Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.11.2021, Page 32
Mick Rock látinn
Breski rokkljósmyndarinn Mick Rock er látinn, 72 ára
að aldri. Rock var kallaður maðurinn sem myndaði
áttunda áratuginn og myndir hans af listamönnum á
borð við David Bowie og Sex Pistols eru frægar. Í til-
kynningu frá fjölskyldu hans á Twitter sagði að hann
hefði verið „ljóðskáld ljósmyndarinnar, sannkallað
náttúruafl, sem notaði dagana til að gera það sem
hann elskaði, alltaf með sínum eigin dásamlega yf-
irgengilega hætti. Hann var goðumlík vera, við mun-
um aldrei upplifa hans líka aftur.“
Johnny Marr, gítarleikari bresku hljómsveitarinnar
The Smiths, sendi honum kveðju í tísti og lét mynd af
sér fylgja með Rock: „Sæll að sinni, kæri vinur og fé-
lagi Mick Rock, skáld með sýn.“ Rock fæddist í vest-
urhluta London 1948 og útskrifaðist frá hinum virta
skóla Cambridge University með gráðu í miðalda- og
nútímamálum. Þegar hann var í háskóla fór hann að
taka myndir á tónleikum og fékk áhuga á ljós-
myndum.
Myndir hans prýddu meðal annars albúm með Lou
Reed og Iggy Pop og hann festi marga stjörnuna á
filmu, allt frá rapparanum Snoop Dogg til Daft Punk,
Debbie Harry, Ozzies Osbournes og Davids Bowies,
sem var náinn vinur hans.
Myndband Queen við lagið Bohemian Rhapsody var
unnið út frá ljósmynd, sem Rock tók af hljómsveitinni.
Mick Rock glaðbeittur við
opnun ljósmyndasýningarinnar
„Life On Mars“ 2016 þar sem
David Bowie kom við sögu.
AFP
Maðurinn sem myndaði stjörnur rokksins og átti áttunda áratuginn er allur.
SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2021
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
Sími 554 6969
lur@lur.is • lur.is
Verið velkomin
í heimsókn
Mikið úrval
hvíldarstóla
fyrir alla
Hvíldin
byrjar í LÚR
LÁTTU ÞÉR
LÍÐA VEL
Skothvellir glumdu í Reykjavík
laugardaginn 6. nóvember 1976.
Tveir ungir menn höfðu brotist
inn í verslunina Sportval, tekið
byssur traustataki og hafið skot-
hríð. Á endanum sá lögregla sér
þann kost vænstan að aka annan
þeirra niður og gafst þá hinn upp.
„Við vorum búnir að reyna að
fá piltana til að leggja vopnin nið-
ur með góðu, en einu svörin sem
við fengum voru hagladrífur,“
sagði Magnús Einarsson aðal-
varðstjóri lögreglu á baksíðu
Morgunblaðsins daginn eftir.
Þar var einnig rætt við Einar
Brynjólfsson, sem mætti mönn-
unum á Snorrabraut með byssur
í höndum á laugardagsmorgn-
inum eftir að hafa ekið konu
sinni til vinnu. Þeir skutu á bílinn
svo rúður brotnuðu og fékk
Magnús tvö högl í sig. Hann nam
staðar, steig út og furðaði sig í
viðtalinu á hvað hann hefði verið
rólegur. Hann hefði litið á þá og
sagt að þeir væru nú aldeilis létt-
lyndir.
„Ég talaði rólega við þá en þeir
sögðu mér að pilla mig burtu og
skilja lyklana eftir í bílnum,“
sagði hann. „Þetta gerði ég enda
sögðu þeir að þeir myndu skjóta
mig ella.“
Atburðir þessir urðu kveikjan
að kvikmyndinni Skytturnar frá
1987 eftir Friðrik Þór Frið-
riksson.
GAMLA FRÉTTIN
„Sögðu mér
að pilla mig“
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
George Gently
lögregluvarðstjóri
Tom Barnaby
lögregluvarðstjóri
Birgir Ármannsson
formaður undirbúningsnefndar fyrir
rannsókn kjörbréfa