Morgunblaðið - 07.12.2021, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2021
Kvennalið Breiðabliks í
knattspyrnu leikur lokaleiki sína
í riðlakeppni Meistaradeild-
arinnar í þessum mánuði. Liðið
hefur ekki riðið feitum hesti í
keppninni til þessa en Blikar eru
með 1 stig eftir fjóra leiki og
eiga ennþá eftir að skora mark.
Blikar fóru heldur betur vel
af stað í keppninni og gáfu stór-
liði París SG hörkuleik á Kópa-
vogsvelli hinn 6. október þar
sem liðið var í raun óheppið að
skora ekki. Þrátt fyrir hörkuleik
Blika lauk leiknum með 2:0-sigri
Frakklandsmeistaranna. Eftir
fyrsta leikinn hefur frammistaða
liðsins farið niður á við, svo við
segjum það bara eins og það er.
Tímabilinu á Íslandi lauk
hinn 1. október þegar Breiðablik
lagði Þrótt úr Reykjavík að velli
í úrslitaleik bikarkeppninnar á
Laugardalsvelli. Síðan þá hafa
Blikar spilað tvo keppnisleiki í
mánuði í Meistaradeildinni,
gegn liðum sem eru ennþá á
miðju tímabili að undanskildu
Kharkiv frá Úkraínu en leiktíð-
inni í Úkraínu lauk um miðjan
nóvember.
Á dögunum skilaði starfs-
hópur á vegum KSÍ frá sér til-
lögu þess efnis að lengja tíma-
bilið í úrvalsdeild kvenna frá og
með keppnistímabilinu 2023.
Það er mikilvægt að þessi til-
laga gangi í gegn á ársþingi KSÍ
í febrúar enda munu íslensk
kvennalið eiga tvo fulltrúa í Evr-
ópukeppnum næstu árin.
Það sjá það allir sem hafa
horft á leiki Blika í Meistara-
deildinni í ár að takturinn í lið-
inu er lítill sem enginn, sam-
anborið við fyrsta leik gegn
París SG, og því lífsnauðynlegt
fyrir kvennaboltann að lengja
tímabilið eins langt og kostur er
inn í haustið fyrir liðin sem
munu leika í riðlakeppni Meist-
aradeildarinnar í framtíðinni.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Gísli Þorgeir
Kristjánsson hef-
ur framlengt
samning sinn við
þýska hand-
knattleiksfélagið
Magdeburg til
ársins 2025.
Þetta tilkynnti
félagið á sam-
félagsmiðlum
sínum í gær.
Gísli, sem er 22 ára gamall, gekk
til liðs við Magdeburg frá Kiel í jan-
úar 2020 en hann missti af stórum
hluta síðasta tímabils vegna
meiðsla á öxl.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Gísli verið afar óheppinn með
meiðsli á sínum ferli en hann hefur
komið við sögu í tólf leikjum með
Magdeburg á tímabilinu og skorað í
þeim 24 mörk.
Magdeburg hefur farið á kostum
á tímabilinu til þessa en liðið er með
fullt hús stiga eða 26 stig á toppi
þýsku 1. deildarinnar eftir fyrstu
þrettán umferðirnar.
Gísli Þorgeir hefur verið fasta-
maður í íslenska landsliðshópnum
undanfarin ár, þegar hann hefur
verið heill heilsu, en hann er í 35
manna æfingahóp liðsins fyrir loka-
keppni EM 2022 sem fram fer í
Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar.
Gísli Þorgeir
framlengdi í
Magdeburg
Gísli Þorgeir
Kristjánsson
Milos Milojevic, fyrrverandi þjálfari
knattspyrnuliðanna Víkings úr
Reykjavík og Breiðabliks, er á ný
sterklega orðaður við starf þjálfara
norska félagsins Rosenborg. Í nóv-
ember bárust fyrst fréttir af því að
forráðamenn norska félagsins
hefðu áhuga á því að ráða Milos til
starfa. Nettavisen í Noregi greinir
frá því að Milos, sem er 39 ára, sé
tilbúinn til að taka við Rosenborg
en norska félagið eigi ennþá eftir
að ná samkomulagi við hans núver-
andi félag, Hammarby í Svíþjóð, um
vistaskiptin.
Frá Hammarby
til Rosenborgar?
