Morgunblaðið - 04.12.2021, Blaðsíða 43
Heimildarmynd Peters
Jacksons um Bítlana,
Get Back, skiptist í þrjá
ægilanga þætti en það
stoppar ekki aðdá-
endur um allan heim í
áhorfinu. Hér verður
rýnt í þessa merkilegu
kvikmyndagerð.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Þættir Peters Jacksons byggj-
ast á efni sem var tekið upp
árið 1969 undir leikstjórn
Michaels Lindsay-Hogg. Það var svo
sett í 80 mínútna kvikmynd sem kom
út árið 1970 undir heitinu Let it Be,
líkt og platan. Fylgst var með
Bítlunum þar sem þeir tóku upp efni
í kvikmyndaverinu Twickenham og í
eigin hljóðveri í höfuðstöðvum Apple
í Savile Row. Yfir 60 tímar af efni
rötuðu inn á spólur enda lagt upp
með „fluga á vegg“-nálgun og fullt af
upptökuvélum rúllandi. Þættir Jack-
sons, tæplega átta tímar að lengd,
voru svo frumsýndir um síðustu
helgi og umræða um þessa dáðustu
rokksveit allra tíma búin að vera
mikil síðan.
Og ekki að undra. Ég er mikill
aðdáandi sveitarinnar (segi stundum
í kerskni að öll önnur tónlist sé
neðanmálsgrein samanborið við
afrek hennar) og þættirnir því mikil
veisla fyrir mann sem hefur eytt
endalausum tíma í að hlusta á, spá og
spekúlera í þessu fyrirbæri.
Myndin er frábærlega römmuð
inn, með viðeigandi skýringartextum
eftir því sem fléttunni vindur fram.
Já, ég segi flétta því að fyrsti þátt-
urinn er jafn spennandi og kalda-
stríðsnjósnahasar! En það er lengdin
sem gerir myndina, það er lausnin,
það er snilldin. Á köflum finnst
Úr innsta hring
Höfuðpaurar „Römm er sú
taug“. John Lennon og Paul
McCartney í heimildarmynd
Peters Jacksons.
manni eins og Bítlarnir séu hreinlega
að hanga með manni í stofunni, fitl-
andi við gítara, spjallandi um
ómerkilega hluti og hellandi upp á te.
Þessi nálgun Jacksons gerir það að
verkum að rörsýnin dettur út, þú
færð ekki ákveðið sjónarhorn vegna
knapprar tímalengdar heldur færð
þú að horfa yfir allt sviðið, sjá allt, og
marinera þig í stemningu og sam-
skiptum manna á milli. Þetta er eins
og myndir Tarkovsky eða Béla Tarr,
þar sem hlutir fá að tikka áfram í
rauntíma lengi lengi, margar mín-
útur þar sem fólk fylgist með beljum
á vappi t.d. Það sem ég sá í mynd
Jacksons er búið að storka ýmsu sem
ég hélt um samband fjórmenning-
anna, einfaldlega af því að ég gat
fylgst með þeim „á vappi“.
McCartney er svo gott sem
stjórnlaus í upphafi í stjórnsemi
sinni. Hann er að reyna að keyra mál
áfram, fá félaga sína með og sýnir öll
þessi sígildu einkenni skelkaðs með-
virkils. Hann er blíður, hann sleikir
upp, hann skammar og er stífur – allt
til að koma sínu í gegn. Ringo er hinn
rólegasti, hér og alla myndina, og
mér er nú orðið það ljóst að hann var
mikilvægasti meðlimurinn. Sá eini
sem öllum lynti við þar sem hann sit-
ur þarna við trommusettið eins og
zen-bangsi. Lennon er bæði afskipta-
laus og værukær, nánast eins og
honum sé sama (og jafnvel eins og
hann viti að þetta sé hvort sem er bú-
ið). Harrison verður harkalega fyrir
barðinu á „stóra bróður“ sínum
McCartney sem endar með því að
hann rýkur á dyr (eins vel og hinn
stóíski Harrison getur rokið á dyr).
