Morgunblaðið - 04.12.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.12.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021 Bogi Molby Pétursson Löggiltur fasteignasali S. 699 3444 Framkvæmdir standa yfir við end- urbyggingu vegarins í gegnum þorpið á Tálknafirði. Unnið er að því að aka grjóti í rofvörn við veg- inn á milli þorpsins og grunnskól- ans á Sveinseyri. Vegurinn í gegnum þorpið og að grunnskóla og sundlaug á Sveins- eyri er um 1,6 km að lengd og flokkast sem þjóðvegur í þéttbýli. Verkið er samstarfsverkefni Vega- gerðarinnar og Tálknafjarðar- hrepps. Ólafur Þór Ólafsson sveit- arstjóri segir að vegurinn sé orðinn lélegur. Vegagerðin sé nú að ganga frá honum í betri mynd áður en honum verður skilað til Tálkna- fjarðarhrepps. Fyrirtækið Allt í járnum átti lægsta tilboð í verkið, rúmar 250 milljónir kr., sem var um sjö millj- ónum yfir áætlun Vegagerðar- innar. Ljúka á grjótvörn í þessum mánuði en á næsta ári verður veg- urinn byggður upp og malbikaður. Verklok eru áætluð fyrir 1. sept- ember á næsta ári. helgi@mbl.is Vegagerðin kemur veginum í Tálknafirði í lag áður en honum verður skilað til sveitarfélagsins Vegurinn varinn og lagfærður Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Grjótvörn Grjóti er ekið í rofvörn við veginn þar sem hann liggur næst sjónum, frá þorpinu og að skóla- og íþróttasvæðinu á Sveinseyri. Útlit er fyrir að halli á rekstri Reykjavíkurborgar, A-hluta, verði 548 milljónum kr. minni á næsta ári en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætl- un næsta árs, sem lögð var fram í haust, vegna áhrifa nýrrar þjóðhags- spár Hagstofunnar. Fram kemur á minnisblaði fjármála- og áhættu- stýringarsviðs borgarinnar, sem lagt var fram í borgarráði í fyrradag, að halli á A-hlutanum verði rúmir 2,8 milljarðar í stað 3,4 milljarða kr. Breyttar verðlagsforsendur leiða m.a. að mati fjármála- og áhættu- stýringarsviðs til þess að gjald- færsla lífeyrisskuldbindingar lækk- ar um 700 milljónir kr., fjármagnsgjöld hækka um 389 millj- ónir kr. og útsvarstekjur hækka um 88 milljónir á næsta ári og er talið að útgjöld borgarinnar verði hærri sem nemur 95 milljónum kr. vegna hærri verðbóta á samningsskuldbindingar. Íslenskuverum fjölgað Fulltrúar meirihlutans lögðu fram ýmsar tillögur í drögum til breyt- inga á fjárhagsáætlun næsta árs á fundi borgarráðs en þar er meðal annars lagt til að fjárheimildir íþrótta- og tómstundasviðs verði hækkaðar um 8.5 milljónir kr. vegna nýrra laga sem skylda sveitarfélög til að bjóða fötluðum börnum og ungmennum upp á frístundaþjón- ustu. Fjárheimildir skóla- og frí- stundasviðs hækka um 29,4 milljónir vegna kennslu barna með annað móðurmál en íslensku verði tillagan samþykkt en koma á upp tveimur ís- lenskuverum til viðbótar við tvö ís- lenskuver sem starfrækt eru í borg- inni. Einnig er lagt til að menningar- og ferðamálasviði verði heimilt að ráðstafa allt að 116 milljóna kr. við- bótarframlagi til Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss á næsta ári. Nýta á framlagið til að mæta erfiðri fjár- hagsstöðu sökum lokunar og ann- arra aðgerða í rekstri vegna kórónu- veirufaraldursins. Er gerður fyrirvari um að sam- bærilegt framlag komi frá ríkinu sem fer með 54% eignarhlut í Hörpu á móti 46% eignarhlut Reykjavíkur- borgar. Í fjárhagsáætlun Hörpu er gert ráð fyrir að EBITDA verði nei- kvæð um 252 milljónir á næsta ári. Í tillögu borgarstjóra um breyt- ingu á fjárhagsáætlun yfirstandandi árs sem einnig var lögð fyrir fund borgarráðs er lagt til að fjárheim- ildir skóla- og frístundasviðs hækki um 171 milljón kr. vegna fjölgunar barna í einkareknum grunnskólum. Við gerð fjárhagsáætlunarinnar var á sínum tíma gert ráð fyrir að 674 börn myndu stunda nám við sjálf- stætt starfandi grunnskóla í borg- inni en raunin er sú að þeim hefur fjölgað mun meira og eru orðin 737 um þessar mundir. Hallinn 548 milljónum króna minni Morgunblaðið/Hari Borgarstjórn Fjárhagsáætlun borgarinnar verður að öllum líkindum til umræðu á næsta fundi borgarstjórnar. - Fjárhagsáætlun borgarinnar endurmetin út frá nýrri þjóðhagsspá - Lagt til 116 milljóna kr. viðbót- arframlag til Hörpu - 171 milljónar kr. hækkun vegna fjölgunar barna í einkareknum grunnskólum Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ís- lenska ríkið af öllum kröfum manns sem stefndi því til greiðslu skaðabóta vegna liðskiptaaðgerðar. Málskostnað- ur var felldur niður. Stefnandinn gekkst undir liðskipta- aðgerð á mjöðm hjá bæklunarlækni í maí 2020. Aðgerðin var gerð hjá einka- fyrirtæki og borgaði hann 1.200.000 krónur fyrir. Hann krafðist skaðabóta að sömu upphæð auk dráttarvaxta og málskostnaðar. Bæklunarlæknir hafði látið mynda hægri mjaðmarlið mannsins í mars 2020 og reyndist hann vera í slæmu ásigkomulagi. Læknirinn taldi þörf á forgangsaðgerð og sendi beiðni um hana til Landspítalans. Stefnandinn fékk þær upplýsingar að það væri bið- listi en hugsanlega gæti aðgerðin farið fram í ágúst. Læknirinn sem gerði aðgerðina á einkareknu skurðstofunni sótti um greiðsluþátttöku til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) þar eð ekki var mögulegt að leita lækninga erlendis vegna far- aldursins. SÍ höfnuðu beiðninni vegna þess að ekki hefði verið gerður samn- ingur við sérgreinalækna um greiðslu- þátttöku í slíkri aðgerð. Úrskurðar- nefnd velferðarmála staðfesti synjun SÍ. Stefnandinn taldi mismunun felast í afstöðu SÍ og sagði að sjúklingum væri mismunað eftir því hvaða sjúkdóm þeir hefðu og eins eftir efnahag þeirra. Rík- ið mótmælti öllum málsástæðum stefnda og taldi þær að hluta til svo illa reifaðar að erfitt væri að halda uppi vörnum í málinu. gudni@mbl.is Vildi að ríkið borgaði fyrir mjaðmaskipti á einkastofu - Héraðsdómur sýknaði ríkið af öllum kröfum sækjandans Morgunblaðið/Ásdís Skurðaðgerð Sækjandinn fór í að- gerð á einkastofu. Mynd úr safni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.