Morgunblaðið/Eggert
Svíþjóð Milos Milojevic hefur stýrt
Hammarby frá því í júní 2021.
Rafa Benítez, knattspyrnustjóri
Everton í ensku úrvalsdeildinni, er
sagður vilja losna við landsliðs-
manninn fyrrverandi Grétar Rafn
Steinsson úr starfi yfirmanns leik-
mannakaupa hjá félaginu. Football
Insider greinir frá þessu. Grétar
hefur starfað hjá Everton frá árinu
2018 sem yfirnjósnari félagsins í
Evrópu og síðar sem yfirmaður
leikmannakaupa. Marcel Brands
var rekinn sem yfirmaður knatt-
spyrnumála hjá félaginu í gær en
Benítez er sagður vilja stýra öllum
leikmannakaupum Everton.
Sagður vilja
losna við Grétar
Morgunblaðið/Eggert
Everton Grétar Rafn hefur gegnt
starfinu frá því í október 2019.
KÖRFUBOLTI
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson,
landsliðsmaður í körfuknattleik, hef-
ur samið við hollenska félagið Land-
stede Hammers frá Zwolle og mun
leika með félaginu í sameiginlegri
úrvalsdeild Hollands og Belgíu út yf-
irstandandi tímabil. Þórir, sem er 23
ára gamall, hefur leikið afar vel með
uppeldisfélagi sínu KR á tímabilinu
en mun nú reyna fyrir sér í atvinnu-
mennsku í fyrsta skipti á ferlinum.
„Þetta leggst bara mjög vel í mig.
Þetta er eitthvað sem maður hefur
alltaf stefnt á að gera. Það kom upp
þetta spennandi tækifæri og ég taldi
að þetta væri eitthvað sem ég þyrfti
að gera,“ sagði Þórir í samtali við
Morgunblaðið.
Hann hélt utan í gærkvöldi og
gæti leikið sinn fyrsta leik strax ann-
að kvöld þegar Landstede mætir Ar-
is Leeuwarden í deildinni, að því
gefnu að hann standist læknis-
skoðun í dag og ekkert komi upp á á
fyrstu æfingunni. Ef fólk er full-
bólusett fyrir kórónuveirunni, líkt
og Þórir er, er ekki þörf á að fara í
sóttkví eða einangrun við komuna til
Hollands en mælst er til þess að fólk
taki sjálfspróf.
Þórir er þrátt fyrir ungan aldur
afar leikreyndur þar sem hann varð
til að mynda Íslandsmeistari með
KR árin 2015, 2016 og 2017 er hann
var enn táningur. Haustið 2017 fór
hann í háskóla í Bandaríkjunum og
lék þar með Nebraska Cornhuskers
um fjögurra ára skeið áður en hann
sneri aftur í Vesturbæinn síðastliðið
vor. Þórir sagði dvölina í Bandaríkj-
unum hafa gert sér gott.
„Ég myndi segja að ég hafi bætt
mig töluvert þar. Svo er líka þessi
klisja um að maður þroskist sem
manneskja. Ég fór ungur út og ég
held að það að klára háskólann á
fjórum árum í Bandaríkjunum hafi
búið mig sérstaklega undir það sem
ég er að fara í núna, að fara utan
einn.“
Sameiningin spennandi
Hollenska úrvalsdeildin tók þeim
breytingum fyrir yfirstandandi
tímabil að hún sameinaðist belgísku
úrvalsdeildinni. Sameiginlega deild-
in er þekkt sem BNXT-deildin. Fyr-
ir áramót spila liðin eftir gamla fyr-
irkomulaginu, þ.e. aðeins við lið frá
sömu löndum innbyrðis, en eftir ára-
mót fara í hönd gull- og silfurdeildir
þar sem lið beggja landa blandast.
„Þetta er fyrsta árið þar sem þeir
spila sameiginlega deild á milli Hol-
lands og Belgíu. Ég held að mark-
mið allra þessara liða í báðum þess-
um deildum sé að enda í efri hluta
þeirra til þess að fá inn í sameigin-
legri sterkri gulldeild eftir áramót.
