Morgunblaðið - 04.12.2021, Side 25

Morgunblaðið - 04.12.2021, Side 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021 Snjór Snjókoma hefur verið viðvarandi síðustu daga í Reykjavík. Misjafnt er hvort fólk kann að meta hana eða telur einungis til trafala en óumdeilt er að hún bætir jólabraginn. Eggert „Margt brennur meira á íslenzkri þjóð en endurskoðun stjórnarskrárinnar,“ sagði Guðni Th. Jó- hannesson, forseti Ís- lands, í ávarpi sínu við setningu Alþingis 23. nóvember og ljóst að þau orð voru ekki látin falla að ástæðulausu. Forsetinn sagðist engu að síður vona að hægt yrði á kjörtímabilinu að ráðast í „skynsamlegar umbætur á stjórnar- skrá Íslands, rétt eins og henni hef- ur áður verið breytt í tímans straumi“. Viðbúið er að ummæli forsetans séu veruleg vonbrigði fyrir þá sem kallað hafa eftir því að stjórnar- skránni verði skipt út fyrir aðra í stað þess að gerðar verði nauðsyn- legar umbætur á henni. Fátt ef nokkuð bendir hins vegar til þess að víðtækur stuðningur sé í raun við það á meðal þjóðarinnar að umturna grundvallarlöggjöf landsins. Fram- ganga kjósenda í kosningum bendir til að mynda ekki beinlínis til þess. Hvatt til þess að styðja nýja stjórnarskrá Fyrir þingkosningarnar í sept- ember stóð Stjórnarskrárfélagið fyrir auglýsingaherferð, meðal ann- ars á samfélagsmiðlum og í dagblöðum, þar sem fólk var hvatt til þess að styðja ein- göngu þau framboð sem vildu skipta um stjórnarskrá. Þetta átti við um þrjá stjórn- málaflokka; Pírata, Samfylkinguna og Sósíalistaflokkinn. Þá lögðu einkum og sér í lagi Píratar ríka áherzlu á málið í kosn- ingabaráttu sinni. Formaður þing- flokks Pírata, Halldóra Mogensen, lýsti því enn fremur yfir fyrir kosn- ingarnar að flokkur hennar myndi aðeins mynda ríkisstjórn með fram- boðum sem reiðubúin væru til þess að innleiða nýja stjórnarskrá á kjör- tímabilinu sem nú er hafið. Ljóst er að með þeirri yfirlýsingu var enn frekar áréttað að eina leiðin til þess að mögulega yrði skipt um stjórnar- skrá væri að styðja framboð hlynnt því markmiði. Færri atkvæði en Sjálfstæðisflokkurinn einn Frá því er þó skemmzt að segja að bæði Píratar og Samfylkingin töp- uðu fylgi á meðan Sósíalistaflokk- urinn náði ekki fulltrúa á þing. Flokkarnir þrír hlutu samanlagt 22,6% fylgi og 45.239 atkvæði og þar með minna fylgi en Sjálfstæðisflokk- urinn einn (24,4% og 48.708 at- kvæði). Önnur framboð en flokk- arnir þrír, sem fengu samanlagt yfir 70% atkvæða, styðja hins vegar um- bætur á lýðveldisstjórnarskránni. Við þetta bætist sögulega lítil þátttaka kjósenda í kosningum sem fjallað hafa sérstaklega um stjórnar- skrármálið. Þannig sáu einungis 36,8% kjósenda ástæðu til þess að mæta á kjörstað þegar kosið var til stjórnlagaþings í nóvember 2010 og aðeins 48,4% í ráðgefandi þjóðar- atkvæði um tillögur stjórnlagaráðs tveimur árum síðar. Þeir sem síðan lýstu sig hlynnta tillögunum voru einungis tæpur þriðjungur kjós- enda. Skoðanakannanir ekki það sama og kosningar Flest bendir þannig til þess að hugmyndir um nýja stjórnarskrá eigi í reynd einungis hljómgrunn hjá minnihluta þjóðarinnar og séu enn fremur fyrst og fremst áhugamál til- tölulega afmarkaðs, en um leið há- værs hóps í þjóðfélaginu. Grimmt auglýst undirskriftasöfnun úr röðum þeirra á síðasta ári styður það enn frekar en á fjórum mánuðum söfn- uðust færri undirskriftir en þeir sem einungis kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Helzt hefur verið vísað til niður- staðna skoðanakannana því til stuðnings að meirihluti sé fyrir því að skipta um stjórnarskrá. Hins veg- ar duga slíkar niðurstöður, sem eru ávallt fyrst og fremst vísbendingar um stöðu mála, vitanlega skammt þegar þær samrýmast ekki raun- verulegri framgöngu kjósenda. Þannig dettur varla nokkrum í hug að niðurstöður skoðanakannana eigi að gilda fremur en raunveruleg úr- slit kosninga. Mikilvægi sáttar um stjórnarskrárbreytingar Til þessa hefur rík áherzla verið lögð á mikilvægi