Morgunblaðið - 04.12.2021, Page 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2021
✝
Sigursveinn
Hilmar Þor-
steinsson fæddist í
Ólafsfirði 2. mars
1948. Hann lést á
gjörgæsludeild
SAk 22. nóvember
2021.
Foreldrar hans
voru Þorsteinn
Mikael Einarsson,
f. 23. ágúst 1924, d.
31. desember 2006,
og Anna Gunnlaugsdóttir, f. 15.
mars 1926, d. 29. nóvember
2011.
Sigursveinn Hilmar var næst-
elstur í sex systkina hópi: Gunn-
laugur Einar, f. 6. apríl 1946, d.
28. júní 2021, Guðbjörg, f. 17.
september 1968, maki Gerður
Ellertsdóttir, f. 22. september
1970. Börn þeirra Örn Elí og
Sunneva Lind. 2) Þorsteinn, f.
16. nóvember 1969, dætur hans
Valgerður og Álfheiður Birta. 3)
Freygerður, f. 1. desember
1973, maki Hermann Herberts-
son, f. 4. maí 1975. Dætur þeirra
Hanna Karin, Hildur Heba og
Eva Hrund. Barnabarnabörn
Sigursveins og Valgerðar eru
fimm talsins.
Sigursveinn byrjaði á sjó níu
ára gamall með afa sínum og
stundaði síðan sjómennsku allt
sitt líf á ýmsum bátum, togurum
og að lokum í eigin útgerð.
Útför hans fer fram í dag, 4.
desember 2021, frá Ólafsfjarð-
arkirkju og hefst hún klukkan
14.
Streymt verður frá útförinni
á slóðinni:
https://youtu.be/dBhh6NnAjr4
Hlekk á streymi má finna á:
httsp://www.mbl.is/andlat
desember 1951,
Ingibjörg, f. 7. maí
1954, Þórhildur, f.
13. mars 1958, og
Elín Rún, f. 12. des-
ember 1969.
Hinn 31. desem-
ber 1967 kvæntist
Sigursveinn Hilmar
Valgerði Sigurð-
ardóttur frá Ólafs-
firði, f. 10. júlí
1947. Faðir hennar
var Sigurður Pétur Jónsson, f. 6.
apríl 1907, d. 3. október 1980, og
móðir hennar Freygerður Anna
Þorsteinsdóttir, f. 15. febrúar
1912, d. 7. maí 1987.
Börn Sigursveins og Val-
gerðar eru: 1) Gunnlaugur, f. 19.
Elsku pabbi minn. Mikið er
nú sárt að hugsa til þess að fá
ekki að hitta þig aftur, ég sem
var alltaf svo mikil pabbastelpa
og er enn. Það er nú svo að gott
er að ylja sér við allar góðu og
skemmtilegu minningarnar um
þig og okkur. Ein af þeim er
þegar þú komst heim af sjónum,
þá hékk ég alltaf í fótunum á
þér og elti þig um allt hús, og
þú náðir meira að segja að pissa
á höfuðið á mér, enda var ég þá
lítil skotta sem var að forvitnast
um af hverju þú stæðir þarna
við klósettið. Ég veit ég afneit-
aði þér einu sinni, en það var
líka bara einu sinni og í mjög
stutta stund, þegar þú komst
heim af sjónum og þá búinn að
raka af þér allt skeggið og ég
sagði að þú værir sko ekki
pabbi minn, enda hafði ég aldrei
séð þig án skeggs. En þú pabbi
minn ert sko mín fyrirmynd og
hetja, þvílíkur baráttujaxl og
dugnaðarforkur sem þú varst.
Þú varst alltaf tilbúinn í að
hjálpa til ef einhver verkefni
voru framundan, og alltaf var
gott að leita til þín um allskonar
ráð. Afahlutverkið þitt var samt
það besta við þig, en það byrj-
aði vel því þú sagðist hætta að
reykja þegar ég yrði ólétt, og
jú, þú stóðst við það og slökktir
í síðustu sígarettunni þau ára-
mót þegar ég tilkynnti mánuði
fyrr að von væri á því fyrsta.
