Morgunblaðið - 04.12.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 04.12.2021, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf J ahérna! sagði mamma og sló sér á lær þegar eitthvað varð til þess að vekja með henni undrun. Með sama hætti brást ég við þegar ég heyrði í fréttum að enn og aftur yrði þjóð- in að draga sig í hlé, slá af til að vernda þau sem viðkvæmust eru fyrir veirunni. Ætlar þetta engan enda að taka? Allt skipulag sem sneri að aðventu og jólum í kirkj- unni var í einni svipan komið á klaka. Hvað yrði nú um jólaskap- ið? Hvað yrði nú um allar hefð- irnar? Við sem störfum í kirkjunni bú- um nú orðið að reynslu. Allt kirkjustarf síðastliðna mánuði hef- ur tekið mið af ástandinu í sam- félaginu og við leitum nýrra leiða. Tæknin kemur til bjargar og það er gaman að segja frá því að á að- fangadag fyrir ári horfðu rúmlega 500 manns á aftansöng í streymi í Breiðabólstaðarprestakalli, fjöldi sem hefði aldrei komist fyrir í kirkjunni þó svo bekkurinn sé allt- af þétt setinn um stórhátíðarnar. Við búum að reynslunni og munum bregðast við ef svo fer að við verðum að halda okkur til hlés. Auðvitað kemur streymi aldrei í staðinn fyrir það að búa sig upp og koma gangandi til kirkjunnar sinnar í skammdeginu, njóta ljósanna, hitta góða granna, takast í hendur og segja: Gleði- leg jól! Þar sem ég sat á kirkjubekk í Hlíðar- endakirkju og hug- leiddi ástandið þá varð mér litið á altaristöfluna. Altaris- taflan er eftirmynd eftir töflu Carls Blochs í kirkjunni í Holbæk á Sjálandi og sýnir Krist upprisinn blessa lítið barn. Það virðist vera drengur. Þeir horfa báðir í augu þess sem virðir töfluna fyrir sér og sterkur svipur er með barninu og Jesú. Er þetta barn og Jesús sem fulltíða maður eina og sama mann- eskjan? Kristur er klæddur í hvítan kyrtil, lit upprisunnar og gleðinn- ar. Barnið er klætt í bláan serk, lit himinsins. Það rétt grillir í nær- klæðin við öxl barnsins, þau eru rauð, það er litur fórnarinnar. Barnið heldur á pálmagrein sem minnir á innreiðina í Jerúsalem og það sem koma skal, þ.e. þjáning og pína, niðurlæging og krossdauði. Kristur heldur um höfuð barns- ins. Hann er dýrðlegur orðinn, hann er upprisinn og það er eins og hann segi: Hafðu engar áhyggj- ur litla barn. Heimurinn er eins og hann er og þú munt þurfa að ganga í gegnum þjáninguna. En það er ekkert að óttast því ég er hjá þér. Lífið lifir. Á hugann leita ljóðlínur eftir Halldór Laxness: Hjá undri því að líta lítinn fót í litlum skóm og vita að heimsins grjót, svo hart og sárt er honum fjarri enn og heimsins ráð sem brugga vondir menn. Þegar við tökum á móti litlu barni inn í þennan heim þá vitum við fyrir víst að þessi litli ein- staklingur mun þurfa að ganga í gegnum sína ósigra og þjáningu. Það eru fylgifiskar lífsins, rétt eins og sigrarnir og gleðin. Á þeirri við- kvæmu stundu er barnið fæðist þá viljum við fá að njóta kyrrðar og næðis. Þegar móðirin hefur gengið í gegnum hríðarnar og foreldrarnir hafa fengið barnið í hendurnar þá verður skarkali heimsins svo víðs fjarri. Ástin ein þegar horft er á lítið barn. Ástin ein yfir undrinu litla. Þá opnast skilningarvitin gjarnan fyrir því hver Guð er. Guð er lítið barn. Svo agnarsmátt og varnarlaust en engu að síður al- máttugt vegna þess að þetta barn kallar fram sterk- ar tilfinningar. Verndar- tilfinningu, sterka þörf til að standa sig, gera enn bet- ur, allar heimsins óskir til handa þessu litla barni, að það fái að búa við frið og kærleika og öryggi. Þessi sterka hvöt og þörf til að umvefja og vernda barnið fyrir öllu illu, það er guð. Guð býr ekki í jólakúlunni. Flest börn eru þeirrar náttúru að vilja upplifa heiminn