Morgunblaðið - 04.12.2021, Side 32

Morgunblaðið - 04.12.2021, Side 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021 Eftirfarandi grein er endurbirt því það vantaði hluta af texta. Beð- ist er velvirðingar á því. Hér sit ég í sameiningu með vatninu, himninum og fuglunum sem svífa allt í kring og hugsa um þig: mína elsku systur sem ég frá barnsaldri óskaði að vera nær í lífinu. Frá því að ég var lítil stúlka og hafði einhverjar hugmyndir um að það væru til eldri hálf- systur úti í veröldinni stóru, fór mig að dreyma um að kynnast þér, elsku Linda. Það kom svo til mín á ung- lingsaldri að við náðum að kynn- ast aðeins, ég þessi litla – og þú, stóra systir mín. Ég mun ávallt muna eftir æv- intýraferð minni til ykkar á Pat- reksfjörð, þar sem við lékum okkur saman eins og unglingar og þið mættuð mér svo vel á þeim aldri sem ég var á, þó að heil sautján ár væru á milli okk- ar. Þarna náðum við góðum systratengslum, sem síðar varð að dýrmætri minningu sem fylgir mér enn í dag. Tenging okkar fæddist í gegnum náttúruna og einlæg samtöl sem spegluðust í stór- fengleika sjávar og fjöru, fjalla og flögrandi fugla. Og er inn var stigið fléttaðist tengingin í gegnum plönturnar þínar sem þú elskaðir og matinn góða sem þú eldaðir handa mér. Þú varst með kúlu á magan- um –kúlu sem svo hvarf einn daginn – og ég skildi aldrei al- veg almennilega, en vissi að það var mikill missir, þó ég væri á þeim tíma komin aftur heim í borg. Tilhlökkun okkar allra breyttist í sorg og brostnar von- ir, sem erfitt var að koma orði á. Ég var bara 15 ára og óskaði þess heitast að kynnast þér bet- ur. Með lága sjálfsmynd og leit- andi að stöðugleika í lífinu dreymdi mig um að einn daginn gætum við búið nær hvor annari og leikið okkur meira saman. Það var svo gott að tengjast þér í gegnum töfra lífsins á þessum mótandi árum. Ég sá styrk þinn og hæfileika, fegurð þína og ljós skína skært í gegnum þig. Á sama tíma öðlaðist ég innsæi inn í heim hangandi sorgar, sem þú hafðir borið með þér frá blautu barnsbeini og mikið sem ég óskaði þess að geta verið framlag í þínu lífi, því innst inni vissi ég að við vorum „alvörusystur“ og langt í frá ósvipaðar. Systur sem aldrei náðu að kynnast almennilega, en urðu Hellen Linda Drake ✝ Hellen Linda Drake fæddist 29. júní 1960. Hún lést 19. nóvember 2021. Hellen Linda var jarðsungin 2. des- ember 2021. þess í stað fyrir stöðugri truflun af skuggum fortíðar, sem ég forðaðist að tengja sem mína sögu. Mig langaði svo mest í heiminum til að gleyma gömlum sögum og fá að vera í núinu með þér; að heyra meira um náttúruævintýrin þín og baða mig í ljósi lífsins með þér. Mikið sem ég þurfti að læra að sleppa tökunum aftur og aft- ur og aftur, og að treysta al- mættinu fyrir framtíð okkar beggja. Sem og ég gerði, þó ekki hafi alltaf reynst auðvelt. Það er svo sannarlega mikið og djúpt þroskaferli að læra að sleppa og að elska á sama tíma. Þetta kenndir þú mér. Alveg frá byrjun. Er þú sagðir mér frá þínum leiðum, sem ég tók svo hjart- anlega til mín og fann með tím- anum mitt eigið æðruleysi og ró í gegnum. Nú, hér sem ég sit við vatnið blíða og virði fyrir mér sveim- andi