Morgunblaðið - 07.12.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 07.12.2021, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2021 Höfum opnað á Selfossi komdu og skoðaðu úrvalið í glæsilegum sýningarsal okkar GÆÐI ÞJÓNUSTA ÁBYRGÐ www.tengi.is Kópavogur – Smiðjuvegur 76 Akureyri – Baldursnes 6a Selfoss – Austurvegur 69 414 1000 414 1050 414 1040 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta eru fyrstu tónleikar mínir í Hafnarborg, en svo skemmtilega vill til að ég er nýflutt í Hafnarfjörðinn. Mér þykir afar vænt um hversu vel er tekið á móti mér,“ segir Hrafn- hildur Árnadóttir Hafstað sópran sem kemur fram á hádegistónleikum í Hafnarborg í dag, þriðjudag, kl. 12 ásamt Antoníu Hevesi píanóleikara sem verið hefur listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar frá upphafi. Tónleikarnir fara fram á efri hæð Hafnarborgar þar sem nú stendur yfir sýningin Lengi skal manninn reyna, sem er yfirlitssýning á verk- um eftir Þorvald Þorsteinsson. „Það er einstaklega gaman að syngja í þessum sal með þessari skemmti- legu sýningu,“ segir Hrafnhildur þegar blaðamaður náði tali af henni að lokinni æfingu í gærmorgun. Spurð um efnisskrá tónleika dags- ins segist Hrafnhildur munu syngja nokkrar aríur og eitt sönglag eftir Tosti. „Sönglagið er ítalskt og upp- fullt af ljóðrænum trega. Þetta er mjög þekkt lag sem er aðallega flutt af tenórum,“ segir Hrafnhildur kím- in. „Aríurnar eiga það allar sameig- inlegt að það er ákveðinn ævintýra- blær yfir þeim öllum. Ég syng tunglaríu Rúsölku úr samnefndri óperu eftir Dvorák,“ segir Hrafn- hildur og bendir á að sagan um Rú- sölku sé keimlík sögunni af litlu haf- meyjunni eftir H.C. Andersen. „Rúsalka er vatnadís sem verður ástfangin af prinsi og fórnar rödd sinni til að eiga möguleika á að gift- ast honum. Ég syng aríuna Vilja Lied úr Kátu ekkjunni eftir Lehár. Arían fjallar um skógardís sem tælir til sín karlmenn. Þriðja arían er „Klänge der Heimat“ úr Leðurblök- unni eftir Strauss þar sem Rosalinde er stödd á grímuballi og þykist vera frá Ungverjalandi.“ Spurð á hvaða tungumáli dagsins henni þyki best að syngja svarar Hrafnhildur um hæl að sér finnist þýskan þægilegust en tékkneskan snúnust. „Ég bý reyndar að því að fyrir nokkrum árum gafst mér tæki- færi til að vinna aríu Rúsölku með tékkneskum stjórnanda sem hjálp- aði mér bæði með framburðinn og músíkölsku nálgunina, sem gaf mér heilmikið sjálfstraust til að syngja þessa aríu.“ Þess má að lokum geta að aðgang- ur er ókeypis. Aðeins er pláss fyrir 50 gesti og ríkir grímuskylda. Miða þarf að bóka í síma 585-5790. Ljósmynd/Áslaug Íris Friðjónsdóttir Sönggleði Antonía og Hrafnhildur brugðu á leik innblásnar af sýningu Þorvaldar Þorsteinssonar í Hafnarborg. Ævintýrablær yfir aríum - Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað kemur fram með Antoníu Hevesi á hádegistónleikum í Hafnarborg í dag „Sextíu kíló af sólskini er lyga- söguglettið eldgos af óhemjandi frá- sagnargleði,“ segir í dómi Henriette Bacher Lind í Jyllands-Posten þar sem skáldsaga Hallgríms Helgason- ar fær fullt hús. Skáldsagan kom út í Danmörku í þýðingu Kims Lembek í byrjun mánaðar og hefur hlotið afar góðar viðtökur rýna. „Manni er brjálæðislega vel skemmt – kraumar af hlátri og fyllist hryllingi – frá upphafi til enda, þeg- ar alvitur sögumaður fer með mann inn í dimma og þrönga torfbæi, upp á dekk á vaggandi hákarlaskipi, nið- ur í slímuga síldarlest eða inn í fínt prestssetur,“ skrifar Lind og bendir á að þótt þroskasaga Gests sé í for- grunni sé „skáldsagan fjársjóðskista af litríkum persónum, sem á einn eða annan hátt endurspegla árekstur gamla og nýja heimsins.