Morgunblaðið - 07.12.2021, Page 12
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugumferð Farþegafjöldi á vettvangi Icelandair hefur aukist um 50% milli ára.
um ríflega 8%. Á síðustu 3 mánuðum
nemur hækkunin hins vegar 20,83%.
Bréf Play hækkuðu um tæp 2,2% í
viðskiptum gærdagsins og eru þau að
rétta nokkuð úr kútnum eftir slakt
gengi síðustu vikur. Nemur lækkunin
síðastliðna viku 2% og standa bréfin
nú í 23,5 og er markaðsvirði félagsins
16,5 milljarðar.
Í nýjum farþegatölum Icelandair
kemur fram að 1,3 milljónir viðskipta-
vina hafi tekið sér far með félaginu
það sem af er ári og hefur þeim fjölg-
að um 50% milli ára. Í nóvembermán-
uði voru þeir 151 þúsund í millilanda-
flugi en voru í nóvembermánuði
tæplega 7 þúsund. Þá er nýtingarhlut-
fall í vélum félagsins mun skaplegra
en í fyrra eða 71% samanborið við
33,9% í nóvember í fyrra. Innanlands-
flugið hefur einnig tekið vel við sér
hjá Icelandair og voru farþegarnir 19
þúsund í nóvember samanborið við
tæplega 6 þúsund í sama mánuði
fyrra árs.
« Flugfélögin tvö, Icelandair Group
og Play, hlutu nokkurn meðbyr í upp-
hafi vikunnar og hækkuðu bréf fyrr-
nefnda félagsins á aðallista Kauphall-
arinnar um 3,9% í viðskiptum
gærdagsins. Stendur gengi bréfa þess
nú í 1,74 og er markaðsvirði þess nú
tæpir 62,7 milljarðar króna. Síðast-
liðna viku hafa bréf félagsins hækkað
Flugfélögin fá nokkurn meðbyr í Kauphöllinni
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2021
Höfðabakka 9, 110 Rvk | run.is
• Verslun Guðsteins Eyjólfssonar
– Laugavegi 34 og Ármúli 11
• Hagkaup – Reykjavík, Garðabær
og Akureyri
• Fjarðarkaup – Hafnarfirði
• Herrahúsið – Ármúli 27
• Karlmenn – Laugavegi 87
• Vinnufatabúðin – Laugavegi 76
• JMJ – Akureyri
• Bjarg – Akranesi
• Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstangi
• Skóbúð Húsavíkur
• Efnalaug Suðurlands – Selfossi
• Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki
• Verslun Haraldar Júlíussonar – Sauðárkróki
• Efnalaug Vopnafjarðar
• Sigló Sport – Siglufirði
• Blossi – Grundarfirði
• Verslun Bjarna Eiríkssonar – Bolungarvík
• Verslun Grétars Þórarinssonar – Vestmannaeyjum
• Sentrum – Egilsstöðum
• Kram – Stykkishólmi
• Fok – Borgarnesi
• Versl. Kristall – Neskaupsstað
• Verzl. Axel Ó. Vestmanneyjum
Útsölustaðir:
Tilvalin
jólagjöf
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Pítsukeðjan Pizzan, næststærsta
flatbökukeðja á landinu, hefur lok-
að veitingastað sínum á Reykjavík-
urvegi í Hafnarfirði.
Ólafur Friðrik Ólafsson, eigandi
Pizzunnar, segir í samtali við
Morgunblaðið að lengi hafi staðið
til að loka staðnum. Hann hafi ver-
ið orðinn gamall og lúinn, auk þess
sem búðin hafi verið lítil og óhent-
ug.
„Eftir að við opnuðum nýjan
veitingastað Pizzunnar við Litlatún
í Garðabæ í fyrra var engin skyn-
semi í að vera með stað jafn stutt í
burtu og Pizzan á Reykjavíkurvegi
var,“ segir Ólafur og bætir við að
það hafi alltaf verið stefnan að
komast aftur í Garðabæinn.
Létu Covid ekki stoppa sig
Fyrsti veitingastaður Pizzunnar
var einmitt opnaður í Smiðsbúð í
Garðabænum árið 1998, en honum
var síðar lokað. „Nýi staðurinn í
Garðabænum hefur gengið vel,“
segir Ólafur
Hann segir að salan hafi almennt
gengið vel hjá Pizzunni í ár. „Fólk
hefur ekki látið Covid stoppa sig í
að fá sér pítsu.“
Eftir lokunina á Reykjavíkurvegi
rekur Pizzan átta veitingastaði.
Þeir eru auk staðarins í Garðabæ
við Strandgötu í Hafnarfirði, í Nú-
palind í Kópavogi, í Hverafold, við
Hringbraut, í Fellsmúla og í Lóu-
hólum í Reykjavík, ásamt Pizzunni
á Glerártorgi á Akureyri.