fugla allt um kring; flögr- andi pelikana og syndandi æð- arfugla, þá veit ég djúpt í hjarta mínu að allt er í lagi. Ég trúi því að þú sért á betri stað og hafir fundið frið hjá Guði alls sem er. Ég minnist þín hér með frið- arbæn heilags Frans af Assisi, elsku Linda. Bæn sem ég óska þess að við öll í kringum þig getum umvafið okkur, á meðan þú færð að upp- lifa þig sem þá skæru og lýsandi stjörnu sem þú ert, í eftirlífinu þínu eilífa... Guð ger þú mig að farvegi friðar þíns svo að ég færi kærleika þangað sem hatur er fyrirgefningu þangað sem misgerð er einingu þangað sem sundrung er trú þangað sem efi er von þangað sem örvænting er gleði þangað sem harmur er ljós þangað sem skuggi er Veit þú Guð að ég sækist fremur eftir að hugga en láta huggast að skilja en njóta skilnings að elska en vera elskuð því er við gefum munum við öðlast fyrirgefum mun okkur fyrirgefast gleymum okkar eigin, finnum við okk- ar sanna sjálf og það er í að deyja að við fæðumst til eilífs lífs Amen Takk fyrir að sýna mér syss! Þín litla systir, Jóhanna Guðleif (Jósa í Ameríku). Það er komið að kveðjustund, sem er alltof snemmt, en ekki spurt að því. Það er ekki nema rúmur áratugur síðan við Linda kynntumst, en við náðum svo vel saman og urðum góðar vinkon- ur. Hún var alveg einstök, mjög sérstök manneskja. Hún bjó við erfiðar heimilisaðstæður og náði ekki að mennta sig, en hún Linda lét það ekki stoppa sig, hún var sjálfmenntaður náttúrufræðingur. Hún sá það fagra í öllu sem lifði, öllum gróðri og svo umgekkst hún skordýr með stakri virðingu. Það er unun að horfa á myndir sem hún tók af atferli ýmissa skordýra. Hún var ótrúlega fjöl- fróð um plöntur og smádýr, það mátti svo margt af henni læra. Hún var líka brautryðjandi, skrifaði undir nafninu Baugalín bókina Launhelgar lyganna. Það hafði ekki verið gert áður að skrifa bók um kynferðisofbeldi gegn börnum, hér á landi. Þar sýndi hún mikinn hetjuskap. Elsku Linda mín, lífið fór ekki mjúkum höndum um hana og hún þurfti margt að reyna. En alltaf stóð hún keik, hvað sem á bjátaði. Ég er svo glöð yfir að hafa heimsótt hana út til Eng- lands fyrir tveimur árum. Við áttum góðar stundir saman, sem glöddu okkur báðar. Til stóð að endurtaka þetta en það verður því miður ekki hægt. Þakka þér fyrir þína óeigingjörnu vináttu og öll þín elskulegheit. Ég mun sakna þín, en vona að þér líði vel þar sem þú ert nú, mín kæra. Það verður aldrei önnur Linda. Vinkona þín, Hera Helgadóttir. Rósin Rósin í garðinum er fölleit og grá, ylur og gleði er hennar þrá. Loks þegar ljósið fær hún að sjá, lífslöngun vaknar þá henni hjá. Blöð hennar grænka, hún verður flott, í garðinum hennar er indælt og gott. Rósin vel dafnar við sumarsins yl, ei lengur skal óttast vetrarins byl. (Baldvin Viggósson) Rósin, Linda, konan sem barðist allt sitt líf fyrir réttlæti og sanngirni. Árið 2000 sendi hún frá sér bókina Launhelgi lyganna, und- ir höfundarnafninu Baugalín. Bókin er og var tímamótaverk um þöggun gagnvart þolendum kynferðisofbeldis. Hún var brautryðjandi í þessari um- ræðu. Ég varð vinkona Lindu þegar hún kom í Hvassaleitisskóla, lítil og brothætt stúlka. Hún var