Morgunblaðið - 07.12.2021, Síða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2021
✝
Jón Hilmar
Björnsson
fæddist 13. apríl
1939. Hann and-
aðist á Landspít-
alanum við Hring-
braut 23. nóvember
2021.
Jón Hilmar ólst
upp á Breiðabliki á
Seltjarnarnesi og
voru foreldrar hans
hjónin Björn Jóns-
son yfirvélstjóri, f. 1904, d. 1975,
og Ingibjörg Stephensen, f.
1906, d. 1998. Bræður hans eru
Ólafur S., kvæntur Ingibjörgu
Ólafsdóttur, og Björn Ingi, sem
var kvæntur Öldu Bragadóttur,
f. 1944, d. 2018.
Jón Hilmar kvæntist fyrri
konu sinni Hjörnýju Friðriks-
dóttur árið 1961 og settust þau
að á Barðaströnd 33 á Seltjarn-
arnesi. Hjörný lést árið 1989.
Jón Hilmar lauk iðnnámi á
vélaverkstæði Björns og Hall-
Jónssyni. Börn þeirra eru eru
Kristín Alma, Vilborg Unnur,
Sigríður Soffía, Ingibjörg Elín,
Eyjólfur og Tristan Þór. 2) Ósk-
ar Ásgeir Óskarsson, kvæntur
Lilju Sigurgeirsdóttur. Börn
þeirra eru Hilmar Björn, Óskar
Már, Arnór Alex og Alexander
Aron. 3) Guðmundur Óskarsson,
kvæntur Kristínu Þorleifs-
dóttur. Börn þeirra eru Auður
og Björg. Langafabörnin eru
þrjú.
Jón Hilmar gekk í Kiwanis-
klúbbinn Nes 2. febrúar 1972,
sem sameinaðist Kiwanis-
klúbbnum Heklu haustið 2006.
Hann gegndi ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir klúbbana.
Hann var einnig í Oddfellow-
stúkunni Þórsteini nr. 5 frá 1977
til 1992 þar sem hann gegndi
einnig ýmsum trúnaðarstörfum.
Jón Hilmar var svo félagi í
Orkusenatinu, félagi orku-
manna af eldri kynslóðinni, frá
2009 og til dánardags.
Útför Jóns Hilmars verður
gerð frá Seltjarnarneskirkju í
dag, 7. desember 2021, og hefst
athöfnin klukkan 13. Þeir sem
ætla sér að vera við útförina eru
beðnir að fara í hraðpróf fyrir
komu.
dórs hf. í Reykjavík
1960, vélstjóranámi
í Vélskólanum árið
1962 og rafmagns-
deild 1963. Hann
starfaði hjá véla-
verkstæði Björns
og Halldórs hf. frá
árinu 1963 til 1965
og síðan sem vél-
stjóri hjá Haf-
skipum hf. til ársins
1971. Jón Hilmar
hóf störf sem hitaveitustjóri á
Seltjarnarnesi árið 1971 sem
var formlega tekin í notkun í
desember 1972. Var hann í því
starfi til starfsloka 2009, starfi
sem hann hafði mikla ánægju af.
Jón Hilmar kvæntist Kristínu
Unni Ásgeirsdóttur árið 1991 og
bjuggu þau á Sævargörðum 1 á
Seltjarnarnesi og síðar Kirkju-
braut 12. Kristín Unnur á þrjú
börn sem Jón Hilmar tók sem
sínum eigin. 1) Soffía Ásgeirs
Óskarsdóttir, gift Sigurjóni
Þá er komið að kveðjustund hjá
okkur. Sorgin er þung en það er
vegna þess að þú varst dásamleg-
ur pabbi og hafðir svo mikil og góð
áhrif á líf mitt og fjölskyldunnar.
Ég lærði svo mikið af þér. Það
stóð aldrei á leiðsögn þegar ég
kom til þín eða þurfti á þér að
halda, en mest lærði ég af þér sem
fyrirmynd. Fyrirmynd með góð
og skýr gildi.
Þú kenndir mér heiðarleika, að
vera maður orða minna, standa
við gefin loforð og hjálpsemi. Ef
einhver þurfti aðstoð þá varstu til
staðar. Mér fannst alltaf aðdáun-
arvert hvernig þú öðlaðist virð-
ingu fólks gegnum yfirvegun og
hjálpsemi. Ég fann það svo sterkt
strax sem ungur drengur og þú
hjálpaðir mér að fá sumarvinnu
hjá bænum. Þá upplifði ég hlut-
verk þitt sem hitaveitustjóri og
hvernig þú notaðir þessa kosti til
að vinna með fólki. Þú hafðir alltaf
svo jákvæð áhrif á fólkið í kring-
um þig.