Og þegar hún Hanna mín fædd-
ist þá var það ekki bara ómet-
anlegt fyrir þig að vera við-
staddur fæðingu í fyrsta skipti,
heldur var það ómetanleg stund
að hafa þig með okkur. En þú
varst líka afi með stóru a-i, því
þú gerðir allt fyrir dætur mínar
þær Hönnu, Hildi og Evu, sem
og öll hin barnabörnin þín. Þú
varst með eindæmum stríðinn
við þær og þú náðir þeim á þitt
band mjög auðveldlega. En allt-
af varstu til í að leika, hvort
sem var að skella þér upp á
trampólín og taka nokkur hopp
með þeim, þó þú hafir sleppt
heljarstökkunum sem þær voru
nú samt að reyna að kenna þér,
eða bara skella þér í kaffiboð
með dúkkunum og böngsunum,
nú eða taka smá fótboltaleik. Já
pabbi minn, það er gott að
hugsa til baka og brosa yfir öll-
um góðu stundunum okkar sam-
an, og ég trúi því að við hitt-
umst einhvern tímann aftur. En
þangað til hugsum við til þín og
höldum áfram að heiðra minn-
ingu þína, hlustum á Kim Lar-
sen, fáum okkur „en stor øl“,
styðjum Liverpool og fáum okk-
ur lærissneiðar í raspi. Takk
fyrir allt, elsku pabbi minn. Þín
dóttir,
Freygerður (Freyja).
Það var nettur kvíðahnútur
hjá unga manninum fyrir nær
þrjátíu árum, rétt áður en hann
hitti Himma fyrst, en einhverj-
um vikum áður hafði ungi Ak-
ureyringurinn og einkadóttirin
hist á balli á Dalvík og tekið tal
saman eins og gengur og gerist.
En þessi fyrstu kynni mín af
Himma voru mjög svo þægileg
enda Himmi afskaplega góður
maður í alla staði. Seinna leiddi
hann dóttur sína upp að alt-
arinu í Grundarkirkju þar sem
Pálmi frændi hans gaf okkur
Freyju saman en er Pálmi tal-
aði til okkar, horfði hann til mín
og sagði: „Margur væri knár …
að giftast konu frá Ólafsfirði.“
Einu ári áður grétum við saman
á fæðingarstofunni hvor sínum
megin við rúmið og héldum í
hendur unnustu og dóttur, þeg-
ar Hanna Karin fæddist, en
Himmi var viðstaddur fæð-
inguna alveg til enda, en Freyja
bauð pabba sínum að vera við-
stöddum þar sem hann missti af
fæðingu sinna barna vegna sjó-
mennsku. Hann var ekki lengi
að þiggja boðið og var afskap-
lega þakklátur fyrir. Himmi var
ekki bara tengdafaðir minn,
heldur mjög góður vinur. Hann
var alltaf boðinn og búinn til að
aðstoða okkur fjölskylduna í
allskyns breytingum og bæting-
um heima fyrir. Við brösuðum
mikið saman, en um árið sendi
ég einn tölvupóst til Póllands
fyrir hann sem varð til þess að
Doddi Skó ehf. hóf innflutning á
Kruger-plastbátum. Himmi sá
um sölusviðið í fyrirtækinu eins
og hann sagði. Hann tók við
símtölum og kjaftaði við áhuga-
sama því ekki veit tengdason-
urinn hvað snýr fram eða aftur
á bátum. Hann lét mig sjá um
innkaupasviðið og erlendu sam-
skiptin, en þetta var skemmti-
legur tími hjá okkur tengda-
feðgum en við auðvitað létum
eins og um væri að ræða risa-
batterí og farnir að plana inn-
kaupatúra til Póllands. Himmi
var harður Liverpool-maður en
ég ekki, en við og Doddi mágur
fórum afar skemmtilega ferð á
leik með liðinu frá bítlaborginni
árið 2018. Það hafði lengi verið
draumur hjá Himma að fara á
leik og hversu fallegt var það
þegar hann felldi tár við að
opna gjafabréfið á leik með lið-
inu hans en slegið var saman í
stórfjölskyldunni í tilefni sjö-
tugsafmælis hans. Þeir feðgar
skemmtu sér feikivel og ég líka
þó ekki hafi þetta verið mitt lið
og gaman var að sjá stóra
drauminn hans rætast. Það var
svo tíu árum fyrr sem við
Himmi fórum á tónleika með fé-
laga okkar, Kim Larsen í Hor-
sens en Himmi og Gerða voru
dugleg að heimsækja okkur
fjölskylduna á Danmerkurárun-
um okkar. Við félagarnir höfð-
um mikið dálæti á Kim og
hlustuðum oft á hann saman.