í ró og næði. Þeim er gefin eðlislæg for- vitni og fordómaleysi svo þau í lífs- gleðinni læri á lífið. Skynfærin nota þau til að vega og meta. Þau hafa þörf fyrir að fá að stíga með berum fæti í grasið og moldina, leggja lófann á nýfallinn snjóinn, klípa í hann og bragða á honum, koma við feldinn á kisu og horfa á hrútana takast á úti á túni. Þetta brjálæði sem á manneskjuna renn- ur í nóvember og desember, allt það sem á að koma okkur í réttan gír, jólaskapið, á ekkert skylt við grunnþarfir barnsins. Það þarfnast þess einfaldlega að einhver sjái það, að einhver láti sér annt um það, að einhver verndi það. Þessi sömu stef má finna í allri umræðu um þolendur í ofbeldismálum. Að einhver heyri í mér þegar ég er tilbúin/n til þess að tala um það sem ég hef reynt. Að einhver láti sér annt um mig og hlúi að mér eftir erfiða reynslu. Að einhver sé tilbúinn að taka upp hanskann fyr- ir mig og sjá til þess að andstyggð fái ekki þrifist og ljótir hlutir end- urtaki sig ekki en verði færðir til betri vegar. Er það svo flókið? Þegar ég var stelpa þá söng ég einsöng á jóla- skemmtun í skól- anum mínum. Ég söng Nóttin var sú ágæt ein. Þegar ég varð fullorðin þá eignaðist ég uppá- haldsvers í þessum sama sálmi – vers sem sjaldan, ef þá nokkurn tímann, er sungið. Sálmurinn er gamalt kvæði eftir Einar Sig- urðsson í Eydölum og með viðlagi eru versin 29. 7 þeirra hafa ratað í sálmabókina. Það fallegasta að mínu mati ætla ég að færa hér fram sem hugleiðingu þennan 2. sunnudag í aðventu. Hvernig vilt þú taka á móti barninu? Á það stað hjá þér? Er svarið e.t.v. að finna í þessu versi? Þér gjöri eg ei rúm með grjót né tré, gjarnan læt eg hitt í té, vil eg mitt hjartað vaggan sé, vertu nú hér minn kæri. Með vísnasöng eg vögguna þína hræri. Hvað hrærist um í þínu hjarta? Áttu þar stað fyrir lítið barn? Barnið sem býr með sjálfri/sjálfum þér? Hvað viltu segja við þetta barn? Guð blessi þig og gefi þér gleði og frið í hjarta á þessari aðventu. Kirkjan til fólksins Altaristaflan í Hlíðarendakirkju sýn- ir Krist upprisinn blessa lítið barn. Hvað hrærist um í þínu hjarta? Hugvekja Sigríður Kristín Helgadóttir Höfundur er prestur á Breiða- bólstað í Fljótshlíð. Sigríður Kristín Helgadóttir Guð er lítið barn. Svo agnarsmátt og varnarlaust en engu að síður almáttugt vegna þess að þetta barn kallar fram sterkar tilfinningar. Það er alltaf betra þegar lagt er af stað með góðum hug. Þann góða hug má víða sjá í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Stefnt er að því að gera samfélagið okkar enn betra, þó óljósara sé hvernig ríkis- stjórnin ætli að fram- kvæma það sem stefnt er að. Á stjórnarsáttmálanum má sjá að stjórnin gerir sér grein fyrir að mörg þeirra verkefna eru í raun á könnu sveitarfélaga og verða ekki að veruleika nema í nánu sam- starfi við þau. Fjölbreytni samfélags eflir það og styrkir Við í Viðreisn erum sammála ríkisstjórninni þegar hún segir að þátttaka fólks af erlendum upp- runa auki fjölbreytileika, efli ís- lenskt samfélag og menningu og sé ein forsenda fyrir vexti efna- hagslífsins. Það þarf að tryggja réttindi þeirra sem hingað vilja flytja, til þjónustu, náms og vinnu og leyfa þeim að búa sér til betra líf og taka virkan þátt í samfélag- inu. Þannig verður allt samfélagið betra. Það á að móta stefnu í mál- efnum útlendinga sem miðar að því að fólk sem hér sest að hafi tækifæri til aðlögunar og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnu- markaði. Sveitarfélögin hagnast öll á því að huga að inngildingu allra íbúa sinna, sama hver uppruni þeirra er. Það að hámarka þátt- töku allra íbúa í sam- félaginu skiptir alls staðar máli. En til þess að