Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Síða 28
Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 25 ára 1996-2021 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.11. 2021 LESBÓK TÓNLIST Breska ofurstjarnan Adele birti í vikunni lagalista fyrir væntanlega plötu sína, sem kemur út 19. nóvember. Virðist laga- heitið „I Drink Wine“ vekja mesta forvitni. Platan nefnist „30“ og er beðið með eftirvæntingu, enda sex ár liðin frá því hún síðast gaf út plötu. Adele hefur sagt að hún hafi hafið upptökur fyrir þremur árum þegar líf hennar var „völundarhús fullt af óreiðu og innri glund- roða“. Þegar hjónaband hennar leystist upp hafi hún upplifað „ár kvíða“ og lokað sig af frá umheiminum. Adele skrifaði á Twit- ter að hún hefði komist að mörgu óþægilegu um sjálfa sig við þessa reynslu. „Ég hef loks fundið til- finninguna mína aftur,“ skrifar hún. „Ég mundi ganga svo langt að ég hafi aldrei fundið til meiri friðar í lífi mínu.“ Adele fann fjölina aftur AFP BÍÓ Bandaríski leikstjórinn Michael Mann tel- ur að kórónuveirufaraldurinn hafi beint sjón- um almennings að alþjóðlegri kvikmyndagerð. Þetta sagði Mann, sem þekktur er fyrir mynd- ir á borð við „Heat“ og „Síðasti Móhíkaninn“ við upphaf frönsku kvikmyndahátíðarinnar í Hollywood, COLCOA, sem stendur fyrir City of Lights, City of Angels og vísar til við- urnefna Parísar og Los Angeles. „Ég held að blandan af streymi og kór- ónuveirunni sem hefur leitt til þess að fólk ver miklum tíma í að horfa á myndefni og streyma hafi opnað heilan kvikmyndaheim með stór- kostlegum hætti,“ sagði Mann. Alþjóðlegt bíó blómstrar í faraldrinum Michael Mann segir að erlendar myndir blómstri í faraldrinum. AFP Tölvuleikir eru undir smásjá í Kína. Hætta með Fortnite í Kína TÖLVULEIKIR Tölvuleikjarisinn Epic Games lýsti yfir því í vikunni að hann myndi hætta með leikinn Fortnite í Kína og slökkt yrði á net- þjónum þess vegna umfangsmikilla hafta þar í landi á leikjamarkaði. Kínversk stjórnvöld hafa hert allt regluverk til þess að ná betri stjórn á efnahagslífinu. Um leið vilja þau vinna gegn leikjafíkn. Tíminn sem börn mega verja í leikjum hefur verið takmarkaður og þeim sem spila leiki gert að nota sérstök skil- ríki þegar þeir skrá sig. Þá eru gerðar athugasemdir við „pólitískt skaðlegt“ innihald leikja. Við þetta hafa tekjur leikjafyrir- tækja dregist saman og hlutabréf í þeim teki dýfu. Fyrir fimm árum leit Ian Shaw í spegil og sá fyrir sér Quint, hrjúfa sjómanninn úr kvik- myndinni Ókindinni eða Jaws. Hon- um hafði oft verið sagt að hann væri líkur föður sínum, leikaranum Ro- bert Shaw, sem var frægur fyrir hlutverk sín í myndum á borð við The Sting, Með ástarkveðju frá Rússlandi og kannski einkum og sér í lagi Ókindinni þar sem hann lék Quint. Ian er líka leikari og hafði lát- ið sér vaxa yfirskegg vegna hlut- verks, sem hann var að undirbúa, og sá að hann var sláandi líkur honum. Hann grennslaðist fyrir og sá að hann var líka á svipuðum aldri og faðir hans þegar Ókindin var gerð eða 47 ára. Og honum datt í hug að hvort hann ætti að leika föður sinn, en vísaði hugmyndinni jafnharðan frá sér, enda hafði hann alltaf forð- ast tenginguna við föður sinn. Þannig lýsir Ian hvernig það kom til að hann ákvað að gera leikritið Hákarlinn er bilaður (The Shark Is Broken), sem var fyrst sýnt á jað- arleikhúshátíðinni Edinburgh Fringe fyrir tveimur árum og er nú sýnt í London og verður þar á fjöl- unum fram í janúar hið minnsta. Stormasöm samskipti Í leikritinu er samskiptum aðalleik- aranna þriggja í kvikmyndinni lýst, þeirra Roberts Shaws, sem lék skip- Erjur við tök- ur Ókindar Kvikmyndin Ókindin sló í gegn um miðjan áttunda áratuginn og hrelldi margan áhorfandann. Nú hefur sonur eins af aðalleikurunum gert leikrit um gerð myndarinnar og er sjálfur í hlutverki föður síns. Karl Blöndal kbl@mbl.is Robert Shaw, Roy Scheider og Richard Dreyfuss í hlutverkum sínum í Ókindinni. Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Nánari upplýsingar veita ráðgjafar okkar í síma 580 3900 eða á netfangið sykursyki@fastus.is • Engar blóðsykurmælingar í fingur • Auðveldur og fljótlegur í uppsetningu • Virkar með Android og Apple snjalltækjum • Hægt að tengja í flest snjallúr, Garmin, Apple, Samsung og fl. • Hægt að stilla hringitóna og viðvaranir eftir óskum notanda HELSTU EIGINLEIKAR DEXCOM G6 RAUNTÍMA BLÓÐSYKURSMÆLING Fyrsta lagið af væntanlegri plötu Adele fór beint á toppinn á Bretlandi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.