Morgunblaðið - 07.12.2021, Page 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2021
✝
Björn Steindór
Haraldsson
fæddist á Húsavík
27. september
1950. Hann lést á
líknardeild LSH 27.
nóvember 2021.
Foreldrar Björns
voru Haraldur
Björnsson málari, f.
22. ágúst 1910, d. 2.
mars 1996, og
María Aðalbjörns-
dóttir, f. 22. desember 1919, d. 7.
mars 2005.
Bræður Björns eru Birkir
Fanndal, f. 9. nóvember 1940,
Aðalbjörn, f. 26. janúar 1947, d.
6. október 1952, og Haraldur
Aðalbjörn, f. 16. júlí 1953.
Björn kvæntist hinn 27. jan-
úar 1984 Margréti Auði Páls-
dóttur, f. 27. janúar 1957. For-
eldrar hennar eru Páll Viggó
Jónsson, f. 8. desember 1932, og
Sigurrós Helga Jónsdóttir, f. 30.
október 1937.
Börn þeirra eru: 1) Haraldur
Orri, f. 26. júlí 1984, eiginkona
Sigríður Ósk Benediktsdóttir.
frá árinu 1975 til 2015 og var
forstöðumaður útibús félagsins
á Húsavík frá 1. desember 1979.
Björn var mikill skíðamaður,
var afreksmaður í þeirri íþrótt á
yngri árum og liðsmaður í skíða-
landsliðinu. Hann tók einnig
þátt í félagsmálum tengdum
íþróttinni, bæði í héraði og á
landsvísu, sat meðal annars um
tíma í stjórn Skíðasambands Ís-
lands. Hann var jafnframt einn
af frumkvöðlum í uppbyggingu
skíðastarfs á Húsavík. Björn var
einnig gönguskíðamaður, lét
drauma sína rætast og kláraði
skíðagöngu kennda við Vasa í
Svíþjóð og Marcialonga á Ítalíu.
Auk skíðaíþróttarinnar átti
hann mörg áhugamál og hugð-
arefni. Hann var mikill útivist-
armaður, spilaði golf á sínum
yngri árum og aflaði sér dóm-
araréttinda í þeirri íþróttagrein.
Síðar var það laxveiði. Björn var
félagi í Rótarýklúbbi Húsavíkur
um árabil.
Útför Björns fer fram frá
Lindakirkju í dag, 7. desember
2021, klukkan 13. Vegna fjölda-
takmarkana verða einungis nán-
ustu ástvinir viðstaddir.
Streymt verður frá athöfninni
á
https://www.lindakirkja.is/utfarir/
Einnig er tengill á:
https://www.mbl.is/andlat
Synir þeirra eru
Björn Steindór og
Benedikt Arnar.
Fyrir á Sigríður
soninn Steinþór
Örn. 2) Helga Bryn-
dís, f. 6. maí 1986,
hennar maður er
Henrý Örn Magn-
ússon. Börn þeirra
eru María Birta og
óskírður Henrýs-
son. Fyrir á Henrý
dótturina Sylvíu Lind.
Björn ólst upp á Húsavík. Eft-
ir gagnfræðapróf starfaði hann
við Landsbankann á Húsavík um
tíma. Hann fór suður til náms og
lauk stúdentsprófi frá Versl-
unarskóla Íslands vorið 1975 og
cand.oecon.-gráðu í viðskipta-
fræði frá Háskóla Íslands árið
1979. Hann hlaut löggildingu
sem endurskoðandi árið 1981.
Samhliða háskólanámi var
Björn í starfsnámi hjá endur-
skoðunarskrifstofu N. Manscher
& Co sem nú ber nafnið PwC og
varð hann síðar meðeigandi í því
félagi. Björn starfaði hjá PwC
Elsku besti pabbi minn hefur
kvatt okkur og þennan heim á
þeim árstíma sem er svo fallegur
með hvítum snjó og litirnir á
himninum svo mildir og fallegir.
Pabbi var skíðamaður inn að beini
og að því leyti var veturinn hans
tími.
Pabbi var ein mikilvægasta
manneskjan mín í þessari veröld.
