Morgunblaðið - 13.12.2021, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2021
Jólastress Nú fer stressið fyrir jólin að gera vart við sig hjá mörgum. Það var engan bilbug að finna á þessum svartþresti í Hellisgerði og söng hann sitt ljúfa lag, laus við allt jólastress.
Eggert
Stjórmálauppgjöri
haustsins hérlendis er
nú lokið með endurnýj-
un á samstarfi flokk-
anna þriggja sem
tryggðu sér aukinn
þingmeirihluta í kosn-
ingunum 25. sept-
ember. Eftir nær fjög-
urra ára farsæla stjórn
þessara þriggja ólíku
flokka stefnir í annað
kjörtímabil undir for-
sæti Katrínar Jakobsdóttur. Það
skiptir máli fyrir litla þjóð að eiga völ
á slíkri forystu. Þessi niðurstaða lá í
loftinu löngu fyrir alþingiskosning-
arnar þar eð engin ný og stórvægileg
ágreiningsmál höfðu komið upp milli
stjórnarflokkanna, ef hálendis-
þjóðgarður er undanskilinn. Meiri-
hluti með 38 þingsætum tryggir
stjórninni óvenju öruggan þingstyrk
ef samstaða er um málefnagrundvöll.
Helstu flokkar í stjórnarandstöðu,
Samfylking, Viðreisn og Píratar, eru
einnig ólíkir innbyrðis en stefna
þeirra um aðild að Evrópusamband-
inu tengir þá saman. Sú stefna nýtur
nú hins vegar langtum minna fylgis
hérlendis en stundum áður. Við-
fangsefnin sem bíða endurnýjaðrar
ríkisstjórnar eru hins vegar mörg og
vandasöm og þar ber hæst loftslags-
málin og aðlögun atvinnulífs og
vinnumarkaðar að breyttum ytri skil-
yrðum. Er þá undanskilið að innan
tíðar sjái fyrir endann á
veirufaraldrinum.
Víðtækur sáttmáli
Forysta stjórnar-
flokkanna gerði rétt í að
nýta tímann í kjölfar
kosninga til að bera sig
saman um víðtækar
megináherslur í kom-
andi samstarfi. Þar seg-
ir í upphafi:
Við tökumst á við all-
ar áskoranir með hag
almennings að mark-
miði. Við trúum því að
velsæld verði best tryggð með traust-
um efnahag, jöfnum tækifærum og
aðgerðum í þágu nýsköpunar, um-
hverfis og loftslags. Skipan ráðu-
neyta tekur mið af þessari sameigin-
legu sýn nýrrar ríkisstjórnar.
Við viljum skapa sátt um nýtingu
auðlinda. Við leggjum áherslu á bar-
áttuna við loftslagsbreytingar með
samdrætti í losun, orkuskiptum og
grænni fjárfestingu. Um leið er það
verkefni okkar að búa íslenskt sam-
félag undir aukna tæknivæðingu auk
þess að tryggja áframhaldandi lífs-
kjarasókn allra kynslóða. Áhersla
verður lögð á jafnvægi efnahags-
legra, samfélagslegra og umhverfis-
legra þátta.
Síðan er fjallað um „Verkefni nýrr-
ar ríkisstjórnar“ og „Stóru áskor-
anirnar“ lið fyrir lið. Með þessu er
fengin ákveðin málefnaleg fótfesta
þegar kemur að útfærslu einstakra
verkefna, hvort sem er með löggjöf
eða framkvæmd á vegum einstakra
ráðuneyta. Tilfærsla verkefna innan
stjórnarráðsins kann sumpart að
orka tvímælis, en er ótvírætt gagnleg
í mörgum tilvikum eins og uppskipt-
ing verkefna menntamálaráðuneyt-
isins er gott dæmi um.
Stjórnarskiptin í Þýskalandi
Þingkosningar fóru fram í Þýska-
landi degi síðar en hérlendis sl. haust.