sveitarfélögin geti stuðlað að virkri þátttöku og inngild- ingu í samfélagið verða þau að hafa burði til þess. Það þarf bæði fjármuni og faglega starfskrafta með mikinn stuðning til að sinna nauðsyn- legum verkefnum sem eiga að leysa úr læð- ingi það afl sem felst í íbúum af erlendum uppruna í þágu samfélagsins alls. Það á sérstaklega að styðja börn af erlendum uppruna Stjórnarsáttmálinn tiltekur sér- staklega að rík áhersla verði lögð á stuðning til aðlögunar við börn af erlendum uppruna og fjöl- skyldur þeirra. Þar verði sér- staklega horft til skóla- og frí- stundastarfs og aðgengi aukið að íslensku- og samfélagsfræðslu. Við vitum hversu mikilvægt það er fyrir börnin, ef þau eiga að fá sömu tækifæri og aðrir til mennt- unar, að fá stuðning í skólum. Þetta er mikilvæg stoð inngild- ingar í íslenskt samfélag. Þarna erum við alveg sammála í orði. En eftir á að koma í ljós hvort það eigi líka við á borði. Á bara að styðja helming barnanna? Reykjavíkurborg hefur þurft að höfða dómsmál gegn íslenska rík- inu, því ríkisvaldið ákvað án laga- stoðar að Reykjavík, eitt sveitarfé- laga, gæti ekki fengið greiðslur úr Jöfnunarsjóði vegna skólastarfs og kennslu barna af erlendum upp- runa. Ríkið hefur ennþá tækifæri til að semja við Reykjavíkurborg til að jafna stöðu barna af erlend- um uppruna um allt land. Þá sam- þykktu þessir ríkisstjórnarflokkar árið 2019 að breyta lögum um Jöfnunarsjóð til þess eins að Reykjavíkurborg geti ekki verið metin á sömu forsendum og önnur sveitarfélög. Á fyrra kjörtímabili þessarar ríkisstjórnar virtist það því vera sérstakt markmið hennar að tryggja börnum í þessu eina sveitarfélagi ekki sama stuðning og hún vildi tryggja börnum í öll- um öðrum sveitarfélögum. Helmingur allra innflytjenda á Íslandi býr í Reykjavík og tæplega helmingur allra barna á grunn- skólaaldri, frá 6-16 ára. Þegar stjórnarsáttmálinn tiltekur sér- staklega að styðja þurfi börn af erlendum uppruna í skólakerfinu, þá á þessi ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vonandi við að styðja þurfi öll börn af erlendum uppruna en ekki bara þann helm- ing barna sem býr utan Reykja- víkur. Eru loforð stjórnarsátt- málans fyrir öll börn? Eftir Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur » Stjórnarsáttmáli sem tiltekur að styðja þurfi börn af erlendum uppruna vísar vonandi til barna af erlendum uppruna í öllum sveitarfélögum landsins. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Höfundur er formaður borgarráðs og oddviti Viðreisnar. Það hefur lengið verið fiktað við efnahagsþróunina á landinu og síður verið að taka mið af staðreyndum, eins og hvernig veiðist eða viðrar. Fræg er enn stjórn- viskan þegar margs konar gengi var á krón- unni, ferðagengi, námsmannagengi o.s.frv. Svona kúnstir duga aldrei nema stuttan tíma og svo þarf þjóðin að taka skellinn. Nú þykir sniðugast til að halda dampinum að ríkið borgi fjórðung af verði dekkjaskipta og viðlíka hjá fólki og er það auðvitað hugulsamt. Eins ef skyldi leka um glugga í suð- vestanáttinni, þá hleypur hið opin- bera strax undir bagga. Spurningin er þá bara hvar þessi gæska á að enda og hvort eigi að leggja vaskinn alveg niður. Til hvaða tekna á ríkið þá að grípa? Eru ekki nú þegar þrep í gangi í vaskinum, líkt og í genginu forðum, og atvinnugreinar mis- skattlagðar? Þegar nú er komið tómahljóð í kassann þarf kannski að skoða málin upp á nýtt. Það er því ekki að undra að stjórn- armyndun hafi tekið tímann sinn, en Birgir önnum kafinn og stjórnar- andstaðan hljóð. Sunnlendingur Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Niðurgreidd uppsveifla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.