Morgunblaðið - 07.12.2021, Page 13

Morgunblaðið - 07.12.2021, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2021 110 Ve Pútín forseti Rússlands hélt til Ind- lands í gær til viðræðna við Modi, forsætisráðherra landsins, og aðra ráðamenn. Með í förinni er Igor Sechin, forstjóri olíurisans Rosneft, en til stendur að ræða hernaðarmál- efni og orkumál. Pútín hefur aðeins farið í eina aðra utanlandsferð síðan kórónuveirufaraldurinn hófst og m.a. sleppt því að mæta á fund leið- toga iðnríkjanna. Ákvörðun hans um að halda til Indlands þykir sýna að hann telur mikilvægt að samskipti og viðskipti ríkjanna séu traust. Indverjar hafa lengi átt samstarf við Rússa og voru taldir í hópi bandamanna þeirra á árum kalda stríðsins. Stutt er síðan Indverjar hófu viðræður um öryggismála- samstarf við Bandaríkin, Japan og Ástralíu (QUAD) til að stemma stigu við vaxandi áhrifum og hernaðar- uppbyggingu Kínverja í Suðaustur- Asíu. Kínverjar og Indverjar eru svarnir fjandmenn en Rússar hafa jafnan verið samstarfsmenn Kín- verja. Lengst af hafa Rússar útvegað Indverjum hergögn í vopnabúr sitt. Indverjar eru nú að endurnýja loft- varnakerfi sitt og gerðu árið 2018 viðamikinn samning, sem metinn er á um fimm milljarða dollara, um þau mál við Rússa. Bandaríkjamenn eru mjög ósáttir við samninginn og hef- ur það skapað togstreitu á milli land- anna. Kaupin brjóta í bága við refsi- aðgerðir Bandaríkjanna gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Krím. Hafa ýmsir stjórnmálaskýr- endur lýst undrun á því að Indverjar skuli halda þessum viðskiptum til streitu. AFP Viðræður Pútín, leiðtogi Rússa, hittir indverska ráðamenn. Rússar treysta bönd við Indverja - Pútín hittir Modi í Nýju-Delí Aung San Suu Kyi, fyrrverandi leiðtogi Búrma, hefur verið dæmd í fjögurra ára fangelsi fyrir að hvetja til upp- reisnar gegn stjórnvöldum og fyrir brot gegn neyðarlögum um kórónuveirufaraldurinn. Suu Kyi, sem er 75 ára gömul og friðar- verðlaunahafi Nóbels, var ákaflega umdeild síðustu stjórnarár sín og steyptu herforingjar henni af stóli í febrúar á þessu ári. Síðan hefur hún verið í stofufangelsi. Fyrrver- andi forseti landsins, Win Myint, hlaut einnig fjögurra ára dóm fyrir sömu brot og henni voru gefin að sök. Samtökin Amnesty Inter- national hafa harðlega mótmælt dómunum og segja ákærurnar upp- spuna. Herinn sé með þessu að upp- ræta alla andstöðu í landinu og kæfa frelsi almennings. BÚRMA Aung San Suu Kyi í 4 ára fangelsi Aung San Suu Kyi Í gær gengu í gildi á Ítalíu reglur sem banna fólki sem ekki hefur verið bólusett gegn kórónuveirunni að koma í leik- hús, kvikmynda- hús, á tónlistar- viðburði og sækja íþróttaleiki. Aðeins þeir sem hafa nýlega náð heilsu eftir að hafa sýkst af veirunni eru undanþegnir banninu. Þá verða allir sem nota al- menningssamgöngur, lestir og strætisvagna, að sýna skilríki um að þeir séu ekki með veiruna. Hart er eftir þessu gengið og farþegar sem staðnir eru að því að fara um borð án vottorða eru sektaðir. Nýju reglurnar kveða einnig á um að fólk verði að ganga með andlits- grímur í stórverslunum og á götum. Um 135 þúsund Ítalir hafa látist af völdum veirunnar. ÍTALÍA Óbólusettum bann- aður aðgangur Grímur hvarvetna Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Vestanhafs er þess nú minnst að í dag eru 