Hjá þér lærði ég líka samvisku-
semi og stundvísi. Stundvísi þegar
kemur að því að láta ekki bíða eftir
sér, en líka annars konar stundvísi
eins og að greiða skuldir sínar,
vinna verkefni sem maður lofar og
ganga í verkin.
Þú varst yndislegur afi og
stelpurnar sakna þín mikið. Þær
eru sorgmæddar að þú sért farinn
en við minnumst þín saman og
allra góðu stundanna. Þær upplifa
núna þessi sterku og góðu gildi
gegnum mig og ég vona að ég geti
verið eins góð fyrirmynd fyrir þær
eins og þú varst fyrir mig.
Mér þótti alltaf vænt um það
hvað þú og Kristín náðuð vel sam-
an. Þú varst góður tengdapabbi og
hún hefur oft sagt mér frá sam-
ræðunum ykkar. Mér fannst líka
gaman hvernig þið hjálpuðust að
þegar þú vildir koma mömmu á
óvart með því að kaupa blóm
handa henni, skrifa henni kort eða
finna handa henni réttu gjafirnar.
Þú varst alltaf svo góður við
mömmu og henni leið svo vel með
þér. Það er líklega mikilvægasti
lærdómurinn sem þú veittir mér;
hvað þú hugsaðir vel um eigin-
konu þína, varst besti vinur henn-
ar, gafst henni reglulega blóm og
sýndir henni ást þína og um-
hyggju í orði og verki.
Takk fyrir alla hjálpina og
stuðninginn sem þú veittir mér, ég
er þér þakklátur fyrir allt sem þú
hefur veitt okkur. Takk fyrir að
vera traustur og góður pabbi.
Hvíl í friði. Ég elska þig.
Guðmundur (Gummi).
Að missa sinn besta vin og ein-
stakalega ljúfan föður í einni svip-
an er hörð og sár tilfinning. Það
voru afskaplega stuttar en erfiðar
stundir þegar við sátum hjá hon-
um Minna okkar á hjartadeildinni,
en hann var hresslegur í síma
tveimur dögum áður og gaf það
okkur von um hann héldi sínum
takti og kæmi aftur heim á
Kirkjubraut eftir stutta heimsókn
á spítalann.
Elsku Minni kvaddi okkur svo
snögglega en á rólegan og friðsæl-
an hátt, fyrir mér var það falleg
stund sem í sömu andrá var skelfi-
lega sár og erfið. Ég hef engin orð
yfir þakklætinu að fá að kveðja
hann þetta kvöld með nokkrum
orðum í samveru og hlýhug, það
er mér ómetanlegt.
Þegar ég færi hugann aftur og
rifja upp glaðlegar og innilegar
stundir sem bæði ég í einrúmi og
með fjölskyldunni allri höfum átt
með Minna, þá færist ósjálfrátt
bros og góðar tilfinningar hlýja
hjarta mitt. Hann hefur verið ná-
lægur og upplifað með mér flestar
mínar bestu stundir eins og komu
og uppvöxt allra strákanna minna,
hann leiddi mig og stóð við hlið
mér í brúðkaupi okkar Lilju,
ásamt óteljandi góðum gleði-
stundum sem við höfum átt sam-
an.
Við fjölskyldan höfum alltaf átt
miklar og góðar samverustundir
með mömmu og Minna, mikið og
oft borðað saman, setið í spjalli,
ferðast og fagnað ánægjulegum
stundum. Samgangurinn hefur
verið mikill og strákarnir elska að
fara á Kirkjubrautina til ömmu og
afa. Hjá þeim hefur alltaf verið
tekið á móti okkur með auðsýndri
gleði og væntumþykju, alltaf verið
opið hús fyrir alla hrúguna og
gistingar eins sjálfsagðar og hvert
annað.
Við finnum öll fyrir missi af afa
Minna og þegar erfiðar stundir
sækja á eitthvert okkar þá ræðum
við góðar stundir með afa og hvað
hann var góður og traustur fyrir
okkur öll, þannig færast erfiðar
stundir yfir í að vera góðar og
innilegar minningar.