Hann var ekki bara pabbi minn,
mín helsta fyrirmynd, sem kenndi
mér svo ótal margt og ól mig upp,
heldur ríkti einnig mikil vinátta á
milli okkar. Hann var alltaf til
staðar. Við töluðumst við á hverj-
um degi, jafnvel oft á dag. Það var
gaman að vera í kringum hann,
hann var umhyggjusamur, já-
kvæður og hvetjandi en umfram
allt var hann traustur, mildur og
hlýr. Í hans nærveru varð allt gott
og lítið mál.
Pabbi hafði alla tíð ríkan metn-
að fyrir okkar hönd og studdi okk-
ur í því sem við vorum að fást við
hverju sinni. Hann notaði lítið boð
og bönn heldur hvatti okkur frem-
ur til þess að nýta tímann vel í
núinu og leggja okkur fram í því
sem við tókum okkur fyrir hend-
ur. Gera það sem okkur langaði til
en samhliða því leggja inn fyrir
framtíðina, stórt og smátt. Setn-
ingar eins og „ef það er það sem
þig langar skaltu endilega gera
það, bara drífa í því“; „þú ferð létt
með það“ og „þú ættir að gera
meira af þessu“ voru yfirleitt svör-
in. Þegar maður er ungur finnst
manni oft að tíminn sé nægur til
að gera allskonar seinna, en lífið
er stutt og engin ástæða til að
bíða. Þessi orð hans og svo mörg
önnur munu fylgja mér út lífið.
Pabbi var íþróttamaður og
gerði það sem hann ætlaði sér og
það með glæsibrag. Hann var af-
reksmaður á skíðum og bjó yfir
miklu keppnisskapi, en um leið
var hann mjög hógvær. Hann var
metnaðargjarn og vann alla tíð
mikið. Engu að síður átti hann
alltaf tíma fyrir okkur og í frítíma
var hann duglegur að stunda með
okkur hvers kyns útivist.
Pabbi var mikill afi og barna-
börnin hans löðuðust að honum,
meðal annars vegna þess hve
hann sýndi þeim mikla hlýju, ein-
læga athygli og áhuga á því sem
þau voru að gera.
Ég á engin orð til þess að lýsa
því hvað tómleikinn og söknuður-
inn er mikill og hvað mér finnst
óbærilega erfitt að líf mitt sé nú án
pabba. Ég vildi svo innilega óska
þess að hann hefði fengið lengri
tíma með okkur og við með hon-
um. En ég reyni að einblína á að
þakka fyrir allan þann tíma sem
við fengum saman, allt það sem
hann gaf okkur og börnunum mín-
um. Allt sem hann kenndi mér.
Þakka fyrir hvað ég var heppin að
eiga svona dásamlegan pabba sem
reyndist mér svo vel, hvað við
gerðum ótal margt saman fram til
síðasta dags, skíði, göngur, hjól-
reiðar, tónleikar, bíltúrar og
spjall. Reyni að temja mér það
sem ég elskaði í fari hans. Kenna
börnunum mínum það sem hann
kenndi mér. Ég hugsa mér að
hann sé kominn á skíði á fallegan
stað, í brekkur sem eru fullar af
púðursnjó og sólin skín allan dag-
inn, eða norður upp á heiði á hjólið
fallegan sumardag, rennandi eftir
mjúkum moldargötum. Hann
sagði svo oft við mig; „Þetta verð-
ur allt í góðu lagi“.
Helga Bryndís Björnsdóttir.
Fallinn er frá kær frændi minn
Björn Steindór Haraldsson eftir
áralanga baráttu við ólæknandi
sjúkdóm. Við höfum þekkst frá því
ég fyrst man eftir mér og sam-
gangur var mikill milli fjölskyldna
okkar. Á árum bernskunnar leit
ég ávallt upp til frænda míns, á ég
dýrmætar minningar frá þeim
tíma. Á námsárum hans í Reykja-
vík áttum við einnig margar
ánægjulegar samverustundir.
Björn iðkaði skíði frá bernsku og
komst í fremstu röð íslenskra
skíðamanna. Varð hann Íslands-
meistari í svigi unglinga árið 1966.
Lífsförunaut sínum Margréti
Auði Pálsdóttur kynntist Björn á
endurskoðunarskrifstofu N.
