Morgunblaðið - 07.12.2021, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 07.12.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2021 Páll Vilhjálmsson, öflugur blogg- ari, hefur fjallað ítarlega um að „lögreglurannsókn standi yfir á starfsháttum RÚV og aðkomu stofnunarinnar að eitrun og stuldi“. - - - Hann hefur bent á að stofnunin auglýsi ekki stöðu fréttastjóra þótt sá sem gegnir því fari fljótlega burt. Páll telur að ástæða þess sé sú að lög- reglurannsóknin standi yfir og örð- ugt um mannabreyt- ingar í þeirri stöðu. Það er líkleg ágisk- un. - - - Páll skrifar: „Blaða- og frétta- menn stunda ekki upplýsinga- miðlun til almennings þegar starfs- bræður og -systur eiga í hlut. Í Norður-Kóreu standa fjölmiðlar vörð um leiðtoga landsins. Á Íslandi eru fjölmiðlar samtaka um að fjalla ekki um glæpi og spillingu í eigin ranni. Líkt og í Norður-Kóreu eru fjölmiðlar á Íslandi á framfæri rík- isins.“ Páll fer þar fram úr sér. - - - RÚV“ fær á sjötta milljarð í styrk frá ríkinu. Morgun- blaðið fær styrk sem nemur 2% af heildartekjum fyrirtækisins sem gefur það út. Áður hafði ríkið hækkað skatt sem leggst á blaðið en ekki keppinauta þess. Morgun- blaðið krafði útvarpsstjóra svara varðandi upplýsingar Páls, og fékk útúrsnúninga og þunnildi. Fyrir- tækin í landinu ættu að eiga þá úr- klippu til að nota síðar spyrji „RÚV“ þau út úr. - - - Morgunblaðið hefur ekki getað fengið staðfestingu á sumum fullyrðingum Páls í umræddu máli og gætir því sjálfsagðrar varúðar á meðan það hefur ekki breyst. Páll Vilhjálmsson Þöggun „RÚV“ hefnir sín STAKSTEINAR Stefán Eiríksson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ „Á lista yfir meðalhita síðustu 73 árin er hiti í Reykjavík í 15. hlýjasta sæti, í því fimmta hlýjasta á Akur- eyri og áttunda hlýjasta austur á Dalatanga. Við getum því gengið út frá því að árið 2021 verður í hópi hlýju áranna eins og öll ár þessarar aldar.“ Þetta segir Trausti Jónsson veðurfræðingur á bloggi sínu. Tíð var nokkuð hagstæð í nóv- ember, segir í tíðarfarsyfirliti Veðurstofunnar. Mánuðurinn var kaldari en meðalnóvembermánuður undanfarinn áratug um allt land. Úrkomusamt var á sunnan- og vest- anverðu landinu. Ekki hefur mælst meiri úrkoma í nóvember í Reykja- vík síðan árið 1993. Í nóvember var meðalhitinn í Reykjavík 2,1 stig. Það er 0,1 stigi undir meðallagi áranna 1991 til 2020 og 0,6 stigum undir meðallagi undanfarinna tíu ára. Meðalhitinn var 0,3 stig á Akureyri sem er 0,3 stigum undir meðallagi síðustu þriggja áratuga og 0,7 stigum undir meðallagi síðastliðins áratugar. Í Stykkishólmi var meðalhitinn 1,7 stig og á Höfn í Hornafirði var hann 2,1 stig. Nóvember var úrkomusamur í Reykjavík. Þar var heildarúrkoma mánaðarins 139,6 millimetrar, sem er 61% yfir meðalúrkomu nóvem- bermánaðar á tímabilinu 1991 til 2020. Á Akureyri mældust 59,9 mm sem er 88% af meðalúrkomu mán- aðarins undanfarna þrjá áratugi. sisi@mbl.is Árið 2021 í hópi hlýju áranna Morgunblaðið/Eggert Úrkoma Ekki hefur rignt jafn mikið í höfuðborginni síðan árið 1993. Góð hol fengust á loðnumiðunum norður af Melrakkasléttu á sunnu- dag. Þannig fékk Víkingur AK yfir 800 tonn í tæplega fimm tíma holi yf- ir hádaginn og landaði í gær yfir tvö þúsund tonnum á Vopnafirði. Bjarni Ólafsson AK var á sama tíma að landa um 1.600 tonnum í Neskaup- stað. Þessir farmar eru í raun þeir fyrstu sem landað er á vertíðinni. Loðna virðist vera á allstóru svæði. Á loðnumiðunum voru fimmtán skip í gær, en misjafnt hefur verið á miðunum síðustu daga. Aflinn verð- ur bræddur í mjöl og lýsi. Talsverður afli var kominn í flest þeirra, en fyrstu skipin köstuðu síðdegis á mið- vikudag eftir að breytt reglugerð sem heimilaði veiðar með flotvörpu tók gildi. Fullir bjartsýni Í samtali við heimasíðu Síldar- vinnslunnar segir Þorkell Pétursson, skipstjóri á Bjarna Ólafssyni, að fyrsti túr á loðnuvertíð feli ávallt í sér tímamót auk þess sem þetta hafi verið hans fyrsta veiðiferð í skip- stjórastóli á loðnuveiðum. Þorkell segir þar að nánast öll veiðin eigi sér stað yfir daginn og stærsta holið þeirra hafi verið rúm- lega 400 tonn. Stærð loðnunnar er misjöfn eftir holum, frá 36 og upp í 48 stykki í kílóinu. „Menn eru fullir bjartsýni hvað varðar vertíðina og vonandi fer loðnan brátt í hefðbund- ið göngumynstur,“ sagði Þorkell. Tvö uppsjávarskipanna voru í gær á síld vestur af Reykjanesi og tvö þeirra voru á kolmunna austur af Færeyjum. aij@mbl.is Fyrstu farmarnir á loðnuvertíðinni - Fimmtán skip að veiðum norður af Melrakkasléttu Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Víkingur AK Á loðnuveiðum með nót undan Suðurlandi síðasta vetur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.