Án þín verður skarð í lífi okkar
allra og það á eftir að taka tíma að
venjast því að geta ekki tekið utan
um þig og faðmað, átt vinalegar
stundir eða leitað til þín með ráð
og spjall.
Elsku Minni, þú hefur gefið
mér svo óskaplega mikið, ástin og
væntumþykjan sem þú hefur veitt
mér í gengum lífið er svo góð í
minningunni, þú hefur alltaf síðan
þið mamma rugluðuð saman reyt-
um verið mér sem faðir og komið
fram við mig sem þinn eigin son.
Þú kenndir mér mikið á lífið,
studdir mig og leiddir gegnum
ruglingslega tíma, ekki síst mína
erfiðustu kafla. Þú varst alltaf til
staðar fyrir mig og komst ævin-
lega fram við mig sem jafningja og
af virðingu. Þú ert í hjarta mínu
besti vinur og sársaukinn sem
fylgir ferðalagi þínu er mér svo
sár. Það er erfitt að sakna svona
mikið, en það gefur mér ró að
hugsa um þig á góðum stað. Við
pössum upp á mömmu fyrir þig,
við vitum hvað það er þér mikil-
vægt.
Farðu vel með þig og hvíldu í
friði elsku Minni.
Óskar Ásgeir Óskarsson.
Elsku hjartans Minni.
Það sem að við söknum þess að
hafa þig hjá okkur.
Minningarnar eru margar og
allskonar eins og gengur enda hef
ég þekkt Minna frá því að ég var
lítil stelpa.
Fjölskyldur okkar tengdust
vinaböndum þegar Minni og
mamma voru lítil og bjuggu í hús-
unum Fögrubrekku og Breiða-
bliki sem standa skáhallt hvort á
móti öðru á Seltjarnarnesinu.
Samgangur var mikill og vinskap-
urinn meiri. Mæðurnar Soffa og
Bíbí voru heima með börnin og
urðu góðar vinkonur og eins eru
bræður mömmu góðir vinir Minna
frá því að þeir voru litlir guttar og
til dagsins í dag. Fólkið á Breiða-
bliki er og hefur því alltaf verið
frændfólk í hugum okkar.
Ég kallaði Ingibjörgu, móður
Minna, alltaf ömmu Bíbí, hann
sjálfan frænda og Hjörnýju, fyrr-
verandi konu hans, frænku. Það
gerði ég einfaldlega af því að til-
finningin var góð.
M&M, eins og við köllum
mömmu og Minna gjarnan, urðu
par þegar ég var orðin 19 ára og
þau bæði orðin ein. Hann var ekk-
ill og mamma fráskilin. Þau höfðu
þá í gegnum sorgir sínar tengst og
orðið eitthvað annað og meira en
vinir.
Þegar mamma sagði mér þau
Minni væru orðin par varð ég nú
pínu undrandi en aðallega þurfti
ég að koma þessum nýju upplýs-
ingum öðruvísi fyrir í höfðinu á
mér. En svo fann ég létti. Létti yf-
ir því að mamma væri komin í
öruggt skjól og ætti núna allan
möguleika á því að verða ham-
ingjusöm. Eins var léttir yfir því
það að þetta væri hann Minni okk-
ar, sem við þekktum vel og vissum
hvaða mann hefði að geyma. Nú
varð amma Bíbí ennþá meiri
amma okkar og Steina frænka
orðin ennþá meiri frænka. Þetta
gat ekki verið betra og báðar fjöl-
skyldur afar lukkulegar með
þennan ráðahag.
Ekki er nú hægt að segja annað
en að hann Minni hafi tekið við
stórum pakka þegar að hann tók
okkur að sér. Konu, krakka, ung-
lingum, barnabarni og öllu öðru
sem okkur fylgdi. Það má segja að
við hefðum komið inn í líf hans
með látum en hann inn í okkar á
sinn hátt, hæglátur, yfirvegaður,
ljúfur og traustur.
Ég hef oft hugsað: þvílíkar og
aðrar eins breytingar á lífi eins
manns. Þetta var oft flókið, ég veit
það. Tilhugalífið og allir alltaf
með. Brúðkaupsferð og við öll
með. Það hlýtur að vera svolítið
sérstakt. En þannig var það og
M&M gerðu þetta vel.
