Morgunblaðið - 13.12.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.12.2021, Blaðsíða 32
TTFATADAGAR öt öt Fellsmúli 26| 108 Reykjavík | s i 581-1552 | www.curvy.is Blaðamenn bandaríska bókmenntatímaritsins World Literature Today hafa tekið saman það sem þeir telja 100 eftirtektarverðustu þýðingarnar á enska tungu á árinu 2021 og eru bækur tveggja íslenskra rithöfunda á listanum. Það eru Kvika (Magma) eftir Þóru Hjörleifs- dóttur, sem Meg Matich þýddi, og Sumarljós og svo kemur nóttin (Summer Light, and Then Comes the Night) eftir Jón Kalman Stefánsson í þýðingu Philips Roughtons. Á listanum eru einnig til dæmis bækur eftir Ai Weiwei, Kjell Askildsen, Tove Ditlevsen, Haruki Mura- kami, Olgu Tokarczuk og David Grossman. Sögur Þóru og Jóns Kalmans á lista yfir 100 bestu þýðingarnar á árinu MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 347. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Úrvalsdeildarliðin Haukar, Njarðvík, Breiðablik og fyrstudeildarliðið Snæfell eru búin að tryggja sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni kvenna eftir sigra í átta liða úrslitunum um helgina. Haukar og Njarðvík eru þar tal- in afar sigurstrangleg. Þór frá Þorlákshöfn og Stjarnan eru þá búin að tryggja sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni karla með sigrum í átta liða úrslitunum í gærkvöldi. Síðari tveir leikirnir í átta liða úrslitum fara fram í kvöld. »26 Haukar og Njarðvík til alls líkleg ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Badmintonmeistarinn Broddi Krist- jánsson fékk bronsverðlaun í einliða- leik í flokki 60-65 ára á heimsmeist- aramóti öldunga í Huelva á Spáni. „Ég er formlega hættur keppni en held áfram að leika mér og það kitlar að taka eitt mót til viðbótar,“ segir kappinn, sem fagnaði 61 árs afmæli sínu í liðinni viku, nokkrum dögum eftir að hafa verið á verðlaunapalli. Drífa Harðardóttir og Elsa Nielsen gerðu betur en Broddi og eiga eflaust mikið eftir, en þær urðu heimsmeist- arar í tvíliðaleik kvenna í flokki 40-44 ára auk þess sem Drífa fékk líka gull í tvenndarleik með Jesper Thomsen frá Danmörku. Broddi er sigursælasti Íslending- urinn í meistaraflokki í badminton. Hann hefur samtals 43 sinnum orðið Íslandsmeistari í einliðaleik karla, tvíliðaleik og tvenndarkeppni, þar af 14 sinnum í einliðaleik. Hann hefur líka keppt oftast allra fyrir hönd Ís- lands og verið fulltrúi þjóðarinnar í Evrópukeppni, heimsmeistara- keppni og á Ólympíuleikum. Hann hefur tekið þátt í erlendum aldurs- flokkamótum með góðum árangri eftir að hann hætti keppni á meðal þeirra bestu og alltaf komið heim með verðlaunapening. Hann fékk silfur á EM 2008, gull í +45 ára flokki á HM 2009 þar sem hann var elstur keppenda, brons á HM 2016 og aftur nú. „Ég er ánægður með þriðja sætið því ég verð að taka lík- amann með í reikninginn, það er slit hér og þar.“ Eplið og eikin Undirbúningurinn fyrir svona mót er ekki eins stífur og Broddi átti að venjast þegar hann var upp á sitt besta. Hann reynir að mæta í hóp- tíma tvisvar í viku og hlaupa og styrkja sig þess á milli. „Ég verð að hugsa vel um hvíldina á milli æfinga,“ segir hann. Bætir við að yfirbragðið á aldursflokkamótunum sé mun af- slappaðra en á helstu mótunum og margir keppi bara til þess að vera með. „Það á ekki við um okkur; við mætum alltaf til þess að ná eins góð- um árangri og hægt er.“ Þegar Broddi var sjö ára byrjaði hann að æfa badminton hjá TBR. „Ég fór fyrst á æfingar með for- eldrum mínum og eitt leiddi af öðru,“ segir hann. Bætir við að aðstæður hafi verið frekar frumstæðar fyrstu árin. Fyrst hafi verið æft í Valsheim- ilinu og svo í Álftamýrarskóla og Höllinni áður en TBR-húsin hafi ver- ið tekin í notkun 1976. Hulda Guð- mundsdóttir, móðir Brodda, var margfaldur meistari, en faðirinn, Kristján Benjamínsson, var virkari í félagsmálunum, var til dæmis for- maður TBR og Badmintonsam- bandsins. Eiður Ísak og Andri, synir Brodda og Helgu Þóru Þórarins- dóttur, hafa haldið uppteknum hætti í fjölskyldunni en Helga hefur látið sér nægja að vera í klappliðinu. Sigurviljinn og keppnisskapið hafa drifið meistarann áfram. „Þegar ég hef tapað inn á milli hef ég alltaf náð að koma tvíefldur til baka í næsta mót.“ Broddi segir að ákveðnin skili sér áfram inn í aldursflokkamótin. „Hún eldist ekki af manni og þetta er alltaf jafn gaman en ég verð reyndar svolítið pirraður þegar meiðsli setja strik í reikninginn. Ég væri til í að vera aðeins minna slitinn og verð að sjá til með framhaldið.“ Á Spáni Broddi Kristjánsson, Drífa Harðardóttir og Elsa Nielsen með verðlaunapeningana eftir mótið. Gullið togar í Brodda - Þrjú á palli á heimsmeistaramóti öldunga í badminton

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.