Ég veit að það er klárlega mark-
miðið hjá Landstede. Ég mun gera
allt sem ég get gert til þess að hjálpa
liðinu að komast þangað. Það er
mjög spennandi að það sé búið að
sameina þessar deildir, að það sé
verið að efla körfuboltann á milli
þessara landa.“
Það er ekki heiglum hent að út-
skýra hvernig fyrirkomulagið á gull-
og silfurdeildunum verður eftir ára-
móti en Þórir var þó með það allt á
hreinu. „Öll liðin enda á að fara í ein-
hvers konar blöndu af löndunum
tveimur og það verða þá gulldeild og
silfurdeild. Svo er spiluð úrslita-
keppni út frá þeim. Þetta er svolítið
flókið en tvö efstu gull-liðin frá
hvoru landinu fara beint í undan-
úrslit, svo fara þrjú önnur lið úr gull-
deildinni í átta liða úrslitin og besta
liðið úr silfurdeildinni kemur síðan
líka inn í þau,“ útskýrði Þórir.
Fullt af leikjum
„Þetta er alla vega fullt af leikjum
sýnist mér og það er náttúrulega
það sem maður vill gera, það er að
spila leikina. Þannig að það er mjög
spennandi,“ bætti hann við. Spurður
nánar út í markmiðin á tímabilinu
sagði Þórir: „Ég held að það sé bara
að enda sem efst í deildinni og kom-
ast í þessa millilandagulldeild og
gera sitt besta í henni. Einhvers
konar Evrópukeppni út frá því er
svo alltaf markmiðið hjá liðinu tel
ég. Persónulega snúa markmið mín
að því að fá að fara út, spreyta mig
og sanna og byrja að spila.“
Einnig vonast hann til þess að
skiptin til Hollands komi til með að
hjálpa honum að fá enn stærra hlut-
verk með íslenska landsliðinu. „Já
auðvitað, ég vil spila sem mest þar
líka. Þetta er vonandi gott skref í átt
að því,“ sagði Þórir að lokum í sam-
tali við Morgunblaðið.
Spennandi tækifæri sem
ég taldi þörf á að grípa
- Þórir samdi við hollenskt lið - Reynir fyrir sér í atvinnumennsku í fyrsta sinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Holland Þórir Guðmundur Þorbjarnarson hefur leikið frábærlega með KR
á tímabilinu en er nú búinn að semja við hollenska liðið Landstede.
lenskt lið í haust. Hann gekk þá til
liðs við Hague Royals, nýja félagið
sem var stofnað árið 2020 og leikur
sitt annað tímabil í deildinni og nú í
fyrsta sinn í BNXT-deildinni, sam-
eiginlegri deild Hollands og Belgíu.
Þórir Guðmundur er því sjötti Ís-
lendingurinn sem spilar sem at-
vinnumaður með hollensku félagi.
Lið hans er sem stendur í sjötta
sæti Hollandsmegin en í góðri stöðu
til að ná fimmta sætinu sem þarf til
að komast í sameiginlegu deildina
eftir áramótin.
liðsmaður frá Grindavík fór líka til
Groningen um þetta leyti en var þó
ekki samherji Herberts þar. Hann
lék með liðinu tímabilið 1998-1999.
Hlynur Bæringsson, landsliðsfyr-
irliði um árabil og leikmaður
Stjörnunnar frá 2016, og Sigurður
Ágúst Þorvaldsson fóru saman til
Hollands og léku þar tímabilið
2005-2006 með Aris Leeuwarden.
Snorri Vignisson, fyrrverandi
leikmaður Breiðabliks, varð síðan
fimmti leikmaðurinn og sá fyrsti í
fimmtán ár til að semja við hol-
Fimm Íslendingar hafa leikið með
hollenskum körfuknattleiksliðum á
undan Þóri Guðmundi Þorbjörns-
syni sem nú er genginn til liðs við
Landstede Hammers frá borginni
Zwolle.
Herbert Arnarson landsliðs-
maður sem lengst af lék með ÍR,
spilaði þrjú tímabil sem atvinnu-
maður í lok tuttugustu aldarinnar.
Tvö þeirra lék hann með Donar
Groningen í Hollandi, 1996-97 og
aftur 1999-2000.
Helgi Jónas Guðfinnsson lands-
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Groningen Herbert Arnarson lék
tvö tímabil í Hollandi.
Herbert sá fyrsti sem lék í Hollandi