Manscher í Reykjavík. Fluttu þau
til Húsavíkur þar sem Björn vann
alla sína starfsævi. Hann var vin-
sæll og vel metinn og vann hann
iðulega fram á kvöld jafnt virka
daga sem um helgar enda við-
skiptamannahópurinn stór. Þegar
börnin uxu úr grasi gat Magga
komið bónda sínum meira til að-
stoðar og síðustu starfsárin unnu
þau hlið við hlið enda leitun að
samrýndari hjónum. Björn ann-
aðist framtal fyrir tannlækna-
stofu undirritaðs í 35 ár. Ég varð
þess oft áskynja hversu vandaður
og heiðarlegur hann var í starfi
sínu. Þar var allt unnið sam-
kvæmt ýtrustu reglum. Verst
þótti mér að ekki kom til mála að
taka við greiðslu fyrir þessa vinnu
og þegar hann með semingi sein-
ustu árin féllst á að gera mér
reikning var hann langt undir
taxta. Bókhaldið fór norður í gam-
alli blárri ferðatösku og varð það
að hefð að ég laumaði koníaks-
flösku innan um möppurnar – það
var öll greiðslan.
Þegar tími gafst til frá vinnu
sinnti Björn áhugamálum sínum.
Á veturna skíði og til rjúpna gekk
hann hvern vetur og hafði yfirferð
meiri en flestir aðrir. Björn var
slyngur laxveiðimaður og bauð
hann frænda sínum oft með sér í
veiði. Eitt atvik er mér sérstak-
lega minnisstætt. Við vorum að
veiða Kistukvísl að austan. Björn
setur í lax á Flösinni sem tekur
fast í og strikar niður eftir, Björn
hleypur á eftir staðráðinn í því að
missa ekki feng sinn. Fer það svo
að Björn er kominn út í og laxinn
síður en svo að gefa sig, kallar
hann þá á mig að koma út í til sín.
Ég bregst við hart og gríp í hann
þar sem botninn þarna er grýttur
og straumur þungur og hraður.
Laxinn var ekki á því að gefa sig
og teymdi okkur sífellt lengra út í.
Björn var enn þrárri og fór það
svo að við óðum yfir alla kvíslina
og náðum að lokum að landa lax-
inum. Á bakkanum vestan megin
var Þórarinn Sigþórsson og fylgd-
ist grannt með. Það er lýsandi fyr-
ir Björn að í veiðibækur skráði
hann ævinlega aflann á Björn og
Jóhann þótt ég ætti þar stundum
enga hlutdeild. Þannig var Björn,
honum var þvert um geð að stæra
sig af eigin afrekum, kvartaði
aldrei, lét engan eiga inni hjá sér.
Hann var fastur á sínum skoðun-
um og gat á stundum verið þver.
Hann hélt vel utan um fjölskyldu
sína sem kveður nú góðan dreng.
Við Linda sendum ykkur okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Ég lýk þessu með orðum Þor-
steins Erlingssonar sem voru
Birni hugleikin:
Sá sem hræðist fjallið
og einatt aftur snýr
fær aldrei leyst þá gátu
hvað hinum megin býr.
Jóhann Gíslason.
Það er sárt að kveðja góðan vin.
Andlátsfregnin kom ekki alveg á
óvart, en þó fyrr en ég átti von á.
Við Björn kynntumst lítillega á
meðan við vorum við nám í Verzló,
en betur þegar hann kom til starfa
hjá N. Manscher & Co. (PwC ehf.)
haustið 1975, ári á eftir mér. Hann
hafði tekið ársfrí frá skóla, farið til
Ameríku og stundað æfingar og
skíðakennslu með fremsta skíða-
manni landsins á þeim tíma.
Björn var töluglöggur og með
reynslu eftir vinnu í Landsbank-
anum, þekkti atvinnulífið og var
fljótur að tileinka sér hugsun end-
urskoðandans. Hugur hans stefndi
alltaf til þess að búa á Húsavík og
skrifstofa var opnuð þar árið 1980.