alltaf að berjast fyrir því að það væri hlustað á hana. Margar góðar minningar á ég um vináttu okkar Lindu, en svo skildi leiðir í mörg ár. Með til- komu facebook endurnýjuðum við vinskap okkar. Þá bjó hún á Englandi. Við Linda ætluðum að hittast á Englandi vorið 2020. Við hlökkuðum til að kynnast upp á nýtt, eiga góða daga og hlæja saman, en ekkert varð af því vegna Covid. Rósin, Linda, var mikill nátt- úruunnandi og hafði næmt auga fyrir því fallega, jafnt stóru sem smáu í náttúrunni, einnig skor- dýrin voru falleg og áhugaverð. Hún var dugleg að safna hnetum og fræjum af trjám og blómum sem hún sendi til vina á Íslandi. Margir eiga eflaust eftir að hugsa fallega til Lindu þegar trén stækka og teygja blöðin í átt til sólarinnar og blómin blómstra í öllum regnbogans lit- um, upp frá hnetunun og fræj- unum sem hún sendi okkur. Þegar Linda vissi að stutt væri eftir af hennar jarðvist var ósk hennar að geta komið til Ís- lands að kveðja, og sú ósk rætt- ist, en hún lést 19. nóvember sl. Rósin, Linda, á alltaf stað í hjarta mínu og ég er þakklát fyrir að hafa kynnst þessari bar- áttukonu, sem lífið fór ekki allt- af mjúkum höndum um. Guð gefi mér æðruleysi til þess að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr) Jóhanna Eysteinsdóttir. Í dag kveðjum við hinstu kveðju Hellen Lindu Drake. Hún lifði í anda rómantísku ald- arinnar, hún var rótlaus, unni tónlist, ritlist og náttúruskoðun, og hafði réttlætiskennd og for- tíðarþrá að leiðarljósi. Ævi hennar minnir á ævi Jónasar Hallgrímssonar, Heinrich Heine eða Frederic Chopin: Skáldagáfa, basl, fátækt, flótti frá heimalandinu, heimþrá, dag- draumar, þ.e. rómantíska stefn- an í hnotskurn. Hvað útlit henar varðar þá kemur upp í hugann Frelsisgyðjan á rómantíska málverkinu fræga eftir Delacro- ix. Fyrirmynd Fjallkonu okkar og Frelsisstyttunnar í USA. Kynni okkar Lindu hófust þegar við vorum bæði komin á fullorðinsár. Þau voru fyrst og fremst hugmyndafræðilegs eðl- is, og samskiptin nær eingöngu rafræn. Linda hafði skrifað bók undir dulnefni og við veltum innihaldi hennar fyrir okkur. Mörg er þar átakanleg lýsingin á ofbeldi og erfiðleikum, en ég er þess fullviss að fræðingar framtíðar eiga eftir að sjá betur og betur að bókin er ekki ein- göngu um hana sjálfa, heldur um margar stúlkur á ýmsum tímum, bæði skyldar og óskyld- ar henni, og í ýmsum löndum, jafnvel um drengi líka, og að bókin sú arna var algjört tíma- mótaverk. Jafnvel á pari við Kúgun kvenna eftir John Stuart Mill. Dulnefnið er Baugalín. Linda var vel að sér í tónlist og í náttúrufræðum, unni hinu smáa og fagra eins og Jónas Hallgrímsson. Hún var óspör á skilaboð til Facebókarvina sinna varðandi eitt og annað sem hún sá á netinu eða myndir sem hún tók sjálf. Hún bar einhvers kon- ar virðingu fyrir mér vegna þess að mér hafði auðnast að ljúka BS-prófi í líffræði, auk þess að hafa starfað á vistheimilum, en í raun var hún sjálf miklu fróðari en ég um nánast öll náttúrufyr- irbæri, sérstaklega plöntur og skordýr. Þá komu gjarnan frá henni skilaboð um að ég yrði að hlusta á þetta eða hitt lagið sem hún taldi henta mér í það og það skiptið, og oftast var