Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Síða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Síða 32
SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2021 Þegar óperan La Traviata var frumflutt í Feneyjum í mars árið 1853 bauluðu áhorfendur og daginn eftir skrif- aði tónskáldið, Giuseppi Verdi, bréf til vinar síns og var í öngum sínum: „La Traviata féll í gærkvöldi. Var það mér að kenna eða söngvurunum? Tíminn mun leiða það í ljós.“ Þegar La Traviata, sem merkir hin fallna kona, var næst sett upp rúmu ári síðar ætlaði allt að ganga af göfl- unum vegna fagnaðarláta og hefur óperan reynst ein sú vinsælasta í sögunni. Fáar óperur hafa verið færðar jafn oft upp og hún. Um næstu helgi verður La Traviata í uppsetningu Ís- lensku óperunnar sett á fjalirnar í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Óperan verður sýnd 13. nóvember og vegna mikillar eftirspurnar var bætt við aukasýningu í Hofi sunnudaginn 14. nóvember klukkan 16. Óperan er flutt í Hörpu nú um helgina. Í fréttatilkynningu er haft eftir Þorvaldi Bjarna Þor- valdssyni, tónlistarstjóra Menningarfélags Akureyrar, að uppsetningin marki tímamót í íslenskri menning- arsögu og ávinningurinn af henni fyrir listalíf landsfjórð- ungsins sé ómetanlegur. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sér um tónlistina í Eldborg og Hofi undir stjórn finnska hljómsveitarstjór- ans Önnu-Mariu Helsing. Í sýningunni eru einnig dans- arar og 30 manna kór Íslensku óperunnar. Herdís Anna Jónasdóttir fer með hlutverk Víólettu í óperunni. Herdís Anna Jónasdóttir í hlutverki Víó- lettu í óperunni La Traviata, sem sýnd verður í Hofi á Akureyri næstu helgi. Ljósmynd/Jóhanna Ólafsdóttir La Traviata á Akureyri Óperan La Traviata eftir Verdi verður sett upp á Akureyri 13. og 14. nóvember. Á tónlistarsíðu Morgunblaðsins í nóvember 1976 var umsjónar- manni mikið niðri fyrir út af því að skemmtistaðir tækju erlenda plötusnúða fram yfir innlenda. Poppopnan nefndist Slag- brandur og skrifaði umsjónar- maðurinn undir því nafni. „Það sem fer í taugarnar á Slagbrandi í þessu sambandi er það, að staðirnir skuli endilega þurfa að „troða upp“ með út- lendinga í starfi plötusnúða,“ skrifaði hann. „Maður skyldi ætla að íslendingur þekkti betur til fótaburðar og tónlistar- smekks samlanda sinna eins og dæmið um blökkumanninn Charlie sannar áþreifanlega: Maðurinn hreinlega skildi ekki „þjóðarkarakter“ íslendinga og drykkjusiði, en þessi atriði eru samofin tónlistarsmekk. Starfið getur fjandakornið ekki verið svo erfitt eða flókið að það krefj- ist einhverrar sérþekkingar. Þvert á móti virðist Slagbrandi þetta vera „létt verk og löður- mannlegt“ (eins og Grettir mælti forðum). Er mörland- anum nú ekki lengur treystandi til að setja hljómplötur á fón eða velja lög sem eru íslenskum snapshúsagestum samboðin?? – Hví þá ekki alveg eins og að ráða þýska útkastara, franska mat- reiðslumenn eða ítalska þjóna?? Slagbrandi er spurn.“ GAMLA FRÉTTIN Slagbrandi er spurn Stuart Austin var plötusnúður á Óðali 1975. Þegar sagt var frá ráðningu hans í Morgunblaðinu var klykkt úr með orðunum „enda þykja fáir Íslend- ingar koma til greina í svo vandasamt starf“. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon ÞRÍFARAR VIKUNNAR Ian Rush knattspyrnumaður Markús Sigurbjörnsson fyrrverandi forseti hæstaréttar Stuart Austin plötusnúður Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 554 6969 lur@lur.is • lur.is LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL MADE IN DENMARK Lama rúmin eru vönduð, falleg og þekkt fyrir að veita heilbrigðan og góðan svefn. Þau hafa verið framleidd í Danmörku síðan 1939. Hægt er að fá þau með eða án stillanlegum botni. Í boði eru þrír litir á áklæði og margar tegundir fóta og rúmgafla. Lama Premium rúmin eru með sérstakan mjóbaks- stuðning og meiri dýpt fyrir axlir. Ef þú vilt að öxlin detti meira ofan í dýnuna er Premium línan fyrir þig.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.