Björn flutti norður og veitti henni
forstöðu frá upphafi og var þar við
störf er hann fékk réttindi löggilts
endurskoðanda 1982. Hann varð
skömmu síðar einn eigenda félags-
ins þegar við nokkrir endurskoð-
endur bættumst í hóp stofnenda
N. Manscher & Co.
Á námsárunum kynntist Björn
konu sinni Margréti Auði og það
var mikið gæfuspor. Hún fluttist
með honum til Húsavíkur og var
stoð hans og stytta á skrifstofunni.
Þau áttu fallegt og traust heimili
sem stóð okkur ætíð opið.
Hann var fljótur að láta verkin
tala og á örfáum árum hafði Björn
tekið að sér endurskoðun og reikn-
ingslega aðstoð fyrir fjölda fyrir-
tækja, stofnana og einstaklinga á
norðausturhorni Íslands. Hann
naut virðingar og trausts og
rekstraraðilar kunnu vel að meta
kunnáttu hans, vinnubrögð og
þjónustu.
Björn var mjög góður sam-
starfsmaður og bar hag félagsins
fyrir brjósti alla tíð. Í starfi gerði
hann miklar kröfur, mestar til sín,
en líka til annarra. Hann sinnti
rekstrinum vel, fyrstur að skrifa
út reikninga og skila gögnum um
mánaðamót og ýtti stundum
ákveðið við okkur meðeigendum
sínum. Björn og Margrét Auður
tóku líka virkan þátt í samskiptum
eigenda utan vinnutíma.
Verkefnin voru mörg og til að
mæta mestu álagstoppunum á
Húsavík fórum við starfsmenn frá
Reykjavík norður og unnum með
Birni. Þá var oft gaman og vinnu-
dagar langir. Björn var búinn að
skipuleggja og undirbúa verkefnin
vel og fyrir unga nema var lær-
dómsríkt að vinna undir hans
stjórn. Þegar þeir komu til baka úr
törn fékk ég oft stutt skilaboð í
tölvupósti; „þennan máttu senda
mér fljótt aftur“ eða „þessi þarf
ekki að koma á Húsavík oftar“ ef
einhver stóð ekki undir kröfum
hans. Þegar Björn lét af störfum
hjá PwC höfðum við unnið náið
saman í fjörutíu ár.
Björn var útivistarmaður og
dró fram skíðin þegar færi gafst.
Fór í skíðagöngu til að hreinsa
hugann og tók á síðari árum þátt í
frægum skíðagöngum erlendis.
Hann var líka flinkur veiðimaður,
átti fasta daga í Laxá í Aðaldal og
það var gaman að veiða með hon-
um.
Á síðustu árum hittumst við
gamlir samstarfsmenn reglulega í
spjalli yfir kaffibolla. Auðheyrt var
á Birni að tími hans með fjölskyld-
unni var honum afar dýrmætur.
Því miður varð hann of stuttur eft-
ir að veikindi sóttu á Björn og
skertu lífsgæðin.
Við Sjöfn sendum Margréti
Auði, Haraldi Orra, Helgu Bryn-
dísi og öðrum ástvinum innilegar
samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Björns St.
Haraldssonar.
Reynir Vignir.
Aftur hefur fækkað í hópnum
okkar gamla. Í fimm manna hópi
æskuvina á Húsavík erum við nú
þrír eftir – tveir hafa fallið frá allt
of snemma: Héddi, Héðinn Stef-
ánsson, 2017 og nú hefur Bjössi,
Björn Steindór Haraldsson, kvatt.
Hinn náni vinskapur okkar
fimmmenninga hófst um ferming-
araldur. Við vorum ólíkir um
margt en það sem sameinaði okk-
ur var hið alltumlykjandi áhuga-
mál okkar: Skíðin. Og markmiðið
var aðeins eitt: Að komast í
fremstu röð. Allt skyldi gert svo
það takmark næðist. Ekkert var
okkur ofvaxið. Togbrautarleysi í
Húsavíkurfjalli var okkar stærsti
fjötur um fót og í skammdeginu
skorti lýsingu í Melinn. Okkur var
ljóst að að þessu óbreyttu myndu
markmið okkar aldrei nást. Úr
þessari þörf yrði að bæta og eng-
inn myndi gera það fyrir okkur.
