Morgunblaðið - 07.12.2021, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2021
60 ÁRA Gunnar er Reykvíkingur, ólst upp í Sæviðar-
sundi, bjó lengi í Vesturbænum og er stuðningsmaður
KR, en býr nú á Arnarnesinu í Garðabæ. Hann er við-
skiptafræðingur frá HÍ og MBA frá Háskólanum í
Minnesota.
Gunnar er eigandi Atlantik ferðaskrifstofu. „Við erum
fyrst og fremst að skipuleggja ferðir fyrir erlenda ferða-
menn af skemmtiferðaskipum hér á landi. Erum einnig í
skipulagningu hvataferða og ráðstefna.“ Gunnar hefur
setið í stjórn Cruise Iceland frá upphafi.
Áhugamál Gunnars eru útivist og ferðalög. „Ég er líka í hrossarækt, höfum
verið að fá nokkra fyrstuverðlaunahesta, en þetta er frekar smátt í sniðum hjá
okkur. Fáum tvo til þrjá hesta á ári.“
FJÖLSKYLDA Gunnar er í sambúð með Hildi Jóhannsdóttur, f. 1969,
deildarstjóra í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Synir Gunnars eru Hjalti
Rafn, f. 1986, Gunnar Steinn, f. 1996, og Birgir Rafn, f. 2000. Barnabarn Gunn-
ars er Eydís Arna, f. 2019, dóttir Hjalta og Helgu Heiðdísar Sölvadóttur. For-
eldrar Gunnars eru Birgir Rafn Gunnarsson, f. 1937, fv. byggingameistari, og
Auður Hanna Finnbogadóttir, f. 1937, húsmóðir. Þau eru búsett í Reykjavík.
Gunnar Rafn Birgisson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Rannsóknir þínar leiða margt
ánægjulegt í ljós. Haltu þig við það sem þú
gerir best, það hefur meiri áhrif en að láta
truflast af einhverju sem þú gerir jafn vel
og aðrir.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú þarft að hafa það á hreinu að eng-
inn misskilji skilaboð þín því þá gætu afleið-
ingarnar orðið skelfilegar. Langt hádegishlé
er einmitt það sem þig vantar.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Vikan fram undan verður litrík í
lífi þínu. Ekki telja sjálfri/sjálfum þér trú um
að hlutirnir séu of góðir til að vera sannir.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú tekur eftir að einhver reynir
mikið að vera eins og þú. Lífið skánar til
muna þegar þú þekkir og virðir eigin tak-
mörk.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þótt skemmtileg tilbreyting geti falist
í nýjum kynnum skaltu ekki gleyma þeim
sem hafa staðið með þér í gegnum þykkt
og þunnt í áraraðir.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Vanalega ertu á undan áætlun, en
nokkrar óvæntar uppákomur geta breytt
því. Byrjaðu hvern dag á því að telja upp
fimm hluti sem þú getur verið þakklát/ur
fyrir.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það getur reynst nauðsynlegt þótt erf-
itt sé að aðskilja hug og hjarta í vissum
málum. Mundu að það skiptir meira máli
hvað þú hugsar en hverju þú klæðist.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Óvæntir atburðir eru eins og
köld vatnsgusa framan í þig. Talaðu við vini
og vandamenn, þú gætir notið góðs af ráð-
leggingum þeirra.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Hættu að tala stöðugt um hlut-
ina, gerðu eitthvað og byrjaðu á fram-
kvæmdum. Losaðu þig við skuldbindingar
sem þjóna þínum markmiðum ekki lengur.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Hlustaðu á eðlisávísun þína í
máli sem snertir þig og þína nánustu.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Snúðu ekki upp á þig þótt aðrir
nenni ekki að uppfylla óskir þínar. Haltu þig
við gömlu góðu gildin sem þú trúir á.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú skalt stefna að því að eiga nota-
lega stund með fjölskyldunni í kvöld.
Reyndu að gera sem mest úr þeim meðbyr
sem þú nýtur.
