Morgunblaðið - 13.12.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 13.12.2021, Síða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2021 Söfnum í jólasjóðinn hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Jólasöfnun Guð blessi ykkur öll Titill einnar bókar Þórbergs Þórð- arsonar, æskuminninga úr Suður- sveit, er Steinarnir tala. Titillinn er góður og vissulega eru til margar sögur um steina og annað í náttúru okkar. Í geymslum Náttúrufræði- stofnunar Íslands í Urriðaholti í Garðabæ eru til dæmis steinar sem geimfarar, sem fóru til tunglsins á sínum tíma, tóku með sér til jarðar. Þetta var annars vegar í fyrstu tunglferðinni, leiðangri Neils Arm- strongs og félaga í júlí 1969. Steinar úr þeim leiðangri, sem kallaður var Apolló 11., fóru til margra landa og fyrir hönd Íslendinga veitti forseti Íslands þessari gjöf Bandaríkja- manna viðtöku. Basalt í plasti Þá var Íslendingum árið 1973 gef- inn steinn úr tunglferð árið áður, en 1972 voru tunglferðir Bandaríkja- manna tvær. Sú síðari var í desem- ber það ár og meðal geimfara sem þá voru um borð í Apolló 17. var Harri- son Schmitt. Sá fékk eins og aðrir tunglfarar þessa tíma þjálfun og undirbúning á Íslandi og til upprifj- unar kom hann í heimsókn hingað til lands sumarið 2015. „Steinarnir eru úr tunglbasalti, sem er raunar mjög líkt venjulegu jarðnesku basalti,“ segir Kristján Jónsson, jarðfræðingur hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands og umsjón- armaður steinasafns þess. Tunglsteinarnir eru agnarlitlir og varðveittir í plasthylki, sem festar eru á fjalir sem íslenski fáninn er lagður á. Steinarnir voru fyrst í vörslu forsetaembættisins en seinna færðir Náttúrufræðistofun Íslands. Þeir hafa verið sýndir við valin til- efni, meðal annars í Könnunarsafn- inu á Húsavík. Einnig hafa steinarnir góðu verið sýndir við ýmis tilefni í bandaríska sendiráðinu í Reykjavík. „Já, það má vel hugsa sér að tungl- steinarnir verði sýndir oftar og víðar í framtíðinni. Slíkt er þó allt undir því komið að öryggismál séu í lagi, svo dýrmætir sem þessir gripir eru,“ segir Kristján. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Steinar Kristján Jónasson með gersemar á safni Náttúrufræðistofnunar. - Gefnir Íslendingum fyrir hálfri öld Tunglsteinarnir í öruggri vörslu Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Erfitt getur verið að skrásetja sögu sem enn er að eiga sér stað og verður því þáttaröðin Stormur, sem fjallar um baráttu gegn faraldri Covid-19 hér á landi, ekki sýnd yfir hátíðarnar eins og stóð til. Stefnt er að því að frumsýna þættina á fyrri hluta næsta árs, að sögn Jóhannesar Kr. Kristjánssonar framleið- anda. Með honum starfa þeir Sævar Guðmundsson leikstjóri og Heimir Braga- son klippari. Sá síðastnefndi hefur þurft að horfa á allt mynd- efni sem safnast hefur í sarpinn á hvorki meira né minna en 375 tökudögum. Ríkisútvarpið mun kaupa þættina og frum- sýna þá mögulega yfir páskana, en nú er í það minnsta vitað að ekki er um jólaefni að ræða. „Ég held líka að fólk hafi horft á það að við erum í miðjum faraldri ennþá og fólk er bara orðið dálítið leitt á þessu. Kannski ekki alveg tilbúið að horfa á einhverja seríu um upphafið að þessu og svona,“ segir Jóhannes í samtali við Morgunblaðið. Í vor var gefin út stikla að þáttaröðinni þar sem Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn fellir tár í einlægu viðtali, fjölskyldu í Bolungarvík er fylgt eftir og Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra ræðir viðbrögð við farsóttinni. Áhorf- endur fá að skyggnast á bak við tjöldin og fylgjast með þríeykinu sem var í sviðsljósinu í byrjun faraldursins auk þess sem sýnt er frá aðstæðum á gjörgæslu- og Covid-göngudeild Landspítala. „Við byggjum þessa þætti á persónulegum sögum fólks sem eru mjög sterkar. Þær eru svolítið límið í þessari þáttaröð. Hins vegar er það atburðarásin, eins og hægt er að segja frá henni í sjónvarpi,“ segir hann og bætir við að enn sé verið að vinna efnið. Mörg þúsund klukkutímar af efni Þegar stiklan kom út hefði framleiðendur sennilega ekki órað fyrir því að ástandið yrði eins og raun ber vitni