80 ár liðin frá leifturárás Japana á flotastöð bandaríska hers- ins, Pearl Harbor á Hawaii, 7. des- ember 1941, atburðinum, sem dró Bandaríkin fram á vígvöll síðari heimsstyrjaldarinnar og kostaði hátt í 3.000 mannslíf þótt árásin hefði að- eins staðið í um 90 mínútur. Dagskráin er margbrotin og hófst raunar 29. nóvember, en svo stiklað sé á mjög stóru má nefna að hópur 60 hermanna úr síðari heimsstyrjöld- inni, þar af 12 eldri en 100 ára, flaug á föstudag frá Fort Worth í Dallas til Hawaii þar sem kempurnar öldnu munu leyfa minningunum að streyma fram auk þess að votta löngu föllnum félögum virðingu sína. Þá býður ferðaskrifstofa Smithsoni- an-safnsins, Smithsonian Journeys, upp á sex daga ferð til söguslóðanna með stífri dagskrá fyrir tæpar 750.000 krónur á mann. Í kjölfar innrásar Japana í Kína árið 1937 og Franska-Indókína 1941 stöðvuðu Bandaríkjamenn alla olíu- sölu til Japana með það fyrir augum að spilla stórveldisdraumum þeirra á Kyrrahafi. Lögðu Japanar þá á ráð- in, undir stjórn Isoroku Yamamoto aðmíráls, um að gera herstyrk vest- urveldisins á Kyrrahafi að engu með vel útfærðri árás. Klífið Niitaka-fjall Varð sunnudagsmorgunninn 7. desember fyrir valinu, tími þegar fjöldi hermanna var í helgarleyfi og fæstir áttu sér ills von. Höfðu Jap- anar laumað flota sínum, rúmum 30 skipum með 432 flugvélar, nær vett- vangi frá miðjum nóvember, einu skipi í einu, og 2. desember bárust Chuichi Nagumo varaaðmírál dul- málsboðin Niitakayama nobore, klíf- ið Niitaka-fjall, fyrirskipun Japans- stjórnar um árás. Fengu ekki rönd við reist Atlaga japanska flotans, laust fyr- ir klukkan átta að morgni, kom Bandaríkjamönnum algjörlega í opna skjöldu og fengu þeir varla rönd við reist, enda mannfall Jap- ansmegin ekki nema 64 til móts við um 2.400 Bandaríkjamenn, en nærri lætur að helmingur þess fjölda hafi farist þegar orrustuskipið USS Ari- zona varð fyrir 410 millimetra skeyti japanskrar sprengjuflugvélar. Franklin D. Roosevelt Bandaríkja- forseti mælti í frægri ræðu á þinginu í Washington daginn eftir, að 7. des- ember 1941 kæmi til með að lifa með þjóðinni sem dagur vansæmdarinn- ar, „a date which will live in infamy“. „Dagur vansæmdarinnar“ - Árás Japana á Pearl Harbor 7. desember 1941 kostaði hátt í 3.000 mannslíf - Nagumo varaaðmíráll mundaði atgeir sinn eldsnemma sunnudagsmorguns Ljósmynd/Þjóðskjalasafn Bandaríkjanna Eldhaf USS Arizona í ljósum logum eftir 410 mm sprengikúlu Japana. Þýskir jafnaðarmenn (SPD) kynntu í gær í höfuðstöðvum sínum í Berlín ráðherra nýju ríkisstjórnarinnar sem þeir eru í forystu fyrir. Fremstur á myndinni er nýi kansl- arinn, Olaf Scholz, en aðrir ráð- herrar eru vinnumálaráðherrann Hubertus Heil, heilbrigðisráðherr- ann Karl Lauterbach, innanríkis- ráðherrann Nancy Faeser, varnar- málaráðherrann Christine Lamb- recht, mannvirkjaráðherrann Klara Geywitz og loks ráðherra þróunar og efnahagssamvinnu, Svenja Schulze. Með þeim á sviðinu eru nokkrir forystumenn flokksins. Samstarfsflokkar SPD í ríkisstjórn- inni eru Græningjar og Frjálsir demókratar (FDP) og fá þeir einnig lykilembætti í ríkisstjórninni, m.a. fjármál og utanríkismál. Ný ríkisstjórn undir forystu jafnaðarmanna tekur við í Þýskalandi Kynntu ráðherra stjórnarinnar AFP

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.