Að koma upp fullkominni skíða-
aðstöðu að kröfum þess tíma, alls-
lausir, varð fimmtán ára ungling-
um hollt manndómspróf. Sú
framkvæmd og hópeflið sem
fylgdi daglegri samveru í skólan-
um, þar sem fátt annað komst að í
frímínútum en skíðin, og skíða svo
saman í Skálamelnum fram á
kvöld, enn stífari æfingar í Stöll-
unum um helgar og allar keppn-
isferðirnar þess á milli mótaði
okkur og þjappaði þétt saman.
Steindórinn, eins og við kölluð-
um hann, varð fremstur meðal
jafningja á skíðunum. Gneistandi
keppnisskapið, hnífskörp einbeit-
ing, járnvilji og sjálfsagi sem litla
miskunn sýndi reið baggamuninn
og kom honum í fremstu röð
skíðamanna þjóðarinnar. Þegar
hann var bestur átti hann aðeins
jafnoka.
Björn var einnig skemmtilegur
félagi, vandaður, varfærinn, ná-
kvæmur, traustur, glaðvær og til í
öll uppátækin og galsann sem
ungdómsárunum fylgir.
Vetrarsvaðilfarirnar á mótin,
sem við sóttum í öllum veðrum inn
á Akureyri, suður, á Ísafjörð eða
Siglufjörð og að hitta jafnaldra
alls staðar að af landinu í slagnum
um sekúndubrotin í svigbrautun-
um eru ómetanlegir fjársjóðir
minninga sem við sækjum æ síðan
í er við hittumst.
En Björn hafði metnað til
menntunar og þá urðu skíðin að
víkja. Sama átti við um okkur hina
og þegar ævintýrum æskunnar
lauk og alvara fullorðinsára tók
við tvístraðist hópurinn.
En taug sú er mynduð var í
fjallinu forðum hefur haldið vel
þótt samskiptin yrðu stopulli og
samverustundir færri.
Björn lauk viðskiptafræðiprófi
af endurskoðunarsviði HÍ. Að því
loknu settust hann og eiginkona
hans, Margrét Auður Pálsdóttir,
vönduð heiðurskona, að á Húsa-
vík. Margréti kynntist Björn á
námsárunum í Reykjavík.
Björn stofnaði endurskoðunar-
skrifstofu á Húsavík og rak með
Margréti sér við hlið til starfsloka
– síðustu árin undir hatti Price-
waterhouseCoopers.
Börnin urðu tvö, Haraldur Orri
verkfræðingur og Helga Bryndís
lögfræðingur, og barnabörnin eru
fjögur.
Langri baráttu við illvígan
sjúkdóm er lokið.
Sterkur vilji til lífsins varð loks
að lúta fyrir hinu óumflýjanlega.
Við kveðjum félaga okkar með
djúpum söknuði og þökk og vott-
um Margréti, Haraldi Orra,
Helgu Bryndísi og barnabörnum
innilega samúð okkar.
Sigurjón Pálsson,
Þórhallur S. Bjarnason,
Bjarni Sveinsson.
Kær félagi okkar, Björn St.
Haraldsson, er fallinn frá. Við
samstarfsmenn hans og félagar
hjá PwC minnumst hans með mik-
illi hlýju. Björn starfaði á skrif-
stofu PwC á Húsavík í mörg ár og
sinnti þar verkefnum fyrir fjöl-
marga viðskiptavini félagsins. Það
var alltaf spennandi fyrir ungt
starfsfólk félagsins að fara í vinnu-
ferðir norður til Björns. Slíkar
vinnuferðir voru mjög lærdóms-
ríkar og gefandi. Á meðal undirrit-
aðra var farið í nokkur ár, jafnvel
nokkrar langar ferðir í hvert sinn.
Maður var sóttur hvort sem það
var á flugvellinum á Akureyri eða
Húsavík og keyrt á fullri ferð á
skrifstofuna á Húsavík. Ekki voru
nein grið gefin og vinna hafin
strax við mætingu. Það var mjög
ánægjulegt að vinna með Birni og
Margréti í hinum ýmsu verkefn-
um og lærdómsríkt. Lærdómur-
inn var ekki síst að bera virðingu
fyrir viðfangsefnunum og hags-
munum viðskiptavina. Stundum
var brugðið út af vananum og farið
á fundi með Oddfellow eða á
harmónikutónleika á kvöldin. Það
var alveg sérstaklega ánægjulegt
að eiga í þessu góða samstarfi og
vinskap með þeim heiðurshjónum
Birni og Margréti.