“ Segir hún að frá Hallgrími „streymir orðsnilld og myndlíkingar sem hitta í mark. Hann leikur sér með tungumálið, beygir það og teygir svo unun sé,“ skrifar Lind. Merete Reinholdt, rýnir hjá Berl- ingske, gefur bókinni fimm stjörnur af sex mögulegum. „Aðeins Íslendingur – og mögulega aðeins Ís- lendingurinn Hallgrímur Helgason – getur fléttað saman yfirgripsmikilli sögu þjóðar sinn- ar og minni sögu drengs í ólgandi ljóðræna sam- tímasögu með bæði húmor og músíkalítet og sérstakt form af harðsoðnum van- mætti sem gegn- umgangandi tóna,“ skrifar Reinholdt og hrósar litríku persónu- galleríinu og kraftmiklu tungumáli þessarar epísku frásagnar. Danski þýðandinn, Lembek, fær sérstakt hrós hjá Reinholdt fyrir afbragðs- þýðingar sínar á öllum nýyrðum Hallgríms. Erik Skyum-Nielsen, rýnir hjá Information sem notar ekki stjörnu- gjöf í dómum sínum, hrósar þýðand- anum Lembek sérstaklega fyrir það hversu vel húmorinn skili sér yfir Atlantshafið. Segir hann Hallgrím „sem sögumann búa yfir mælsku í umframmagni“ og grunar að höf- undur hafi valið „síldarævintýrið sem tækifæri til að skjóta Tívolí- flugeldum með orðum“. Segir hann lesendur undrandi verða vitni að „ævintýralegri uppfinningasemi“ höfundar. „Eldgos af óhemj- andi frásagnargleði“ - Sextíu kíló af sólskini í Danmörku Hallgrímur Helgason Grimmd og glæpir eru af ýmsum toga og yfirleitt endurspegla glæpa- sögur dekkri hliðar mannlífsins, þar sem ofbeldi ræður för. Steindór Ívarsson nálgast glæpina frá góðu hliðinni með fyrir- gefninguna að leiðarljósi í sögunni Þegar fennir í spor- in með þeim árangri að hið fallega verður ljótleikanum yfirsterkara, ástin nær yfir- höndinni yfir glæpnum. Lífið er margbrotið, en þegar öllu er á botninn hvolft skiptir ekkert meira máli en trú, von og kærleikur. Enginn er fullkominn og í öllum stéttum leyn- ast svartir sauðir. Þegar fennir í sporin er ekki aðeins saga um glæpi heldur falleg frásögn um þolendur og gerendur, þar sem sannleikurinn er sagna bestur. Prestar um víða veröld hafa orðið uppvísir að viðbjóðslegum glæpum en ekki er þar með sagt að alhæfa megi um alla kirkjunnar þjóna á sama hátt. Þeir eru samt breyskir og hafa sinn kross að bera, rétt eins og aðrir þegnar samfélagsins. Séra Róbert Meier, aðalpersóna sögunn- ar, hefur borið harm sinn í hljóði sem kaþólskur prestur í Þýskalandi í 44 ár, en óvænt Íslandsför opnar all- ar flóðgáttir, fortíðin verður ljóslif- andi og hefur áhrif um alla framtíð. Það er kúnst að fyrirgefa þannig að hugur fylgi máli, því það getur verið auðvelt að særa en erfitt að viðurkenna að rangt hafi verið við haft. Því sem liðið er verður ekki breytt, en til þess að öðlast frið í hjartanu þarf að trúa á hið góða og fyrirgefa eigin misgjörðir og annarra. Fyrirgefningin er helstu per- sónum í blóð borin og í henni felst trú á betra líf. Það er ekki lítils virði. Viðbjóðurinn er aldrei langt undan og sumum verður ekki bjargað en umhyggja, ást og kær- leikur skína í gegn og ráða för, þeg- ar allt kemur til alls. Þegar fennir í sporin á því erindi til allra, því þrátt fyrir ofbeldið og misgjörðirnar sem fram koma er það hið góða í fólki sem heldur lífinu gangandi. Því má aldrei gleyma og þess vegna er þessi bók svo kærkomin. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kær Það er „hið góða í fólki sem heldur lífinu gangandi. Því má aldrei gleyma og þess vegna er þessi bók svo kærkomin,“ segir um bók Steindórs. Glæpir og fyrir- gefning syndanna Skáldsaga Þegar fennir í sporin bbbbm Eftir Steindór Ívarsson. Innb. 240 bls. Ástríkur 2021. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.