það rétt ályktað hjá henni. Alltaf var hún jákvæð, en það örlaði samt gjarna á trega og einmanaleika. Útlegðin tekur á, því hafa Jón- as, Heine og Chopin einnig lýst þá þeir dvöldu fjarri uppruna sínum í Danmörku eða Frakk- landi. Fyrir nokrum árum dró dimm ský fyrir sólu. Linda sendi mér dag nokkurn mynd af stokkbólginni tá sinni og spurði hvort þetta væri þvagsýrugigt. Hún var óróleg, hafði áhyggjur og sagði þetta kvalafullt. Ég taldi gigtina líklega skýringu, hafði sjálfur glímt við þann vá- gest, en til öryggis ákvað ég að áframsenda myndina á gigtar- lækninn minn, hann Ragnar Frey. Hann er glöggur og svar- aði um hæl að við færum algjör- lega vill vegar með málið, þetta væri „blóðþurrð“ (blóðtappi), sem væri mun alvarlegra mál en gigtin, og eigandi táarinnar yrði að fara eins og skot í rannsókn. Þessi svör sendi ég Lindu strax um kvöldið og varð þetta upp- hafið að því sjúkdómsferli sem átti eftir að verða henni erfitt, því fleiri blóðtappar fundust fljótlega og á hættulegri stöð- um. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka Ragnar Frey Ingv- arssyni lækni fyrir þessi skjótu viðbrögð, Linda kunni að meta þau, hún vildi umfram allt vita sannleikann, hver sem hann væri. Hún var enda vön mann- eskja þegar kom að vonbrigðum og óþægilegum niðurstöðum. En nú eru skilaboð hætt að ber- ast og Facebook-vinir einum færri en áður. Aðstendendum Lindu votta ég alla mína samúð. Ég lýk þesum fátæklegu orðum með erindi úr kvæði eftir Valde- mar Hólm Hallstað frá Húsa- vík, sem á Kristnesi við Eyja- fjörð orti á sínum tíma um fjarlægðina, fárveikur af berkl- um: Heyrirðu ei, þig hjartað kallar á? Heyrirðu ei storm, er kveðju mína ber? Þú fagra minning eftir skildir eina, sem aldrei gleymist, meðan lífs ég er. Baldur Garðarsson. Til Lindu Fjallið er ekki eins bratt og sýnist í hraða hugans. Leiðin er létt því kjarkurinn flýgur á undan. Fegurðin kallar á tár. Beinn og breiður stigi niður Hugur og berir fætur segja nei. Austræn sól rís með ögun mannlífs Naglinn sem stendur uppúr er lam- inn súrefni inn auðmýkt út. Ekki trufla einkalíf hvers og eins. Í vestrænu sólarlagi hleypur og fellur negla auðmýkt inn súrefni út. Afar kær vinkona er fallin frá. Hjartað grætur, tár falla með þakklæti fyrir ríkar minningar. Þakklæti fyrir minningar um stórhuga náttúrubarn með hug- rekki, hugsjónir, auðmýkt og einlægni sem fylgdu Lindu þau þrjátíu ár sem kynni okkar vörðu. Að auki gaf Linda okkur öllum hlutdeild í sársauka sem og öðrum stundum lífs síns. Endurminningar æsku hennar og uppvaxtar sem hún færði til bókar voru brautryðjandaverk sem lýsti einstöku hugrekki og réttlætiskennd. Ég er þakklát fyrir stundir vinskapar okkar hér heima sem og í heimsóknum okkar til Englands. Linda lifir sterk í huga okkar. Við fjölskyldan kveðjum Lindu með ljóði Sigurðar Páls- sonar Náttmyrkrið Treystu náttmyrkrinu fyrir ferð þinni Heitu ástríku náttmyrkrinu Þá verður ferð þín full af birtu frá fyrstu línu til þeirrar síðustu Gréta Mjöll Bjarnadóttir, Björn Ragnar, Baldur og Óðinn. Hún Kristín á Hömrum fylgdi okkur hjónunum í rúma hálfa öld. Hjörtur var fjósa- maður hjá þeim Gunnari sum- arið 