Vegan-nýjungar á leiðinni
Spurður um hvort von sé á ein-
hverjum nýjungum hjá Pizzunni
segir Ólafur að fyrirtækið hafi lagt
mikla áherslu á vegan-vöruþróun
upp á síðkastið. „Við erum komin
með nýjan veganost sem er ótrú-
lega líkur venjulegum osti á bragð-
ið. Einnig notum við vegan-peppe-
róní frá Happyroni. Við erum að
vinna með þeim í að setja nýja veg-
an-vörulínu af stað í veganúar í jan-
úar nk. Við tökum veganúar af
krafti og höfum þróað mjög góðar
vegan-pítsusamsetningar.“
Ketópítsa Pizzunnar hefur einnig
notið vinsælda. „Við höfum lagt
okkur fram um að vera með fjöl-
breytilegt vöruúrval fyrir við-
skiptavini, til að mæta ólíkum þörf-
um og vera í takti við tímann.“
Tekjurnar nærri tvöfölduðust
Í ársreikningi Pizzunnar fyrir
síðasta ár segir að áhrif af völdum
Covid hafi verið óveruleg. Þar kem-
ur einnig fram að fjörutíu og átta
hafi starfað að meðaltali hjá félag-
inu á árinu 2020. Tekjurnar nærri
tvöfölduðust milli ára og voru rúm-
ur milljarður króna samanborið við
tæplega sex hundruð milljónir árið
á undan. Tap félagsins á síðasta ári
nam 84 milljónum króna og jókst
um 22 milljónir milli ára, en tapið
var 62 milljónir árið á undan.
Eignir Pizzunnar námu 196
milljónum króna í lok síðasta árs og
jukust um 51% á milli ára en þær
voru 130 milljónir króna árið á und-
an. Eigið fé Pizzunnar var neikvætt
um 261 milljón króna í lok síðasta
árs en árið á undan var eigið féð
neikvætt um 174 milljónir.
Lætur Covid
ekki stoppa sig
Morgunblaðið/Eggert
Matur Búið er að loka Pizzunni á Reykjavíkurvegi og hylja alla glugga.
- Pizzunni lokað á Reykjavíkurvegi - Mikil tekjuaukning
Pítsumarkaður
» Eldsmiðjunni lokað.
» Domino’s stærsta keðjan
með 23 staði.
» Pizzan næststærst með 8.
» Næst koma Flatey, Sbarro,
Blackbox, Spaðinn, Castello og
Pizza Hut og Flatbakan.
» 5 milljónir pítsa seljast á ári.
Laugaveg 114-116 við Hlemmtorg
en eins og rakið hefur verið í Morg-
unblaðinu gæti þar rúmast fjöldi
íbúða. Tryggingastofnun var lengi
með aðsetur á Laugavegi 114.
Í fjórða lagi að selja lögreglu-
stöðina á Hverfisgötu 113-115 en þar
er m.a. mikið rými á baklóð.
Í fimmta lagi hús félagsmálaráðu-
neytisins í Skógarhlíð 6 en þar er
líka mikið rými til að þétta byggð.
Í sjötta lagi að selja hús Ríkis-
skattstjóra á Laugavegi 162-166 en
embættið mun flytja á Höfðatorg.
Í sjöunda lagi að selja Tollhúsið
við Tryggvagötu 19 í Reykjavík en
hugmyndir eru um að flytja Lista-
háskóla Íslands í bygginguna.
Skólahúsið selt
Í áttunda lagi að selja fasteignir í
eigu ríkisins við Stakkahlíð í Reykja-
vík en hugmyndir eru um að flytja
Kennaraháskóla Íslands. Á þeirri
lóð er svigrúm til að þétta byggð.
Einnig má nefna heimild til að
selja Austurstræti 19 í Reykjavík og
Vesturvör 2 í Kópavogi og finna
annað húsnæði fyrir Héraðsdóm
Reykjavíkur og Landsrétt.
Má í þessu efni rifja upp að ríkið
áformar mikla uppbyggingu á svo-
nefndum stjórnarráðsreit.
Af öðrum heimildum til eignasölu
má nefna Ármúla 1 en endurnýja á
Múlana á næstu árum.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi
verður fjármála- og efnahags-
ráðherra heimilt að selja margar
áberandi fasteignir í Reykjavík sem
gæti í senn skilað ríkissjóði millj-
örðum og leitt til þess að atvinnu-
húsnæði víki fyrir hundruðum íbúða.
Í fyrsta lagi er veitt heimild til að
selja húseignir við Guðrúnartún 6 og
Borgartún 5 og 7 í Reykjavík en
Vegagerðin var þar með aðsetur.
Reiturinn, Guðrúnartún, er norður
af Höfðatorgi og þar hefur borgin
boðað uppbyggingu 200 íbúða.
Reitur við Ánanaust
Í öðru lagi fyrrverandi fasteign
Landhelgisgæslunnar við Seljaveg
32 í Reykjavík, og lóð, en þar ráðger-
ir borgin 75 íbúðir við Ánanaust.
Í þriðja lagi Rauðarárstíg 10 og
Áforma sölu áberandi
eigna í miðborginni
- Heimildir til mikillar eignasölu í fjárlagafrumvarpinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tollhúsið Selja á bygginguna.
7. desember 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.84
Sterlingspund 172.37
Kanadadalur 101.31
Dönsk króna 19.714
Norsk króna 14.25
Sænsk króna 14.207
Svissn. franki 141.14
Japanskt jen 1.1456
SDR 181.51
Evra 146.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.7837
STUTT