Síðasta ferðalagið okkar saman
var til Danmerkur sumarið 2019
en lengi höfðum við ætlað sam-
an upp á Skagen en Himmi og
Gerða komu með okkur fjöl-
skyldunni. Leigðum við sumar-
hús, keyrðum um Norður-Jót-
land og skoðuðum vitann við
Rubjerg Knude og margt fleira.
Á kvöldin spilaði amma Gerða
við Freyju og dæturnar okkar
en oftar en ekki sátum við
Himmi með „en øl“ á terrassinu
og spjölluðum. Ég á eftir að
sakna spjallsins okkar, Himmi,
og nærveru þinnar, en „vi ses
om lidt“.
Hermann.
Elsku afi Himmi.
Nú er þinni hetjulegu baráttu
lokið og þú kominn á betri stað
þar sem þér líður vel.
Takk fyrir allar okkar góðu
stundir, dýrmæta tímann sem
þú áttir með okkur og langaf-
astrákunum þínum. Takk fyrir
alla hjálpina í fiskbúðinni okkar,
sú hjálp er okkur ómetanleg.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Saknaðarkveðjur,
Gerða, Hákon og lang-
afastrákarnir þínir.
Hann var sjómaður dáða-
drengur og svo miklu, miklu
meira, Nú hefur Himmi minn
kæri mágur kvatt þennan heim
eftir erfitt og langt stríð við
krabbamein. Gerða og hann
tóku þetta sem verkefni og
aldrei heyrðust þau kvarta.
Kærleikurinn og umhyggjan
voru í fyrirrúmi. Það væri hægt
að finna svo mörg lýsingarorð
til að lýsa honum. Hann var
heiðarlegur, hjálpsamur, stríð-
inn, duglegur, elskaði fjölskyld-
una sína og hafði góða nærveru.
Hann var ákaflega barngóður
og börn löðuðust að honum.
Einu sinni voru þau í heimsókn
og það vildi svo til að tvö
barnabörn mín voru í pössun
hjá okkur. Drengurinn var
þriggja mánaða gamall og
þjáðist af bakflæði. Himmi
gekk með hann um gólf og
raulaði og talaði við hann svo
drengur var rólegur. Systir
hans fimm ára var að horfa á
sjónvarpið mjög einbeitt sagði
allt í einu: „Þú átt ekkert
þennan gaur.“ Himmi var fljót-
ur að sannfæra hana um að
hann væri ekkert að fara með
hann.
Nokkur sumur fórum við
fjögur af sjö systkinum okkar
ásamt mökum austur að Mos-
um á Síðu. Þar var mikið fjör
og mikið hlegið. Spilin voru að
sjálfsögðu með í farteskinu.
Eitt af því sem Himmi gerði
var að útbúa krikketbraut.
Hann fann upp á alls konar
brellum til að ögra okkur. Vin-
sælastur var þvottabalinn,
hann reisti spýtu á ská og ef
kúlan fór ofan í þá þurfti að
byrja á nýjan leik. Einnig var
vinsælt að gera holur við hlið-
ina á hliðunum.
