Morgunblaðið - 04.12.2021, Blaðsíða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021
Snjór Snjókoma hefur verið viðvarandi síðustu daga í Reykjavík. Misjafnt er hvort fólk kann að meta hana eða telur einungis til trafala en óumdeilt er að hún bætir jólabraginn.
Eggert
„Margt brennur
meira á íslenzkri þjóð
en endurskoðun
stjórnarskrárinnar,“
sagði Guðni Th. Jó-
hannesson, forseti Ís-
lands, í ávarpi sínu við
setningu Alþingis 23.
nóvember og ljóst að
þau orð voru ekki látin
falla að ástæðulausu.
Forsetinn sagðist engu
að síður vona að hægt
yrði á kjörtímabilinu að ráðast í
„skynsamlegar umbætur á stjórnar-
skrá Íslands, rétt eins og henni hef-
ur áður verið breytt í tímans
straumi“.
Viðbúið er að ummæli forsetans
séu veruleg vonbrigði fyrir þá sem
kallað hafa eftir því að stjórnar-
skránni verði skipt út fyrir aðra í
stað þess að gerðar verði nauðsyn-
legar umbætur á henni. Fátt ef
nokkuð bendir hins vegar til þess að
víðtækur stuðningur sé í raun við
það á meðal þjóðarinnar að umturna
grundvallarlöggjöf landsins. Fram-
ganga kjósenda í kosningum bendir
til að mynda ekki beinlínis til þess.
Hvatt til þess að
styðja nýja stjórnarskrá
Fyrir þingkosningarnar í sept-
ember stóð Stjórnarskrárfélagið
fyrir auglýsingaherferð, meðal ann-
ars á samfélagsmiðlum
og í dagblöðum, þar
sem fólk var hvatt til
þess að styðja ein-
göngu þau framboð
sem vildu skipta um
stjórnarskrá. Þetta átti
við um þrjá stjórn-
málaflokka; Pírata,
Samfylkinguna og
Sósíalistaflokkinn. Þá
lögðu einkum og sér í
lagi Píratar ríka
áherzlu á málið í kosn-
ingabaráttu sinni.
Formaður þing-
flokks Pírata, Halldóra Mogensen,
lýsti því enn fremur yfir fyrir kosn-
ingarnar að flokkur hennar myndi
aðeins mynda ríkisstjórn með fram-
boðum sem reiðubúin væru til þess
að innleiða nýja stjórnarskrá á kjör-
tímabilinu sem nú er hafið. Ljóst er
að með þeirri yfirlýsingu var enn
frekar áréttað að eina leiðin til þess
að mögulega yrði skipt um stjórnar-
skrá væri að styðja framboð hlynnt
því markmiði.
Færri atkvæði en
Sjálfstæðisflokkurinn einn
Frá því er þó skemmzt að segja að
bæði Píratar og Samfylkingin töp-
uðu fylgi á meðan Sósíalistaflokk-
urinn náði ekki fulltrúa á þing.
Flokkarnir þrír hlutu samanlagt
22,6% fylgi og 45.239 atkvæði og þar
með minna fylgi en Sjálfstæðisflokk-
urinn einn (24,4% og 48.708 at-
kvæði). Önnur framboð en flokk-
arnir þrír, sem fengu samanlagt yfir
70% atkvæða, styðja hins vegar um-
bætur á lýðveldisstjórnarskránni.
Við þetta bætist sögulega lítil
þátttaka kjósenda í kosningum sem
fjallað hafa sérstaklega um stjórnar-
skrármálið. Þannig sáu einungis
36,8% kjósenda ástæðu til þess að
mæta á kjörstað þegar kosið var til
stjórnlagaþings í nóvember 2010 og
aðeins 48,4% í ráðgefandi þjóðar-
atkvæði um tillögur stjórnlagaráðs
tveimur árum síðar. Þeir sem síðan
lýstu sig hlynnta tillögunum voru
einungis tæpur þriðjungur kjós-
enda.
Skoðanakannanir ekki
það sama og kosningar
Flest bendir þannig til þess að
hugmyndir um nýja stjórnarskrá
eigi í reynd einungis hljómgrunn hjá
minnihluta þjóðarinnar og séu enn
fremur fyrst og fremst áhugamál til-
tölulega afmarkaðs, en um leið há-
værs hóps í þjóðfélaginu. Grimmt
auglýst undirskriftasöfnun úr röðum
þeirra á síðasta ári styður það enn
frekar en á fjórum mánuðum söfn-
uðust færri undirskriftir en þeir sem
einungis kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
Helzt hefur verið vísað til niður-
staðna skoðanakannana því til
stuðnings að meirihluti sé fyrir því
að skipta um stjórnarskrá. Hins veg-
ar duga slíkar niðurstöður, sem eru
ávallt fyrst og fremst vísbendingar
um stöðu mála, vitanlega skammt
þegar þær samrýmast ekki raun-
verulegri framgöngu kjósenda.
Þannig dettur varla nokkrum í hug
að niðurstöður skoðanakannana eigi
að gilda fremur en raunveruleg úr-
slit kosninga.