Að lokum set ég hérna smá
kveðju sem ég sendi Minna fyrir
stuttu.
„Mig langar að segja þér hvað
ég er þakklát fyrir þig elsku
Minni. Takk fyrir að vera alltaf
svona traustur, ljúfur og góður við
okkur öll.
Það þarf ekki að búa til börn til
þess að vera góður faðir.
Þín Soffa.“
Takk fyrir þig og lífið elsku
Minni. Takk fyrir augnablikin þín.
Við pössum mömmu vel fyrir
þig.
Soffía Ásgeirs.
Að taka þá ákvörðun, sem full-
orðinn og skyni borinn maður, að
bera víurnar í einstaka móður
með nánast uppkomin og mótuð
börn, er ákvörðun sem hefur fjöl-
þættar afleiðingar sem greindar
eru af næmni, eigi ákvörðunin að
standa.
Eitt er að nálgast konu sem
jafningja og samræma lífsstefnu í
kyrrlátri stofu með góðum sófa við
ljósskímu kertaljóss. Annað að
nálgast börn hennar og unglinga,
sem telja sig hafa, og að mörgu
leyti hafa líf sitt nokkuð mótað og
ákveðið. Svo tengdabörn. Þá gildir
að temja sér aðlögun. Vera tilbú-
inn til að aðstoða og leiðbeina við
smíð á nýrri og stærri heimsmynd
sálna í mótun. Unnið traust af
þeirri gerð er smíði sem er byggð
á virðingu, góðsemi, taktvísi og
endurtekningu.
Að kynnast börnum og full-
orðnum við mótun nýrrar fjöl-
skyldueiningar er langhlaup, þar
sem uppskera getur verið sjáan-
leg að árum og áratugum liðnum,
sjaldnast í núinu, því í sálum
barna þeirrar einstöku konu sem
valin var gætir ávallt nokkurs
konar fyrirvara um það sem eitt
sinn og áður var. Fyrirvara sem
settur er í velgengni, en leystur er
upp í mótlæti þegar aðstoðar er
þörf.
Þá koma einnig til skjalanna
verkfæri nærgætni fyrir blæ-
brigðum skapeinkenna sem á
stundum er erfitt að glöggva sig á,
enda ekki blóðtengd og sameigin-
lega uppalin viðbrögð.
Áhrifin verða meiri á þau sem
yngri eru, en þau sem eldri eru
langar meira í áhrifin.
Eftir samveru og sambýli lær-
ast og jafnast væntingar og siðir.
Því góða úr eldri aðstæðum er
leyft að halda sér og er styrkt. Því
sem örðugra reyndist er leyft að
víkja og hverfa.
Með tímanum raungerist svo
alvissa og traust afabarna sem
með sínum léttu en einlægu faðm-
lögum, styrkja og staðfesta ómeð-
vitað að fjölskyldutengsl og sam-
vera eru hin raunverulegu
blóðtengsl. Þau, með sínum tæru
hjörtum, búa til safn minninga
sem á ævikvöldi er eina auðsafnið
sem telur til tekna.
Í þessu hefur þú, Jón Hilmar
Björnsson, Minni, tengdafaðir
minn frá því 2010, verið heillarík
fyrirmynd. Nú í dag, 7. desember
2021, fylgi ég efninu síðasta spöl-
inn með fjölskyldu okkar. Andi
þinn hélt í átt til morgunsólar
þann 23. nóvember 2021.
Ég er þakklátur fyrir þennan
tíma sem náðum saman og hvern-
ig þú tókst mér opnum örmum
þegar ég að þinni fyrirmynd hóf
samband við Soffíu mína og stjúp-
dóttur þína og við tengdumst fjöl-
skylduböndum.
Ég er þakklátur fyrir samtöl
okkar, þar sem við á stundum náð-
um tveggja manna tali. Þá rædd-
um við önnur málefni en í stærri
hóp. Um ferðalög annarra tíma.
Síðasta samtal okkar af þeim toga
var þann 7. nóvember síðastliðinn.
Yfir beinaberum lambahrygg,
kólnandi sósu, með koníak og kaffi
við hönd, rifjaðir þú upp ferðalag
til Havaí á annarri öld í framhaldi
af ferðasögum sem röktu götur
aftur til leiðangurs með móður yf-
ir brúarlausa Ölfusá. Þú þá fimm
ára gamall, meðan faðir sigldi
heimshöfin í stríði. Ferðasögur úr
auðsafni fyrir ævikvöld sem kom
áður en þú varðst tilbúinn í and-
anum. Við kvöddumst á þeim for-
sendum að næst skyldi drukkið úr
þínum skáp. Síðar.