breiðrar samstöðu um stjórnarskrárbreytingar. Fyrst og fremst vegna þeirrar einföldu staðreyndar að um er að ræða grundvallarlöggjöf landsmanna sem sátt þarf að ríkja um en ekki síður vegna þess að ekki er æskilegt að stjórnarskránni sé breytt í sífellu, fram og til baka, eftir því hverjir eru við völd hverju sinni. Þetta hefur Feneyjanefnd Evrópuráðsins meðal annars áréttað. Mikilvægi breiðrar sáttar er eðli málsins samkvæmt enn ríkara þegar ekki er einungis verið að tala fyrir því að gerðar verði breytingar á stjórnarskránni heldur að henni verði beinlínis skipt út fyrir aðra. Fyrir vikið er skiljanlegt að áhuga- menn um það að tekin verði upp ný stjórnarskrá hafi ítrekað reynt að draga upp þá mynd að víðtækur stuðningur sé við málið þrátt fyrir að fátt bendi til þess að svo sé í raun. Var aldrei falið að semja nýja stjórnarskrá Vert er að lokum að árétta þá staðreynd að hvorki stjórnlagaþingi né arftaka þess stjórnlagaráði var nokkurn tímann falið það verkefni af stjórnvöldum að semja nýja stjórnarskrá heldur einungis að koma með tillögur að breytingum á gildandi stjórnarskrá lýðveldisins, samanber þingsályktanir Alþingis sem lágu þar til grundvallar. Með samningu nýrrar stjórnarskrár fór ráðið með öðrum orðum út fyrir heimildir sínar. Með áherzlu ríkisstjórnarinnar á umbætur á stjórnarskránni í stað þess að umturna henni er þannig ljóst að ekki er aðeins verið að fara rétta leið með tilliti til stjórnskip- unar landsins og þeirra samþykkta sem legið hafa til grundvallar allri vinnu við stjórnarskrárbreytingar, að meðtöldum störfum stjórnlaga- ráðs, heldur þá leið sem líklegust er til þess að skapa þá víðtæku sátt sem ávallt er mikilvæg forsenda slíkra breytinga. Eftir Hjört J. Guðmundsson » Flest bendir til þess að hugmyndir um nýja stjórnarskrá séu fyrst og fremst áhuga- mál tiltölulega afmark- aðs, en um leið háværs hóps í þjóðfélaginu. Hjörtur J. Guðmundsson Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur. „Skynsamlegar umbætur á stjórnarskrá Íslands“ Algjört jarð- sprengjusvæði. En hugleiðing dagsins er þessi: Er skynsamlegt að láta bólusetja sig eða ekki? Ég er ekki í nein- um vafa og var í þriðju bólusetningunni ný- lega. Og er ánægður með að vera kominn með enn betri vörn við þessum andstyggðar- vírus sem engu eirir. Í samfélaginu eru mjög skiptar skoðanir á málinu. Eðlilega. Það eru þó talsvert fleiri á bólusetningarlínunni en hinir sem vilja ekki bólusetningu. Minnir að rúmlega 80% þeirra sem hefur verið boðin bólusetning hafi þegið hana. Og nær allir heimilismenn og starfs- menn hjúkrunarheim- ilanna þriggja sem Eftir Gísla Pál Pálsson » Það er ef til vill kald- hæðið að segja þetta, en læt vaða: Ef enginn hefði verið bólu- settur á hjúkrunarheim- ilum væru engir biðlist- ar eftir rýmum þar. Gísli Páll Pálsson Höfundur er forstjóri Grundarheimilanna. gisli@grund.is Bólusetning eður ei? heyra undir Grundarheimilin, Grundar, Áss og Markar, hafa þegið bólusetningu. Mismarga skammta eftir því sem tímasetningar hafa leyft. Margt er ritað og rætt um gagn- semi bólusetninga við Covid 19. Sum- ir myndu segja skaðsemi bólusetn- inga. Ég er ekki í neinum vafa. Miðað við veikindi þeirra heimilis- og starfs- manna Grundarheimilanna sem hafa smitast af Covid-19, þá er það engum vafa undirorpið í mínum huga að bólusetning skiptir öllu máli. Því fleiri bólusetningar því betra. Veik- indi framangreindra eru því minni eftir því sem bólusetningarnar eru fleiri. Óbólusettir veikjast mest og flestir talsvert mikið. Þeir sem hafa fengið þrjá skammta af bóluefni veikjast flestir lítið sem ekkert. Ég hugsa til þess með hryllingi ef þeir sem eru alfarið á móti bólusetn- ingum hefðu ráðið för hér á landi í þessum vonda faraldri. Það er ef til vill kaldhæðið að segja þetta, en læt vaða: Ef enginn hefði verið bólusett- ur á hjúkrunarheimilum væru engir biðlistar eftir rýmum þar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.