Stjórnarmyndun í kjölfarið lauk í síð-
ustu viku með myndun þriggja flokka
stjórnar líkt og hér, en undir forystu
sósíaldemókratans Olafs Scholz. Með
krötum eru í stjórninni Græningjar
og Frjálsir demókratar. Sögulegustu
tíðindi kosninganna voru mikið tap
kristilegra, sem oftast hafa haldið um
stjórnartaumana í Þýskalandi eftir
seinna stríð, í fyrstu um áratugi undir
forystu Konrads Adenauers og und-
anfarin 16 ár undir leiðsögn Angelu
Merkel, prestsdóttur frá Austur-
Þýskalandi og fyrstu konu til að
gegna slíku embætti þarlendis.
Hennar verður lengi minnst fyrir
stjórnkænsku, m.a. að hafa beitt sér
fyrir að loka öllum kjarnorkuverum
þarlendis, sem lengi hafði verið eitt
helsta baráttumál Græningja. Flokk-
ur þeirra kemur nú inn í ríkis-
stjórnina, m.a. með Robert Habeck
sem ráðherra efnahags- og loftslags-
mála og Önnulenu Baerbock sem
utanríkisráðherra. Afar róttækar
breytingar eru þar fyrirhugaðar á
efnahags- og umhverfissviði, m.a.
með því að útrýma kolum sem orku-
gjafa og innleiða vistvæna orku í
staðinn næsta áratuginn.
Geislavirkur úrgangur
frá kjarnorkuverum
Á sama tíma og Þjóðverjar kveðja
kjarnorku sem orkugjafa er allt ann-
að upp á teningnum í Frakklandi.
Þar leggja kjarnorkuver til 36%
orkunotkunar og Macron forseti boð-
ar nú byggingu nýrra kjarnorkuvera,
jafnvel allt að sex talsins, til að
tryggja kolefnishlutleysi um miðja
öldina. Mjög hægði á byggingu
kjarnorkuvera eftir slysið í Harr-
isburg í Bandaríkjunum 1979 og enn
frekar eftir Tsjernóbyl 1986 og
Fukushima 2011. Nú fjölgar hins
vegar þeim ríkjum sem hyggjast tak-
marka losun CO2 í framtíðinni með
byggingu kjarnorkuvera, m.a. er
Indland stórtækt í slíkum áætlunum.
Allt eru það ótíðindi, því að þótt ekki
komi CO2-losun þar við sögu er
geislavirkur úrgangur frá slíkum
kjarnorkuverum mikið og óleyst
vandamál og sem mestu réði um
ákvörðun Þjóðverja. Með stórfjölgun
slíkra orkuvera er því verið að fara úr
öskunni í eldinn.
Varðveitum íslenska sérstöðu
Við Íslendingar búum við hagstæð
skilyrði þegar kemur að orkumálum,
með vatnsafl og jarðvarma sem orku-
gjafa. Við nýtingu þeirra ber að taka
ríkulegt tillit til umhverfis- og nátt-
úruverndar og hafna öllum hug-
myndum um útflutning raforku með
sæstreng.
Í sáttmálanum um endurnýjað rík-
isstjórnarsamstarf segir m.a.:
Markmiðið er að Ísland nái kolefn-
ishlutleysi og fullum orkuskiptum
eigi síðar en árið 2040 og verði þá
óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja.
Ríkisstjórnin mun ekki gefa út nein
leyfi til olíuleitar í efnahagslögsögu
Íslands. Stjórnvöld munu í samráði
við sveitarfélög og atvinnulífið setja
áfangaskipt losunarmarkmið fyrir
hvern geira.
Sátt verður að ríkja um nýjar
virkjanir til að byggja upp grænt og
kolefnishlutlaust samfélag. Mestu
skiptir að það verði gert af varfærni
gagnvart viðkvæmri náttúru landsins
og í takt við vaxandi orkunotkun
samhliða útfösun jarðefnaeldsneytis,
til að mæta fólksfjölgun og þörfum
grænnar atvinnuuppbyggingar.
Einnig þarf að horfa til betri orku-
nýtingar, minnka tap í orkukerfinu
og bæta nýtingu í virkjunum sem fyr-
ir eru.
Undir slíka stefnu er hægt að taka,
en sjálf framkvæmdin ræður úrslit-
um.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Forysta stjórnar-
flokkanna gerði
rétt í að nýta tímann
í kjölfar kosninga til
að bera sig saman
um megináherslur.
Hjörleifur
Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Mikilvæg stefnumótun nýrrar ríkisstjórnar