1969 og bræddi þá hjarta mitt varanlega. Við fluttum í sveitina 1972 og þá kynntist ég Stínu og fleiri ungum konum. Það voru þroskandi og skemmtilegir tímar. Við Stína vinkona vorum ólíkar að mörgu leyti en aldrei slettist upp á vinskapinn þessi 50 ár. Hún nákvæm og skipu- lögð en líka til í stuð. Ég með brussuganginn, athyglisbrest- inn og létta kæruleysið. Ýmsar Kristín Carol Chadwick ✝ Kristín Carol Chadwick fæddist 5. janúar 1943. Hún lést 15. nóvember 2021. Út- förin fór fram 2. desember 2021. góðar ráðleggingar fékk ég frá minni kæru vinkonu, t.d. að hafa mál á veggjum í veskinu ef ég rækist á eitt- hvað sem vantaði til heimilisins. Það dugði vel þegar ég keypti forláta bókahillu og spegil í nýja húsið í Hamravík. Stína var félagslynd og fróð- leiksfús og dugleg að bæta við sig þekkingu á ýmsum sviðum. Hún dreif sig í þýsku, vélritun, tölvufræði og svæðisleiðsögn og fór á tískusýningarnámskeið hjá Hönnu Frímanns í Karon. Hún bar af sýnendum á út- skriftarkvöldinu þar, enda var hún glæsileg kona, með góðan takt og þokka. Rauði krossinn naut starfskrafta hennar í fjölda ára, hún var fangavinur, heimsóknarvinur, og öflug í verkefninu Föt sem framlag. Þá var hún virk í kvenfélagi og kirkjukór og tók þátt í end- urreisn Gömlu Borgar með fleiri dugnaðarforkum. Hún var okkur Hirti afar hjálpleg í hótelrekstrinum á Hamri, lagði á ráðin við skipu- lagningu þvottahússins og tók að sér næturvörslu þegar við brugðum okkur til útlanda. Hún hafði gaman af þessu stússi okkar enda átti hún sér gamlan draum um að vinna á hóteli. Góðar minningar tengj- ast ferðalögum til Köben, London, Edinborgar og Berl- ínar og ljúfar stundir áttum við á Spáni haustið 2018. Við Hjörtur fluttum á Sel- foss 2019 og hlökkuðum til þess að njóta samvistanna við Stínu og aðra vini hér. Veikindi henn- ar breyttu þó miklu og ekki síð- ur Covid-fárið. Ég reyndi eftir bestu getu að létta undir með henni og dáðist oft að seiglunni og æðruleysinu sem hún sýndi við þessar aðstæður. Hún naut frábærrar heimaþjónustu og var afar þakklát þeim góðu konum sem gerðu henni kleift að vera heima í Fosstúni. Stína átti gott sumar eftir geislameð- ferðina í vor og var farin að huga að bílakaupum þegar ör- lögin tóku í taumana. Hún vissi hvert stefndi og kvaddi sátt við guð og menn. Stína kom sannarlega mörgu í verk á lífsleiðinni. Dæmi um það er bókin hennar „Tveggja landa kona“ sem hún gaf út í 25 eintökum svo að afkomendur hennar fengju að kynnast ævi hennar og starfi. Í tvö ár greip hún í verkið, handskrifaði í stílabækur og svo var allt fært í tölvu, 130 síður með völdum myndum. Í lokakaflanum stendur þetta: „Ég hef litið á lífið eins og verkefni sem þarf að leysa og gengið í það með þeim aðferðum sem mér fannst að myndu duga í hvert sinn. Trúin hefur hjálpað mér og gefið mér æðruleysi. Lífið er ekki alltaf eftir óskalista, málið er að læra að lifa með lífinu í gleði og sorg.“ Það tókst Stínu minni vel. Systkinin frá Hömrum og fjölskyldur þeirra fá innilegar samúðarkveðjur okkar Hjartar. Guð blessi minningu Stínu vin- konu minnar. Unnur Halldórsdóttir. Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.