Harrison fellst síðan á að ganga
aftur í sveitina nokkrum dögum síðar
eftir tvo sáttafundi og við taka
merkileg myndskeið. McCartney er
passasamur, Ringo eins, Harrison
glaðari og Lennon kominn í fítons-
stuð. Og maður sér að það eru tvö en
ansi ólík sjarmatröll í sveitinni. Hinn
vinnusami McCartney á auðvelt með
að draga fólk inn í sporbauginn sinn
og tónlistin bókstaflega flæðir úr
honum. Lennon er mislyndari, með
hættulegri sjarma, og virðist geta
fyllt upp í herbergið ef honum sýnist
svo. En nú sjáum við dálítið sem er
ekki í neinni sögubók. Bítlarnir eru í
stuði, þeim líður vel og lögin eru að
koma. Lennon er hjálpsamur, skiln-
ingsríkur og leggur sig fram. Allir
leggja sig fram; hlusta, pæla og
spjalla. Peter Jackson sagði að þessa
hlið á Lennon hefði hann aldrei séð
og vissi ekki yfirhöfuð að hann hefði
átt þetta í sér á þessum tíma.
Allt í einu er það ljóst að sagan
gefur okkur aldrei nema sjónarhorn,
vinkla á það sem raunverulega á sér
stað. Með þessari lengdarbrellu sinni
er Jackson búinn að kollvarpa viss-
um hluta Bítlabókmenntanna og ekki
amalegur árangur það.
Ég gæti skrifað endalaust um
þessar væringar þarna; gleðina, ást-
ina og samheldnina og líka pirring-
inn og brestina. En nú er plássið búið
(fýlukall).
Gárungar eru farnir að tala um
að mögulega komi út aukaefni þar
sem myndirnar verða enn lengri. Já
takk, segir þessi pistilhöfundur! Eða
enn betra, gefið okkur bara alla
þessa 60 tíma sem til eru. Ég fæ
aldrei nóg af þessum meisturum og
er síst einn um það.
»
Ringo er hinn ró-
legasti, hér og alla
myndina, og mér er nú
orðið það ljóst að hann
var mikilvægasti með-
limurinn. Sá eini sem
öllum lynti við þar sem
hann situr þarna við
trommusettið eins og
zen-bangsi.
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
CHAN MADDEN NANJIANI McHUGH HENRY RIDLOFF
BARRY
KEOGHAN
DON
LEE
WITH KIT
HARINGTON
WITH SALMA
HAYEK
AND ANGELINA
JOLIE
O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T
94%
Frábær ný Fjölskyldumynd frá Disney
sýnd með Íslensku og Ensku tali
Fylgjur er heiti samsýningar
þriggja íslenskra listamana, sem
allir búa erlendis, sem verður opn-
uð í Kling & Bang í Marshall-húsinu
kl. 14 í dag, laugardag.
Halla Einarsdóttir (f. 1991) býr
og starfar í Rotterdam, Hanna
Kristín Birgisdóttir (f. 1989) í Berg-
en og Smári Rúnar Róbertsson (f.
1992) í Amsterdam. Öll hafa þau
lagt stund á nám í þeim borgum
sem þau eru búsett í og hafa tekið
þátt í fjölbreytilegum myndlistar-
uppákomum. Kl. 18 í dag mun einn
sýnendanna, Halla Einarsdóttir,
flytja gjörning.
Morgunblaðið/Einar Falur
Marshall-húsið Halla Einarsdóttir, Hanna
Kristín Birgisdóttir og Smári Rúnar Ró-
bertsson sýna verk sín í Kling & Bang.
Fylgjur á sýningu
í Kling & Bang
Örn Bárður Jóns-
son, fyrrverandi
sóknarprestur,
hefur opnað sína
fyrstu málverka-
sýningu á Ís-
landi, í Galleríi
16 á Vitastíg 16.
Formleg opnun
er í dag, laugar-
dag, kl. 14.
Stendur sýningin
til 8. desember og er opið alla daga
kl. 13 til 17, nema sunnudag.
Örn hefur fengist við að mála frá
unglingsaldri en þó með áralöngum
hléum vegna anna í starfi. Hann
hefur áður málað með olíu og akríl
en á seinni árum einkum glímt við
vatnsliti. Fyrsta opinbera sýning
hans var sett upp í Noregi árið
2019. Örn hefur tekið þátt í nokkr-
um myndlistarnámskeiðum, hér á
landi og erlendis.
Örn Bárður sýnir
myndlistarverk
Hluti eins verka
Arnar Bárðar.