Morgunblaðið - 04.12.2021, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 04.12.2021, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021 VERÐ FRÁ 66.989 m.VSK JÓLA- TILBOÐ á Duke skrifborðsstólum Öldungadeild Bandaríkjaþings sam- þykkti í fyrrinótt frumvarp um fjár- mögnun alríkisins fram til 18. febr- úar næstkomandi, en óttast var að loka þyrfti alríkisstofnunum yfir jól- in ef samkomulag næðist ekki á milli demókrata og repúblikana í deild- inni. Greiddu 69 þingmenn atkvæði með frumvarpinu en 28 á móti, en það tryggir meðal annars að starfs- menn alríkisins geti fengið greidd laun fyrir jólin. Chuck Schumer, leiðtogi demókrata í deildinni, sagð- ist vera ánægður með að raddir skynseminnar hefðu fengið að ráða. Hópur repúblikana í deildinni hót- aði að halda frumvarpinu í gíslingu nema demókratar féllust á að hætta við fyrirhugaða bólusetningarskyldu á fyrirtæki með fleiri en hundrað starfsmenn. Náðist á endanum málamiðlun, þar sem þeir fengu að greiða atkvæði um tillögu sína, sem var felld, og fengu þeir þannig mót- bárur sínar gegn bólusetningar- skyldu skjalfestar með atkvæði sínu. Mitch McConnell, leiðtogi repú- blikana í öldungadeildinni, lagðist gegn tilraunum til að stöðva frum- varpið, en leiðtogar repúblikana ótt- uðust að þeim yrði kennt um ef al- ríkið gæti ekki greitt starfsmönnum sínum laun eða haldið úti starfsemi yfir jólahátíðina. Það er hins vegar skammt stórra högga á milli í öldungadeildinni, því að líklegt er að hækka þurfi skulda- þak Bandaríkjanna aftur um miðjan mánuðinn. McConnell hefur hins vegar heitið því að repúblikanar muni ekki aðstoða við það. Munu demókratar því líklega að grípa til nokkurs konar fjáraukalaga til að hækka þakið, en ferlið við slíka laga- setningu þykir nokkuð strembið. AFP Þinghúsið Það er sjaldan lognmolla á Bandaríkjaþingi í Washington. Framlengdu gálgafrestinn - Fjármögnun tryggð fram í febrúar Verðbólga í Tyrklandi er orð- in yfir 21% á árs- grundvelli sam- kvæmt nýbirtum tölum. Í kjölfarið lækkaði mats- fyrirtækið Fitch lánshæfis- einkunn ríkisins og er hún nú orð- in neikvæð. Ekki bætir úr skák að gengi lírunnar, gjaldmiðils Tyrklands, féll um 30% gagnvart dollar í síðasta mánuði og hefur fallið um 45% frá áramótum. Seðlabanki landsins lækkaði stýri- vexti í þriðja sinn í röð að kröfu Er- dogans forseta sem segir að þannig sé hægt að örva atvinnulífið, auka framleiðslu og örva útflutning. Hann heldur því fram að háir vextir orsaki verðbólguna, en það fer gegn viðteknum skoðunum hag- fræðinga. Búist er við nýrri vaxta- lækkun 16. desember. TYRKLAND Mikil verðbólga og óstöðugleiki Erdogan Tyrklandsforseti Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO varaði við því í gær að ríki heims ættu að búa sig undir mikla fjölgun tilfella Covid-19 á næstunni vegna Ómíkron-afbrigðisins, sem nú hefur greinst í 38 löndum í öllum heims- álfum. Enn hefur þó ekki verið stað- fest neitt dauðsfall af völdum af- brigðisins, en Christian Lindmeier, talsmaður WHO, sagði í gær að gagnaöflun um afbrigðið og feril þess síðustu vikurnar væri enn í gangi, og því gæti það breyst. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ástralíu tilkynntu í gær um fyrstu innanlandssmitin sem rekja megi til afbrigðisins, en frumniðurstöður rannsókna í Suður-Afríku, þar sem afbrigðið kom fyrst fram, benda til þess að fólk sem hafi áður smitast sé þrisvar sinnum líklegra til þess að smitast á ný af Ómíkron-afbrigðinu en fyrri afbrigðum. Nú er um vika liðin frá því að Ómíkron-afbrigðið var sett á sér- stakan válista hjá WHO. Segja sér- fræðingar stofnunarinnar að enn gætu liðið nokkrar vikur þar til hægt verði að skera úr um hvort afbrigðið sé meira smitandi en Delta-afbrigðið og þá hvort það valdi verri einkenn- um en fyrri afbrigði. Michael Ryan, framkvæmdastjóri neyðardeildar WHO, sagði í gær að stofnunin myndi fá þessi svör fljót- lega. „Við þurfum að treysta vísind- um, vera þolinmóð og ekki óttasleg- in,“ sagði Ryan. Fleiri börn á sjúkrahús Í Suður-Afríku hefur tilfellum kórónuveirunnar fjölgað ört í þessari viku, og greindust nú um fjórfalt fleiri með Covid-19 í landinu en í síð- ustu viku. Þá hafa fleiri börn yngri en tólf ára gömul þurft að leggjast inn á sjúkrahús í landinu en í fyrri bylgjum. Enn er þó of snemmt að fullyrða hvort afbrigðið eigi auðveldara með að smitast milli barna en fyrri af- brigði, þar sem bólusetning fyrir börn yngri en tólf ára er ekki hafin í landinu. Þá flækir það mat á áhrifum afbrigðisins í Suður-Afríku að ein- ungis um fjórðungur íbúa þar hefur verið bólusettur gegn veirunni. Í nágrannaríkinu Simbabve hefur tilfellum einnig fjölgað mjög mikið, þrátt fyrir að hert hafi verið mjög á sóttvarnaaðgerðum vegna Ómíkron-afbrigðisins. Þar greindust 1.042 ný tilfelli í gær, en fyrir tveim- ur vikum voru dagleg tilfelli einungis um 20 talsins. Sautján smitaðir í jólaboði Talið er að minnst sautján manns hafi smitast af Ómíkron-afbrigðinu í fjölmennu jólaboði sem haldið var í Ósló, höfuðborg Noregs, á föstudag- inn í síðustu viku. Er smitrakning enn í gangi, en rúmlega hundrað manns sóttu boðið. Voru allir bólu- settir, en einn gesta var nýkominn heim frá Suður-Afríku. Þá höfðu allir tekið heimapróf og voru því engar reglur brotnar í boðinu. Allir hinir smituðu hafa enn sem komið er einungis mild einkenni á borð við höfuðverk, hálsbólgu og hósta, en allir tilheyra aldurshópum sem taldir eru í minni hættu á að þróa með sér alvarleg einkenni. Hafa sóttvarnaaðgerðir verið hertar í Ósló vegna hópsmitsins. Afbrigðið komið til allra heimsálfa - Ómíkron-afbrigðið hefur nú fundist í 38 ríkjum - Enn ekkert dauðsfall staðfest af völdum þess - Fjöldi tilfella fjórfaldast milli vikna í Suður-Afríku - Grunur um stórt hópsmit í jólaboði í Ósló AFP Covid-19 Þessir Lundúnabúar biðu í gær eftir því að fá örvunarskammt. Úkraínumenn glíma við gífurlegan sorpurðunarvanda. Í landinu eru rúmlega sex þúsund löglegir urð- unarstaðir og eru þeir allir orðnir yfirfullir. Talið er að óleyfilegir urð- unarstaðir séu vel á fjórða tug þús- unda víðs vegar um landið. Landið er mjög vanþróað í allri sorphirðu, landsmenn virða ekki tilmæli um að flokka sorp; 10 milljónir tonna falla til árlega og aðeins 4% eru flokkuð. Þá er eingöngu ein sorpbrennsluvél starfrækt í öllu landinu, gömul vél frá þeim tíma er landið var hluti Sovétríkjanna. Sú vél ræður ekki einu sinni við að brenna öllu sorpi frá höfuðborginni, Kænugarði. Sér- fræðingar telja að kjarni vandans sé sá að stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki verja meiri fjármunum til að laga ástandið. Aðeins ein sorpbrennsluvél í allri Úkraínu Allt yfirfljót- andi í sorpi í landinu AFP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.