Morgunblaðið - 07.12.2021, Page 10

Morgunblaðið - 07.12.2021, Page 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2021 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við gerðum þetta mjög svipað í Breiðholtinu í fyrra, kynntum vinnu- hugmyndir og fengum að heyra álit hjá íbúum. Við höfum góða reynslu af þessari aðferð,“ segir Ævar Harð- arson, deildarstjóri Hverfis- skipulags Reykjavíkur. Nú er opið fyrir netsamráð á vef Reykjavíkurborgar þar sem áhuga- sömum gefst tækifæri til að segja skoðun sína á vinnutillögum fyrir hverfisskipulag Háaleitis-Bústaða. Opið er fyrir netsamráðið til og með 15. desember. Einnig er hægt að senda inn athugasemdir á netfangið skipulag@reykjavik.is. Eins og kom fram í Morgun- blaðinu í gær eru skiptar skoðanir um áform um þéttingu byggðar við Bústaðaveg. Íbúasamtök Bústaða- og Fossvogshverfis hafa boðað til íbúafundar á miðvikudagskvöld í Réttarholtsskóla og boðið þangað Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og Eyþóri Arnalds, oddvita sjálf- stæðismanna í borgarstjórn. Áformin fela í sér að 17 nýjar byggingar verði byggðar beggja vegna Bústaðavegar í námunda við verslunarmiðstöðina Grímsbæ. Um 130-150 íbúðir geti verið í þessum byggingum á efri hæð og atvinnu- starfsemi og þjónusta á götuhæð. Sökum landhalla sé unnt að hafa bílakjallara undir byggingunum. Bílastæðum á svæðinu geti því fjölg- að úr 400 í að minnsta kosti 500, samkvæmt kynningu á áformunum. Haft er eftir Gísla Kr. Björnssyni, formanni íbúasamtakanna, í Morg- unblaðinu í gær að íbúar skiptist í tvennt í afstöðu sinni. Sumir hafi lýst ánægju með áformin en aðrir leggist gegn því að Bústaðavegur verði þrengdur enda muni umferð aukast með fleiri íbúum á svæðinu. Að því er fram kemur í hverf- isskipulagi á Bústaðavegur áfram að vera ein akrein í hvora átt. Áður hafa verið kynnt áform um að lækka hámarkshraða við götuna í 40 kíló- metra á klukkustund. Samhliða tillögunum um Bústaða- veg eru kynntar tillögur um stór- tæka uppbyggingu við Miklubraut, sitt hvorum megin við gatnamótin við Háaleitisbraut. Ævar segir í samtali við Morgun- blaðið að opnað hafi verið fyrir net- samráð fyrir bæði Bústaðaveg og Miklubraut á miðvikudaginn í síð- ustu viku og þegar hafi nokkur hundruð manns tekið þátt. „Við fögnum því að fólk taki þátt og von- um að fleiri geri það á næstu dögum. Við munum væntanlega byrja á því að gera grein fyrir þátttökunni í samráðinu og förum svo að vinna úr athugasemdunum á nýju ári,“ segir hann en samráðsferlið er með þeim hætti að hægt er að lýsa annaðhvort ánægju eða óánægju með áformin og gera athugasemdir við einstaka byggingar eða svæði. Af umræðum í íbúahópi hverfisins á Facebook má ráða að tölvumyndir úr kynningu hafa stuðað marga. Þar sést fyrirhugað byggingarmagn vel. „Þetta kemur auðvitað ekki til með að líta svona út, þetta eru skannaðar drónamyndir sem kassalíkön voru sett inn á. Það var ekki verið að fegra þetta neitt, bara að sýna hvernig þetta gæti legið og hvort pláss sé fyrir þessi hús,“ segir Ævar. Áform um allt að 150 nýjar íbúðir - Skiptar skoðanir um þéttingu byggðar við Bústaðaveg - Hundruð umsagna í samráði - Íbúa- fundur á miðvikudagskvöld - Umferð áfram um eina akrein í hvora átt en hámarkshraði lækkaður Vesturátt Tölvugerð mynd sýnir byggingarmagn. Grímsbær vinstra megin. Austurátt Þarna sést glitta í Grímsbæ hægra megin á milli nýju húsanna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bústaðavegur Horft í vesturátt og Grímsbær sést til vinstri. Fjórar byggingar eiga að rísa á þessum reit og aðrar fjórar hinum megin við götuna. Níu til viðbótar rísa svo handan Grímsbæjar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.