Morgunblaðið - 13.12.2021, Page 15

Morgunblaðið - 13.12.2021, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2021 Jólastress Nú fer stressið fyrir jólin að gera vart við sig hjá mörgum. Það var engan bilbug að finna á þessum svartþresti í Hellisgerði og söng hann sitt ljúfa lag, laus við allt jólastress. Eggert Stjórmálauppgjöri haustsins hérlendis er nú lokið með endurnýj- un á samstarfi flokk- anna þriggja sem tryggðu sér aukinn þingmeirihluta í kosn- ingunum 25. sept- ember. Eftir nær fjög- urra ára farsæla stjórn þessara þriggja ólíku flokka stefnir í annað kjörtímabil undir for- sæti Katrínar Jakobsdóttur. Það skiptir máli fyrir litla þjóð að eiga völ á slíkri forystu. Þessi niðurstaða lá í loftinu löngu fyrir alþingiskosning- arnar þar eð engin ný og stórvægileg ágreiningsmál höfðu komið upp milli stjórnarflokkanna, ef hálendis- þjóðgarður er undanskilinn. Meiri- hluti með 38 þingsætum tryggir stjórninni óvenju öruggan þingstyrk ef samstaða er um málefnagrundvöll. Helstu flokkar í stjórnarandstöðu, Samfylking, Viðreisn og Píratar, eru einnig ólíkir innbyrðis en stefna þeirra um aðild að Evrópusamband- inu tengir þá saman. Sú stefna nýtur nú hins vegar langtum minna fylgis hérlendis en stundum áður. Við- fangsefnin sem bíða endurnýjaðrar ríkisstjórnar eru hins vegar mörg og vandasöm og þar ber hæst loftslags- málin og aðlögun atvinnulífs og vinnumarkaðar að breyttum ytri skil- yrðum. Er þá undanskilið að innan tíðar sjái fyrir endann á veirufaraldrinum. Víðtækur sáttmáli Forysta stjórnar- flokkanna gerði rétt í að nýta tímann í kjölfar kosninga til að bera sig saman um víðtækar megináherslur í kom- andi samstarfi. Þar seg- ir í upphafi: Við tökumst á við all- ar áskoranir með hag almennings að mark- miði. Við trúum því að velsæld verði best tryggð með traust- um efnahag, jöfnum tækifærum og aðgerðum í þágu nýsköpunar, um- hverfis og loftslags. Skipan ráðu- neyta tekur mið af þessari sameigin- legu sýn nýrrar ríkisstjórnar. Við viljum skapa sátt um nýtingu auðlinda. Við leggjum áherslu á bar- áttuna við loftslagsbreytingar með samdrætti í losun, orkuskiptum og grænni fjárfestingu. Um leið er það verkefni okkar að búa íslenskt sam- félag undir aukna tæknivæðingu auk þess að tryggja áframhaldandi lífs- kjarasókn allra kynslóða. Áhersla verður lögð á jafnvægi efnahags- legra, samfélagslegra og umhverfis- legra þátta. Síðan er fjallað um „Verkefni nýrr- ar ríkisstjórnar“ og „Stóru áskor- anirnar“ lið fyrir lið. Með þessu er fengin ákveðin málefnaleg fótfesta þegar kemur að útfærslu einstakra verkefna, hvort sem er með löggjöf eða framkvæmd á vegum einstakra ráðuneyta. Tilfærsla verkefna innan stjórnarráðsins kann sumpart að orka tvímælis, en er ótvírætt gagnleg í mörgum tilvikum eins og uppskipt- ing verkefna menntamálaráðuneyt- isins er gott dæmi um. Stjórnarskiptin í Þýskalandi Þingkosningar fóru fram í Þýska- landi degi síðar en hérlendis sl. haust. Stjórnarmyndun í kjölfarið lauk í síð- ustu viku með myndun þriggja flokka stjórnar líkt og hér, en undir forystu sósíaldemókratans Olafs Scholz. Með krötum eru í stjórninni Græningjar og Frjálsir demókratar. Sögulegustu tíðindi kosninganna voru mikið tap kristilegra, sem oftast hafa haldið um stjórnartaumana í Þýskalandi eftir seinna stríð, í fyrstu um áratugi undir forystu Konrads Adenauers og und- anfarin 16 ár undir leiðsögn Angelu Merkel, prestsdóttur frá Austur- Þýskalandi og fyrstu konu til að gegna slíku embætti þarlendis. Hennar verður lengi minnst fyrir stjórnkænsku, m.a. að hafa beitt sér fyrir að loka öllum kjarnorkuverum þarlendis, sem lengi hafði verið eitt helsta baráttumál Græningja. Flokk- ur þeirra kemur nú inn í ríkis- stjórnina, m.a. með Robert Habeck sem ráðherra efnahags- og loftslags- mála og Önnulenu Baerbock sem utanríkisráðherra. Afar róttækar breytingar eru þar fyrirhugaðar á efnahags- og umhverfissviði, m.a. með því að útrýma kolum sem orku- gjafa og innleiða vistvæna orku í staðinn næsta áratuginn. Geislavirkur úrgangur frá kjarnorkuverum Á sama tíma og Þjóðverjar kveðja kjarnorku sem orkugjafa er allt ann- að upp á teningnum í Frakklandi. Þar leggja kjarnorkuver til 36% orkunotkunar og Macron forseti boð- ar nú byggingu nýrra kjarnorkuvera, jafnvel allt að sex talsins, til að tryggja kolefnishlutleysi um miðja öldina. Mjög hægði á byggingu kjarnorkuvera eftir slysið í Harr- isburg í Bandaríkjunum 1979 og enn frekar eftir Tsjernóbyl 1986 og Fukushima 2011. Nú fjölgar hins vegar þeim ríkjum sem hyggjast tak- marka losun CO2 í framtíðinni með byggingu kjarnorkuvera, m.a. er Indland stórtækt í slíkum áætlunum. Allt eru það ótíðindi, því að þótt ekki komi CO2-losun þar við sögu er geislavirkur úrgangur frá slíkum kjarnorkuverum mikið og óleyst vandamál og sem mestu réði um ákvörðun Þjóðverja. Með stórfjölgun slíkra orkuvera er því verið að fara úr öskunni í eldinn. Varðveitum íslenska sérstöðu Við Íslendingar búum við hagstæð skilyrði þegar kemur að orkumálum, með vatnsafl og jarðvarma sem orku- gjafa. Við nýtingu þeirra ber að taka ríkulegt tillit til umhverfis- og nátt- úruverndar og hafna öllum hug- myndum um útflutning raforku með sæstreng. Í sáttmálanum um endurnýjað rík- isstjórnarsamstarf segir m.a.: Markmiðið er að Ísland nái kolefn- ishlutleysi og fullum orkuskiptum eigi síðar en árið 2040 og verði þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. Ríkisstjórnin mun ekki gefa út nein leyfi til olíuleitar í efnahagslögsögu Íslands. Stjórnvöld munu í samráði við sveitarfélög og atvinnulífið setja áfangaskipt losunarmarkmið fyrir hvern geira. Sátt verður að ríkja um nýjar virkjanir til að byggja upp grænt og kolefnishlutlaust samfélag. Mestu skiptir að það verði gert af varfærni gagnvart viðkvæmri náttúru landsins og í takt við vaxandi orkunotkun samhliða útfösun jarðefnaeldsneytis, til að mæta fólksfjölgun og þörfum grænnar atvinnuuppbyggingar. Einnig þarf að horfa til betri orku- nýtingar, minnka tap í orkukerfinu og bæta nýtingu í virkjunum sem fyr- ir eru. Undir slíka stefnu er hægt að taka, en sjálf framkvæmdin ræður úrslit- um. Eftir Hjörleif Guttormsson » Forysta stjórnar- flokkanna gerði rétt í að nýta tímann í kjölfar kosninga til að bera sig saman um megináherslur. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Mikilvæg stefnumótun nýrrar ríkisstjórnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.