Ferðasögur þínar verða ekki
fleiri. Mínar eru í mótun.
Sigurjón Jónsson.
Mjög góður vinur okkar til ára-
tuga hefur nú kvatt þessa jarðvist
eftir langa og harða baráttu við
sykursýki. Fyrstu kynni okkar af
Minna, eins og hann var gjarnan
kallaður af vinum og samferðar-
mönnum, hófst þegar hann og
Guðmundur gengu í Gagnfræða-
skólann við Hringbraut. Vináttan
var svo innsigluð þegar við fjöl-
skyldan fluttum í Fögrubrekku á
Seltjarnarnesi í desember 1954.
Fagrabrekka er staðsett gegnt
Breiðabliki við Lambastaðabraut
sem var uppeldisheimili Minna.
Upp frá þessu var samgangur
mikill og vinátta milli okkar,
mæðra okkar og fjölskyldna órjúf-
anleg alla tíð.
Eftir nám við Gagnfræðaskól-
ann lá leið Minna í Járnsmíða- og
véladeild í Verknámsskólanum við
Brautarholt þar sem hann útskrif-
aðist vorið 1955. Þá hóf hann störf
hjá Vélaverkstæði Björns og Hall-
dórs til að afla sér verkþekkingar
fyrir vélstjóranámið sem hann
stefndi að. Hann fór síðan til náms
í Vélskóla Íslands og útskrifaðist
þaðan með full réttindi sem vél-
stjóri 1962 og frá Rafmagnsdeild í
sama skóla árið 1963. Samhliða
náminu starfaði hann hjá Véla-
verkstæðinu í fullu starfi til ársins
1965. Það ár hóf hann störf hjá
Hafskip sem vélstjóri á skipum fé-
lagsins og starfaði þar til ársins
1971. Á þessum tíma var í gangi
lokaundirbúningur að stofnun
Hitaveitu Seltjarnarness og var
hann ráðinn hitaveitustjóri þar.
Hann tók starf sitt alvarlega og
sinnti því af miklum heilindum og
má segja að hann hafi ætíð verið á
vaktinni alla daga ársins, allt til
starfsloka árið 2009. Hann var alla
tíð vel liðinn, bæði hjá bæjaryfir-
völdum og íbúum Seltjarnarness,
enda ávallt tilbúinn að bregðast
jákvætt við öllum beiðnum og fyr-
irspurnum frá íbúunum.
Jón Hilmar var tvíkvæntur,
Jón Hilmar
Björnsson
SJÁ SÍÐU 22
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
hlýhug og samúð vegna andláts föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
EINARS PÁLMARS ELÍASSONAR,
húsasmíðameistara og iðnrekanda.
Fjölskyldan vill þakka öllum þeim sem
komið hafa að umönnun hans síðustu ár.
Bergsteinn Einarsson Hafdís Jóna Kristjánsdóttir
Örn Einarsson Steinunn Fjóla Sigurðardóttir
Sigrún Helga Einarsdóttir Sverrir Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ÁSA HJÁLMARSDÓTTIR
sjúkraliði,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn 9.
nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir ástúðlega
umönnun síðasta hálfa árið.
Sonja Garðarsdóttir Lúðvík S. Georgsson
Aðalbjörg Ragnarsdóttir
Konráð Ragnarsson
Ragnar C. Ragnarsson
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Alúðarþakkir færum við öllum er sýndu
okkur samúð og vinsemd við andlát og
jarðarför móður okkar,
BERGÞÓRU JÓNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
Hjúkrunarheimilisins Lögmannshlíðar.
Sigurður Jón Björnsson
Kristinn Björnsson
og fjölskyldur
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUNNAR AÐALSTEINSSON,
Baugakór 12, Kópavogi,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
sunnudaginn 5. desember.
Útför auglýst síðar.
Soffía Jóhanna Gestsdóttir
Emilía Maí Gunnarsdóttir Hrafnhildur Skúladóttir
Valgerður Dís Gunnarsdóttir Halldór Margeir Hönnuson
Sólrún Aspar
Baldur Blær Sara Jóhanna
Gunnar Skúli Sædís Hera
Anton Emil