað blanda margvíslegu hráefni saman við makkarónurnar áður en þær eru settar í mótið, t.d. stökk- steiktu beikoni í litlum bitum, skinku- bitum, túnfiski úr dós, steiktum svepp- um eða ýmiss konar grænmeti, gjarna for- soðnu eða -steiktu, svo sem spergilkáli, blaðlauk, grænum baunum eða maís. Einnig er hægt að strá ýmsu yfir áður en mótið er sett í ofn- inn, t.d. brauðmylsnu, muldu saltkexi eða jafnvel muldu korn- flexi. Makkarónur og ostur Ungversk gúllassúpa hentar einkar vel á köldum vetrardegi, er yljandi, nærandi, bragðsterk og matarmikil. Það má líka hafa hana sterkari og krydda hana t.d. með dálitlum cayenne- pipar eða skvettu af tabasco- sósu. 150-200 g lamba- eða nautagúllas eða súpukjöt pipar og salt ½ laukur 1 hvítlauksgeiri 1-2 gulrætur, eftir stærð ½ lítil paprika (eða tveir fjórð- ungar í mismunandi lit) 1 tómatur 1 msk. olía 1½ tsk. paprikuduft ½ tsk. kummin 500 ml vatn Skerðu kjötið í fremur litla bita og kryddaðu það með pipar og salti. Saxaðu laukinn og hvít- laukinn og skerðu gulrætur, papriku og tómat í bita. Hitaðu ½ msk. af olíu í potti og brún- aðu kjötið vel á öllum hliðum. Taktu það upp með gataspaða og settu á disk. Settu afganginn af olíunni í pottinn og láttu lauk og hvítlauk krauma í 3-4 mínútur. Settu þá allt grænmetið út í, ásamt papr- iku og kummini, og steiktu í 2-3 mínútur í viðbót. Settu kjötið aftur í pottinn, helltu vatninu yf- ir, hitaðu að suðu og láttu malla í hálflokuðum potti þar til kjöt- ið er meyrt – í um 1 klst. fyrir lambakjöt. Gúllassúpa Borð fyrir einn Ný bók eftir Nönnu Rögnvaldardóttur er komin út og ber nafnið Að elda fyrir einn. Þar má finna girnilegan, hollan, einfaldan og bragðgóðan mat af öllu tagi. Nanna gefur hér lesendum nokkrar góðar uppskriftir að matnum sem hún ber á borð fyrir sig eina. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Matarmyndir: Nanna Rögnvaldardóttir Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.