Einn daginn var úrhellis-
rigning en samt skyldum við
út. Allir voru múnderaðir í
svarta ruslapoka og einhverjar
druslur á höfuðið. Við gátum
varla spilað fyrir hlátri.
Himmi var úrvalskokkur og
enginn gerði jafn góðan harð-
fisk og hann.
Eftir að hann hætti á tog-
urunum fékkst hann við fisk-
verkun og sjóróðra á eigin
báti. Hann átti alltaf fallega
báta og hugsaði vel um þá. Allt
sem Himmi kom nálægt var
gert af útsjónarsemi og vand-
virkni. Hann og Gerða voru
mjög samheldin enda oftast
nefnd bæði í sama orðinu. Ég
er nokkrum sinnum búin að
segja við manninn minn: Ég
ætla að hringja í Gerðu og
Hi … þá man ég eftir því og
sorgin bítur fast. Þvílíkur
missir. Himmi var hagleiks-
smiður og lék allt í höndunum
á honum. Þau Gerða áttu fal-
legt og listrænt heimili. Það
var auðséð að hann vissi að
hverju dró. Ég er vinkonum
mínum afar þakklát að draga
mig með í ferð norður. Það
þýddi að ég gat stoppað í
Ólafsfirði og átt með þeim
nokkra klukkutíma. Það var
ánægjuleg stund. Það fór ekki
á milli mála að hann vildi vera
búinn að ganga frá lóðinni fyr-
ir framan húsið.
Hann var dauðþreyttur en
málaði samt eina og eina spýtu
í grindverkið. Hobbíið hans var
að mála málverk og listrænt
innsæi leyndi sér ekki. Nú
kveðjum við Óli okkar kæra
vin og söknum hans mikið. Það
er gott að við eigum grátinn.
Hvíldu í friði, elsku vinur.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(Vald. Briem)
Elsku kæra Gerða, Gunn-
laugur, Þorsteinn Freygerður
og fjölskyldur ykkar allra, Guð
gefi ykkur styrk í sorginni. Við
Óli sendum samúðarkveðjur.
Margrét F. Sigurðardóttir.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Tíminn er skrítin skrúfa sem
brosir kannski bara að okkur
mannfólkinu. Þegar við erum
ung finnst okkur við hafa næg-
an tíma til alls, endalausan
tíma. Svo þegar við eldumst
kemur þessi efi og kannski
vissa um að tíminn sé að hlaupa
frá okkur. Lífinu er afmarkaður
tími, Sumarlandið kallar og tek-
ur frá okkur þá sem okkur eru
kærir. Og nú hafa báðir bræð-
urnir sem ólust upp í Gunnólfs-
götu 2 verið kallaðir frá okkur
með nokkurra mánaða millibili.
Líklega hefur vantað í Sum-
arlandið tvo hagleiksmenn sem
allt gátu gert og verkin léku í
höndunum á. Og ég er viss um
að Gulli bróðir, sem var eldri
og fór á undan, hefur tekið
Himma með útbreiddum faðmi
og lagt hann við vanga sinn.
Hann Himmi bróðir, sem við
kveðjum í dag, var góðmenni
sem vildi öllum vel. Ekkert var
honum kærara en fjölskyldan,
Gerða hans, börnin, tengda-
börn, barnabörn og langafa-
börn. Með hæglæti kom hann
skoðunum sínum á framfæri og
kenndi með hegðun sinni og
ljúfmennsku hvernig best væri
að taka á hlutunum. Svo var
hann mikill húmoristi, stríðinn
og orðið grallaraspói hæfði hon-
um vel, því svo sannarlega naut
hann þess að hafa gaman.