í lok ársins 2021 en Jó- hannes segir þrátt fyrir þetta að búið sé að ákveða endapunkt þáttanna. „Við erum hættir að mynda daglega, eins og við höfum verið að gera. Við erum komnir með endapunkt í þáttunum. Svo er þetta ennþá að gerast og sú saga varðveitist náttúrlega í fjöl- miðlum,“ segir Jóhannes. Eru þeir þá hættir að mynda? „Við dettum inn kannski við og við og erum að mynda pínkulítið. Ef það er eitthvað sem við viljum eiga þá er það það sem gerist í byrjun. Við mynduðum mjög mikið í eitt og hálft ár og þá náðum við efni en það sem er að gerast núna er endurtekið efni,“ segir Jóhannes enda sé komin þjálfun og reynsla í fólk í framvarða- sveitinni. Tökudagar þáttanna eru orðnir 375 eins og áður var getið: „Ég veit ekki um þáttaröð með 375 tökudögum og þeir eiga eftir að verða fleiri, út af viðtölum og fleiru. Ég veit ekki einu sinni hversu margir klukkutímar þetta eru af efni, ég myndi segja fleiri þúsund frekar en fleiri hundruð,“ segir Jóhannes og því ljóst að um ærið verkefni er að ræða. Covid-þáttaröðin dregst á langinn - Þáttaröðin Stormur dregst á langinn, rétt eins og faraldurinn - Áttu að koma út um jólin en koma líklega á fyrri hluta næsta árs - Skyggnast á bak við tjöldin og vilja segja söguna á einlægan hátt Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Langdregið Faraldurinn hefur dregist nokkuð á langinn og heimildaþættirnir feta sama veg. Jóhannes Kr. Kristjánsson Fjórum verslunum Hagkaupa, á Eiðistorgi, Akureyri, í Spönginni og í Smáralind, þurfti að loka um tíma síðdegis í gær vegna bilunar í kassakerfi verslananna. „Við lentum í smá kleinu; við misstum út fjórar búðir af tækni- legum ástæðum sem varð til þess að ekki var hægt að skanna neitt inn. Kassakerfið lá því niðri en nú er bú- ið að leysa málið og allt opið að nýju,“ sagði Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa, í samtali við mbl.is í gær. Um vef- þjónavandamál var að ræða sem Sigurður kunni ekki skil á, en tæknimenn leystu úr því hratt og örugglega. Morgunblaðið/Heiðar Kristjánsson Bilun Kassakerfin fóru á hliðina í gær. Þurftu að loka fjórum verslunum Andrés Magnússon andres@mbl.is Tvö hverfafélög Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hafa ályktað gegn fyrir- liggjandi áformum um borgarlínu og vilja að samgöngusáttmáli höfuð- borgarsvæðisins verði tekinn til end- urskoðunar. „Sjálfstæðismenn í Reykjavík hafa miklar áhyggjur af því hvernig borgarstjórnarmeirihlutinn ætlar að útfæra borgarlínuna, því sú aðferð að þrengja að umferð og taka akrein- ar burt mun ekki leysa umferðar- vandann, heldur þvert á móti,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis- flokksins í borgarstjórn, um þetta, en það eru félög sjálfstæðismanna í Árbæ annars vegar og í Nes- og Melahverfi hins vegar sem hafa ályktað í þessa veru, en hverfin eiga ólíkra hagsmuna að gæta í sam- göngum. Skoðanakannanir sýna að stuðningur við borgarlínu er mestur í miðborginni, en minnkar eftir því sem utar dregur. Sér í lagi er það kostnaðurinn sem vex mönnum í augum, en verkefnið er sagt bæði gífurlega kostnaðar- samt og óarðbært, en einnig að ótímabært sé fyrir Reykjavíkurborg að leggja í slíka fjárfestingu með miklar skuldir á bakinu og óvissu um ávinninginn. Árbæingar benda á að ein megin- hugmynd borgarlínu felist í því að fækka verulega núverandi akreinum almennrar umferðar, sem myndi enn auka á umferðartafir, valda vegfar- endum ómældum kostnaði með óþarfri tímaeyðslu, auk heilsutjóns vegna aukinnar mengunar. Þeir telja að það muni mest bitna á íbúum í efri byggðum borgarinnar og gjaldtakan vegna verkefnisins sömuleiðis. Eyþór tekur undir þetta í samtali við Morgunblaðið. „Það er ekkert í samgöngusátt- málanum sem kallar á þessar þreng- ingar sem Reykjavíkurborg er að ráðgera, og Árni M. Mathiesen, stjórnarformaður Betri samgangna, hefur staðfest það. Hér er verið að misnota samgöngusáttmálann í því skyni að þrengja að almennri umferð að óþörfu.“ Misnota samgöngusáttmála - Hverfafélög gegn borgarlínu - Þrengt að umferð að óþörfu - Einkum kostnaðurinn sem vex mönnum í augum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.