En ekki einungis stýrði Björn
starfsemi okkar á Húsavík. Fram-
lag hans til fyrirtækisins í heild
var mikið og mikils metið. Þegar
Björn talaði lögðu allir við hlustir
enda var hann heilsteyptur og
heiðarlegur í öllum sínum störf-
um.
Við samstarfsmenn Björns
þökkum honum kærlega fyrir
samstarfið í öll þessi ár og vottum
Margréti og fjölskyldu okkar inni-
legustu samúð. Samstarfsfélagar
hjá PwC,
Sighvatur Halldórsson,
Friðgeir Sigurðsson,
Vignir Rafn Gíslason.
Kynni okkar Björns hófust fyr-
ir hartnær 40 árum þegar við
Helga fluttumst til Húsavíkur.
Björn var þá störfum hlaðinn end-
urskoðandi en tók samt að sér
endurskoðun okkar fyrirtækis.
Gott var að koma á skrifstofuna til
þeirra hjóna en Magga vann með
honum alla tíð. Þau gáfu sér oft
tíma til að spjalla þótt mikið væri
að gera. Þá kom í ljós að við áttum
sameiginleg áhugamál, skíðin á
veturna og veiði á sumrin. Björn
var frábær skíðamaður og var í
fremstu röð á sínum yngri árum.
Hann hafði einnig veitt í Laxá í
Aðaldal frá unga aldri. Fljótlega
fórum við að veiða saman og síð-
ustu áratugina vorum við veiði-
félagar og veiddum saman á
stöng. Björn þekkti Laxá mjög vel
og ég lærði smám saman á
leyndardóma þessarar miklu elfu.
Ekki er hægt að hugsa sér betri
veiðifélaga, skemmtilegur og til-
litssamur en hörkuduglegur eins
og við allt sem hann tók sér fyrir
hendur. Við áttum frábærar
stundir saman við Laxá, hvort
sem veiddist vel eða minna, en þá
var oft hugað að fuglum og blóm-
um. Við fórum einnig saman í aðr-
ar ár á svæðinu eins og Selá og
Hafralónsá, en Björn hafði Hafra-
lónsá á leigu í nokkur ár.
Eftir að ég fluttist suður héld-
um við áfram að veiða saman og
vorum alltaf jafnspenntir þegar
líða tók að sumri. Björn og Magga
fluttu síðan suður fyrir nokkrum
árum. Við fórum fyrsta veturinn
nokkrum sinnum saman á skíði og
þá heyrði ég hann í fyrsta skipti
kvarta, var slæmur í baki. Næsta
sumar treysti hann sér ekki til að
koma í Laxá. Það var ólíkt honum
því viljasterkari og harðgerðari
manni hef ég ekki kynnst, enda
kom fljótt í ljós að hér var ekki við
neina venjulega bakveiki að eiga.
Ég fór samt einn norður og veiddi
í Laxá. Áhuginn var þó enn ódrep-
andi og ræddum við saman reglu-
lega um gang veiðinnar.
Samverustundirnar með Birni
voru mér mikils virði og mun ég
ætíð minnast hans meðan ég get
rennt fyrir fisk. Við Helga höfðum
hugsað okkur gott til glóðarinnar
að njóta samveru með þeim hjón-
um eftir að þau fluttu suður, en
samverustundirnar urðu of fáar
vegna veikinda Björns og covid 19.
Það var sárt að sjá hve fljótt heilsu
þessa góða og hrausta manns
hrakaði einmitt þegar þau Magga
ætluðu að fara að minnka vinnu og
njóta lífsins meira, en vinnutíminn
var oft mjög langur og fríin stutt
og fá þegar þau bjuggu á Húsavík.
Við Helga vottum Möggu og
fjölskyldunni okkar dýpstu sam-
úð.
Vigfús og Helga.
Björn Steindór
Haraldsson
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr
minningargreinum til birt-
ingar í öðrum miðlum nema
að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar