Morgunblaðið - 13.12.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2021
HÁDEGISMATUR alla daga ársins
Bakkamatur
fyrir fyrirtæki og mötuneyti
Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum,
sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt,
einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum
fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is
SKÚTAN
Matseðill og nánari upplýsingar á
veislulist.is
80 ÁRA Rúrí, eins og hún
er alltaf kölluð, ólst upp í
miðbæ Reykjavíkur. „Ég
var sex sumur á Hólmavík
hjá guðforeldrum mínum,
Sigurði Ólasyni lækni og
Herdísi Elínu Steingríms-
dóttur konu hans. Síðar
dvaldi ég oft á Reykjum á
Reykjaströnd í Skagafirði.“
Rúrí fór 17 ára til
Bandaríkjanna, en hún
hafði unnið samkeppni um
háskólastyrk við háskóla í
Kalamazoo í Michigan. „Ég
var eitt ár í Kalamazoo
College en hélt heim eftir
15 mánaða dvöl og lauk svo
stúdentsprófi með árgangi
mínum í MR.“
Rúrí nam ensku og latínu
við HÍ, en síðar hélt hún til
Kanada og lauk meist-
araprófi í klínískri sálfræði og síðar doktorsprófi í taugasálfræði.Hún starf-
aði við geðdeild og taugadeild á Landspítalanum og var einnig með stofu,
en hafði einnig unnið sem sálfræðingur í Kanada.
Helstu áhugamál Rúríar eru tónlist og lestur. „Ég hef verið hrifin af
klassískri tónlist frá því ég var fjögurra ára og lærði snemma á píanó. Ég
hef lagt mig eftir að læra tungumál og get því lesið á nokkrum tungu-
málum.“
FJÖLSKYLDA Fyrri eiginmaður Rúríar var Gylfi Baldursson, f. 1937, d.
2010, heyrnar- og talmeinafræðingur. Börn þeirra: Arngunnur Ýr, f. 1962,
Bryndís Halla, f. 1964, Gunnhildur Sif, f. 1967, d. 1987, Baldur, f. 1969, og
Yrsa Þöll, f. 1982. Seinni eiginmaður Rúríar var Grétar Guðmundsson, f.
1944, d. 2020, taugalæknir. Foreldrar Rúríar voru Vilborg Guðjónsdóttir, f.
1909, d. 1982, skrifstofumær og afgreiðslukona, og Jón Níels Jóhannsson, f.
1909, d. 1975, bifreiðastjóri og lagermaður.
Þuríður Rúrí Jónsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú ert í góðum samböndum og
ættir að notfæra þér þau til að koma góð-
um málum á framfæri. Teldu upp fimm
góða eiginleika sem þú hefur.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú þarft að verja sjálfa/n þig betur
og hætta að hafa svona miklar áhyggjur af
öðru fólki. Einbeittu þér að framtíðinni.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú þarft að sýna þolinmæði og
tillitsemi í samtölum við vini í dag. Öllu
gamni fylgir alltaf nokkur alvara.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þótt þú viljir hjálpa vinum með allt,
þá getur það komið í veg fyrir að þeir læri
sjálfir að bjarga sér. Aðgát skal höfð í nær-
veru sálar.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er mikil neikvæðni í loftinu í dag
og líklegt að hún hafi áhrif á þig eins og
aðra. Fyrrverandi samstarfsmenn þínir
koma þér á óvart.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Leyndarmálið bakvið hamingjuna er
ekki flókið. Ekki leita langt yfir skammt. Ef
þú berð í hjarta þér sorg gamallar ástar,
reiði eða biturð, þá er núna rétti tíminn til
sleppa takinu.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Láttu þig dreyma! Þú tapar engu á því
að dvelja í dagdraumum. Vinur sem á í
vandræðum leitar til þín um hjálp.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Ný verkefni byrja meiriháttar
vel, en þú veist betur en nokkur annar að
endirinn skiptir mestu. Reyndu að vinna
aðra á þitt band.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Gefðu þér tíma til útiveru því
það hressir upp á sálarlífið. Tilvonandi
tengdaforeldrar sýna þér hvaða eiginleika
verðandi maki geymir.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Dagurinn verður með rólegasta
móti. Allir munu njóta þess að fá hól frá þér
í dag og heillandi persónuleiki þinn sýnir
öllum hve einlæg/ur þú ert.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Einhver gæti rétt þér hjálpar-
hönd í vinnunni í dag, sá allra ólíklegasti.
Vinsældir þínar sem yfirmanns stigmagn-
ast. Þú lest vel í framkomu og orð.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þér sárna ummæli sem falla í sam-
tali innan fjölskyldunnar. Ef einhver skuldar
þér peninga skaltu ekki draga það lengi að
rukka viðkomandi.
niður í kjölfar fjármálahrunsins og
í upphafi árs 2010 hóf Ásgeir að
starfa fyrir kanadíska orkufyr-
irtækið Magma Energy. „Ég
byggði upp starfsemi þess á Ís-
landi, ekki síst varðandi fjárfest-
ingu í HS Orku.“ Ásgeir var
stjórnarformaður HS Orku 2010-
2013 og tók við starfi forstjóra HS
Orku í ársbyrjun 2014 og sinnti
því starfi fram í árslok 2019. Hann
hefur sinnt stjórnarsetu og stjórn-
ur íslensk orku- og tæknifyrirtæki
og var um tíma stjórnarformaður
Enex. Ég ferðaðist í þessu skyni
víða um heim og m.a. oft til Kína,
þar sem fyrstu skrefin voru tekin í
nútímahitaveituvæðingu í Kína þar
sem íslensk þekking var nýtt.“
Í ársbyrjun 2007 tók Ásgeir við
starfi forstjóra Geysis Green
Energy, nýs fyrirtækis sem fjár-
festi í orkuverkefnum víða um
heim. Starfsemi Geysis var lögð
Á
sgeir Margeirsson
fæddist 13. desember
1961 í Keflavík og ólst
þar upp. Hann var í
sveit í Kjarnholtum í
Biskupstungum og vann í æsku
sumarstörf við fiskvinnslu, á
Keflavíkurflugvelli og á sjó.
Ásgeir gekk í Barnaskólann og
Gagnfræðaskólann í Keflavík og
lauk stúdentsprófi frá Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja af eðlisfræði-
braut vorið 1980. Hann kenndi við
Gagnfræðaskólann á Ísafirði vet-
urinn 1980-81. Hann stundaði nám
í byggingarverkfræði við Háskóla
Íslands, lauk C.Sc.-prófi vorið
1985. Hann vann á sumrum með
námi við virkjanaframkvæmdir á
Suðurlandi.
Ásgeir vann á Verkfræðistofu
Stanleys Pálssonar 1985-1986, en
síðan flutti fjölskyldan til Lundar í
Svíþjóð sumarið 1986 og Ásgeir
hóf nám við Tækniháskólann í
Lundi. Hann lauk þaðan
Lic.Techn.-prófi í framkvæmda-
fræði sumarið 1989. Hann starfaði
á sumrum á háskólanum og hjá
verktakafyrirtækinu Skanska.
Fjölskyldan fluttist heim sum-
arið 1989 og settist að í Hafn-
arfirði. Ásgeir hóf störf hjá SH
Verktökum og starfaði þar til árs-
loka 1992 við byggingarfram-
kvæmdir á höfuðborgarsvæðinu og
í Blönduvirkjun. Hann starfaði hjá
Eimskip við gámarekstur 1993 og
1994, en í ársbyrjun 1995 hóf hann
störf sem tæknistjóri Jarðborana
hf. „Ég stjórnaði borverkefnum
fyrirtækisins á Íslandi, á Írlandi
og á Asoreyjum.“ Það með var
Geiri kominn í orkugeirann.
Í ársbyrjun 2000 tók Ásgeir við
starfi aðstoðarforstjóra Orkuveitu
Reykjavíkur. „Megináherslur í
starfinu voru varðandi rekstur og
framkvæmdir tengdar veitum og
orkuframkvæmdum. Ég kom t.a.m.
að útvíkkun á hitaveitu- og vatns-
veiturekstri Orkuveitunnar á Suð-
ur- og Vesturlandi og uppbygg-
ingu orkuvera á Hengilssvæðinu.
Sinnti einnig starfsemi Orkuveit-
unnar er laut að útflutningi á
tækniþekkingu í samstarfi við önn-
arformennsku í fjölmörgum fé-
lögum í allmörgum löndum.
Frá 2020 hefur Ásgeir starfað
sem ráðgjafi hjá eigin félagi sem
ber nafn sveitaseturs fjölskyld-
unnar og heitir Unnarholt. „Þar
sinni ég ýmsum verkefnum er snúa
að orkumálum, skipulags- og bygg-
ingarmálum og ýmsum rekstrar-
tengdum verkefnum. Ég hef notið
þess að hafa ástríðu fyrir verkefn-
unum hverju sinni.“
Ásgeir hefur sinnt fjölmörgum
félagsstörfum í gegnum árin, var
t.a.m. gjaldkeri Nemendafélags
Fjölbrautaskóla Suðurnesja, var
formaður tennisdeildar Badminton-
félags Hafnarfjarðar í sjö ár, sat í
stjórn Tennissambands Íslands
og var með dómararéttindi í tennis.
Hann hefur unnið mikið að fé-
lagsmálum hestamanna, setið í
ýmsum nefndum á vegum Lands-
sambands hestamannafélaga og í
stjórn Hestamannafélagsins Sörla,
sem veitti honum nýlega gullmerki
fyrir vel unnin störf að uppbygg-
ingarmálum félagsins. Hann sat í
nokkur ár í stjórn meistaradeild-
arinnar í hestaíþróttum.
Helstu áhugamál Ásgeirs á fyrri
árum voru skíði og hestamennska
en nú eru það hestamennska og
fluguveiði. „Það er þó sagt með
þeim fyrirvara að fjölskyldan er að-
aláhugamálið. Svo hefur vinnan og
hrein orkuvinnsla hefur líka verið
mikið áhugamál, og í raun ástríða
hjá mér. Frænkur mínar kalla mig
gjarnan Orkugeira.
Hestamennskan er í raun mun
meira en áhugamál, hjá okkur er
hún lífsstíll sem hefur markað djúp
og góð spor í fjölskylduna, enda
eru tveir sonanna þriggja menntað-
ir í hestamennsku og búvísindum.
Sá sonanna sem ekki er hestamað-
ur er verkfræðingur. Ég tók fyrir
nokkrum árum upp á því að keppa
í hestaíþróttum. Sú áskorun var
stór og hefur veitt mér ómælda
ánægju og framför á því sviði, eftir
að hafa verið „útreiðakall“ í 40 ár.“
Fjölskylda
Eiginkona Ásgeirs er Sveinbjörg
Einarsdóttir, f. 20.12. 1955, hjúkr-
Ásgeir Margeirsson, verkfræðingur og ráðgjafi – 60 ára
Fjölskyldan Samankomin í sveitinni sumarið 2021 á tveggja ára afmæli
Þóru Guðrúnar. Með á myndinni eru mæður hjónanna.
Gjarnan kallaður Orkugeiri
Hestamaðurinn Ásgeir á fyrstuverð-
launahryssunni Hildi frá Unnarholti.
Veiðimaðurinn Sæll með fenginn á
bökkum Eystri-Rangár.
Til hamingju með daginn