Himmi bróðir var tíu árum
eldri en ég og á ég svo margar
góðar minningar um stóra
bróður minn. T.d þegar hann
gaf mér litla dúkku í gulu burð-
arrúmi, aldrei hafði ég séð neitt
fallegra, á ennþá kjólinn sem
dúkkan klæddist. Eða þegar
hann gaf mér stóra Spur Cola í
kaupfélaginu, þann töfradrykk
hafði ég aldrei smakkað áður.
Best man ég þó brosið og blikið
í augunum hans.
Af systkinahópnum erum við
nú fjórar systurnar eftir. Hver
missir minnir okkur á að elska
lífið sem okkur var gefið, dýr-
mætustu gjöfina sem við fáum.
Og þakka fyrir að hafa fengið
að njóta þess að alast upp í
húsinu á horninu með elsku
mömmu og pabba. Ég kveð
Himma bróður minn, ljúfmenni
og grallaraspóa, með hjartað
fullt af söknuði en líka þakklæti
fyrir allt. Hvíl í friði elsku bróð-
ir.
Fyrir löngu. Hann er mér í
fersku minni nóvembermorg-
unninn forðum. Þegar ég, lítil
stelpa, vaknaði í morgunskím-
unni, og allir í húsinu á horninu
sváfu. Ég læddist fram og tyllti
mér í neðstu tröppuna í stig-
anum. Allt var hljótt nema ein-
staka hrota frá herbergi
mömmu og pabba. Bræðurnir
sváfu í litla herberginu, sáttir
saman, eins og alltaf. Systurnar
sváfu í borðstofunni, blítt og
vært. Og þar sem ég sat fannst
mér hjartað mitt hitna og slá
hraðar. Veit núna að þetta var
bara ástin til þeirra sem ég
fann.
Þórhildur Þorsteinsdóttir
(Tóta).
Sigursveinn Hilm-
ar Þorsteinsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
GUÐRÚN E. THORARENSEN,
lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð
laugardaginn 27. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Ásta I. Lúðvíksdóttir
Guðmundur I. Lúðvíksson
Jón Lúðvíksson Þórkatla Jónsdóttir
Eygló R. Lúðvíksdóttir Andrés Eyjólfsson
Bryndís A. Lúðvíksdóttir Ingólfur Sigurðsson
og fjölskyldur
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
ÞORSTEINN AÐALBJÖRNSSON,
Norðurgötu 30, Sandgerði,
sem lést á dvalarheimilinu Lundi
mánudaginn 22. nóvember,
verður jarðsunginn frá Sandgerðiskirkju
þriðjudaginn 7. desember klukkan 14.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera
viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á
https://www.facebook.com/groups/thorsteinnadalbjornsson
Jón Aðalbjörnsson Sigríður Sigmundsdóttir
Ragna Aðalbjörnsdóttir Ásgeir Árnason
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ERLA DIEGO FRIÐRIKSDÓTTIR,
Avesta, Svíþjóð,
lést á heimili sínu mánudaginn 4. janúar.
Útför fór fram í Hafnarfirði föstudaginn
19. nóvember að viðstöddum nánustu aðstandendum.
Ljúf minning þín lifir.
Ásgrímur Einarsson
Bryndís Einarsdóttir
Gullveig Unnur Einarsdóttir Páll Arnarsson
Linda Rós Einarsdóttir Alexander Dahlquist
barnabörn og barnabarnabarn
Elskuleg mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
KRISTJANA MARGRÉT
FINNBOGADÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu Skógarbæ
þriðjudaginn 30. nóvember.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fjölskyldan vill
þakka starfsfólki Skógarbæjar fyrir kærleiksríka umönnun.
Finnbogi Þórsson Unnur Rós Jóhannesdóttir
Ingibjörg Einarsd. Granerud Tom Granerud
Grímur Thomsen Einarsson Anna Rós Jóhannesdóttir
Guðlaugur Einarsson Jakobína Hrund Einarsdóttir
Margét Bára Einarsdóttir Stefán Ingólfsson
barnabörn og barnabarnabörn