Mikilvægi sáttar um
stjórnarskrárbreytingar
Til þessa hefur rík áherzla verið
lögð á mikilvægi breiðrar samstöðu
um stjórnarskrárbreytingar. Fyrst
og fremst vegna þeirrar einföldu
staðreyndar að um er að ræða
grundvallarlöggjöf landsmanna sem
sátt þarf að ríkja um en ekki síður
vegna þess að ekki er æskilegt að
stjórnarskránni sé breytt í sífellu,
fram og til baka, eftir því hverjir eru
við völd hverju sinni. Þetta hefur
Feneyjanefnd Evrópuráðsins meðal
annars áréttað.
Mikilvægi breiðrar sáttar er eðli
málsins samkvæmt enn ríkara þegar
ekki er einungis verið að tala fyrir
því að gerðar verði breytingar á
stjórnarskránni heldur að henni
verði beinlínis skipt út fyrir aðra.
Fyrir vikið er skiljanlegt að áhuga-
menn um það að tekin verði upp ný
stjórnarskrá hafi ítrekað reynt að
draga upp þá mynd að víðtækur
stuðningur sé við málið þrátt fyrir að
fátt bendi til þess að svo sé í raun.
Var aldrei falið að
semja nýja stjórnarskrá
Vert er að lokum að árétta þá
staðreynd að hvorki stjórnlagaþingi
né arftaka þess stjórnlagaráði var
nokkurn tímann falið það verkefni af
stjórnvöldum að semja nýja
stjórnarskrá heldur einungis að
koma með tillögur að breytingum á
gildandi stjórnarskrá lýðveldisins,
samanber þingsályktanir Alþingis
sem lágu þar til grundvallar. Með
samningu nýrrar stjórnarskrár fór
ráðið með öðrum orðum út fyrir
heimildir sínar.
Með áherzlu ríkisstjórnarinnar á
umbætur á stjórnarskránni í stað
þess að umturna henni er þannig
ljóst að ekki er aðeins verið að fara
rétta leið með tilliti til stjórnskip-
unar landsins og þeirra samþykkta
sem legið hafa til grundvallar allri
vinnu við stjórnarskrárbreytingar,
að meðtöldum störfum stjórnlaga-
ráðs, heldur þá leið sem líklegust er
til þess að skapa þá víðtæku sátt
sem ávallt er mikilvæg forsenda
slíkra breytinga.
Eftir Hjört J.
Guðmundsson » Flest bendir til þess
að hugmyndir um
nýja stjórnarskrá séu
fyrst og fremst áhuga-
mál tiltölulega afmark-
aðs, en um leið háværs
hóps í þjóðfélaginu.
Hjörtur J.
Guðmundsson
Höfundur er sagnfræðingur og
alþjóðastjórnmálafræðingur.
„Skynsamlegar umbætur á stjórnarskrá Íslands“
Algjört jarð-
sprengjusvæði. En
hugleiðing dagsins er
þessi: Er skynsamlegt
að láta bólusetja sig eða
ekki? Ég er ekki í nein-
um vafa og var í þriðju
bólusetningunni ný-
lega. Og er ánægður
með að vera kominn
með enn betri vörn við
þessum andstyggðar-
vírus sem engu eirir.
Í samfélaginu eru
mjög skiptar skoðanir á
málinu. Eðlilega. Það
eru þó talsvert fleiri á
bólusetningarlínunni en
hinir sem vilja ekki
bólusetningu. Minnir
að rúmlega 80% þeirra
sem hefur verið boðin
bólusetning hafi þegið
hana. Og nær allir
heimilismenn og starfs-
menn hjúkrunarheim-
ilanna þriggja sem
Eftir Gísla
Pál Pálsson » Það er ef til vill kald-
hæðið að segja
þetta, en læt vaða: Ef
enginn hefði verið bólu-
settur á hjúkrunarheim-
ilum væru engir biðlist-
ar eftir rýmum þar.
Gísli Páll
Pálsson
Höfundur er forstjóri
Grundarheimilanna.
gisli@grund.is
Bólusetning eður ei?
heyra undir Grundarheimilin,
Grundar, Áss og Markar, hafa þegið
bólusetningu. Mismarga skammta
eftir því sem tímasetningar hafa
leyft.
Margt er ritað og rætt um gagn-
semi bólusetninga við Covid 19. Sum-
ir myndu segja skaðsemi bólusetn-
inga. Ég er ekki í neinum vafa. Miðað
við veikindi þeirra heimilis- og starfs-
manna Grundarheimilanna sem hafa
smitast af Covid-19, þá er það engum
vafa undirorpið í mínum huga að
bólusetning skiptir öllu máli. Því
fleiri bólusetningar því betra. Veik-
indi framangreindra eru því minni
eftir því sem bólusetningarnar eru
fleiri. Óbólusettir veikjast mest og
flestir talsvert mikið. Þeir sem hafa
fengið þrjá skammta af bóluefni
veikjast flestir lítið sem ekkert.
Ég hugsa til þess með hryllingi ef
þeir sem eru alfarið á móti bólusetn-
ingum hefðu ráðið för hér á landi í
þessum vonda faraldri. Það er ef til
vill kaldhæðið að segja þetta, en læt
vaða: Ef enginn hefði verið bólusett-
ur á hjúkrunarheimilum væru engir
biðlistar eftir rýmum þar.