„Við konan mín eignuðumst þrjú
börn á stuttum tíma skömmu eftir
efnahagshrunið 2008. Það hefur því
farið mikill tími í barnauppeldi síð-
ustu árin en þau eru farin að vera
Á yngri árum var Snorri í félags-
störfum og sat meðal annars í stjórn
Orators og Heimdallar ásamt því
sem hann ritstýrði Stefni og heima-
síðu Heimdallar um skeið.
S
norri fæddist 7. desember
1981 í Reykjavík og hefur
búið alla sína ævi í Vest-
urbæ Reykjavíkur.
„Börnin mín eru fjórðu
kynslóðar Vesturbæingar. Amma
mín flutti ung í Vesturbæinn, pabbi
hefur alltaf búið í Vesturbænum og
það er eins með konuna mína. Frá
því að hófum búskap höfum við
skoðað eina íbúð í Hlíðunum, en það
kom varla til álita að gera tilboð í
hana.“
Snorri hóf skólagöngu sína í
Grandaskóla. „Ég var í einum af
fyrstu árgöngum Grandaskóla og
bjó fyrstu árin í næsta húsi við skól-
ann. Það heyrðist meira að segja í
skólabjöllunni í eldhúsinu heima.“
Þaðan fór Snorri í Tjarnarskóla og
lauk svo stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík. Hann lagði
stund á lögfræði í Háskóla Íslands
en tók einnig BA-próf í hagfræði
samhliða því. Hann útskrifaðist úr
báðum greinunum árið 2006. „Það
vildi svo skemmtilega til við útskrift-
ina að þessar deildir voru hvor á eft-
ir annarri, þannig að ég fór beint af
sviðinu og aftur í röðina til þess að
ná í annað prófskírteini.“
Fyrst eftir útskrift starfaði Snorri
hjá Samkeppniseftirlitinu. „Þar naut
ég þess að hafa tvær ólíkar gráður
en eftir nokkur ár þar hellti ég mér í
lögmennskuna.“ Hann hóf fyrst
störf hjá Logos árið 2012 en síðar
hjá Advel lögmönnum. Núna er
hann einn af eigendum hjá Arta lög-
mönnum sem hófu starfsemi fyrr á
þessu ári. Samkeppnisréttur er
helsta starfssvið Snorra.
„Samkeppnismál hafa auðvitað
fylgt mér frá því að ég var hjá Sam-
keppniseftirlitinu. Ég hef ekki losn-
að við þau mál en ég hef heldur ekki
hug á því, ég hef mjög gaman af
samkeppnisrétti. Ég hef aðeins
dundað mér við fræðistörf samhliða
lögmannsstörfunum og hafa komið
út eftir mig tvær greinar í ritrýnd-
um tímaritum og bókum, en þær
greinar voru einmitt um samkeppn-
ismál, nánar tiltekið um samruna.“
Önnur greinin birtist í Tímariti lög-
fræðinga en hin í afmælisriti til heið-
urs Jóni Steinari Gunnlaugssyni.“
nokkuð stálpuð. Við fjölskyldan höf-
um verið nokkuð dugleg að ferðast
með þau innanlands og utan.
Eftir því sem börnin hafa orðið
eldri og tími hefur gefist fyrir eitt-
Snorri Stefánsson lögmaður – 40 ára
Fjölskyldan Líf, Snorri, Hólmfríður Helga, Styrkár Flóki og Bríet Magnea í Hellulaug við Flókalund í júlí 2020.
Alla tíð búið í Vesturbænum
Systkinin og foreldrar Snorri, Ottó, Helga, Stefán, Guðrún og Gyða.
Afmælisbarnið Snorri að ganga
Síldarmannagötur.
Til hamingju með daginn
Akranes Eins árs afmæli á í dag Guð-
mundur Atlas Andrason, sem fæddist
á Sjúkrahúsinu á Akranesi 7. desem-
ber 2020 kl. 17.43. Hann vó 3.362 g og
var 50 cm langur. Foreldrar hans eru
Guðbjörg Rós Guðnadóttir og Andri
Guðmundsson.
Nýr borgari
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Heilsa
&útivist
–– Meira fyrir lesendur
Nú er tíminn til að
huga að betri heilsu
og bættum lífstíl.
Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim
möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem
stefna á heilsuátak og bættan lífsstíl.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir fimmtudaginn 23. desember.
fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 4. janúar
SÉRBLAÐ